Morgunblaðið - 15.08.2000, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 15.08.2000, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR lö. ÁGÚST 2000 49 MINNINGAR - ur í land þar sem hún hefur búið síð- an. Þótt hún flytti norður, sem þá var bara ansi langt í burtu, slitnuðu vin- áttuböndin ekki. Við fylgdumst vel með hvor annarri, og hittumst þegar færi gafst. Það var gott að heimsækja Siggu og Bjarna. Okkur nöfnunum fannst gott að sitja og spjalla og þá var oft mikið hlegið. Já, hlegið, því Sigga hafði næmt skopskyn og einstakt lag á að sjá spaugilegu hliðamar á ýms- um málum og koma manni í gott skap. Einhvem veginn er það svo í minningunni að alltaf hafi verið sól þegar við Sigga hittumst. Þó er nokk- uð víst að svo hefur ekki verið en þannig nærvem hafði þessi góða vin- kona að sól, birta og gleði einkenna allar minningar um okkar fundi. Við ræddum oft um hvað tæki við eftir þetta jarðlíf og voram þar á sama máli svo ég er ekki í nokkram vafa að þegar röðin kemur að mér munum við hittast aftur. Þangað til munu góðar minningar um góða vin- konu ylja mér og mínum. Bjami minn og Siggu-böm. Þið eigið alla mína samúð því ykkar er missirinn mestur en minningamar um góða eiginkonu og móður tekur enginn frá ykkur. Guð blessi minningu Siggu á Sval- barði. Sigríður Gróa Einarsdóttir (Dista). Kveðja frá Kvenfélagi Svalbarðsstrandar Hnígur bráðum haustsins þungi á heiði, bæi og lönd. Svífur núna sorgardrungi að Svalbarðsströnd. „Hún Sigga á Svalbarði kvaddi í gærkvöld." Þessar fréttir bárast okk- ur með morgunkaffinu síðastliðinn miðvikudagsmorgun. Og þó að við vissum, að hún var lengi búin að berj- ast hetjulegri baráttu við erfiðan sjúkdóm koma svona fréttir alltaf jafn mikið á óvart. Sigríður Guðmundsdóttir á Sval- barði fæddist í Reykjavík 10. júní 1939. Borgarbam en búkona fram í fingurgóma. Hún og eftirlifandi mað- ur hennar Bjami Hólmgrímsson frá Ystuvík, bjuggu stórbúi á Svalbarði um margra ára skeið. Þar ólu þau upp börnin sín fimm og nú er afkom- endahópurinn orðinn stór. Á Svalbarði var oft mannmargt og gestkvæmt, í og með vegna þeirra miklu félagsstarfa sem þau hjónin sinntu fyrir sveit sína. En alltaf var jafn gott að koma í Svalbarð og alltaf tekið á móti okkur með hlýju og gestrisni. Stuttu eftir að þau hjónin hófu bú- skap á Svalbarði gekk Sigríður í Kvenfélag Svalbarðsstrandar og var þar félagi alla tíð síðan. Hún gegndi trúnaðarstörfum fyrir félagið flest þau ár, enda mikil driffjöður í starfi þess. Kvenfélagsmál voru henni hjartans mál og hún sinnti þeim ætíð af dugnaði og samviskusemi sem henni var lagin. „Við getum þetta,“ heyrðist frá Siggu þegar fámennur hópurinn efaðist eitthvað um burði sína til að takast á við hin ýmsu verk- efni sem félaginu bárast. Við félagssystur hennar eigum eft- ir að sakna hennar mikið, bæði sem kvenfélagskonu og vinkonu. En við lærðum af henni að hugsa vel um fé- lagið okkar, og svo eigum við svo mikið, mikið af góðum minningum. Við biðjum algóðan Guð að styrkja og hugga ástvini hennar alla. Áhendurfelþúhonum sem himnastýrirborg, þaðallteráttuívonum ogallterveldursorg. Hann bylgjur getur bundið ogbugaðstormaher, hann fótstíg getur fundið sem fær sé handa þér. (B.H.) Kæra vinkona, hjartans þakkir fyrir allt. mt Legsteinar í Lundi SÖLSTEINAR við Nýbýlaveg, Kópavogi t Ástkær dóttir okkar og systir, FJÓLA KRISTÍN SVANBERGSDÓTTIR, Vesturbergi 100, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fella og Hólakirkju mið vikudaginn 16. ágúst kl. 13.30. Elsa Ingibjörg Svavarsdóttir, Svanberg Teitur Ingimundarson, Lilja Matthíasdóttir, Hafþór Ingi Svanbergsson, Kári Þorsteinn Kárason, Sóley Ingunn Svanbergsdóttir, Viktor Valur Kárason. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANNES SIGFÚSSON, Engihjalla 1, Kópavogi, áður til heimilis á Álfaskeiði 70, Hafnarfirði, sem lést mánudaginn 7. ágúst, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu- daginn 17. ágúst kl. 13.30. Kristín Sigurðardóttir, Sigríður V. Jóhannesdóttir, Stefán Baldursson, Sigfús Jóhannesson, Guðbjörg Árnadóttir, Sigurlaug J. Jóhannesdóttir, Sigurður Þ. Karlsson, Sigurður G. Jóhannesson, Yvonne Williams, Sigþór Ö. Jóhannesson, Gíslína G. Hinriksdóttir, Sigrún Ósk Jóhannesdóttir, Ólafur Kr. Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda faðir og afi, HJÁLMAR KRISTIANSEN, Álftarima 3, Selfossi, lést á heimili sínu 12. ágúst síðastliðinn. Guðrún Steindórsdóttir, Gunnar Svanur Hjálmarsson, Guðrún Katla Kristjánsdóttir, Margrét Anna Hjálmarsdóttir, Jón Rúnar Gíslason, Dóra Kristín Hjálmarsdóttir, Magnús Hafsteinsson og barnabörn. t Kæru ættingjar mínir, vinir og vandamenn. Með hrærðum huga sendi ég ykkur öllum álúðarþakkir fyrir hlýhug og góðar hugsanir sem þið sýnduð í veikindum DAGNÝJARJÓNSDÓTTUR, Hraunbæ 58, Reykjavík, með blómasendingum, kveðjum og heimsóknum. Henni þótt afar vænt um það góða hugarþel sem fylgdi í þeim miklu og alvarlegu veikindum sem hún gekk í gegnum. Ég flyt ykkur innilegustu þakkir fyrir þá samúð sem við fundum og huggunarríku orð sem við urðum aðnjótandi í sorg okkar þegar yfir lauk. Fyrir hönd barna minna, tengdabarna og barnabarna. Hörður S. Óskarsson. r ! ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarssoti útfararstjóri, sími 896 8242 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is t Elskulegur unnusti minn, faðir okkar, sonur og bróðir, KARL FRÍMANN ÓLAFSSON, Stigahlíð 4, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju miðviku- daginn 16. ágúst kl. 13.30. Inga Lára Reimarsdóttir, Sandra Ósk og Anton Freyr, Ólafur Lúther Kristjánsson, Sesselja Margrét Karlsdóttir, Ríkharður Björnsson, Kolbrún Kristín Ólafsdóttir, Erna Ólína Ólafsdóttir, Kristján Björn Ólafsson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GUÐRÚN ESTER BJÖRNSDÓTTIR, Austurbergi 30, Reykjavík, sem lést á Líknardeild Landsþítalans í Kóþa- vogi fimmtudaginn 10. ágúst, verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á hjúkrunarþjónustu Karitasar og Líknardeild Land- spítalans í Kópavogi. Páll Aðalsteinsson, Björn S. Pálsson, Guðbjörg Þórðardóttir, Anna Lilja Pálsdóttir, Arnþór Ævarsson, Sæmundur Pálsson, Sóley Stefánsdóttir og barnabörn. S t ' "4,*A ■ííé ■ * Elskulegur eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN BRYNGEIRSSON verksmiðjustjóri frá Búastöðum, Vestmannaeyjum, Heiðvangi 30, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í dag, þriðjudaginn 15. ágúst, kl. 13.30. Hrafnhildur Helgadóttir, Skarphéðinn Haraldsson, Guðrún E. Guðmundsdóttir, Dagur Jónsson, Jóhanna Berentsdóttir, Lovísa A. Jónsdóttir, Þorleifur Kr. Alfonsson, Eyjólfur G. Jónsson, Karen B. Guðjónsdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, STEINUNN ÁGÚSTA ÓLAFSDÓTTIR, Sæviðarsundi 29, Reykjavík, er lést þriðjudaginn 8. ágúst sl., verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 16. ágúst kl. 15.00. Hreinn Helgason, Jónas Sigurður Hreinsson, Valdís Oddgeirsdóttir, Ólafur Helgi Hreinsson, Helga Þormóðsdóttir, Steinar Hreinn Jónasson og Elmar Helgi Ólafsson. t Þökkum innilega öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna and- láts, SESSELJU JÓHÖNNU GUÐNADÓTTUR, Skipholti 44, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins, læknum og starfs- fólki krabbameinsdeildar Landspítalans, 11E og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi, sem önnuðust hana í erfiðum veikindum. Megi blessun fylgja störfum ykkar. Guðmundur Ibsen, börn, tengdabörn og barnaböm. Sími 564 4566
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.