Morgunblaðið - 15.08.2000, Side 67

Morgunblaðið - 15.08.2000, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 6 7 FÓLKí FRÉTTUM Díana í sjónvarps mynd? ÞREMUR árum eftir dauða Díönu prinsessu er, samkvæmt Variety, verið að íhuga hvort nota eigi rödd hennar í sjónvarpsmynd sem fjall- ar um breska blaðamanninn Andrew Morton, sem skrifaði hina umdeildu ævisögu hennar „Diana: Her True Story.“ Þótt Díana heitin hafi aldrei hitt Morton, höfund bókarinnar sem braut niður goð- sagnarkennda ímynd bresku konungsfjöl- skyldunnar árið 1992, lét hún leynilega koma til hans 23 hljóðsnældum þar sem hún segir sína hlið sögunnar. Upptökur þessar hafa aldrei heyrst áður opinberlega og Morton skýrði ekki frá tilvist þeirra fyrr en eftir dauða Díönu. En nú hefur hann látið þær fram- leiðendum myndarinnar „Ævi- söguritarans" í té. I myndinni eru lykilatriði þar sem Morton situr og hlustar á hljóðsnældurnar. Framleiðend- urnir geta ekki gert upp við sig hvort þeir eigi að nota búta úr upprunanlegu upptökunum með rödd Díönu í þessum atriðum eða taka þær aftur upp með rödd leik- konu. Þetta er mjög viðkvæmt mál, sérstaklega í Bretlandi, þar sem Díana hefur því sem næst verið tekin í dýrlingatölu eftir dauðaslysið í París. Framleiðendurnir gera sér grein fyrir því að ef þeir nota rödd Díönu þar sem hún lýsir í smáat- riðum dauðadæmdu hjónabandi sínu með Karli Bretaprins muni það magna upp dramatísk áhrif myndarinnar og áhorf muni marg- faldast. En þeir óttast enn meir að verða sakaðir um ótrúlegt smekk- leysi og mæta almennri andúð. Reuters Rödd Díonu er til á 23 hljóð- snældum. Djasskvintettinn Meski í Kaffileikhúsinu Morgunblaðið/Golli Góður félagsskapur: Eiríkur Orri, Davíð Þdr, Leifur, Matthias og Valdimar Kolbeinn velta vöngum. Stórir hljdmar ©g miklar melddíur Davíð Þór Jónsson djasspíanisti segist hafa stofnað sérlega skemmtilegan djasskvintett sem leikur lög úr öllum áttum, MESKI er djasskvintett sem ætlar að leika fyrir sína góðu gesti í Kaffíleikhúsinu í kvöld kl. 21. Davíð Þór Jónsson píanisti er forstöðumaður sveitarinn- ar og situr því fyrir svörum í eftir- farandi viðtali. Aðrir meðlimir Meski eru skólabræður hans úr tónlistar- skóla FÍH, þeir Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari og Eiríkur Orri Ólafsson trompetleik- ari, bróðir Davíðs Þórs, hann Leifur Jónsson básúnuleikari sem kominn er ofan af Skaga að leika í Meski og svo trymbillinn hrynskynugi Matt- hías M.D. Hemstoek. „Ég stofnaði Meski kl. hálfeitt á föstudaginn heima hjá mér þegar ég var að borða jógúrt. Ég hringdi svo niður í Kaffileikhús að redda „giggi“. Við vildum spila á þriðjudegi og það gekk upp. Mig hefur lengi langað til að spila kvinett með básúnu og trompeti, það er mjög skemmtileg skipan." - Og hvernig datt þér nafnið í hug? „Mér fannst þetta bara svo ótrú- lega geðveikt orð. Það þýðir félags- skapur, og ég fann það í orðabókinni minni góðu og þykku.“ - Eru allir rosavinir í þessari hljómsveit? „Já, við þekkjumst allir og kynnt- umst þegar ég byrjaði hér í Tónlist- arskóla FÍH árið 1998. Svo langaði mig að gefa Leifi bróður mínum tækifæri á að koma og leika með jafn færum tónlistarmönnum og strák- amir eru.“ Andlegt amfetamín - Hvernig valdirðu lögin ? Eru þau ísérstöku uppáhaldi núna? „Dagskráin er saman sett af tón- list úr mörgum áttum, sem já, þessa dagana er í miklu uppáhaldi hjá mér. Við leikum verk eftir saxófónleik- arana Kenny Garrett og Joe Lovano sem eru „modem-bop“ leikarar í Bandaríkjunum, og það er svona eldra uppáhaldsefni sem ég setti með. Lög Kenny Wheeler og Dave Douglas sem við tökum em stórir hljómar og miklar melódíur og það er nýrri tónlist." - Og Coltrane fær að fljóta með- ?„Já, við leikum gamlan slagara eftir Coltrane sem heitir „Equinox“, og er moll blús. Ég ákvað að taka lög með skemmtilegan ryþma, þar sem hann < Matthías er ofboðslega skemmtilega ryþmískur trommuleikari sem gefur gott andlegt amfetamín í hópinn, og þess vegna tókum við útgáfu Éric Dolphys á „Green Dolphin Street.“ Allt opið - Það er þá sérlega ryþmískt kvöld framundan? „Já, það verður mikið um ryþmíska snarstefjun í hrynsveitinni og flest af þessum lögum eru mjög skemmtilega útsett. Við notum út- setningar tónlistarmannanna fyrr- nefndu, en höfum gert okkar hluti við;s' þær. Við ákváðum að hafa allt opið og leyfa lögunum að fara hingað og þangað, og það er mjög gaman þegar við spilum með Matthíasi sem heftu- þegar spilað mikið af frjálsum spuna, og gefúr því alltaf merkingu." - Verður ekkert lag eftir þig? „Ég ætlaði að vera með frumsamið efni, en vegna anna tókst ekki að vinna það nógu vel, en við endurtök- um tónleikana vonandi um jólin og þá verður eitthvað frumsamið á dag- skránni." - Eitthvað að lokum ? „Ég held að þeir sem koma á tón- leikana eigi eftir að hafa gaman af, því við erum svo skemmtilegt band,“ segir Davíð Þór. ’ 'b „Já, djassinn dunar,“ segir Valdi- mar Kolbeinn bassaleikari og slær þar með botninn í viðtalið. (r VAKORT Eftirlýst kort nr. 4543-3700-0029-4648 4543-3700-0036-1934 4543-3700-0034-8865 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Islandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 fyrir að klófesta kort og vísa á vágest VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.