Morgunblaðið - 15.08.2000, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 6 7
FÓLKí FRÉTTUM
Díana í
sjónvarps
mynd?
ÞREMUR árum eftir dauða Díönu
prinsessu er, samkvæmt Variety,
verið að íhuga hvort nota eigi rödd
hennar í sjónvarpsmynd sem fjall-
ar um breska blaðamanninn
Andrew Morton, sem skrifaði hina
umdeildu ævisögu hennar „Diana:
Her True
Story.“
Þótt Díana
heitin hafi
aldrei hitt
Morton, höfund
bókarinnar sem
braut niður goð-
sagnarkennda
ímynd bresku
konungsfjöl-
skyldunnar árið
1992, lét hún
leynilega koma
til hans 23
hljóðsnældum
þar sem hún
segir sína hlið
sögunnar.
Upptökur
þessar hafa
aldrei heyrst áður opinberlega og
Morton skýrði ekki frá tilvist
þeirra fyrr en eftir dauða Díönu.
En nú hefur hann látið þær fram-
leiðendum myndarinnar „Ævi-
söguritarans" í té.
I myndinni eru lykilatriði þar
sem Morton situr og hlustar á
hljóðsnældurnar. Framleiðend-
urnir geta ekki gert upp við sig
hvort þeir eigi að nota búta úr
upprunanlegu upptökunum með
rödd Díönu í þessum atriðum eða
taka þær aftur upp með rödd leik-
konu. Þetta er mjög viðkvæmt
mál, sérstaklega í Bretlandi, þar
sem Díana hefur því sem næst
verið tekin í dýrlingatölu eftir
dauðaslysið í París.
Framleiðendurnir gera sér grein
fyrir því að ef þeir nota rödd
Díönu þar sem hún lýsir í smáat-
riðum dauðadæmdu hjónabandi
sínu með Karli Bretaprins muni
það magna upp dramatísk áhrif
myndarinnar og áhorf muni marg-
faldast. En þeir óttast enn meir að
verða sakaðir um ótrúlegt smekk-
leysi og mæta almennri andúð.
Reuters
Rödd Díonu er
til á 23 hljóð-
snældum.
Djasskvintettinn Meski í Kaffileikhúsinu
Morgunblaðið/Golli
Góður félagsskapur: Eiríkur Orri, Davíð Þdr, Leifur, Matthias og Valdimar Kolbeinn velta vöngum.
Stórir hljdmar ©g
miklar melddíur
Davíð Þór Jónsson djasspíanisti segist hafa
stofnað sérlega skemmtilegan djasskvintett
sem leikur lög úr öllum áttum,
MESKI er djasskvintett sem
ætlar að leika fyrir sína
góðu gesti í Kaffíleikhúsinu
í kvöld kl. 21. Davíð Þór Jónsson
píanisti er forstöðumaður sveitarinn-
ar og situr því fyrir svörum í eftir-
farandi viðtali. Aðrir meðlimir Meski
eru skólabræður hans úr tónlistar-
skóla FÍH, þeir Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson kontrabassaleikari og
Eiríkur Orri Ólafsson trompetleik-
ari, bróðir Davíðs Þórs, hann Leifur
Jónsson básúnuleikari sem kominn
er ofan af Skaga að leika í Meski og
svo trymbillinn hrynskynugi Matt-
hías M.D. Hemstoek.
„Ég stofnaði Meski kl. hálfeitt á
föstudaginn heima hjá mér þegar ég
var að borða jógúrt. Ég hringdi svo
niður í Kaffileikhús að redda „giggi“.
Við vildum spila á þriðjudegi og það
gekk upp. Mig hefur lengi langað til
að spila kvinett með básúnu og
trompeti, það er mjög skemmtileg
skipan."
- Og hvernig datt þér nafnið í hug?
„Mér fannst þetta bara svo ótrú-
lega geðveikt orð. Það þýðir félags-
skapur, og ég fann það í orðabókinni
minni góðu og þykku.“
- Eru allir rosavinir í þessari
hljómsveit?
„Já, við þekkjumst allir og kynnt-
umst þegar ég byrjaði hér í Tónlist-
arskóla FÍH árið 1998. Svo langaði
mig að gefa Leifi bróður mínum
tækifæri á að koma og leika með jafn
færum tónlistarmönnum og strák-
amir eru.“
Andlegt amfetamín
- Hvernig valdirðu lögin ? Eru þau
ísérstöku uppáhaldi núna?
„Dagskráin er saman sett af tón-
list úr mörgum áttum, sem já, þessa
dagana er í miklu uppáhaldi hjá mér.
Við leikum verk eftir saxófónleik-
arana Kenny Garrett og Joe Lovano
sem eru „modem-bop“ leikarar í
Bandaríkjunum, og það er svona
eldra uppáhaldsefni sem ég setti
með. Lög Kenny Wheeler og Dave
Douglas sem við tökum em stórir
hljómar og miklar melódíur og það
er nýrri tónlist."
- Og Coltrane fær að fljóta með-
?„Já, við leikum gamlan slagara eftir
Coltrane sem heitir „Equinox“, og er
moll blús. Ég ákvað að taka lög með
skemmtilegan ryþma, þar sem hann <
Matthías er ofboðslega skemmtilega
ryþmískur trommuleikari sem gefur
gott andlegt amfetamín í hópinn, og
þess vegna tókum við útgáfu Éric
Dolphys á „Green Dolphin Street.“
Allt opið
- Það er þá sérlega ryþmískt kvöld
framundan?
„Já, það verður mikið um
ryþmíska snarstefjun í hrynsveitinni
og flest af þessum lögum eru mjög
skemmtilega útsett. Við notum út-
setningar tónlistarmannanna fyrr-
nefndu, en höfum gert okkar hluti við;s'
þær. Við ákváðum að hafa allt opið og
leyfa lögunum að fara hingað og
þangað, og það er mjög gaman þegar
við spilum með Matthíasi sem heftu-
þegar spilað mikið af frjálsum spuna,
og gefúr því alltaf merkingu."
- Verður ekkert lag eftir þig?
„Ég ætlaði að vera með frumsamið
efni, en vegna anna tókst ekki að
vinna það nógu vel, en við endurtök-
um tónleikana vonandi um jólin og þá
verður eitthvað frumsamið á dag-
skránni."
- Eitthvað að lokum ?
„Ég held að þeir sem koma á tón-
leikana eigi eftir að hafa gaman af,
því við erum svo skemmtilegt band,“
segir Davíð Þór. ’ 'b
„Já, djassinn dunar,“ segir Valdi-
mar Kolbeinn bassaleikari og slær
þar með botninn í viðtalið.
(r
VAKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.