Morgunblaðið - 15.08.2000, Síða 68

Morgunblaðið - 15.08.2000, Síða 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Löggan í Beverly Hills er vinsælasta mynd Brests. Síðasta mynd Brests fékk misjafnar viðtökur. Robert DeNiro og Charles Grodin elda saman grátt silfur í Midnight Run. IHUGA margra er Martin Brest leikstjóri níunda áratugarins. Flest- ir geta verið sammála um að hann er einn þeirra fáu sem geta talist megináhrifavaldar Hollywood- kvikmyndarinnar á þeim líflega áratug. Ekki alls fyrir löngu langaði mig að ganga úr skugga um hvernig hún hefði það; ein eftirlætismyndin frá þessum tíma. Beverly Hills Cop hafði það fínt, takk fyrir, hafði ekki elst sem neinu nemur, eldhress og staffírug. Þó slembilukkan ríkti á tökustað, einsog við komum að síðar Brest er New York-búi í húð og ^Jiár, fæddur í Bronx 1951. Var enn nemandi við kvikmyndadeild New York University þegar stuttmyndin Hot Dogs for Gaughin (72) vakti mikla athygli og beindi kastljósinu að hinum bráðefnilega, rétt liðleg tvítuga námsmanni. Myndin, sem var skólaverkefni, skartaði leikara sem átti eftir að gera garðunn fræg- an. Enginn annar en Danny De Vito fer með aðalhlutverk efnilegs Ijós- myndara, sem ráðleggur að sprengja Frelsisstyttuna upp í heið- ið hátt - til að ná myndum sem gera ^hann ríkan og frægan! Myndin er 15 'mínútur, sögð bráðfyndin og vann til heiðursverðlauna. Rhea Perl- man, eginkona De Vitos, fer einnig með hlutverk í myndinni. Framleið- endur voru farnir að bíða eftir að Brest útskrifaðist. Að námi loknu reið Bandaríska kvikmyndastofnun (American Film Institute) á vaðið og varð fyrsti vinnuveitandinn. Brest hlaut náms- styrk til að gera Hot Tomorrows (77), fyrstu, löngu myndina. Brest skrifaði einnig handritið og fékk Fíaskó á "myndbanda- leignm EIN af þeim myndum sem eru að ryðjast inn á myndbandamarkaðinn þessa dagana er frumraun Ragnars Bragasonar, Fíaskó. Áður en Ragn- ar lagðist í kvikmyndagerð hafði hann verið iðinn við gerð tónlistar- myndbanda og hefur m.a. unnið til verðlauna fyrir myndböndin „So Al- one“ með Bang Gang, „Reykeitrun“ með Stjömukisa og „Allt sem þú lest er lygi“ með Maus. Ragnar skrifar handritið og leikstýrir myndinni. Myndin, sem fékk ágætisdóma ' íþegar hún var sýnd í kvikmyndahús- unum, er gamanmynd með drama- tísku ívafí og segir þrjár sögur þar sem fólk glímir við ástina í ýmsum myndum. Söguþræðirnir þrír flétt- ast svo saman í endann. Leikaravalið er vandað og má þar nefna Krist- björgu Keld, Róbert Amfinnsson, Eggert Þorleifsson stígur línu- ^ dans milli himins og helju í hlut- verki Samúels í Fíaskó. MARTIN BREST nokkra kunna leikara til starfa frammi fyrir myndavélunum; Ray Sharkey Harvé litla Villechaize, Danny Elfman (sem síðan hef- ur getið sér gott orð sem tónskáld), og goð- sögnin Orson Welles heiðrar nýliðann með nærveru sinni. Myndin fékk afbragðsdóma og þótti lofa góðu um framhaldið. Tony Bill, fyrrum leikari, síðar framleið- andi hjá Warner, bauð Brest að leik- stýra næsta verkefni, sem var hans eigin handrit, Goingln Style. Út- koman bráðskemmtileg, harla óvenjuleg mynd, því sljörnurnar; George Bums, Art Carney og Lee Strasberg voru nánast komnar að fótum fram. Leika ellilífeyrisþega, leiða á tilbreytingarleysi ellinnar og fábreyttu stofnanalifi og fremja bankarán. Öldungis sama um afleið- ingamar. Fjörið hefst er þeir eygja óvænt von um að sleppa með glæp- inn. Myndin gekk ekki nógu vel mið- að við frumlegheitin og feitt skemmtanagildið, enda leikhópur- inn h'tt kunnur hinum almenna, kornunga bíógesti. Árið 1979 var Brest ráðinn til að að leikstýra WarGames, sem fjallar um hættuna á nýrri heimsstytjöld á tímum há- tækni. Málalyktir urðu þó þær að Martin Brest Brest var leystur frá störfum vegna ágrein- ings við fram- leiðandann og John Badham tók við stjórn- inni. Brent var í vondum málum, nánast lentur í málaferlum við MGM, framleiðanda WarGa- mes, og afleiðingin bannfæring. Framleið- endur standa saman þegar það hentar þeim. Brest, þótt efni- legur væri, var úti- lokaður frá kvikmyndaiðnaðinum, nánast áður en ferillinn hófst. I hálf- an áratug fékk hann ekkert að gera. Þá var það tvíeykið fræga, Simp- son/Brruckheimer, farsælustu ruglukollar Hollywood, sem komu til bjargar og réðu Brest til að leik- stýra Beverly Hills Cop. Ef þessara ævintýramanna, sem fátt létu sér fyrir bijósti brenna, hefði ekki notið við væri Brest eins víst í allt öðrum geira í dag. Þeir töpuðu ekki á því frekar en öðru. Brest átti 400 dali á banka og hafði litla þörf á umhugsunarfresti. Eitt skelfdi hann þó mjög: Sylvester Stallone, sem var toppi frægðarinn- ar, átti að fara með aðalhlutverkið. Stjaman var fræg fyrir að reka leik- stjórana sína og Brest mátti engan veginn við því að lenda í slíkum hremmingum aftur. Rétt áður en : VIKAN Nr var; vikur; Mynd Útgefandi Tegund 1. 1. 3 i The Whole Nine Yards Myndform Gaman 2. 4. 2 ; Final Destination Myndform Spenna 3. 2. 4 j The Green Mile Hóskólabíó Drama 4. 3. 5 1 Double Jeopardy Som myndbönd Spenna 5. 5. 5 j Dogma Skífon Gaman 6. NÝ 1 j Stigmata Skífon Spenna 7. 6. 3 ; Bringing Out the Dead Som myndbönd Drama 8. 8. 7 ; The Bone Collettor Skífon Spenna 9. 7. 4 ; Magnolia Myndform Drama 10. 9. 5 ! The Insider Myndform Drama 11. NY 1 j Fíaskó Hóskólabíó Gaman 12. NÝ 1 j Mystery Alaska Sam myndbönd Gaman 13. 12. 2 j The Limey Som myndbönd Spenna 14. 10. 3 ; Bicentennial Man Skífan Gaman 15. NÝ 1 ; Ghost Dog: The Way o( the Samurai Bergvík Spenna 16. 11. 4 I Anna and the King Skífan Drama 17. 13. 3 ! Flawless Góðar stundir Gaman 18. 14. 8 ! End of Days Sam myndbönd Spenna 19. NÝ 1 j Bats Skífan Spenna 20. 8 ; Fucking Ámal Hóskólabíó Drama Eggert Þorleifsson, Margréti Áka- dóttur, Ólaf Darra Ólafsson, Björn Jörund Friðbjörnsson og Silju Hauksdóttir. Um tónlist í myndinni sá Barði Jóhannsson sem er betur þekktur fyrir að vera í einsmanns hljómsveitinni Bang Gang. Aðrar nýjar myndir á listanum eru Stigmata með Patrieiu Arquette og Gabriel Byme, Mystery Álaska með Russell Crow og Burt Rejmolds, Ghost Dog:The Way of the Samurai, nýjasta mynd Jim Jarmusch, og Bats með La Bamba-stjörnunni Lou Diamond Phillips í félagsskap þús- unda fljúgandi rándýra. tökur hófust komst „aksjon"- maðurinn að þeirri niðurstöðu að ekki var nógu mikið um átök í myndinni, og kvaddi. Hefur reyndar grátið það síðan. Allt var tilbúið fyrir tökur og góð ráð dýr. Þá var það að Simpson datt í hug, í sinni allsherjarvímu, að fá heitustu stjörnu þessara tíma, Eddie Murphy, til að j taka að sér aðal- hlutverk lögg- unnar. Það var nánast enginn tími til stefnu og nú varð að umbylta hand- ritinu. Murphy , sem þá hafði slegið í gegn í si'num fyrstu myndum, Trading gamanleikari af a oman. guðs náð en Stallone þótti ekki nóg um karlrembu í handritinu. Brest hafði því nánast ekkert handrit í höndunum er tökur hófust. Lá yfír breytingum á næstum hverri nóttu, með stjörnunni sinni, og stjórnaði tökum á daginn. Ástandið var oftar en ekki í vafasamari kantinum, ekki var hægt að rökræða fyrirfram um söguþráð né senur, þegar handritið var aldrei tilbúið fyiT en á sfðustu stundu. Enginn vissi hvernig bamið liti út og endurtökur engar. Það var Brest ómetanleg hjálp að Murphy er eldklár og skemmtilegur og fyrr- verandi uppistandari, hann spann fleiri samtöl og senur jafnóðum. Út- koman klassík, einsog fjöldinn komst að þvf Beverly HiIIs Cop varð ein mest sótta mynd allra tíma og klipparinn átti ekki í teljandi vand- ræðum með að splæsa hana sam- an. Brest tekur sér jafnan góðan tíma í hverja mynd. Fjög- ur ár liðu uns Mid- night Run var frumsýnd, 88. Aftur hitti leikstjórinn naglann á höfuðið, myndin er önnur af toppmyndum ára- tugarins, með Robert De Niro og fjölda góðra manna í minnisstæðum ham f einstakri blöndu gamans og átaka. Enn líða fjögur ár, þá var röðin komin að Scentofa Woman (92), og biðin var þess virði. Nú liðu 6 ár, þá var Meet Joe Black, síðasta Brest-myndin frumsýnd. Hún olli vonbrigðum. Líður fyrir alltof marga hand- ritshöfunda og fáránlegt efni, (Dauðinn verður ástfanginn), þó fyrst og fremst ógnarlega, þriggja stunda lengd. Væmin klisjusúpa sem gekk illa, þrátt fyrir Brad Pitt og Anthony Hopkins, kostaði stórfé, á annað hundrað milljónir Banda- ríkjadala, og okkar maður líkast til í vondum málum, enn eina ferðina. fScent of Sígild myndbönd BEVERLY HILLS COP (1984) ★★★★ Murphy leikur kjaftaglaðan bragða- ref, lögreglumann í Chicago, sem heldur til Beverly-hæða til að hafa uppi á morðingjum vinar síns. Hann og óprúttnar aðferðir hans henta illa vestur þar. Brest er manna lagnast- ur við að blanda saman gamni og al- vöru, en eini ljóðurinn á myndinni er þó yfirgengilega blóðugt lokaatriði sem er á skjön við þá einstöku skemmtun sem á undan er gengin. Murphy fer á kostum og hópur úr- vals leikara í aukahiutverkum (Jud- ge Reinhold, John Ashton, James Russo), er honum samboðinn. Ein þeirra mynda sem settu svip á níunda áratuginn og gaf öðrum tón- inn í tugatali. MIDNIGHT RUN (1988) ★★★★ Robert De Niro leikur hausaveiðara nútímans, harðjaxl sem er fenginn til að vernda glæpamann (Charles Grodin), á lestarferð yfir þver Bandaríkin. Krimminn hefur stolið frá Mafíunni og hyggst bjarga eigin skinni með því að gerast uppljóstrari alríkislögreglunnar. Réttarhöldin eiga að fara fram í Los Angeles. Allt fer vel af stað en von bráðar eru blóðhundar Mafíunnar komnir á sporið, auk leigumorðingja og fleiri hausaveiðara. Brest tekst engu síður vel upp við að blanda saman gamni og spennu, Grodin er sérstaklega fyndinn sem hálfgert skítseyði, De Niro slær um sig, átakaatriðin eru æsileg, þau fyndnu bráðskemmtileg. Samleikur þeirra tveggja er aðal myndarinnar og aukaleikararnir eru stórkostlegir; Dennis Farina, Yap- het Kotto, JoePantoliano, John Ashton, hver öðrum betri. SCENT OF A WOMAN (1992) ★★★V4 Enn blandar Brest saman gamni og spennu, með talsverðu, dramatísku ívafi að þessu sinni. Annas er það stórleikarinn A1 Pacino sem á fyrst og fremst heiðurinn af myndinni. Gefst tækifæri til að sýna allar sínar bestu hliðar í yfirgnæfandi hlutverki atvinnuhermanns sem hefur orðið fyrir slysi, misst sjónina, sem hann á erfitt með að sætta sig við. Chris O’Donnell leikur menntaskólastrák sem tekur að sér ýmis helgarstörf til að ná endum saman. Fær það verk- efni að hafa ofan af fyrir ofurstanum og reiknar með rólegri helgi. Karlinn er ekki á því og nú upphefjast æsi- legustu þrír dagar í lífi stráks sem fer eins og eldibrandur um New York, nótt og dag, við að fylgja eftir ofurstanum sem slettir ærlega úr klaufunum, hálfærður af aðgerðar- leysi. Pacino er í hrikalegu Óskar- sverðlaunaformi og handritið, sem byggt er á ítölsku myndinni Profumo di Donna (’75), er óvenju safaríkt allt að bláendanum, sem er í væmnari kantinum. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.