Morgunblaðið - 15.08.2000, Page 76

Morgunblaðið - 15.08.2000, Page 76
 Eignaskipti ^jj7 Ráðgjöf ehf Gerö eignaskiptayfirlýsinga Síml5886944 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SlMBRÉF6691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJlgMBLJS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. landhelgísgæslan Morgunblaðið/Arni Sæberg Varðskip samferða Varðskip Landhelgisgæslunnar, Týr og Ægir, urðu samferða út Faxaflóann nýlega, Ægir á leið- inni til hefbundinna gæslustarfa og Týr á leiðinni í slipp á Akur- eyri. Það gerist ekki oft að skipin sigli saman úr höfn og var tign- arlegt að sjá skipin skríða út mggflóann undir Esjunni þar sem hún vakir yfir þeim. Ekið á gangandi stúlku EKIÐ var á stúlku sem var á leið suður yfir gangbraut gegnt Umferðarmiðstöðinni rétt fyrir klukkan hálfsjö í gærkvöldi. Stúlkan, sem er fimm ára, var á leið yfir göt- una ásamt móður sinni. Stúlk- an fékk áverka á höfði og mjöðm við áreksturinn og var flutt með sjúkrabifreið á slysa- deild. Árshlutauppgjör Búnaðarbanka og Eignarhaldsfélags Alþýðubankans Niðursveifla vegna skuldabréfaeignar HAGNAÐUR Búnaðarbanka og Eignarhaldsfélags Alþýðubankans var minni á fyrri helmingi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra og er það rakið til taps af skuldabréf- um. Hagnaður hjá Búnaðarbankan- um var 339 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Hins vegar var gengistap skuldabréfa, hlutabréfa og gjaldeyrisviðskipta á þessum tíma 111 milljónir króna miðað við 582 milljóna króna hagn- að á sama tíma í fyrra. Stefán Pálsson, aðalbankastjóri Búnaðarbankans, sagði að þetta væri ekki áhyggjuefni því þessi liður væri háður sveiflum. Það væri hins vegar til marks um styrk bankans að hann skyldi þola svo mikla sveiflu í afkomu af skulda- bréfum sem raun bæri vitni. Hagnaður Eignarhaldsfélags Al- þýðubankans lækkaði um 65% á fyrri helmingi þessa árs, var 46,6 Sony og Panasonic vörumerkin fást nú í ACO Skaftahlíð 24 003 hugBnðu skapaðu upplifðu milljónir nú, en 132,7 í fyrra. Hrein gjöld af skuldabréfaeign voru 186,6 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins en hreinar tekjur af skuldabréfaeign voru 87,1 milljón króna á sama tímabili í fyrra. Gylfi Arnbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Eignarhaldsfélags- ins, sagði að milliuppgjörið nú væri varnaruppgjör og hann hefði trú á því að afkoman yrði betri á seinni helmingi ársins. Hann sagði að afkoma af hlutabréfum hefði verið viðunandi hjá félaginu. Enn fremur taldi hann að skuldabréfa- markaðurinn myndi batna og væri sá bati raunar þegar hafinn. ■ Uppgjör/18/21 Utsendingar RUV féllu niður vegna skemmdarverka RAEMAGN fór af útvarpshúsinu við Efstaleiti í gærkvöldi þegar klukk- una vantaði 12 mínútur í átta, út- sendingar bæði útvarps og sjónvarps rofnuðu. Utsendingar sjónvarps komust á aftur eftir hálftíma en út- sendingar útvarpsrásanna beggja lágu niðri í um klukkustund. Vararafstöð er í húsinu en erfiðlega gekk að koma henni í gang. Að sögn lögreglunnar komst maður inn um dyr sem leiddu að rafmagnstöflu hússins og sló hann út öryggjunum. „Þetta er auðvitað háalvarlegt mál,“ sagði Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi. „Ég hef óskað eft- ir þvi að það fari fram lögreglurann- sókn en þarna var framið mjög alvarlegt brot á lögum. Það verður að komast til botns í því hvernig svona lagað getur gerst og lögreglan er best til fallin að sinna þeirri rann- sókn.“ Markús Örn sagði engar skýring- ar liggja fyrir um það hvernig mað- urinn komst inn í húsið og að raf- magnstöflunni. „Það er ekkert hægt að segja fyrir um það á þessu stigi,“ sagði Markús Örn. „Það hafa verið miklar framkvæmdir hér síðustu daga,“ sagði hann en Ríkissjónvarp- ið flutti nýlega starfsemi sýna að hluta til í Efstaleitið. Að sögn Mark- úsar Arnar er mikil stálhurð fyrir herberginu þar sem rafmangstaflan er en einhverra hluta vegna hefur hún verið skilin eftir ólæst. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglunni en hann á við geðræn vandamál að stríða og hafði hann fyrr um daginn leitað hjálpar hjá lögreglu sem kom honum undir læknishendur. Siáturfélag Vestur- lands leitar til útlanda eftir starfsfólki Fær inni í Mótel Ven- usi um slát- urtíðina SLÁTURFÉLAG Vesturlands bregður á það ráð öðru sinni að fá er- lent vinnuafl í sláturtíðina sem hefst um miðjan september og stendur út október. í fyira starfaði um tugur erlendra manna við verkið en í ár verða þeir 20 til 25 af um 70 manns sem alls vinna við slátrunina. Marteinn Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri Sláturfélags Vestur- lands, segist hafa fengið inni fyrir fólkið á Mótel Venusi sunnan Borg- arfjarðarbrúar. Hann segir stóran hluta hópsins koma frá Bretlandi en einnig sé von á hópi Svía. Þorbjörn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar, sem er samband iðnfélaga, segir að verktak- ar hafi leitað talsvert til útlanda eftir vinnuafli undanfama mánuði. Stór- verkefni hafi sogað til sín mikinn fjölda iðnaðarmanna og á meðan sinni þeir lítið minni verkefnum fyrir einstaklinga. Hjá nokkrum ráðningarstofum fengust þær upplýsingar að mikil hreyfing væri oft á starfsfólki á haustin og það væri líka fyrirsjáan- legt nú. Vegna sífelldrar fjölgunar starfa í tölvu- og hugbúnaðargeiran- um og við fjármál væri sífelldur skortur á starfsmönnum þar. ■ Mestur skortur/10 Reykinga- mönnum fækkar REYKINGAMÖNNUM hefur fækkað talsvert á fyrri hluta ársins, samkvæmt könnunum sem gerðar hafa verið fyrir tóbaksvarnarnefnd. Undan- farin þrjú ár hefur reykinga- mönnum fækkað um 1% á hverju ári en á fyrri helmingi þessa árs hefur þeim hins vegar fækkað um 18%. Þetta þýðir að hlutfall þeirra sem reykja á íslandi hefur lækkað úr 27% niður í 22%. Þorsteinn Njálsson, for- maður tóbaksvarnarnefndar, telur nauðsynlegt að hækka verulega verð á sígarettum til að varðveita þennan árangur. Verðhækkanir á tóbaki eru taldar eitt helsta vopnið gegn reykingum í heiminum, að því er fram kom á 11. alþjóðlegu ráðstefnunni um tóbaksvarnir sem haldin var í Chicago í Bandaríkjunum í síðustu viku. ■ Verdhækkanir/39 GSM sam- band lá niðri SAMKVÆMT upplýsingum frá Landssímanum lá GSM-samband niðri frá kl. rúmlega níu í gærkvöldi en bilunin lýsti sér þannig að það var eins og flestir símarnir í kerfinu væru utan þjónustusvæðis. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við talsmann Landssímans var enn unnið að því koma aftur á sambandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.