Morgunblaðið - 20.08.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2000 55
FÓLK í FRÉTTUM
Frítt inn.
Allar veitinar á hálfvirði.
v______________________________y
sumarsins verið sá sem hún eyddi
nánast öllum á salerninu:
„Það byrjaði á því að í sumar fór
ég og heimsótti vini mína í Lund-
únum. Einn þeirra er með heim-
astúdíó og hann bað mig um að
syngja eitthvað inn á Minidisc-upp-
tökutæki sem hann gæti svo notað.
Þannig að ég fór með tækið mitt
um alla Reykjavík, niður í fjöru, út
Heiða og Geirfuglarnir í hægðum sínum.
nafn er þó Birgir Örn Thoroddsen
og hefur hann komið upp hljóðver-
inu „Stúdíó Rusl“ í heimahúsi sínu
þar sem Heiða og hann vinna nú að
plötunni.
Heiða segir að það að vera í
hljómsveit sé eitthvað sem hafi
alltaf hentað henni vel og að hún sé
örlítið byrjuð að sakna þess að loka
sig inni í æfingahúsi og svitna
rækilega við það að smíða lög með
öðrum.
„Á móti kemur að núna þori ég
að koma með allar þær hugmyndir
sem mér detta í hug. Það er enginn
sem segir: „Neiii, þetta er örugg-
lega ekkert svo flott.“ Þetta hefur
frelsað mig en ég sakna þess þegar
ég var ekki svona frjáls,“ segir
Heiða og blaðamaður áttar sig á
því að hún hljómar svolítið eins og
kona sem stendur nú á eigin fótum
eftir að hafa yfirgefið maka sinn
eftir langt samband.
Það kann að hljóma undarlega
en fyrir Heiðu hefur besti dagur
á höfn o.s.frv. til þess að syngja
bara ein með umhverfinu. Einn af
þeim stöðum sem ég söng á var
salernið á Bankastræti núll og ég
varð mjög heilluð af hljómburðin-
um. Eg var svo að segja Bibba frá
þessu og leyfa honum að heyra
þetta og honum datt í hug þessi
snilldarhugmynd að við myndum
taka upp eitt lag þarna.“
Þau höfðu svo samband við
nokkra meðlimi hljómsveitarinnar
Geirfuglarnir, færðu allan upptöku-
búnaðinn inn í almenningssalernið í
Bankastræti og tóku þar upp lag.
Heiða lýsir laginu sem „klós-
ettpoppi" með Bob Dylan-áhrifum.
Heiða vill endilega koma að þökk-
um til Jónasar klósettvarðar sem
fékk það óvenjulega hlutverk þann
daginn að vísa því kvenfólki sem
var í spreng frá klósettunum til
þess að þær trufluðu ekki upp-
tökurnar.
„Þetta var mjög framandi um-
hverfi, þannig að í raun og veru
græddum við bæði hljómburðar-
lega séð og stemmningarlega séð.
Eftir að við vorum búin að taka
upp fór ég og keypti kók og prins
handa öllum. Svo sátum við þarna,
hlustuðum á herlegheitin og maul-
uðum með þannig að þetta var
bara ótrúlega fallegt," segir Heiða
og ljómar, reynslunni ríkari.
Nœturgalinn
simi 587 6080
í kvöld leika fyrir dansi
Hilmar Sverrisson og
Anna Vilhjálms.
Ath. Húsiö opnað kl. 21.30.
Stökktu til
Cosla del Sol
31. ágúst
trá kr. 29.955
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu sætunum til Costa
del Sol þann 31. ágúst, en vinsældir þessa staðar hafa aldrei
verið meiri. Hér finnur þú frábæra gististaði, glæsilega veitinga-
og skemmtistaði, frægustu golfvelli Evrópu, glæsilegar
snekkjubátahafnir, tívolí, vatnsrennibrautagarða, glæsilega
íþróttaaðstöðu og spennandi kynnisferðir í fríinu. Þú getur nú
tryggt þér ótrúlegt tilboð í sólina, þú bókar núna, og 4 dögum
fyrir brottfor, hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir.
Verð kr.
29.955
M.v. hjón mcð 2 börn, 2-11 ára, vika,
31. ágúst, stökktu tilboð.
Verðkr. 39.990
M.v. 2 í studio, vikuferð, 31. ágúst, flug og
gisting. Ferðirtil og frá flugvelli, kr. 1600.-
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð
sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Kvikmyndaskóli íslands
HAUSTÖNN
Nám í kvikmyndagerð undir leiðsögn
starfandi fagfólks
• Bóklegt og verklegt nám í handritagerð, leikmyndagerö, kvikmyndatöku, klippingu, hljóðvinnslu,
leikstjórn og framleiðslu.
• Fyrirlestrar um auglýsingagerð, heimildamyndir, kvikmyndatónlist og margt fleira.
• Gerðar eru tvær 15 mínútna leiknar kvikmyndir með atvinnuleikurum, ætlaðar til sýningar
í sjónvarpi.
• Nemendur hljóta viðurkenningu í námslok sem nýtist þeim hvort heldur vegna starfsumsókna
eða umsókna t framhaldsnám.
• Útskrifaðir nemendur Kvikmyndaskóla íslands starfa víðsvegar í kvikmyndaiðnaðinum,
hjá sjónvarpsstöðvum, auglýsingafyrirtækjum og kvikmyndaframleiðendum.
Kvikmyndaskólinn er kominn í samstarf við Rafiðnaðarskólann. í sameiningu er stefnt að
uppbyggingu á öflugum skóla sem býður upp á margvíslegt nám í kvikmyndagerð fyrir fagfólk
og byrjendur.
TAKMARKAÐUR FJÖLDI NEMENDA.
Skráning er hafin hjá KVIKMYNDASKÓLA ÍSLANDS, Laugavegi 178 í síma 588 2720
KVIKNYNDBSKÓLI
íSLRNDS
RAFIÐNAÐARSKÓLINN