Morgunblaðið - 27.09.2000, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2000
m MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER
BLAÐ
Georgíu-
maður í
marki Vals
RONALD Eradze frá |
Georgíu mun standa í i
marki handknattleiks- !
liðs Vals í vetur en hann |
kom til Hlíðarendaliðs- j
ins í siðustu viku. Til 1
stóð að Egidius Petkev- |
icius, sem lék með FH- ,
ingum á síðasta tíma-
bili, yrði í marki Vals-
manna í vetur en hann
hefur átt. við erfið
meiðsl að stríða í baki
og er óttast að hann sé
með brjósklos.
Jörundur
áfram
með Blika
JÖRUNDUR Áki Sveinsson fram-
lengdi í gær samning sinn sem þjálf-
ari meistaraflokks kvenna í knatt-
spyrnu hjá Breiðabliki til tveggja
ára. Breiðablik vann sem kunnugt er
bæði Islands- og bikanneistaratitil-
inn í sumar og var félagið ákaft í að
halda í Jörund Áka. „Félagið er mjög
ánægt, við erum himinlifandi," sagði
Halldór Þ. Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri knattspymudeildar
Breiðabliks.
„Ég er ánægður með að þetta er
komið í höfn. Stelpurnar eru einstak-
ar og stjórnin góð. Metnaðurinn er
ótrúlegur hjá félaginu og þannig vil
ég hafa það,“ sagði Jörundur Áki.
Dýr fögnuður
Kára Steins
KARI Steinn Reynisson, hetja
Skagamanna í bikarúrslitaleiknum
gegn ÍBV á sunnudaginn, hefði bet-
ur haldið sig í treyjunni þegar hann
fagnaði markinu. Kári Steinn reif sig
úr Skagapeysunni og veifaði henni
vel og lengi, og að lokum missti Eyj-
ólfur Ólafsson dómari þolinmæðina
og sýndi honum gula spjaldið. Þetta
var fjórða gula spjald Kára á tímabil-
inu og hann byrjar því í eins leiks
banni næsta vor.
Auk Kára voru tveh- ÍR-ingar úr-
skurðaðir í bann í gær, Arnór Gunn-
arsson og Björgvin Vilhjálmsson, og
þeir hefja því einnig næsta tímabil í
eins leiks banni.
Hreiðar og
SturiatilÍA?
MIKLAR líkur eru á að
Hreiðar Bjarnason úr
Breiðabliki og Sturla Guð-
laugsson úr Fylki gangi til
liðs við bikarmeistara ÍA
fyrir næsta tímabil. Þeir
eru báðir Skagamenn og
léku með ÍA í yngri flokk-
unum en hafa ekki spilað
með meistaraflokki félags-
ins. Hreiðar hefur verið
lykilmaður lijá Blikum
undanfarin ár og marka-
hæsti leikmaður þeirra tvö
síðustu tímabil en hann
spilaði sinn fyrsta A-
landsieik f sumar. Sturla
hefur leikið með Fylki tvö
undanfarin ár og spilaði 12
ieiki í efstu deild í sumar
með Árbæjarliðinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Jón Arnar Magnússon meiddist í tugþrautinni á Ólympíuleikunum í gær, á aftanverðu vinstra iæri, í langstökkinu. Þar gerði hann öll
stökkin ógild og fékk ekkert stig en mætti þó til keppni í næstu grein, kúluvarpinu. Hér er Jón Arnar hins vegar á fullu í fyrstu grein-
inni, 100 metra hlaupi, þar sem hann kom í mark á 10,85 sekúndum.
Kristinn sagði
upp hjá ÍBV
0%jálfaraskipti verða hjá knatt-
W* spvrnuliði Eyjamanna fyrir
næsta tímabil, en Kristinn R. Jóns-
son hefur ákveðið að hætta þjálfun
ÍBV eftir eins árs starf. Kristinn hef-
ur reyndar verið í starfi hjá Eyja-
mönnum í þrjú ár en hann var að-
stoðarmaður Bjarna Jóhannssonar í
tvö ár áður en hann tók við þjálf-
arastarfmu.
Kristinn tilkynnti fon-áðamönnum
IBV fyrir leikinn gegn Grindavík í
lokaumferð íslandsmótsins að hann
vildi ljúka störfum sínum hjá félag-
inu af persónulegum ástæðum, en
hann gerði tveggja ára samning við
Eyjamenn í fyrra þar sem í var upp-
sagnarákvæði af beggja hálfu.
„Það er af persónulegum ástæðum
sem ég ákvað að hætta. Ég hef verið
að vinna í bænum þessi þrjú ár og
það hefur verið mjög erfitt að sam-
eina starfið og þjálfunina," sagði
Kristinn í samtali við Morgunblaðið.
„Það var vilji hjá okkur að halda
honum en Kristinn treysti sér ekki
að halda þessu áfram lengur vinn-
unnar vegna. Hann var búinn að til-
kynna okkur þetta fyrir nokkru svo
tapleikurinn gegn ÍÁ í bikarúrslita-
leiknum var ekki ástæðan fyrir upp-
sögn hans og við skiljum við hann í
mesta bróðerni. Við erum þegar
famir að leita fyrir okkur að nýjum
þjálfara en það er ekkert ákveðið
hver tekur við,“ sagði Eggert Garð-
arsson, varaformaður knattspyrnu-
deildar ÍBV, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Sigur Stoke
vakti athygli
FRAMMISTAÐA Stoke
gegn Charlton í enska
deildabikarnum í knatt-
spyrnu vakti mikla athygli
enskra fjöhniðla í gærkvöld.
Stoke, sem er í 10. sæti 2.
deildar, sló út Charlton, sein
er í 5. sæti úrvalsdeildar.
Charlton vann, 4:3, en Stoke
fór áfram á mörkum á úti-
velli eftir að hafa unnið
fyrri lcikinn, 2:1.
„Ég hélt að þetta væri
búið þegar við lentum 3:1
undir og misstum mann af
velii en mínir menn sýndu
frábæran „karakter" og
mikla snilli við að vinna
þann mun upp. Við erum á
leið í rétta átt og þetta gefur
okkur mikið sjálfstraust,"
sagði Guðjón Þórðarson,
knattspymustjóri Stoke, við
Sky Sports.
VIÐTAL VIÐ HARALD INGÓLFSSON HJÁ ELFSBORG / B6, B7