Morgunblaðið - 27.09.2000, Qupperneq 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Darren Huckerby fagnar með lan Harte og félögum sínum úr Leeds eftir að hafa skorað eitt marka
liðsins gegn tyrkneska liðinu Besiktas í 6:0 sigri þeirra.
Vanmat varð
United að falli
ÁTTA leikir fóru fram í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu í gær.
AC Milan sótti sigurtil Barcelona en Manchester United fórfýlu-
ferð til Eindhoven þar sem liðið hvíldi fjóra leikmenn úr byrjunar-
liði og mátti þola 3:1 tap. Rosenborg vann stórsigurá Helsing-
borg og sömu sögu er að segja af Leeds sem setti á svið
markasýningu gegn tyrkneska liðinu Besiktas.
jarcelona var meira með bolt-
ann í 2:0 ósigri og leit út fyrir
að vera sigurstranglegri aðilinn
mestallan leikinn gegn AC Milan
sem lá mjög aftarlega á vellinum
og lék þéttan varnarleik. Llorenc
Serra Ferrer þjálfari Barcelona
tók þá ákvörðun að láta taka
Andriy Shevchenko og Oliver Bier-
hoff úr umferð og það stöðvaði ít-
alina í fyrri hálfleik. Heimamenn
náðu ekki að brjóta niður þéttan
varnarmúr gestanna og rétt fyrir
lok fyrri hálfleiks skoraði
Francesco Coco fyrsta mark leiks-
ins. Rivaldo misnotaði svo frábært
tækifæri til að jafna leikinn með
kæruleysislegum tilþrifum. Luis
Enrique sem var að leika sinn
fyrsta leik í nær sjö mánuði vegna
meiðsla var nálægt því að skora
jöfnunarmark en Dida varði frá-
bærlega. Stuttu síðar bætti Bier-
hoff öðru marki við fyrir Milan og
þar við sat. „Að leika gegn vörn
okkar er mjög erfítt. Allt sem við
gerðum hér í kvöld var jákvætt.
Leikmenn mínir voru stórkostlegir
og ég hef fulla trú á þeim,“ sagði
Alberto Zaccheroni þjálfari Milan.
PSV Eindhoven nýtti sér að
Manchester United hvíldi fjóra
lykilmenn í gær og vann verðskuld-
aðan 3:1 sigur á heimavelli. Ryan
Giggs, David Beckham, Ronny
Johnsen og Andy Cole hvíldu allir
og byrjaði Dwight Yorke inni á en
náði ekki að setja mark sitt á leik-
inn. „Við náðum engu út úr síðasta
leik í Brussel í síðustu viku þannig
að sigur í dag var gífurlega mikil-
vægur,“ sagði Eric Garets hæst-
ánægður þjálfari PSV. „Ég er
ánægður með að við náðum að
komast yfir eftir að lenda undir,“
sagði Garets, sem lék með þrjá
framherja. Alex Ferguson skipti
David Beckham og Ryan Giggs
loks inná á 70. mínútu en það var of
seint því úrslitin voru ráðin.
Paris SG stal sigri
Varamaðurinn Laurent Leroy
skoraði á lokamínútunum til að
tryggja Paris SG 1:0 sigur á
Bayern Munchen á heimavelli. „Við
ætluðum okkur stóra hluti í kvöld
því við vissum að við þyrftum á
sigri að halda,“ sagði Philippe
Bergeroo þjálfari Paris. „Strákarn-
ir stóðu sig frábærlega. Við gáf-
umst aldrei upp og börðumst til
síðustu mínútu. Þetta er styrkur
liðsins sem er enn mjög ungt og á
margt eftir ólært,“ bætti Bergeroo
við. „Mig langaði mjög mikið að
koma inná. Þetta var fyrsta markið
mitt í meistaradeildinni og ég er
mjög ánægður því faðir minn var
að horfa á,“ sagði Leroy ánægður
eftir leikinn.
Panathinaikos vann nauman 1:0
útisigur á Hamburger SV. Þjóð-
verjarnir hafa aðeins hlotið eitt
stig úr sínum þremur leikjum og
eru því fastir á botni deildarinnar.
Rodolfo Cardoso neyddist til að
fara meiddur af velli eftir aðeins
tvær mínútur. „Það setti strik í
reikninginn að missa Cardoso út-
af,“ sagði Frank Pagelsdorf, þjálf-
ari Hamburger. „Síðan skoruðu
þeir og þetta var alltaf erfítt eftir
það,“ bætti hann við.
Zinedine Zidane var rekinn útaf
í 0:0 jafntefli Juventus gegn
Deportivo la Coruna en hann var
rekinn útaf á 68. mínútu. Deportivo
nýtti sér ekki mannamuninn og
varð jafntefli staðreynd í leik sem
olli miklum vonbrigðum. „Deport-
ivo sýndi að þeir eru afbragðslið.
Rauða spjaldið sem Zidane fékk
var ósanngjarnt og við þjáðumst
sökum þess,“ sagði Carlo Ancelotti
þjálfari Juventus eftir leikinn.
Leeds sýndi að þeir kunna að
skora mörk er þeir unnu 6:0 sigur
á Besiktas aðeins tveimur leikjum
eftir að tapa 4:0 gegn Barcelona.
Eftir aðeins 22 mínútna leik var
Leeds komið í 3:0 og áttu Tyrkirnir
aldrei möguleika eftir það.
Árni Gautur Arason lék ekki
með Rosenborg sökum meiðsla,
sem vann stórsigur á grönnum sín-
um, Helsingborg, 6:1. Frode John-
sen skoraði þrennu og er marka-
hæstur í meistaradeildinni með
fjögur mörk. „Ég skora svona mik-
ið vegna þess að ég leik í svo góðu
liði,“ sagði Johnsen hógvær. „Þeir
hætta aldrei að koma mér á óvart,“
sagði Nils Arne Eggen þjálfari
Rosenborgar stoltur í leikslok.
Dynamo Kiev vann stórsigur á
Anderlecht, 4:0, og skoraði Georgi
Demetradze tvö mörk Úkraínu-
mannanna. Dynamo réð leiknum
en þeir urðu að bíða þar til á 52.
mínútu að skora fyrsta markið.
Dynamo lyfti sér upp í annað sætið
í riðlinum með fjögur stig, aðeins
tveimur á eftir PSV.
FOLK
■ ÓLAFUR Gottskálksson, mark-
vörður Brentford, fékk mikið hrós
íyrir leik sinn gegn Tottenham í
gærkvöld en úrvalsdeildarliðið
mátti hafa mikið fyrir 2:0 sigri. „Ól-
afur var frábær, við erum heppnir
ef við höldum honum lengi í okkar
herbúðum," sagði Ron Noades,
knattspyrnustjóri Brentford, við
fréttavef Sky Sports.
■ ARNAR Grétarsson lagði upp
mark Lokeren þegar liðið gerði
jafntefli, 1:1, við Westerlo á útivelli
í belgísku knattspyrnunni á sunnu-
daginn. Westerlo jafnaði undir lok-
in og Lokeren missti þar með af því
að komast í 4. sæti deildarinnar og
er áfram í því áttunda. Arnar Þór
Viðarsson sat á varamannabekk
Lokeren allan tímann.
■ HARALDUR Ingólfsson lagði
upp þriðja mark Elfsborg sem
vann Frölunda, 3:1, í sænsku úr-
valsdeildinni í fyrrakvöld. Harald-
ur kom inná sem varamaður 20
mínútum fyrir leikslok.
■ STAN CoIIymore hefur verið
settur á sölulista hjá Leicester og
Peter Taylor, knattspyrnustjóri fé-
lagsins, segist ekki sjá fyrir sér að
nota hann framar, til þess þyrfti
mikið að breytast. Launakröfur
hans í tengslum við nýjan samning
sem settar voru fram í upphafi
tímabilsins hafí verið langt umfram
það sem Leicester sé tilbúið til að
fallast á.
■ COLLYMORE gæti ennfremur
átt fyrir höndum refsingu frá enska
knattspyrnusambandinu. Þar á bæ
er verið að skoða atvik í lok leiks
Leicester við Everton á sunnudag-
inn en þá virtist Collymore stíga á
hönd Pauls Gascoignes og slá síðan
tilhans.
■ GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Stoke, hefur enn á ný
gagnrýnt enska dómara í þarlend-
um fjölmiðlum. „Mig langar til að
sjá ensku reglumar því þær virðast
vera öðruvísi en alþjóðlegu reglu-
mar sem ég hef vanist hingað til,“
sagði Guðjón og var sérlega óhress
með hve vægt væri tekið á brotum
aftan frá í ensku 2. deildinni.
■ HELGI Sigurðsson var ekki í
leikmannahópi Panathinaikos þeg-
ar liðið vann Hamburger SV í
Þýskalandi í gærkvöld í meistara-
deild Evrópu.
■ TONY Adams kemur að nýju inn
í lið Arsenal í kvöld þegar liðið
mætir Lazio í meistaradeild
Evrópu. Adams hefur jafnað sig
eftir meiðsli sem hann varð fyrir í
landsleik Englands og Frakklands
fyrr í þessum mánuði.
■ LEE Dixon, bakvörðurinn reyndi
hjá Arsenal, hefur tilkynnt að hann
muni hætta eftir þetta tímabil, ef
félagið býður honum ekki nýjan
samning. Dixon segist ekki vilja
leika fyrir annað félag.
Afall hjá
Stoke
STOKE City varð fyrir áfalli í
heimaleik sínum gegn Rotherham í
ensku 2. deildinni um helgina. Sókn-
armaðurinn Marvin Robinson, sem
er í láni frá Derby, tvífótbrotnaði og
leikur því ekki meira með á þessu
tímabili. Brynjar Bjöm Gunnarsson
og Bjarni Guðjónsson léku allan leik-
inn en Stefán Þórðarson aðeins fyrri
hálfleikinn vegna meiðsla. Það var
varamaðurinn Peter Thome sem
tryggði Stoke annað stigið en hann
jafnaði metin 9 mínútum fyrir leiks-
lok en úrslitin vom Stoke vonbrigði
og er liðið í 10. sæti deildarinnar, sjö
stigum á eftir toppliði Walsall.
Brynjar
ogStefán
afgreiddu
Charlton
BRYNJAR Bjöm Gunnarsson og
Stefán Þór Þórðarson skoruðu
dýrmæt mörk fyrir Stoke í gær-
kvöld þegar Iið þeirra kom mjög á
óvart með því að slá úrvalsdeildar-
lið Charlton út úr enska deildabik-
arnum. Charlton vann, 4:3, en
Stoke fór áfram á fleiri mörkum á
útivelli eftir að hafa unnið fyrri
leikinn 2:1.
títlitið var ekki gott hjá Stoke
sem lenti 3:1 undir og missti Nicky
Mohan af velli með rautt spjald 9
mínútum fyrir leikslok. En Brynj-
ar Bjöm tryggði 10 leikmönnum
Stoke framlengingu með marki
þremur mínútum fyrir leikslok.
Stefán kom inná sem varamaður
um miðja framlenginguna og jafn-
aði, 3:3, aðeins þremur minútum
síðar. Charlton svaraði, 4:3, en
mörk Stoke á útivelli réðu þegar
upp var staðið. f deildabikarnum
em þau ekki talin fyrr en að lok-
inni framlengingu. Bjami Guð-
jónsson lék allan leikinn með
Stoke eins og Brynjar Björn.
Brentford tapaði, 2:0, fyrir Tott-
enham eftir 0:0 í fyrri leik liðanna.
Öyvind Leonhardsen og Steffan
Iversen skomðu fyrir Tottenham.
Ólafur Gottskálksson Iék vel í
marki Brentford og ívar Ingi-
marsson lék einnig allan leikinn.
Ipswich vann Millwall, 5:0, eftir
framlengingu en Millwall vann
fyrri leikinn 2:0. Ipswich skoraði
ekki fyrr en 17 mínútur vom eftir
og þá var búið að reka tvo leik-
menn Millwall af velli. Hermann
Hreiðarsson fór af velli hjá
Ipswich á 68. mínútu.
Heiðar Helguson og Jóhann B.
Guðmundsson léku báðir með Wat-
ford, sem tapaði óvænt heima, 0:2,
fyrir Notts County en komst áfram
á fleiri mörkum á útivelli. Báðum
var skipt af velli í seinni hálfleik.