Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 15

Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 15 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Framkvæmdum við námsmannaíbúðir seinkar Umferðarvika í Hafnarfírði Teikningar samræmd- ust ekki reglugerðum Garðabær FRAMKVÆMDIR við leigu- íbúðir námsmanna að Amar- ási 9-11, sem upphaflega átti að bjóða út í júlí verða ekki boðnar út fyrr en í janúar á næsta ári, þar sem teikna þurfti íbúðarhúsnæðið upp á nýtt. Ingimundur Sigurpáls- son bæjarstjóri sagði að lög- menn bæjarins hefðu álitið að upphafleg teikning samræmd- ist ekki byggingarreglugerð- um fyrir heimavistarrými. „Nú erum við komnir með teikningu sem við sættum okkur alveg við og jafnhliða óskuðum við eftir því við um- hverfisráðuneytið að bygging- arreglugerðum yrði breytt þannig að ekki yrðu gerðar jafn stífar kröfur til heima- vistaiTýmis og til almenns íbúðarrýmis," sagði Ingi- mundur. „Slík heimild er nú kominn inn í lögin, en við vor- um farnir af stað með okkar vinnu og búnir að teikna þetta hús upp á nýtt, þannig að við höldum okkar striki.“ fbúðirnar tilbúnar vorið 2002 Ingimundur sagði að hús- næðið, sem er fjölbýlishús með 12 íbúðum, hefði ekki staðist sumar kröfur sem gerðar hefðu verið til heima- vistarrýmis, en ákveðnar kröfrn- eru í gildi um stærð á salerni, þvottarými og geymslum o.s.frv. Hann sagði að aukinn kostnaður fylgdi því að þurfa að hanna þetta upp á nýtt, því t.d. væri búið að stækka hverja íbúð um nokkra fermetra. Ingimundur sagði að hann myndi nú leggja útboðsskil- mála fyrir bæjarráð til af- greiðslu, en að gert væri ráð fyrir því að framkvæmdir hæfust næsta vor og að íbúð- irnar yrðu tilbúnar vorið 2002. Morgunblaðið/Árni Sæberg Katrín Hallgrímsdóttir og Gunnhildur Rut Kristinsdóttir voru sammála um að ökumenn ækju stundum of hratt. Opinn dagur hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins Flugslys var sett á svið SLÖKKVILIÐ höfuðborgar- svæðisins var með opinn dag í fyrradag þar sem fólki var kynnt starfsemi þess. Að sögn Jóns Friðriks Jóhannssonar, sviðsstjóra slökkviliðsins, mættu fjölmargir, bæði ungir sem aldnii', í höfuðstöðvarnar við Skógarhlíð og var ýmis- legt gert til þess að bæði fræða fólk og stytta því stund- ir. „Við vorum með sýningu á sjúkrabílum og sjúkrabúnaði, sem við erum með í bílunum," sagði Jón Friðrik. „Við sýnd- um einnig körfubílana okkar og dælubílana og leyfðum fólki að fara upp í körfubílun- um, en það var náttúrulega aðallega gert fyrir krakkana. Eins leyfðum við krökkunum að síga niður úr turninum hjá okkur. Við sýndum hvernig við klippum bíla í sundur á slysstað til að ná fólki út og einnig settum við á svið lítið flugslys, þar sem lítil flugvél átti að hafa brotlent á bfl með þeim afleiðihgum að það kviknaði bæði í flugvélinni og bflnum. Við slökktum í bílnum og flugvélinni og björguðum einum manni úr vélinni." Fólk verður betur með- vitandi um starfsemina Jón Friðrik sagðist ekki vera í nokkrum vafa um að þeir sem mæta á svona uppá- komu drægju lærdóm af því. „Fólk er sér til dæmis betur meðvitandi um það hvaða störfum við sinnum öðrum en slökkvistörfum eftir svona dag. Það eru margir sem vita til dæmis ekki að við sinnum sjúkraflutningum, eiturefna- slysum, björgunarköfun, vatnslekum og fleiri störfum." Jón Friðrik sagði að tónlistar- maðurinn KK hefði einnig verið með tónlistaratriði, en hann ætlar í samvinnu við slökkvilið höfuðborgarsvæðis- ins í hringferð um landið, þar sem brýnt verður fyrir fólki að vera með eldvamir á heim- ilum í lagi. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Slökkviliðið setti á svið flugslys þar sem lítil flugvél átti að hafa brotlent á bíl. Morgunblaðið/Júlíus Fólki bauðst að fara upp í körfubflnna og voru það helst krakkarnir sem tóku því boði, þó hinir eldri hefðu ekki síður sýnt starfsemi slökkviliðsins áhuga. Morgunblaðið/Júlíus Krakkarnir skemmtu sér vel í höfuðstöðv- um slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og fengu m.a. að síga úr turninum, sem notað- ur er við slökkviliðsæfingar. Borgin kaupir tölvu- kerfí fyrir 135 m.kr. Reykjavík BORGARYFIRVÖLD hafa ákveðið að ganga til samn- inga við Skýrr hf. um kaup á nýju launaafgreiðslu- og starfsmannakerfi en heildar- kostnaður kerfísins er um 135 milljónir króna. Þorlákur Þorláksson, verkefnisstjóri við val og innleiðingu á kerfinu, sagði að kerfið yrði væntanlega tekið í notkun í öllum stofn- unum og fyrirtækjum borg- arinnar árið 2002. Hann sagði að í raun væri um tvö kerfi að ræða, þ.e. eitt sem kæmi til með að sjá um launamál og annað sem kæmi til með að halda utan um starfsmannamál. Þorlákur sagði að launaaf- greiðslukerfið væri viðamik- ið kerfi sem myndi sjá um útreikninga og afgreiðslu launa til um 10.000 starfs- manna á mánuði. Varðandi starfsmannakerfið sagði hann að í dag væri nánast hver stofunin og hvert fyrir- tæki borgarinnar með sér- kerfi en nýja kerfið myndi leysa þau alfarið af hólmi. Því væri um heildarlausn að ræða og mun auðveldara yrði að halda utan um öll starfsmannamál eftir að nýja kerfið yrði tekið í notk- un. Reykjavík Hvað er hættulegast í umferðinni? Hafnarfjörður NEMENDUR í 4. bekk BG í Ilvaleyrarskóla í Hafnarfirði virtust kunna góð skil á um- ferðarreglunum þegar hafn- firskir lögreglumenn ræddu við bekkinn um hætturnar í umferðinni í gær en heim- sókn lögreglumannanna var liður í umferðarviku í Hafn- arfirði. Afar mikilvægt að spenna beltin Umferðarvikan er sam- starfsverkefni lögreglu, gnmnskóla, foreldrafélaga og æskulýðssamtaka í Hafn- arfirði og er ætlað að vekja börn og fullorðna til umhugs- unar um þær hættur sem leynast í umferðinni. Nemendurnir í 4. bekk BG hafa rætt umferðarmálin með kennaranum sínum, Bjarnheiði Guðmundsdóttur, og reynt að svara þein-i spurningu hvað sé hættuleg- ast í umferðinni í Hafnar- firði. Meðal þess sem þau töldu allra mikilvægast í um- ferðinni væri að spenna sig í bflbeltin því annars væri hætta á því að „fljúga út um gluggann“ ef bíllinn lenti í árekstri. Það væri líka mjög mikilvægt að æða ekki út á götuna án þess að líta til beggja hliða og hlusta. Valgarður Valgarðsson lögregluvarðstjóri minnti þau á að það yrði líka að stoppa áður en þau færu yfir götur. Valgarður sýndi bekknum glærur og myndir og ræddi lengi við þau um hvernig ætti að haga sér í umferðinni. Notkun bílbelta og endurskinsmerkja var mikið rædd og töldu nem- endur sig fara afar vel eftir þeim reglum. Ökumenn keyra of hratt Katrín Hallgrímsdóttir og Gunnhildur Rut Kristins- dóttir sögðust báðar passa sig á því að spenna beltin og hlaupa ekki fyrir bíla. En ökumennirnir þurfa líka að passa sig. „Þeir keyra of hratt,“ sagði Katrín og Gunnhildur benti á að þeir færu líka stundum yfir á rauðu ljósi. Þær sögðu þó að foreldrar þeirra beggja ækju á löglegum hraða og færu eftir umferðarreglunum. í bekknum eru tveir nem- endur sem hafa lent í alvar- legum umferðarslysum og því hafa þessi mál verið rædd fram og til baka í bekknum. Brynjar Víkingsson og Atli Páll Helgason töldu sér þó ekki mikla hættu búna á leið- inni í skólann enda búa þeir báðm í nágrenni hans og þurfa ekki að fara yfir miklar umferðargötur. Þeir ætluðu þó að nota endurskinsmerkin sem lögreglumennirnir dreifðu til þeirra í gær. Kertafleyting í kvöld Umferðarátakið í Hafnar- firði hófst á föstudaginn og stendur í viku. Lögreglu- menn heimsækja alla grunn- skóla í Hafnarfirði og ræða umferðarmál við nemendur í 2., 4., 6., 9. og 10. bekk. I kvöld kl. 20 verður kerta- fleyting á tjörninni við Hafn- arfjarðarkirkju til að minn- ast þeirra sem hafa látist í umferðinni. Valgarður Valgarðsson varðstjóri sýndi glærur og myndir og brýndi fyrir börnunum að fara varlega í umferðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.