Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 18

Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Hafnarhúsið sem hýsa mun safn Jósafats Hinrikssonar í Ncskaupstað. Safn Jósa- fats Hin- rikssonar til Nes- kaupstaðar Neskaupstað - Fyrir skemmstu samþykkti bæjarstjóm Fjarða- byggðar að þiggja höfðinglega gjöf erfmgja Jósafats Hinriks- sonar og taka við sjóminja- og smiðjuminjasafni Jósafats Hin- rikssonar til eignar og varð- veislu. I samþykkt bæjarstjóm- ar Fjarðabyggðar segir að safnið sé „stórkostleg gjöf sem verða mun Fjarðabyggð til margs konar gæfu og vegsauka í framtíðinni“. í safninu em margvíslegir munir sem Jósafat heitinn safn- aði af forsjá og elju síðustu ára- tugi ævi sinnar. Innan þess er m.a. smiðjuminjasafn sem segja má að sé einstakt í sinni röð en það hefur að geyma líkan af eldsmiðju, sem reist var í Nes- kaupstað snemma á þessari öld, ásamt verkfæmm og búnaði sem í smiðjunni hafa verið í gegnum tíðina. Gert er ráð fyrir að það taki allt að tvö til þrjú ár að koma safninu upp og hefur verði ákveðið að koma því fyrir í Hafnarhúsinu eða Sameinaða húsinu svokallaða sem stendur í miðbæ Neskaupstaðar. Hafnarhúsið, sem reist var snemma á þriðja áratug aldar- innar, er hið veglegasta og hefur í gegnum tíðina gegnt mismun- andi hlutverkum. Lengi var þar starfrækt fiskverkun og síðar var þar netagerð. Undanfarin ár hefur það verið geymsluhús. Ásmundur Friðriksson, formaður ÍBV, veitti Hjalta Kristjánssyni silfurmerki IBV. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Fjölmenni var á afmælishátíð félagsins sem haldin var í Þórsheimilinu. Framherjar - Smástund 10 ára Vestmannaeyjum - Fyrir um 10 árum voru stofnuð tvö knatt- spyrnufélög í Vestmannaeyjum sem höfðu það að markmiði að vera félög fyrir knattspyrnumenn sem voru að Ijúka ferli sínum með meistaraflokki IBV en vildu halda áfram að sprikla í fótbolta undir öðrum formerkjum þ.e. að minnka álagið og að vilji hvers og eins réði ferðinni. Þá gerðust einnig ýmsir ungir menn félagar sem ckki höfðu áhuga á hinum harða heimi sem fylgir því að spila með meistaraflokki IBV. Þessi félög hafa frá upphafi al- gerlega fjármagnað sig sjálf en þó hlotið rekstrarstyrk frá IBV, héraðssambandi og Bæjarsjóði Vestmannaeyja. Svo gerist það að félögin tvö, Framheijar og Smástund, sameinast undir merki Framherjar-Smástund. Félaginu hefur gengið vel og síðasta keppnistímabil trúlega verið það besta hjá liðinu en það komst i úrslit um sæti 1 2. deild þar sem það tapaði naumlega fyr- ir Þrótti í Neskaupstað. Afmælishóf Á dögunum var 10 ára afmæli félagsins minnst mcð veglegu hófi sem fram fór í Þórsheimilinu að viðstöddum leikmönnum, stuðn- ingsaðilum og fleiri gestum. Þar rakti Hjalti Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri og þjálfari félags- ins, árangur síðustu ára í stuttri ræðu en Hjalti, sem einnig er læknir unglingalandsliðs Islands í knattspyrnu, er einn mesti knatt- spyrnugúru landsins og fr:egt var það þegar Guðjón Þórðarson, þá- verandi þjálfari ÍA, fékk upp- lýsingar frá Hjalta um albanskt knattspyrnulið sem ÍA hafði dreg- ist á móti í Evrópukeppni. í hófið mætti Ásmundur Frið- riksson, formaður ÍBV, og óskaði félaginu til hamingju á þessum tímamótum og sagði m.a. að starfsemi félagsins gæfi íþrótta- lífinu í Eyjum meiri breidd enda fengju margir tækifæri til knatt- spyrnuiðkunar hjá félaginu sem annars væri ekki fyrir hendi í Eyjum. Ásmundur þakkaði Hjalta Kristjánssyni sérstaklega fyrir fórnfúst starf og mikla út- sjónarsemi við rekstur félagsins og færði hann að því loknu félag- inu gjöf frá ÍBV, 100.000 kr., auk þess sem Hjalti var sæmdur silf- urmerki ÍBV. Hreindýraveiðum lokið Ekki veiddist upp í kvóta Norður-Héraði - Hreindýraveiðitímanum er lokið en síðasti veiðidagur var 15. september. Ekki veiddist alveg upp í kvóta, þar vantaði uppá á veiðisvæðum þijú, Borgarfjarðarsvæðinu, og níu, sunnan Horna- fjarðarfljóts. Alls veiddust um 340 dýr af 404. Veiðarnar gengu vel á svæði tvö þar sem flest leyfi eru til sölu. Þar var leyft að veiða 194 dýr og veiddust þau öll. Að sögn Karenar Erlu Erlingsdóttur, starfs- manns hreindýraráðs, gengu veiðarnar vel á þeim svæðum þar sem hreindýr fundust á annað borð, þrátt fyrir tvö norðanskot á veiðitímanum, en þá fara dýrin hratt út Fljótsdalsheiðina og erfitt að finna þau fyrst á eftir. Vegna þess var erfitt að finna stóra tarfa á svæði tvö á tímabili eftir norðanskotin. Hreindýrin sem veiddust voru væn og stórum törf- um er alltaf að fjölga á Snæfellssvæðinu. Einnig veiddust mjög vænir tarfar á Suðurfjarðasvæðinu, en þar hafa tarfar jafnan verið vænstir um veiðitímann. Morgunblaðið/Sigurður Aðalstfiinsson Stoltir veiðimenn við stóran fjögurra spaða hreindýrstarf sem veiddist við Háukletta á Múla inn af Fljótsdal. Taldir frá vinstri Ingólfur Jó- hannesson, Manuel Arjona, Hallgrímur Hallsson, sem skaut tarfinn, og Jónas Bergsteinsson. Margmenni á Orkudegi Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Vagnbrekkan á Öxi er snarbrött og þröng og vissara að fara varlega með kerru og æki. Fj árflutningur yfír Öxi Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Á sýningunni sýndu heimamenn og ýmsir aðilar í byggingariðnaðinum framleiðsluvörur sínar og kynntu lausnir á hinum ýmsu vandamálum í sambandi við orkusparnað. Norður-Héraði - Hafliði Sævars- son bóndi í Fossárdal í Berufirði var að koma með fjárrekstur á jeppa og kerru yfir Oxi á dögun- um. Að sögn Hafliða er þetta í fyrsta skipti sem hann leggur í að fara með skepnur á kerru yfir Öxi en nú er verið að vinna að endur- bótum á Axarveginum og verður hann sæmilega sumarfær að lokn- um þeim endurbótum. Hafliði var að sækja fé í Geitdal í Skriðdal á Múlarétt og með því að fara yfir Öxi styttist leiðin fyrir Hafliða um 60 kílómetra. Skagaströnd - Vel heppnaður Orkudagur var haldinn á Skaga- strönd 26. september. Fjöldi manns sótti sér fræðslu og skemmtan í fé- lagsheimilið Fellsborg þennan dag þar sem hægt var meðal annars að fá sérfræðinga til að taka út orku- kostnað heimila og ráðleggja um úrbætur til sparnaðar fyrir fólk. Dæmi voru um fólk á sveitabæ sem kynt hefur með olíu en getur spar- að sér öll útgjöld til húshitunar miðað við kostnaðinn í dag með því að fara að kynda með rafmagni og nýta sér hagstæðustu taxta Rarik. Orkudagur var haldinn í sam- vinnu Rarik, Orkustofnunar, Rann- sóknarstofnunar byggingariðnaðar- ins og Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum. Orkudagar er átak sem hófst í vor og hafa verið haldnir slíkir dagar á Vesturlandi, Vestfjörðum og nú síðast hér á Norðurlandi. Átakið er ætlað svæð- um sem ekki búa svo vel að hafa heitt vatn til húshitunar heldur verða að nota raforku eða olíu til þess. Á Orkudegi á Skagaströnd voru sérfræðingar frá Rarik org Orku- stofnun sem gáfu fólki góð ráð í sambandi við sparnaðarleiðir við húshitun. Einnig sýndu ýmsir aðil- ar úr byggingariðnaðinum vörur sínar og hvaða möguleikar eru í boði í sambandi við orkusparnað í húsnæði fólks. Auk þess voru heimamenn með atvinnuvegasýn- ingu þar sem sýndar voru fram- leiðsluvörur og þjónusta nokkurra fyrirtækja á staðnum og var gest- um boðið upp á kaffi og vöfflur í boði Höfðahrepps og Vilko á meðan þeir skoðuðu sýninguna og spjöll- uðu við sérfræðingana á staðnum. Námskeið um kynditæki Orkudagurinn hófst klukkan 9 um morguninn með námskeiði fyrir 20 tæknimenn, húsverði og fleiri slíka aðila um stillingu, viðhald og nýtingu kynditækja. Námskeiðinu lauk um klukkan 15 og lýstu þeir sem það sóttu yfir ánægju sinni með innihald þess. Síðar um daginn var síðan fjölsóttur fyrirlestur fyrir almenning um orkusparnað í dag- legu lífi fólks. Þá var kynntur nýr lánaflokkur til orkusparandi að- gerða, sem verið er að koma á fót, þar sem fólk getur fengið 100 til 300 þúsund króna lán með hag- stæðum vöxtum til allt að 15 ára. Standa félagsmálaráðuneytið og iðnaðarráðuneytið að þessum nýja lánaflokki. Skagaströnd er áttundi staðurinn þar sem Orkudagur hefur verið haldinn frá því í vor og að sögn Rögnu Karlsdóttur verkefnisstjóra var hann sá fjölsóttasti og best heppnaði til þessa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.