Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 32

Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTOBER 2000 MORGUNBLAÐID LISTIR Sinfóníuhljómsveitin á leið í sína lengstu tónleikaferð til þessa 25 ára af- mælissýning Fjölbrauta- i / Morgunblaðið/Ásdís Sinfóníuhljómsveitin er að leggja upp í langferð. Myndin er tekin á æf- ingu fyrr á þessu ári. 25 ára af- mælissýning Fjölbrauta- skólans í Breiðholti MYNDLISTARSÝNING verður opnuð í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi miðviku- daginn 4. október kl. 16.25 í til- efni 25 ára afmælis Fjölbrauta- skólans í Breiðholti. Á sýningunni verða verk eft- ir 28 listamenn sem stigu fyrstu skrefm á myndlistarferli sínum við listadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Verkin eru af margvíslegum toga; málverk, skúlptúrar, grafík og textíl- verk, keramik, ljósmyndir og vídeóverk. Sýnendur eru: Anna Eyjólfs- dóttir, Didda Hjartardóttir Leaman, Dröfn Guðmundsdótt- ir, Erling Þ.V. Klingenberg, Georg Guðni Hauksson, Guð- björg Hákonardóttir, Guðbjörg Hlíf Pálsdóttir, Gunnar Þ. Jónsson, Hekla B. Guðmunds- dóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Helga Kr. Unnarsdóttir, Helgi Eyjólfsson, Hildur Jónsdóttir, Inga Þórey Jóhannesdóttir, Ingiríður Óðinsdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, Kolbrún Sigurð- ardóttir, Margrét B. Magnús- dóttir, Ölöf Einarsdóttir, Jóní Jónsdóttir, Ragnar Stefánsson, Ráðhildur S. Ingadóttir, Sara Vilbergsdóttir, Sigrún Inga Hrólfsdóttir, Sólrún Guð- björnsdóttir, Stefanía Stefáns- dóttir, Þórdís Elín Jóelsdóttir og Þórunn Hjartardóttir. DAGSKRÁ menningarminjadaga siðastliðna helgi tðkst með af- brigðum vel í öllum landsfjórðung- um, að sögn Margrétar Hall- grímsdóttur þjóðminjavarðar, enda þátttaka almennings góð. „Heimamenn stóðu sig alls staðar mjög vel, auk þess sem fallegt veð- ur varð til þess að styrkja dag- skrána um land allt,“ sagði hún í samtali við Morgunblaöið. Þjóðminjasafn íslands stóð fyrir ferð til Þingvalla síðastliðinn laug- ardag í samvinnu við Þingvalla- nefnd og félagið „Minjar og sögu“. „Dagskráin tókst frábærlega vel, bæði var þátttakan með miklum ágætum og áhuginn mikill,“ sagði Margrét ennfremur. „Milli 70 og 80 manns fóru með rútu frá Þjóð- minjasafninu að Þingvöllum og álíka fjöldi fór í rútu að Gásum fyr- ir norðan. Einnig var það sem í boði var í Reykholti, á Hólum í SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands leggur á morgun upp í þriggja vikna tónleikaför til Norður-Ameríku, þar sem hún mun leika á þrettán tónleik- um, m.a. í hinum virtu tónleikasölum Carnegie Hall í New York og Kenn- edy Center í Washington. Þetta verður lengsta og viðamesta hljóm- leikaferð hljómsveitarinnar til þessa en kveikjan að ferðinni eru landa- fundahátíðahöldin þar vestra. Einleikari með hljómsveitinni verður fiðluleikarinn Judith Ingólfs- son og stjómandi Rico Saccani, aðal- hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm- sveitarinnar. Fjögur verk verða flutt í ferðinni; Icerapp 2000 eftir Atla Heimi Sveinsson, Fiðlukonsert eftir Kachaturian, Sinfónía nr. 1 eftir Sib- elius og Symphony fantastique eftir Berlioz. Vérður verkunum raðað saman á þrjá mismunandi vegu á tón- leikunum, en þrjú verk eru á efnis- skrá hverra tónleika. Islenska verk- ið, Icerapp Atla Heimis, verður leikið á öllum tónleikunum en það er samið sérstaklega af þessu tilefni. Eldskírn fyrir hljómsveitina Fyrstu tónleikamir verða í Manitoba Centennial Concert Hall í Winnipeg á fimmtudagskvöld. Aðrir tónleikamir verða á laugardagskvöld í The State Theater í New Brunswick í New Jersey. „Eftir það ætti hljóm- sveitin að vera reiðubúin að spila í Camegie Hall, mánudagskvöldið 9. október. Að spila þar er fyrir hvaða hljómsveit sem er hvort tveggja í senn kvíðvænlegt og tilhlökkunar- efni. Þama em hörðustu gagnrýn- Hjaltadal og Skriðuklaustri vel sótt.“ Margrét sagði það sérstaklega ánægjulegt hve samvinna Þjóð- minjasafns og heimamanna hefði heppnast vel, „því þannig hafi til- gangi menningarminjadaga verið náð. Markmiðið með þessum degi var að taka höndum saman um land allt og stuðla að því að auka áhuga og virðingu gagnvart þeim merku menningarminjum sem við eigum. Á Þingvöllum var mjög áhugavert að hlusta á færa sér- fræðinga, hvern á sínu sviði. Þar endurnir og mestur metnaður hjá þeim sem að þessu standa - til þess að fá ekki í húsið nema hljómsveitir sem menn treysta að séu af þeim gæðaflokki sem húsið getur staðið undir. Þannig að þetta verður eins og eldskím fyrir hljómsveitina," segir Þröstur Ólafsson, framkv'æmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar. Hann rifjar upp Ameríkuferð hljómsveitar- innar 1996 en hápunktur þeirrar ferðar var einmitt þegar hljómsveitin hélt tónleika í Carnegie Hall og hlaut góða dóma gagnrýnenda. Daginn eftir heldur hljómsveitin til háskólabæjarins Kutztown í Pennsylvaníu og leikur um kvöldið í Schaeffer Auditorium. Miðvikudags- var t.d. Orri Vésteinsson frá Forn- leifastofnun íslands og greindi frá niðurstöðum fomleifarannsókna sem stofnunin stóð að fyrir stuttu. Eins var Guðmundur Ólafsson frá Þjöðminjasafninu á staðnum og sagði frá fyrri skráningu safnsins á rústum og minjum á svæðinu. Leið- sögn var í höndum Sigurðar Lín- dal, en hann er líklega manna fróð- astur um Þingvelli. Með í för voru einnig aðrir fróðir aðilar svo hægt var að sameinast um skemmtilega leiðsögn. Flestir fóru því einhvers vísari heim og ég held að allir hafi kvöldið 11. október er komið að tón- leikunum í Kennedy Center í Wash- ington DC, sem Þröstur segir að verði líka „miklir metnaðartónleik- ar“. Þaðan verður svo farið til Ann Arbor í Michigan, „sem er sá staður í Bandaríkjunum sem hefur, íyrir ut- an Kennedy Center, haft hvað best orð á sér fyrir tónleikaraðir. Þar hafa mjög lengi verið tónleikaraðir þar sem boðið hefur verið upp á tónleika með öllum bestu sinfóníuhljómsveit- um heims, svo sem Berlínarfllharm- óníunni og VínarfOharmóníunni. Það er okkur mikill heiður að vera boðið að leika á þessum stað í þessari tón- leikaröð", segir Þröstur. Að loknum tónleikunum í Hill Auditorium í Ann Eftirmynd af líkneskinu „Klaustur-Maríu“. verið sammála um að á þessu svæði sé um gríðarlega spennandi rann- sóknarverkefni að ræða.“ Jákvæð áhrif á þjóðmiiyavörsluna og ímynd landsmanna Margrét sagði þó að megin- áherslan hefði verið lögð á fræðslu og leiðsögn þessa daga, svo að al- menningur fengi tækifæri til að kynnast söguminjum hvers staðar fyrir sig og því hvaða starf hefur verið unnið þar hingað til. „Það má ef til vill gera meira af því að kynna þennan menningararf sem við eigum enda tel ég það geta haft mjög jákvæð áhrif á þjóðminja- vörsluna og ímynd landsmanna. Við munum kappkosta að vera ineð í þessu verkefni árlega, en svona menningarminjadagur er haldinn á hverju ári í öllum aðildarríkjum Evrópusambandsins.“ Arbor 12. október verður haldið í vestur, þar sem næsti áfangastaður er Las Vegas. Þar verða tónleikar í Artemus Ham Hall 14. október. Dag- inn eftir leikur hljómsveitin á tón- leikum í Segerstrom Hall í Costa Mesa, útborg Los Angeles. Þriðju- dagskvöldið 17. október verða svo tónleikar í höfuðborg Kalifomíuríkis, Sacramento, í Sacramento Com- munity Center Theater. „Þaðan höldum við áfram til New Mexico, þar sem við verðum með tónleika á föstudagskvöldi í Duane Smith Aud- itorium í kjamorkuvísindabænum Los Alamos, þar sem íyrsta kjarn- orkusprengjan var sprengd," segir Þröstur. Lokapunktur ferðarinnar verður svo þijú tónleikakvöld í röð í Suðurríkjunum. Sunnudagskvöldið 22. október í Hodgson Hall í Athens í Georgíu en að sögn Þrastar fer orð af því að það sé mjög góður salur. Á mánudagskvöldi verða svo tónleikar í Blumenthal PAC í Charlotte í Norð- ur-Karólínu og þriðjudagskvöldið 24. okt verða síðustu tónleikar ferðar- innar í Tom Wolfe Auditorium í Asheville. Hljómsveitin heldur svo heimleiðis að kvöldi 25. október. Aðspurður hvort ferða- og tón- leikaáætlunin sé ekki heldur í stífara lagi segir framkvæmdastjóri Sinfón- íuhljómsveitarinnar að vissulega sé hún það. Hins vegar sé eftirspurnin svo mikil að það sé freistandi að skipuleggja myndarlega ferð. Marg- ir hafi viljað fá hljómsveitina til að spila og úr því farið sé af stað á annað borð hafi verið ákveðið að setja markið hátt. ÞRIÐJUDAGUR Bfóborgin Kl. 15.40 The Straight Story Kl. 15.55 The Loss of Sexu- al Innocence Kl. 16 Buena Vista Social Club Kl. 17.50 The Straight Story Kl. 18 Buena Vista Social Club Kl. 20 Buena Vista Social Club, Cosi Ridevano, Fallen Angels Kl. 22 The Loss of Sexual Innocence, Buena Vista Social Club Háskólabio Kl. 18 The Coca Cola Kid Kl. 20 Une Liaison pornographique Kl. 22.15 The Emperor and the Assassin Regnboginn Kl. 16 Onegin, Un Pont entre deux Rives, Condo Painting Kl. 17.30 Prineess Monon- oke Kl. 18 Crouching Tiger, Hidden Dragon Kl. 22 Ride with the Devil, Cosy dens Ný bók • Síðasta mál Morse fjallar um mál sem rekur á fjömr Morse lög- reglufulltrúa og er eftir Colin Dexter. Áður hafa komið út á íslensku þrjár bækur Colins Dexter um Morse. Hann er íslenskum sjónvarpsáhorfendum einnig að góðu kunnur, enda ein eftirminni- legasta hetja glæpabókmenntanna á síðustu áratugum. Sverrir Hólmarsson þýddi. Síð- asta mál Morse er 380 bls. Kápuna gerði Björn Birgisson. Verð: 1.799 kr. Uglan - íslenski kiljuklúbburinn gefur bókina út. Góð aðsókn á menningarminjadaga sem haldnir voru um helgina Morgunblaðið/Ómar Dagskrá menningarminjadaga var vel sótt um land allt. Á Þingvöllum skoðuðu um 70 manns fornminjar. Tilgang- inum nað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.