Morgunblaðið - 03.10.2000, Side 37

Morgunblaðið - 03.10.2000, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 37 LISTIR Leynideildin og launmorðinginn ERLENDAR BÆKUR Spennusaga „THE WHITE HOUSE CONNECTION" Eftir Jack Higgins. Penguin Books 2000. 276 síður. í NÝJUSTU spennusögu Jacks Higgins, „The White House Conn- ection" sem gefin var fyrir skemmstu út í vasabroti hjá Peng- uin-útgáfunni, er hjartveik sjötug kona vopnuð lítilli skammbyssu fær um að myrða nokkra harða hryðju- verkamenn úr einhverjum herská- um armi Irska lýðveldishersins, sem kallar sig Syni Irlands. Lafði Helen heitir kona þessi og er hið besta skinn í rauninni en hefndin drífur hana áfram. Synir írlands voru ábyrgir fyrir því að einkason- ur hennar, breskur hermaður, lést á Irlandi þar sem hann gegndi her- þjónustu. Full hefndarþorsta hefur lafði Helen sum sé upp á sitt ein- dæmi sett í gang persónulega að- gerð aðstoðuð af einkabílstjóra sín- um, látið hjartapillurnar í budduna ásamt skammbyssunni sinni og myrðir nú til hægri og vinstri. Jack Higgins Finnist einhverjum hún fremur ósennilegur Ieigumorðingi má geta þess henni til varnar að hún er það eina sem frumlegt má teljast í sög- unni og stendur furðulega vel upp úr öllu klisjusafninu, sem Higgins ber orðið á borð fyrir lesendur sína. Hann er hér að fjalla um allar sömu ofurhetjurnar og hann skrifaði um í spennusögunni Dóttur forsetans eða „The President’s Daughter“. Hetjur þessar eru starfsmenn ægi- lega leynilegrar deildar innan bresku leyniþjónustunnar sem heyrir beint undir forsætisráðherr- ann og fæst við hryðjuverkamenn af öllu tagi. I fyrri sögunni var dótt- ur forseta Bandaríkjanna rænt af arabískum glæpamönnum en nú fjallar sagan um leitina að írskum hryðjuverkamönnum og njósnara þeirra í sjálfu Hvíta húsinu. Jack Higgins er einn af þekkt- ustu spennusagnahöfundum heimsins. Hann ólst upp í Belfast og eru málefni Norður-írlands áberandi viðfangsefni í mörgum bókum hans. Hann byrjaði að skrifa spennusögur eftir að hafa verið í hernum m.a. við landamæri Austur-Þýskalands á dögum kalda stríðsins, en bók hans Órninn er sestur eða „The Eagle Has Land- ed“ gerði hann heimsfrægan. Bæk- ur hans hafa selst að sögn í 250 milljónum eintaka og verið þýddar á 55 tungumál. Mai’gar hafa verið kvikmyndaðar, m.a. ðrninn er sest- ur og, A Prayer for the Dying“. Áhugaleysi Bækur Higgins hafa versnað með árunum. Hann virðist nokkmTi veginn hættur að reyna að leggja á sig erfiði við skrifin en treystir á formúlur og klisjur. Lafði Helen kemst að því nokla'u eftir lát sonar síns að dauða hans bar að með öðr- um hætti en hún hélt og þrátt fyrir hjartveiká sína og nokkum aldur flýgur hún á milli Bandaríkjanna og Bretlands og myrðir þá sem báru ábyrgð á dauða sonar hennar. Hana munar reyndar ekki um að skjóta meinta glæpamenn aðra ef svo ber undir. Leynilega deildin kemst á slóð hennar og reynir að elta hana uppi og hoppar frásögnin á milli Bret- lands og Bandaríkjanna og Irlands. Allt eru það valmenni mikil sem stjóma deildinni en það er sérstak- ur heiður í sögunum tveimur að hafa verið stríðshetja í „Nam“ eins og Higgins kallar það sífellt og á við Víetnam. Allir sem einhverja vikt og vii’kt hafa, og þar með talið for- seti Bandaríkjanna, búa að ein- hven-i gríðarlegri reynslu úr „Nam“ og það er mælikvarði á hug- hreysti og djörfung að hafa þjónað í „Nam“. Að öðm leyti eru hetjur þessar mjög sama merkinu brenndar, einstaklega úrræðagóð- ar, greindar, leiknar með skotvopn og í bardaga hvers konai', skipta ekki við aðra en forsætisráðherra og forseta og drekka viskí ef þær þurfa að róa taugarnar. Higgins er alltof fljótur að varpa hulunni af svikaranum í Hvíta hús- inu og er erfitt að sjá hvað honum gengur tO með því. Það ber eins.og svo margt annað í sögunni vitni um algert áhugaleysi höfundarins á því sem hann er að gera. Arnaldur Indriðason Alþjóðleg raf- og tölvutónlistarhátíð ALÞJÓÐLEGA raf- og tölvutónlist- arhátíðin ART2000 verður haldin í Salnum í Kópavogi 18. til 28. október næstkomandi. Þar verður haldinn fjöldi fyrirlestra um raf- og tölvu- tónlist og haldnir tónleikar, en einnig verða reglulegir tónleikar á Gauki á Stöng. Hátíðin er haldin í samvinnu Kópavogsbæjar og Reykjavíkur -menningarborgar árið 2000 fyrir atbeina Tónvers Tónlistarskóla Kópavogs, en forstöðumenn þess eru Hilmar Þórðarson og Ríkharður H. Friðriksson. Fjölmargir erlendir lista- og fræðimenn á sviði tölvu- og raftón- listar taka þátt í hátíðinni en dagskrá hennar verður þannig að frá kl. 17 til 18.30 halda erlendu gestirnir fyt-ir- lestra þar sem þeir ræða sitt sérsvið, fjalla um sögu raf- og tölvutónlistar og kynna helstu verkefni er þeir starfa að um þessar mundir. Fyrir- lestrarnir verða haldnir í Salnum og kl. 20-22 verða þar tónleikar þar sem flutt verða verk eftir gestina en einn- ig fjölmörg íslensk tónverk. Síðar á kvöldin, frá kl. 22 til 24 eða lengur, verður einnig starfræktur á Gauki á Stöng tónlistarbar sem kall- ast Kvöldbarinn, og þar verður flutt íslensk og erlend raf- og tölvutónlist, ýmist á tónleikum eða af plötum, en einnig munu einhverjir erlendu gest- anna taka þátt í snarstefjun með ís- lenskum tónlistarmönnum. Meðal gesta hátíðarinnar eru Paul Lansky, tónskáld og forstöðumaður tónlistardeildar Princeton-háskóla, Trevor Wishai't, enskt hljóðskáld, Áke Parmerud, sænskt sjálfstætt starfandi tónskáld, Jack Vees, for- stöðumaður Music Technology deild- ar Yale-háskóla, Konrad Boehmer, prófessor við Konunglega Hollenska tónlistarháskólann í Haag, Peter Apfelbaum, alhliða hljóðfæraleikari, Don Buchla, rafhljóðfærasmiður og framleiðandi Buchla-hljóðgervlanna, Wayne Siegel, tónskáld og forstöðu- maður Dansk Institut for Elektro- akustisk Musik í Arósum og Clar- ence Barlow, tónskáld og listrænn stjórnandi Instituut voor Sonologie í Haag. Einnig kemur hingað til lands norski tónlistarmaðurinn Geir Jens- sen sem kallar sig Biosphere. Opnunarverk hátíðarinnar eftir Magnús Blöndal Jóhannsson Fjölmargir íslenskir listamenn taka einnig þátt í hátíðinni. Hljóm- sveitin Stilluppsteypa kemur hingað til lands og heldur tónleika á hátíð- inni, en hljómsveitarmeðlimir búa í Hollandi og Þýskalandi. Hljómsveit- in Vinva Mei heldur einnig tónleika og listamennimir og hljómsveitirnar Plastik, Biogen, Apparat, Skúli Sverrisson og Hilmar Jensson og Auxpan. A hátíðinni verða einnig flutt verk eftir Þorkel Sigurbjörns- son, Þorstein Hauksson, Lárus H. Grímsson, Ríkharð H. Friðriks- son, Hilmar Þórðarson, Hjálmar H. Ragnarsson, Karólínu Ehíksdóttur, Snorra S. Birgisson og Magnús Blöndal Jóhannsson, en verk eftir hann verður opnunarverk hátíðar- innar og einnig gefur Smekkleysa út geisladisk með safni verka Magnús- ar á opnunarhátíðinni. Upplýsingar um dagskrá hátíðar- innar er að finna á slóðinni www.musik.is/art2000, og miða á hana er hægt að kaupa á Netinu hjá Bókunarmiðstöð Islands á slóðinni www.discovericeland.is. Einnig verður hægt að fá aðgöngumiða í versluninni 12 tónum. Hátíðin verður send út á N etinu á vegum Xnet.is. Stuðningsaðilar ART2000 eru auk Kópavogsbæjar og Reykjavíkur -menningarborgar Evópu árið 2000, Íslandsbanki-FBA, Bókunarmiðstöð Islands, Net-Albúm, Xnet, Landmat, Litróf, 12 tónar, Gaukur á Stöng og Viðskiptanetið. Van Gogh á Netinu Amsterdam. AP. LISTUNNENDUR þeir sem ekki sjá sér fært að heimsækja van Gogh listasafnið í Amsterdam eiga þess nú kost að skoða verk þessa 19. aldar meistara á netinu. Vefur safnsins, www.van- goghmuseum.nl, var opnaður al- menningi í lok september og gerir hann gestum kleift að ferðast um þá sex sýningarsali safnsins er geyma verk Vincent van Goghs. Er þar hægt að skoða hvert og eitt verk í nærmynd, stækka stök atriði upp enn frekar og virða þannig fyr- ir sér pensilför og önnur smáatriði. Þá fylgir hverju verki einnig smá lesning þar sem fræðast má um bakgrunn og sögu verksins og þá þýðingu sem það hafði fyrii' lista- manninn. „Takmai-kið er að gera fólki kleift að skoða verkin, virða safnið fyrir séi' og sjá hvemig verkunum er fyr- ir komið og læra þannig meira um van Gogh sjálfan í stað þess að horfa bara á myndimar,“ sagði Heidi Vandamme, talsmaður safnsins. Að mati AP-fréttastofunnar mun vef- urinn eiga efth' að auðvelda fólki að skoða verkin í bæði næimynd og næði, en van Gogh safnið er yfirleitt þéttskipað sýningargestum. Hómópatanám á íslandi Um er að ræða 4 ára nám í hómópatiú sem byrjar í haust á vegum College of Practical Homoeopathy í Bretlandi. MætinglO helgar á ári í Reykjavík, auk heimanáms og verklegrar þjálfunar. Kennarar með miklu reynslu. Upplýsingar gefur Martin í síma 567 8020 eða 897 8190 VEPálisfinn_ við Laugalæk, sími 553 3755. LéUur og meðfærilegur GSM posi með innbyggðum prenlara Les allar tegundir greiðslukorta sem notuð eru á íslandi. Er með lesara fyrir snjallkort og segulrandarkort. Hraðvirkur hljóðlátur prentari. Stjörnuspá á Netinu ^mbl.is /\LLTAf= e/TTHVAO A/ÝTJ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.