Morgunblaðið - 03.10.2000, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞKIOJUOAGUR 3. OKTOBER 2000 45
ÞORBJÖRG STEF-
ANÍA JÓNASDÓTTIR
+ Þorbjörg Stefan-
ía Jónasdóttir
fæddist á Kvía-
bryggju í Eyrarsveit
24. nóvember 1935.
Hún lést á Vífils-
staðaspítala 23. sept-
ember siðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þorkatla
Bjarnadóttir, f. 9.8.
1904, d. 20.3. 1995,
og Jónas Ólafsson, f.
17.5. 1880, d. 30.6.
1952. Systkini Þor-
bjargar eru Petrea
Guðný, f. 14.1. 1927;
Sigríður Inga, f. 10.1. 1930;
Ragnheiður Salbjörg, f. 8.1. 1931;
Ólafur Björn, f. 7.4. 1934, d. 21.1.
1979; Bjarni Hinrik, f. 6.7. 1939;
Erla, f. 31.10. 1940; Helga, f.
23.9. 1943, og Ragnar Þór, f. 5.9.
1946. Börn Þorbjargar eru 1)
Kolbrún Sæunn Þor-
valdsdóttir, f. 12.10.
1953, gift Steini
Inga Árnasyni, f.
14.11. 1949, d.
18.11. 1980, þeirra
synir eru Árni Ingi,
Halldór Ingi og Þor-
bjöm Ingi. Auk þess
á Kolbrún Helenu
Bjarnþórsdóttur og
Tómas Má Þrastar-
son. 2) Jónas Þor-
kell Þorvaldsson, f.
16.6. 1955. Barna-
barnabörn Þor-
bjargar eru Steinn
Ingi Árnason og Ingibjörg Erla
Ámadóttir. Sambýlismaður Þor-
bjargar er Jens Hansen starfs-
maður í Fiskiðju Skagfirðinga hf.
Þorbjörg verður jarðsungin frá
Grundarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Ég sendi þér kæra kveðju,
mín komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
égbiðaðþúsofirrótt
Þótt svíði sorg mitt hjarta
þásælteraðvitaafþvi,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Hjartkær systir mín er látin eftir
löng og ströng veikindi. Bara það eitt
að draga andann reyndist henni erf-
itt. Líf hennar var í raun oft og tíðum
erfitt. Aðeins 19 ára gömul var hún
orðin einstæð móðir með tvö börn en
hún var svo lánsöm að eiga að góða
móður og í sameiningu ólu þær upp
börnin. Þegar þau voru uppkomin fór
Þorbjörg suður og vann á Lundi í
Kópavogi þar sem hún kynntist sam-
býlismanni sínum, Jens. í febrúar
1973 fluttust þau vestur i Grundar-
fjörð og stofnuðu þar heimili og vann
Þorbjörg í fiski á meðan heilsan
leyfði. Frá árinu 1998 dvaldi hún á
Vífilsstaðaspítala og andaðist þar að-
faranótt laugardagsins 23. septem-
ber. Það er mér mikil huggun að hafa
haft hana það nálægt mér að ég gæti
stutt hana og glatt á þessum döpru
dögum sem oft voru margir. Starfs-
fólki Vífilsstaðaspítala eru færðar
þakkir fyrir einstaka umönnun. Ég
hef aldrei orðið vitni að eins miklum
kærleika og blíðu eins og henni var
sýnd þar. Jens, Kollu, Jónasi, bama-
bömum og öllum er henni tengdust •
votta ég mína dýpstu samúð. Blessuð
sé minning minnar kæm systur.
Þín einlæg systir,
Helga.
Látin er á Vífilsstaðaspítala móð-
ursystir mín Þorbjörg Jónasdóttir
frá Gmndarfirði. Ég minnist
Þorbjargar sem elskulegrar frænku
sem alltaf tók mér opnum örmum
þegar ég heimsótti hana, hvort held-
ur sem var vestur í Gmndarfirði eða
á spítalann þar sem hún dvaldi síð-
ustu árin. Þegar ég var bam hlökkuð-
um við systkinin alltaf til að fá Þor-
björgu í heimsókn því hún lumaði
ætíð á góðgæti handa okkur sem auð-
vitað vakti mikla lukku enda sælgæti
ekki oft á boðstólum á heimilinu á
þeim tíma.
Síðastliðin ár dvaldist Þorbjörg á
Vífilsstöðum og það var greinilegt að
þar naut hún góðrar umönnunar og
hlýhugar starfsfólks. Það hefur ef-
laust verið oft á tíðum einmanalegt
íyrir hana að vera svo langt í burtu
frá maka sínum og heimkynnum þótt
aldrei heyrði ég hana kvarta yfir hlut-
skipti sínu. Þorbjörg átti góða að sem
létu sér annt um hana í veikindunum,
svo sem móður mína Helgu, sem
reyndist systur sinni einstaklega vel.
Ég votta aðstandendum Þorbjarg-
ar samúð mína. Guð blessi minningu
hennar.
Dæm svo mildan dauða,
drottinn.þínubami,-
einsogléttulaufi
lyftiblærfráhjami,-
einsogb'tilllækur
ijúki sínu þjali,
þarsemlygníleyni
bggurmarinnsvalL
(Matthías Joch.)
Ásta Emiisdóttir.
SIGURÐUR EMIL
RAGNARSSON
+ Sigurður Emil
Ragnarsson
fæddist á Daivík
hinn 12. september
1943. Hann lést 5.
september síðastlið-
inn. Hann var sonur
hjónanna Steinunn-
ar Sigurðardóttur,
f. 1.7. 1921 og
Ragnars Jónssonar,
f. 8.5. 1919, d. 14.4.
1996. Systir Sigurð-
ar er Elín Rósa, f.
11.6. 1950, gift Sig-
urpáli Kristinssyni,
f. 23.5. 1951. Þau
eiga þrjú börn og tvö barna-
börn.
Sigurður kvæntist 1967 eftir-
lifandi eignkonu sinni Guðrúnu
Siglaugsdóttur, f.
1.8. 1947. Þau eign-
uðust þrjú börn;
Ragnar Karl, f. 7.2.
1974; Bryndís, f.
30.9. 1975. Sambýl-
ismaður hennar er
Kristinn Trausta-
son og eiga þau eitt
barn óskírt, f. 25.8.
2000; Hafdís, f.
20.9. 1981.
Sigurður ólst upp
á Dalvík en flutti til
Akureyrar árið
1967. Hann nam
bifvélavirkjun og
vann lengst af við fag sitt.
títför Sigurðar fór fram frá
Akureyrarkirkju í kyrrþey 13.
september.
Enn og aftur erum við mannfólkið
í ófullkomleik okkar minnt á hverful-
leik lífsins og hve skammt bilið er á
milli lífs og dauða en þann 13. sept-
ember sl. fylgdum við Sigurði Ragn-
arssyni, gömlum félaga frá Dalvík,
til grafar. Á slíkum stundum þegar
tregt er um tungu að hræra renna
minningarnar eins og kvikmynd í
gegnum hugskotið - minningar
æsku- og unglingsáranna sem
bregða birtu á sorgina og tregann
sem andartakið ber með sér.
Ljóshærður, vígreifur strákur á
svörtu reiðhjóli ber út póst og kvaðn-
ingar - reynir ef hann mögulega get-
ur að ná fólki utan dyra og leggur þá
annan fótinn upp á grindverkið í af-
slöppun á meðan viðtakandi kvittar
fyrir. Kastar fyndnum athugasemd-
um að krökkum á götunni - skransar
í viðsnúningnum og er horfinn áður
en nokkum varir.
Kominn með bílpróf og einn af
þeim sem gat státað af Volkswagen -
svört bjalla A-1558. Ótaldir rúntarn-
ir enda maðurinn ólatur við að skjót-
ast milli staða ef við lá eða dóla
hringinn með blaðskellandi vinkonur
sínar. Athugasemdir eins og „hvað
gengur þér nú til ræfils, druslu, hild-
ar, bjálfa, tuskan,“ eða ef minna lét
við „æ jæja hildin mín“ voru eðlileg-
ur hluti samræðna sem stundum
fóru fram á tákn- og tungumáli sem
engir skildu nema við sem vorum
þátttakendur.
Já, Siggi gat svo sannarlega létt
félögum sínum lundina, hann var oft
hnyttinn og fyndinn í tilsvömm og
eitt og annað sem út úr honum hraut
vakti hlátursköst og skemmtun. Það
var líka alltaf auðvelt að biðja Sigga
um greiða en hjálpsemi átti hann í
ríkum mæli og þótti gjaman sjálf-
sagt að hlaupa undir bagga með ná-
unganum.
Böm í sjávarþorpi læra snemma
að hafið sem gefur, það tekur líka.
Siggi mátti ungur, innan við tvítugt,
reyna það að missa Sólberg sinn
besta vin í háskaveðri. Það er ekki
ofsögum sagt að það áfall hafi haft
varanleg áhrif á Sigga og á vissan
hátt litað hans lífsferil allan. Nú er
þessi gamli félagi okkar allur fyrir
aldur fram - lífsbók hans er lokið.
Hvíl þú væng þinn í ljóði mínu,
lítill fugl á löngu flugi
frá morgni til kvölds.
Styð þig, stjama, við blóm í garði mínum
Eitt andartak á ferð þinni
Um tíma og rúm.
Eins og stráið í sandi við haf dauðans,
Vaxa rætur þess, sem hvergi fer.
Enginn spyr, hvaðan hann komi.
(Jón úrVör.)
Við biðjum Drottin allsherjar að
styrkja eiginkonu og börn Sigga sem
honum þótti afar vænt um og var
mikið stoltur af og sendum þeim
innilegar samúðarkveðjur. Einnig
Elínu Rósu systur hans og Steinunni
móður hans en alla tíð var á milli
þeirra mæðgina mikill kærleikur og
trúnaður.
Segiðþaðmóðurminni,
að mold sé farin að anga,
svali leiki um sali
ogsóbrenndavanga.
Býst ég nú brátt til ferðar,
Brestur þó veganesti.
En þar bíða vinir í varpa,
semvonerágesti.
(Davíð Stef.)
Far vel félagi og vinur.
Guðbjörg og Elín.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okk-
ur samúð og hlýhug við andlát og útför
JÓHÖNNU ÓLAFSDÓTTUR,
Löngubrekku 7,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimil-
isins Sunnuhlíðar í Kópavogi.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS ÁGÚSTSSON
bifvélavirki,
Dvergabakka 24,
lést á heimili sínu föstudaginn 30. seþtember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Heiga Eiríksdóttir,
Ágúst Magnússon, Sigríður S. Eiríksdóttir,
Lilja Magnúsdóttir, Jóhann Víglundsson,
Jenný Magnúsdóttir, Magnús Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn,
ÁRNI SIGURJÓNSSON
fyrv. fulltrúi lögreglustjóra,
lést á heimili sínu sunnudaginn 1. október.
Þorbjörg Kristinsdóttir.
i
+
Elskulegur faðir okkar,
AAGE R. L’ORANGE,
lést sunnudaginn 1. október.
Jarðarför auglýst síðar.
Anna S. L'Orange,
Emilía L'Orange.
i
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HULDA HELGADÓTTIR,
Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
áður til heimilis á
Seftjörn,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju
miðvikudaginn 4. október kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Jón Alfreðsson,
Gunnar Þór Alfreðsson, Sigríður Þórðardóttir,
Baldur Alfreðsson, Ingibjörg Magnúsdóttir,
Helgi Már Alfreðsson, Kristín Th. Hallgrímsdóttir,
Ásthildur Alfreðsdóttir, Þórhallur B. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
I
i
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu
og virðingu við andlát og útför okkar hjartkæra
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og lang-
afa,
PÁLS GUÐMUNDSSONAR
fyrrv. verkstjóra,
Unnarbraut 6,
Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki deildar 11G á Landspítala við
Hringbraut og heimahlynningu Krabbameinsfélagsins fyrir frábæra
umönnun í veikindum hans.
Sveinbjörg Kristjánsdóttir,
Margrét Pálsdóttir, Alfreð Bóasson,
Guðmundur Þ. Pálsson, íris Dungal,
Magnús Pálsson, Laura Sch. Thorsteinsson,
Björg Pálsdóttir,
Hildur Pálsdóttir, Aðalsteinn Sigurþórsson,
Kristján Pálsson, Erna Kettler,
barnabörn og barnabarnabörn.
k
4<