Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000
Dýraglens
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
Flýttu þér! Við erum að
missa af skólabílnum!
nestisboxið, notaðu þá
eitthvað annað!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Grátur úr
hverri holu - en
þingmenn þegja
Frá Önnu Ringsted:
ÞAÐ FYLLTI minn mæli, þegar ég
heyrði nýlega í sjónvarpsfréttum að
50 lögreglumenn hefðu verið fengn-
ir til að gæta kínverskra ráða-
manna meðan á opinberri heimsókn
þeirra stóð, hér á okkar annars frið-
sæla Islandi. Eru ráðamenn okkar
alveg veruleikafírrtir, eða fá þeir
aldrei að fara út fyrir Alþingishúss-
ins dyr? Þeir hika ekki við að um-
kringja og vernda menn með blóði-
drifinn bakgrunn, meðan grátur og
angist fylla hverja holu á íslenskum
vegum. Ég er eiginlega alveg mát!
Lítið ykkur nær, ágætu ráðamenn,
og gætið landa ykkar; okkar sem
borga launin ykkar; okkar sem veitt
hafa ykkur umboð til höndla nánast
með líf okkar, limi og heilsu. Er
virkilega enginn þingmaður sem
áhuga hefur á umferðarmálum eða
þor til að tjá sig um þessi mál?
Hvað veldur áhugaleysinu? Ekki
nógu spennandi? Engir feitir stólar
eða örugg atkvæði? Spyr sá sem
ekki veit. Það er ekki nóg að hafa
einhvern tímann lagt fram tillögu
varðandi umferðaröryggi, svona
fyrir siðasakir. Það þarf líka að
fylgja henni eftir og koma henni í
framkvæmd. Það væri kannski til-
valið að afgreiða hana á síðustu
dögum þingsins því þá virðist allt
renna í gegn á hraða ljóssins.
Ég bara trúi því ekki fyrr en ég
tek á að allir íslenskir stjórnmála-
menn geti ekki sameinast í einn
stóran öflugan flokk og barið í borð-
ið og sagt: Nú er nóg komið af
harmleikjum umferðarinnar, þetta
viljum við ekki. Verum núna, þó
ekki væri nema einu sinni, sammála
um að stórefla umferðarlöggæslu á
íslenskum vegum. Það kostar vissu-
lega peninga en af þeim eigum við
nóg þegar líf liggur við.
Ég skora á ykkur, þingmenn góð-
ir, að á komandi þingi verði það
ykkar fyrsta verk að sjá til þess lög-
gæsla á íslenskum vegum verði
stórefld, má vera að þið gætuð
kannski dustað rykið af gömlum
loforðum, ef til eru. En sem betur
fer sjást ljósir punktar í umferðar-
menningu okkar Islendinga. Ég var
á dögunum stödd við Verkmennta-
skólann á Akureyri og þá sá ég, mér
til mikillar gleði, að margir tugir
ungra ökumanna notuðu bílbelti
(fyrir utan einn) og ég tek ofan fyrir
þeim, kannski voru þarna þing-
menn framtíðarinnar innan um.
Líklega er mun vænlegra til árang-
urs að snúa sér beint til þeirra.
ANNA RINGSTED,
Eyjafjarðarsveit,
þátttakandi í STANZ-hópnum.
Sjálfsbjörg, félag
fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu
Frá Gunnaii Reyni Antonssyni:
Velvilji þeirra sem búa á höfuð-
borgarsvæðinu er alveg aðdáunar-
verður, þegar Sjálfsbjörg á í hlut.
Það sannaðist á fjáröflunardeg-
inum 24. september sl. Sjaldan hef-
ur árangur verið jafn góður og nú.
Við í Sjálfsbjörg viljum þakka
fyrir þær frábæru móttökur sem
penna-sölufólk okkar fékk allstað-
ar þar sem það kom.
Sumir skólar gerðu þessa sölu að
verkefni í námi barnanna, eða lið í
þeirra íjáröflunum vegna ýmissa
verkefna sem þau standa að.
Starfsfólki skólanna og börnunum
þökkum við kærlega fyrir.
Margir félagar okkar í Sjálfs-
björg tóku einnig virkan þátt í söl-
unni með góðum árangri, þökk sé
þeim.
Sjálfsbjörg stendur fyrir þrótt-
miklu félagsstarfi fyrir sína félags-
menn, sem útheimtir mikla vinnu
og er nánast öll unnin í sjálfboða-
vinnu. Það er samt þannig að fé-
lagsstarfið kostar mikla peninga,
það þarf húsnæði undir starfíð, það
þarf að auglýsa, kaffí, vinningar,
þrif o.fl. Dæmigerð vika yfir
vetrartímann lítur einhvern veginn
svona út: Mánudagur: brids;
þriðjudagur: bingó eða opið hús;
miðvikudagur: félagsvist; fimmtu-
dagur: skák. Félagsfundir, ferða-
lög bæði innanlands og utan, árs-
hátíð, veiðiferðir og útivist (Kriki
við Elliðavatn) og fleira er einnig á
dagskrá hjá okkur.
Skrifstofan okkar er opin alla
virka daga frá kl. 9 til 16 en á
henni vinna tveir starfsmenn, sem
hafa vart undan að sinna hinum
ýmsu erindum sem þangað berast.
Ekkert af þessu væri fram-
kvæmanlegt ef við nytum ekki vel-
vilja almennings, því mest allt okk-
ar rekstrarfé fáum við frá
almenningi.
GUNNAR REYNIR
ANTONSSON,
formaður Sjálfsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu.efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.