Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 64

Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 64
. >4 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 FRÉTTIR 6DAG MORGUNBLAÐIÐ Veita leiðsögn um vistvernd AKUREYRI, Hafnarfjörður, Hveragerði, Reykjanesbær og Reykjavík eru bæjarfélög sem vilja styrkja stöðu umhverfisverndar með samstarfi við Landvernd um Vistvernd í verki. Margir einstaklingar hafa hug á að leggja sitt af mörkum til að bæta umhverfíð. I því augnamiði að virkja þennan vilja hafa framan- greind bæjarfélög og Landvernd tekið höndum saman um að veita heimilum leiðsögn um hvað sé hægt að gera í daglegu lífí til að stuðla að vistvænni lífsháttum og betra umhverfi. Verkefnið ber yfir- skriftina Vistvernd í verki og felst í því að virkja áhugafólk um vist- vænt heimilishald til þátttöku í námskeiðum sem fjalla um einfald- ar og raunhæfar aðgerðir í daglegu lífi sem bæði spara útgjöld og draga úr álagi á umhverfið, segir í fréttatilkynningu. GAP byggist á hópstarfi þar sem fulltrúar 5 til 8 fjölskyldna koma reglulega saman til 7 fræðslufunda yfir tiltekið tímabil. Hópurinn ákveður sjálfur hversu langt er á *r milli funda en yfirleitt er reiknað með að verkefnið taki u.þ.b. 2 mán- uði. Fundir hópanna eru notaðir til að fara yfir ýmis atriði í rekstri heimilanna og til að skoða hugsan- legar leiðir til úrbóta. Fjallað er sérstaklega um eftirfarandi efni: Sorp, samgöngur, innkaup, vatn og orku. Hverjum hópi fylgir einn leiðbeinandi. Þátttakendur fá handbók þar sem finna má ráð og skrá árangur starfsins. Skráning í verkefnið stendur yfir til 1. október. Á Akureyri fást upplýsingar í Upplýsingaanddyri Akureyrarbæj- ar, Geislagötu 9, og hjá verkefnis- stjóra Staðardagskrár 21 fyrir Ak- ureyri, Glerárgötu 26. í Hafnarfirði fást upplýsingar hjá Ái-manni Eiríkssyni, netfang armanneir@hafnarfjordur.is. I Hveragerði er upplýsingar að fá hjá bæjarskrifstofunum, Hvera- hlíð 24. I Reykjanesbæ veitir Kjartan Már Kjartansson upplýsingar og er hann með netfangið kjart- anm@icelandair.is í Reykjavík fást upplýsingar í félags- og upplýsingamiðstöðinni Miðbergi, Efra-Breiðholti, í fjöl- skylduþjónustunni Miðgarði, Graf- arvogi, á Kjalarnesi hjá Steinunni Geirdal í leikskólanum Kátakoti ásamt Jónasi Vigfússyni í Bergvík. Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá Hjalta J. Guðmundssyni, verk- efnisstjóra Staðardagskrár 21 fyrir Reykjavík, embætti borgarverk- fræðings, Skúlatúni 2. Ymsar upplýsingar um Vist- vernd í verki er að finna á heima- síðu Landverndar (www.land- vernd.is/landvernd) undir GAP. Þar er einnig hægt að skrá sig til þátttöku. Vilja tryggja flugsam- göngur til Húsavíkur Á FUNDI sínum á fimmtudag gerði bæjarráð Húsavíkur svofellda álykt- un: „Bæjarráð Húsavíkur mótmælir harðlega að þær flugleiðir sem eiga undir högg að sækja skuli ekki allar sitja við sama borð við útboð og styrki til flugsamgangna, ekki síst þar sem mannvirki og allar aðstæð- ur eru fyrir hendi. Bæjarráð skorar á samgöngu- ráðherra, samgöngunefnd Alþingis og þingmenn kjördæmisins að standa þannig að málum að flugsam- göngur verði áfram við Húsavík. • Bæjarráð undrast þau ummæli sem höfð eru eftir samgönguráð- herra, að til greina komi að styrkja flug til Siglufjarðar fram að áramót- um, en alls ekki til Húsavíkur. Bæjarráð telur að með því að flug til Húsavíkur leggist af muni búsetuskilyrði á svæðinu versna og jafnframt valda fferðaþjónustufyrir- tækjum erfiðleikum í uppbyggingu og þjónustu. Það er ekki ásættan- legt að slá eigi af flug inná eitt mésta ferðamannasvæði landsins þar sem uppbygging hefur verið mikil. Samgönguráðherra, samgöngu- nefnd og þingmönnum kjördæmis- ins ætti að vera ljóst hvaða þýðingu það hefur fyrir Húsavík og Þingeyj- arsýslur að flugsamgöngur séu í góðu lagi.“ Fundur um ESB-einangrun Austurríkis í TILEFNI af því að nýlega lauk pólitískum einangrunaraðgerðum þeim, sem 14 ríki Evrópusam- bandsins höfðu í sjö mánuði beitt fimmtánda aðildarríkið, Austurríki, vegna stjórnarþátttöku Frelsis- flokksins þar í landi, boðar Félag j. stjórnmálafræðinga í dag til spjall- fundar með dr. Helmut Wessely, sendiherra Austurríkis, um þá lær- dóma sem draga má af þessum um- deilda kafla í sögu ESB. Fundurinn fer fram miðvikudag- inn 4. október, í húsakynnum Reykjavíkurakademíunnar á efstu hæð JL-hússins, Hringbraut 121, og hefst kl. 17. Eru allir áhúgasamir hvattir til að láta sjá sig og taka þátt í umræðum. Nýlagað kaffi verður á könnunni og meðlæti í boði. n Vilja bætt kjör kennara KENNARAFUNDUR í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja sem hald- inn var 29. september sl. samþykkti eftirfarandi ályktun: „Fundurinn krefst tafarlausrar leiðréttingar á áorðnum launamun ■'kennara og sambærilegra stétta í þjónustu ríkisins. Ennfremur skor- ar fundurinn á samninganefnd rík- isins og um leið fjármálaráðuneyti og menntamálaráðuneyti að starfa með samninganefnd framhalds- skólakennara að endurskilgrein- ingu þess starfs sem kennarar í framhaldsskólum eru að inna af hendi. Við hvetjum þessa aðila til að vinna um leið af heilum hug að kjarasamningum sem endurspegla þær grunnbreytingar sem hafa orð- ið á hlutverki framhaldsskólakenn- ara og þær auknu kröfur sem verið er að gera til starfs þeirra, bæði vegna breytinga á aðalnámskrá og vegna mikillar tæknivæðingar skóla bæði nú og í náinni framtíð. Fundurinn lýsir yfir miklum áhyggjum sínum af því áhugleysi sem virðist ríkja um þetta alvarlega mál og hvetur til þess að til þessar- ar vinnu verði gengið nú þegar.“ Lýst eftir vitnum EKIÐ var á gráa Volkswagen Polo ■fólksbifreið laugardaginn 30. októ- ber milli kl. 15.30 og 18.30 þar sem hún stóð mannlaus á bifreiðarstæði við Glaðheima 22, Reykjavík. Tjónvaldur ók af staðnum. Þeir sem kynnu að hafa verið sjónarvott- ar að nefndum árekstri eru vinsam- lega beðnir að hafa samband við lög- regluna í Reykjavík. VELVAKAMII Svarað í sima 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til fostudags Sólskinsferð í súld og regrii ÞRIÐJUDAGINN 26. september sl. bauðst okk- ur hjónunum tækifæri til að fara í ferð með (heldri) borgurum í Grafarvogi að heimsækja Sögusetrið á Hvolsvelli og aka síðan um Njáluslóðir í Fljótshlíð- inni. Lagt var af stað frá Grafarvogskirkju í stórri rútu því þátttaka var mjög góð. Vorum við undir ör- uggum verndarvængjum starfskvenna kirkjustarfs- ins og tveggja prestanna okkar af þremur, þeim séra Vigfúsi Þór og séra Önnu Pálsdóttur. Veðrið hefði mátt vera hagstæð- ara því það var hálfgerður dumbungur en hlýtt samt. Drungalegt veðrið kom þó ekki að sök því séra Vigfús sá sól og heiðríkjubelti víðsvegar á himinhvolfinu sem hann var óspar að benda okkur hinum á og smituðumst við ferðafélag- arnir alveg af honum enda er presturinn sannfærandi og orðlagður bjartsýnis- maður. Það var aldeilis tekið vel á móti okkur á Sögusetrinu af Arthúri Björgvini Bolla- syni og skálinn með lang- borðunum og snarkandi eldi, þar sem birkikvistar brunnu, gaf rétta stemmn- ingu og rétta andrúmsloft- ið. Brátt komu „griðkonur" færandi hendi með hrok- aða matardiska með sýnis- hornum af þeim góða mat sem mest var borðaður í fornum sið en er enn góður og gildur hátíða- og þorra- blótsmatur. Eftir að fólk var orðið mett og vel það tók Arthúr Björgvin til við að leiða okkur gegnum Njálusöguna, sýningu set- ursins og gerði öllu afskap- lega greinargóð skil með góðum talanda og skemmtilegri framsetn- ingu. Síðan var stigið upp í rútuna og haldið til kirkjunnar á Breiðaból- stað. Séra Önundur Björnsson tók ákafiega hlýlega á móti okkur og sagði sögu þessarar fögru kirkju og frá prestum er þar höfðu þjónað. Merki- legasta grip Breiðabólstað- arkirkju kvað hann vera kaleik einn er við sáum og hefði það orð á sér að hon- um fylgdi lækningamáttur fyrir þann er af honum bergði. Hefur erlent safn boðið bikar úr skíra gulli í skiptum fyrir þennan en því boði var ekki tekið. Þegar við kvöddum Breiðabólstað héldum við áfram Fljótshlíðina til Hlíðarenda og alltaf fræddi Arthúr Björgvin okkur jafnt ogþétt, fléttaði saman sögum að fornu og nýju svo lipur- og áheyri- lega að undrum sætti. Endaði svo þessi afbragðs- ferð með því að fara með kvæðið Gunnarshólma og stóðst það á endum, að í síðasta orði renndum við í hlað á Sögusetrinu þar sem nú beið okkar indælt kaffi með kleinum og pönnukökum áður en við færum heim. Þessi litla ferðasaga er sett saman til að þakka fyrir okkur hjón- in. Ferðin var frábær fróð- leiks- og skemmtiferð og við mælum ábyggilega fyr- ir munn allra ferðafélag- anna þegar við staðhæfum að forstöðumaður Söguset- ursins, Arthúr Björgvin Bollason, er öllum frábær- um kostum búinn sem þurfa að prýða þann sem gegnir þessu starfi. Þar getur enginn verið honum fremri. Með kærri þökk, Álfheiður Bjarnadóttir og Sævar Guðmundsson, Funafold 67, Reykjavík. Dýrahald Ung’ur skógarköttur fannst við Gnoðarvog UNGUR skógarköttur, læða, greinilega heimilis- köttur fannst við Gnoðar- vog laugardaginn 30. sept- ember sl. Hún er dökkgrá og dökkbrún með hvíta bringu, ómerkta rauða ól og merkt í eyra með óskýru blágrænu bleki. Upplýsingar í síma 553- 4823. Lítil, svört læða er týnd MÝSLA er ekki með ól, hún er úr sveit og týndist úr austurbæ Kópavogs fyrsta daginn sinn í borg- inni. Ef einhver veit um ferðir hennar, vinsamleg- ast hafið samband í síma 554-4560 eða 862-4086. Lítill, gulur og hvítur kettlingur fannst á Hellu LITILL, gulur og hvítur kettlingur fannst á Hellu þriðjudaginn 26. septem- ber sl. Hann fannst undir vélarhlífinni á bfi sem nýkominn var úr Reykja- vík. Gæti hafa komið í bfi- inn á Austurbrún, á Lauga- vegi eða í Breiðholti. Upplýsingar í síma 487- 5129. Mía er týnd MIA er svört og hvít læða og hún hvarf frá heimili sínu að Geithálsi fyrir um það bil fjórum vikum. Sá sem getur gefið upplýsing- ar um ferðir hennar er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 561- 4418. Eins árs fress hvarf að heiman EINS árs fress, svartur og hvítur, hvarf frá Háaleitis- braut miðvikudaginn 27. september sl. Fólk er vinsamlegast beðið að hafa augun opin. Upplýsingar í síma 699-4999 Guðrún. Tapað/fundid Brúnt seðlaveski tapaðist BRÚNT seðlaveski, með öllum persónuskflríkjum, tapaðist. Gæti hafa tapast á McDonald’s í Austur- stræti eða í versluninni Top Shop í Lækjargötu. Upp- lýsingar í síma 553-0094. SKAK Umsjún Ilclgi Áss Grétarsson STAÐAN kom upp á Norðurlandamóti taflfé- laga sem haldið var á Net- inu fyrir skömmu. Hvítt hafði Helgi Áss Grétars- son (2563) gegn Carl EIi Samuelsen (2055). 21. Bxh6! Bxb2 Biskupinn var friðhelgur þar sem eftir 21.. .Bxh6 22. Hh4! verður svartur mátaður innan skamms tíma. 22. Hbl Bc3 22.. . Dxc2 hefði ekki held- ur bjargað miklu þar sem hvítur verður a.m.k. manni yfir eftir 23. Dxc2 Hxc2 24. Hh4! 23. Df4! Ba8 23... Bxa5 hefði einnig leitt til máts eftir 24. Dxf7 + Kxh6 25. Hh4+ Kg5 26. f4# 24. Dxf7+ Kh8 25. Hh4 og svartur gafst upp enda verður hann mát í næsta leik. Hvítur á leik. Ég vil fá skilnað. Þessi gamli hjólbeinótti asni held- ur því fram að ég hafi aldrei virt hann. Víkverji skrifar... VÍKVERJI keyrir oft eftir Reykjanesbrautinni. Honum finnst sú breyting, sem gerð hefur verið með svokölluðum vegöxlum, mikil bót. Malbikuð viðbótin er í raun eins og breikkun á brautinni og greið- ir fyrir umferðinni þar sem hægfara bflar geta vikið fyrir þeim sem hraðar fara í stað þess að halda langri lest bfla á eftir sér með tilheyrandi fram- úrakstri og hættunni sem því fylgir. Þegar Víkverji ók eftir brautinni síð- astliðinn föstudag kom þetta greini- lega í Ijós en tvívegis viku þungir og hægfara bflar fyrir annarri umferð sem fyrir vikið gekk greiðlega fyrir sig. í þriðja tilfellinu var því hins veg- ar ekki að skipta. Þá hélt ökumaður afar hægfara flutningabfls sig kyrfi- lega á sinni akrein og safnaði á eftir sér langri röð bfla. Hann hafði greini- lega ekki hugmynd um það hvemig nota átti vegaxlimar, eða kannski var þeirrar skoðunar að enginn ætti að keyra hraðar en á 70 eftir brautinni. Þótt vegaxlimar komi að góðum notum er það þó alveg Ijóst að mati Víkverja að tvöföldun þessa fjölfarn- asta vegar landsins er algjör nauðsyn. Það yrði einhver bezta samgöngubót sem völ er á og myndi örugglega fækka slysum veralega. Það verður alltaf þannig að einhverjir kjósa að fara sér hægt en öðram liggur meira á og þá era tvær akreinar í hvora átt nauðsynlegar. Það sést bezt á leiðinni milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Þar gengur umferðin oftast greiðlega fyrir sig en reyndar finnst Víkverja það einkennilegt að á þessum eina þjóðvegi með tvær akreinar í báðar áttir skuli aðeins vera leyft að keyra á 70 kílómetra hraða en 90 á þröngum vegum annars staðar úti á landi. XXX NU mun það vera ljóst að engar beinar útsendingar verða frá knattspyrnu í ríkissjónvarpinu í vet- ur. Knattspyrna er vinsælasta íþrótt á íslandi og það er með eindæmum að ekki skuli vera boðið upp á þá skemmtun í því sjónvarpi sem allir sem eiga sjónvarp era skyldaðir til að greiða áskrift að, hvort sem þeir horfa á ríkissjónvarpið eða ekki. Vík- verji efast um að það standist lög nú- tímans að skylda fólk til slíkrar áskriftar og Víkverji er sannfærður um að það er algjör tímaskekkja að hið opinbera skuli standa í því að reka sjónvarp og útvarp og það með skylduáskrift. Það stenzt varla sam- keppnislög að veita ríkisstyrktum fjölmiðli slíkt forskot á aðra keppi- nauta. Á sínum tíma var þessi einok- un réttlætt með því öryggisatriði að ef mikið bæri til gætu yfirvöld komið skilaboðum til allra landsmanna í gegn um ríkisútvarpið. Þau rök standast engan veginn því það er langt í frá að allir landmenn sitji við viðtækin og hlusti á ríkisútvarpið. Þai- fyrir utan geta Almannavarnir öragg- lega farið inn á hvaða útvarpssend- ingu sem er til að koma áríðandi skila- boðum til landsmanna. Víkverji vonar að stjórnvöld sjái að sér og hætti út- varps- og sjónvarpsrekstri sem fyrst. XXX AÐ er stundum skrítið orðalag í íþróttafréttum. „KR-ingar fundu aldrei sinn leik,“ stóð í íþrótta- frétt í DV í gær. Það er ekki nema von að þeir hafi tapað leiknum, því tæp- lega hafa þeir mætt til leiks fyrst þeir fundu hann ekki en hvar þeir leituðu að honum kemur reyndar ekki fram í blaðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.