Morgunblaðið - 03.10.2000, Side 68

Morgunblaðið - 03.10.2000, Side 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Fyrirlitningin er viðfangsefni kvikmyndar Sturlu Gunnarssonar Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir frábrugðin þessari," bætir hann við og brosir. „Myndin er byggð á skáld- sögu, er á gamansömu nótunum og fjallar um miðaldra mann með gráa fiðringinn. Hann segir upp starfi sinu og stofnar franskan veitingastað í krummaskuði á Nýfundnalandi. Eins og nærri má geta fer reksturinn illa af stað, konan skilur við hann, og hann byrjar að drekka sem mest hann má úr vínkjallaranum til að forða því að vínflöskurnar verði gerðar upptækur af lögreglunni. Einn heimamanna, harðjaxl sem mótaður er af ævilangri glímu við náttúruöflin, ákveður að hjálpa honum og senda þeir út til- kynningu um að sést hafi fáséður fugl. Fuglaskoðarar hvaðanæva úr heimin- um mæta á staðinn og vænkast hagui- veitingastaðaeigandans. Auðvitað er líka kona í spilinu, auk kókaínsmygl- ara og fransks herramannsmatar." Hvaða böndum binst þú íslandi? „Ættjörðin er Kanada en ættflokk- urinn er íslenskur,“ svarar hann. „Mér líður eins og ég sé í faðmi fjöl- skyldunnar á Islandi, bróðui-partiu- hennar býr hér og ég tala íslensku. Bæði bömin mín hafa komið hingað og konan mín var að koma hingað í fyrsta skipti. Kanada er póstmódem- ískt land að því leyti að þar býr ekki ein þjóð eins og á Islandi; þar er sam- ansafn innflytjenda. Eg hugsa að flestir Kanadamenn fari hjá sér þegar þeir syngi þjóðsönginn. Það má segja margt gott um Kanada, stórbrotna náttúruna og það svigrúm sem ein- staklingurinn fær, en sú tilfinning sem fylgir því að koma til Islands er einstök.“ En hvernig kom það til aðþú lagðir kvikmyndagerð fyrir þig? „Eg lærði stjómmálafræði í há- skólanum og eftir útskrift ferðaðist ég um Evrópu, fór til Krítar, Hjalt- landseyja og vai- eina vetrarvertíð á báti frá Stokkseyn sem gerður var út frá Þorlákshöfn. Ég komst að því að þetta frjálsa lífemi átti vel við mig og ákvað að fara í meistaranám í kvik- myndagerð, það byði upp á fjölbreyti- leika í starfi. Ég var svo lánsamur að útskriftarmyndin mín var margverð- launuð og fyrir vikið bauðst mér að gera fleiri myndir." Að lokum, hvað hefurðu haft fyrir stafni hérlendis? „Ég sýndi konunni minni [Judy Koonar] Þingvelli, við fómm á hest- bak og hún hitti íjölskylduna mína í fyrsta skipti," svarar Sturla. „Henni finnst landið stórbrotið, byggingam- ar litríkar, arkitektúrinn ijölbreyti- legur, auk þess sem henni finnst gam- an að umgangast allt þetta fólk sem er eins og ég,“ svarar hann og hlær. ' Sturla Gunnarsson er margverðlaunaður leik- stjóri frá Kanada sem -------------7-------- bundinn er Islandi sterkum böndum. Hann ræðir um mynd sína Fyrirlitningu í spjalli við Pétur Blöndal, auk - sjaldgæfra fugla, Guðs og Darrensins í mannskepnunni. ÞU VILT ekki brosa,“ spyr Ásdís ljósmyndari. „Það rímar ekki við þessa kvik- mynd,“ svarar Sturla Gunnarsson og brosir þó. Sturla er leikstjóri kanadísku myndarinnar Fyrirlitningar (Scom), sem sýnd er á Kvikmyndahátíð í Reykjavík, og er heiðursgestur hátíðarinnar. Sturla talar íslensku þótt hann hafi aðeins verið sjö ára er hann fluttist til Vancouver, býr í Toronto, en á marga ^^ættingja og vini á íslandi. Við rétt missum af morgunverðin- um, þótt við getum tínt til leifar af hlaðborðinu á Hótel Borg, og fáum okkur egg með síld. Blaðamaður byij- ar á að spyija af hverju Sturla hafi ráðist í gerð Fyrirlitningar. „Löngun- in gerði vart við sig þegar ég leik- stýrði Dagbók Evelyn Lau, sem sýnd var hérlendis. Sú mynd fjallar um sál- arlíf táningsstúlku sem var skáld og vændiskona," segir Sturla. „Mig langaði einnig til að gera kvikmynd um táningsstrák og sá þá " mynd af handtöku Datrens [Huene- mann] í blaðinu. Það sem mér fannst truflandi við þessa ljósmynd var að hann var á svipinn eins og í uppklappi á leiksýningu. Mér fannst það stang- ast á við þennan óskiljanlega glæp, að myrða þær konur sem voru honum nákomnastar, móður sína og ömmu. Þetta fangaði athygli mína og eftir því sem ég kafaði frekar ofan í málið varð það furðulegra og furðulegra.“ Hvað þá? „Hann [Darren] varð hugfanginn af Caligula í leikriti Camus og spann eigin sögu í sínu eigin lífi út frá skiln- ingi sínum á verkinu. Hann setti sig í spor Guðs. Þegar Caligula syrgði systur sína komst hann að þeirri nið- _->urstöðu að Guð væri ekki til. Enn- frernur að menn væru svo njörvaðir niður af reglum og siðum, að eina leið- in til að ná ham- ingju væri að taka sér hlutverk Guðs. Caligula hefur löngum verið talinn geðsjúkur. Hann tók heiðursmenn af lífi, hækkaði glæpamenn í tign og braut gegn öllum gildum samfélags- ins. I lokin var hann ráðinn af dögum af undirforingja sínum. Það sem Darren áttaði sig ekki á er að þetta var harmleikur, gaumgæfing á þeim hörmungum sem íylgja guðlausri ver- öld. Hann sneri því upþ í réttlætingu á illyrmislegum tilhneigingum sínum.“ Lífhans verður eins og hlutverk á Sturla Gunnarsson Að setja sig í spor Guðs KVIKMYNDAHATIÐ I REYKJAVIK Jeiksnði. „Ég varð einmitt sleginn yfir því að hann virðist ekki hafa neitt sjálf, held- ur setur hann sig í hlutverk og verður það sem hann langar til. Hann er samviskulaus. Og við því virðist ekk- ert að gera. Við komumst að því þegar við töluðum við sálfræðing Dan'ens að hann er ekkert einsdæmi. Því hef- ur verið fleygt að eins sé ástatt um fimmtung mannkyns; að vera sið- blindur og geta ekki fundið til með öðrum.“ Eru Darrenar þá allt í kring um okkur'l • „Flestir þeirra leiðast ekki út í glæpi og eru jafnvel eftirsóttir í við- skiptalífinu," svarar Sturla. „Allir þekkja einhvem sem þannig er háttað um. Ég vildi forðast sálfræðilega greiningu sem myndi afmarka Darr- en og gefa öðrum tækifæri til að segja: „Þetta á ekki við um mig.“ Ég nálgaðist því viðfangsefnið út frá því YÍvemig hann hefði leiðst út á þessa braut, en ekki af hveiju, og tek tíma- bilið frá því fyrstu morðhugleiðingar gera vart við sig og þangað til fer að molna úr draumaveröld hans. Þess vegna tókum við viðtöl við hann í fangelsinu, til að rýna í atburðina út frá hans sjónarhóli." Sturla fær sér kaffisopa, rýnir á blaðamann og segir: „Þetta er svolítið hrollvekjandi saga, er það ekki?“ Blaðamaður kinkar kolli og sér enn fyrir sér geðveik- isglampann í aug- um aðalsögu- persónunnar frá því á sýningunni kvöldiðáður. Sturla heldur áfram: „Eftir frumsýninguna var framleiðandinn spurður af móður sinni: „Myndirðu nokkuð kála mér?“ og svaraði: „Mamma, þú átt ekki nógu mikla pen- inga.““ Þú átt sjálfurstrák á unglingsaldri. „Jú, ég á 13 ára son og veit að tán- ingsaldurinn getur verið erfiður," svarar Sturla, sem sjálfur var eflaust einhvem tíma unglingur. „Táningar hrærast í heimi goðsagna og ímynd- unar, hverfa um tíma á framandi stað og þá getur reynst erfitt að ná sam- bandi við þá.“ Hann brosir út í annað: „Þeir tala ekki mikið.“ Svo heldur hann áfram: „Eftir mislangan tíma snúa þeir aftur í raunheiminn sem ungir menn. Það hefði sjálfsagt gerst líka í tilfelli Darrens, ef hann hefði ekki hitt hina strákana. Ef... Ef... Að sex mánuðum liðnum hefði hann ef til vill orðið eðlilegur geðsjúklingur og plumað sig ágætlega í samfélaginu." Hvemig er hann í dag? „Caligula var miðpunktur í tilveru Darrens og því leið honum eins og á valdi örlaganna þegar hann var hand- tekinn. Hann talar ennþá um sig í þriðju persónu og lítur á veröldina sem leiksvið. En eftir að hann áttaði sig á harðneskju tugthúslífsins fór mesti gljáinn af tilvemnni og hann fór að sakna móður sinnar, sem var svo- lítið erfitt þar sem hann hafði nú einu sinni myrt hana. En hann var ekki sá Úr myndinni Fyrirlitning eða Scorn sem nú er sýnd á Kvikmyndahátíð í Reykjavík. sem framkvæmdi morðin. Þótt hann hafi gert tilraunir með ömmu sína hallast ég að því að hann hefði ekki getað myrt þær sjálfur. En nú er hann kominn í hlutverk fanga sem trúir því ekki sem hann gerði. Hann getur ekki lifað án handrits og þetta er nýja hlutverkið." Hefurhann séð myndina? „Nei, og hann fær ekki að sjá hana íyrr en hún verður frumsýnd í mars,“ svarar Sturla. „Við erum þegar á hál- um ís, því fólk hefur gagnrýnt okkur íyrir að gera honum hátt undir höfði. Af hveiju verið sé að gera lífi hans skil í kvikmynd. En það var Ijóst frá upp- hafi að Darren hafði ekkert um gerð myndarinnar að segja og hann verður að bíða eins og allir aðrir.“ Að hve miklu leyti er Fyrirlitning heimildarmynd? „Hún er 100 prósent heimildar- mynd og 100 prósent skáldskapur,“ svarar Sturla. „Hvergi er vikið frá at- burðarásinni, en sjónarhom Darrens er skáldað; við urðum að móta pers- ónumar eftir þeim heimildum sem lágu fyrir. Þar á meðal var bók sem fjallaði um atburðina og var með við- tölum, m.a. við fjölskylduna og Am- öndu. Það kom sér ágætlega því hún hafði verið skoðuð af lögiræðingum fyrir útgáfuna [til að forðast meið- yrðamál] og gerði það okkur auðveld- ara fyrir.“ Hefur fósturfaðir Darrens einhver samskipti við hann? „Hann vildi ekki trúa því að Darren væri sekur og studdi við bakið á Darr- en alveg fram að réttarhöldum,“ svar- ar Stui'la. „Þau tóku mjög á hann, því þá kom í ljós að enginn vafi lék á sekt Darrens. Fósturfaðir hans varð því að sætta sig við sannleik málsins og þeg- ar við töluðum saman var hann ekki enn búinn að gera upp þennan kafla í lífi sínu. Hann lokaði þeim kafla, gift- ist aftur og eignaðist fjölskyldu á ný. Hann vonaðist til að myndin vekti umræður um hvenær sakborningar væru ósakhæfir vegna geðveiki, því hann vill meina að Darren hafi fæðst svona gerður, en það hafi ekki orsak- ast af uppeldinu." Hvert verður næsta verkefni sem þúræðstí? „Rare Birds [Sjaidgæfír fuglar],“ svarar Sturla. „Hún er afskaplega

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.