Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 70

Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM ERLENDAH Rósa Guðmundsdóttir Madonnu-unnandi hefur hlust- að á fátt annað undanfarið en nýju plötu poppdrottningar- innar sem heitir einfaldlega Music. Madonna klikkar aldrei MADONNA klikkar aldrei - svo mikið er víst. Hún er að gefa frá sér sína 15. breiðskífu, 42 ára göm- ul, á fjögurra, að verða fimm ára, stelpu, nýfæddan dreng og glæstan feril að baki. Ég held að langrar kynningar á konunni sé ekki þörf. Hún sló í gegn á alheimsvísu 1984 með laginu „Like a Virgin“ og hef- ur ekki hætt að skemmta okkur síðan - löngu búin að sigra tíu ára regluna um toppsætið í bransanum (vanalegast brenna stjörnumar ós- jálfrátt út eftir þann tíma). Hún M virðist vera mjög sátt við lífið og munum að hún útskrifaðist úr skóla þess með sæmd - það eitt er alls ekki sjálfgefið jafnt og öllum gefið. Ég hef fylgst með kellu frá því ég var barn og langar að deila með ykkur því sem ég upplifði er ég hlustaði á nýjustu plötu hennar, Music. Fyrsta lagið, sem og fyrsta smá- skífa, er „Music“ - titillag plötunn- ar. Það hefur heyrst æði oft á öld- um ljósvakans undanfarið... „Hey Mr. DJ put a record on“ ... Frá- bær „techno“-sveifla með grípandi viðlagi og frösum, svíkur engan - sérstaklega ef þú ert með fiðring í löppunum, þú skilur? Eitt af mín- um uppáhalds... Annað lagið, „Impressive Inst- ant“, er blanda af hröðu „techno", sætri, grípandi laglínu, frekjuleg- um hljóðgervlum og texta um skyndilega hrifningu tveggja aðila hvors á öðrum á dansgólfinu. Þriðja lagið er „Runaway Lover“ og líka önnur smáskífa hennar. Það blandast einnig úr hröðu „techno", grípandi laglínum með skærum til skreytinga og hljómagangs - tilval- ið til hlustunar fyrir fótaskak. Fjallar einfaldlega um að passa sig á að opna hjartað ekki of fljótt fyr- ir einhverjum - athyglisvert. Fjórða lagið, „I Deserve It“, finnst mér mjög sérstakt. Það fjall- ar um Madonnu og nýjasta kær- Það skiptir engu máli... ..hve oft þú skoðar málið. Þú kemst ekki framhjá staðreyndum Ef þú er á vinnumarkaðinum og vilt auka afköst í starfi þá er mikill lestrarhraði nauðsynleg undirstaða. Ef þú ert í námi og vilt ná frábærum árangri þá er mikill lestrarhraði nauðsynleg undirstaða. Byrjaðu á undirstöðunni! Margfaldaðu lestrarhraðann. Lestrar- hraði þátttakenda fjórfaldast að jafnaði. Næsta námskeið hefst 10. október. Við ábyrgjumst að þú nærð árangri! Skráning er í síma 565 9500 HRAÐLESTRARS KÓLLN N www.hradlestrarskolinn.is Franski upptökugúrúinn Mirwais á dijúgan þátt í hljómnum á Music. asta hennar og barnsfóður, Guy Richie. Svo er undirboðskapur um lífsreynslu hennar meðfylgjandi. Fallegir gítarhljómar undir með tölvu-„hljómum“ og hippaballöðu- laglínum. Rosalega fallegt lag... ljúft! Fimmta lagið, ,Amazing“, býr yfir sterku sjöunda áratugar- „grúvi“ í anda Austin Powers - svipuð beinagrind og „Beautiful Stranger“ (úr Austin Powers 2) var byggð upp á og eiginlega sú sama. Hresst lag með rafrænu ívafi. Sjötta lagið heitir „Nobody’s Perfect". Það er svooo fallegt. Svo fallegur boðskapur sem fylgir því. Það nær að halda sér á þeirri hár- fínu línu að vera skemmtilega dap- urlegt. I þessu lagi fær hinn svok- allaði „vocoder" að njóta sín (vélvæðir röddina). „Vocoder“ er búinn að vera frekar vinsæll í laga- smíðum síðustu misseri. Madonnu og félögum hennar tekst vel til og notar hún samskonar stíl vítt og breitt um plötuna. Gítarsóló toppar það. Sjöunda lagið er enn í meltingar- veginum hjá mér. Það heitir „Don’t Tell Me“. Meðalhratt lag á popp- skalanum með fullt af flottum hljómum og strengjum. Er að mejta það, venst prýðisvel. Attunda lagið er mjög grípandi. Það nefnist „What It Feels Like for a Girl“. Yndislega sætt viðlag sem maður fær strax á heilann. Enn og aftur fallegur boðskapur í bland við popp, gítar og rafeindir. Sætt lag. Mér finnst níunda lagið, „Parad- SÍMfc m i n i m a I a r t mm Síml SSI8780 • Laugavegi 6S • I0I Reykjavík Léttustu umejarðir OJ í heimi Silhouette minimal art eru fáanlegar í bama- og fulloröins- stæröum Kúrekastelpan Madonna. ise (Not For Me)“, algjör snilld. Þar heyrum við áhrifin frá Air, tölvubandinu í sjöunda áratugar- gírnum. Þetta lag rennur undur- ljúflega niður, er með fallegum fiðl- ustrengjum og Madonnu að tala frönsku jafnt sem ensku. Undurljúf „frönsk“ ballaða. Tíunda og næstseinasta lag plöt- unnar nefnist „Gone“. Það er ofsa- lega sérstakur stíll í því. Blanda af hippalegri laglínu í nútímaútsetn- ingu, fallegum bakröddum og gítar- hljómum. Fallegt viðlag. Ellefta og seinasta lag plötunnar er ,American Pie“. Flestir ættu nú að kannast við það. Eina sem ég vil segja um það lag er að Madonna er líklega eina manneskjan í öllum heiminum sem gæti látið mér finn- ast þetta lag skemmtilegt. Það tók smá tíma en hafðist. Einnig er hægt að finna það lag á diskinum með lögunum úr myndinni sem hún lék í nýverið er nefnist The Next Best Thing. „Bye, bye, Miss Amer- ican pie...“ Platan er aðallega unnin af Ma- donnu, frönskum upptökustjóra er nefnist Mirwais og hinum vel kunna William Orbit. Með þeim sí- ðastnefnda vann hún plötuna sem hún gerði á undan þessari, Ray of Light (1997), en hún selst enn víða um heim þegar þetta er skrifað. í heildina má segja að platan sé rafræn í bland við ofsalega angur- væran gítarhljómaleik inn á milli með fallegum blæ í ætt við frönsku hljómsveitina Air. Fallegar hljóma- blöndur með djúpum „fönk“-bassa- línum undir „technotrommum“, grípandi textum og viðlagsfrösum pg tölvuvæddum gítarballöðum. ímynd hennar í dag er kúreka- stelpan - sem er þemað á útliti plötunnar. Hún klikkar ekki á tísk- unni í dag frekar en fyrri daginn, hún hefur oftast verið á undan henni ef eitthvað er. Ég mæli eindregið með þessari litríku og fjölbreyttu plötu sem er afurð konunnar sem hefur haft mest að segja í bransanum til dags- ins í dag. Það er gaman að heyra það sem hún hefur verið að spá í. Því miður er hún ein af fáum lista- mönnum í dag sem virkilega deila með manni fyrir alvöru því sem þeir hafa lært, séð og skilið í lífinu. Madonna er 42 ára, lífið er rétt að byrja hjá henni. Afram Madonna! mbl.is og Síminn-GSM efna til spennandi getraunaleiks á Formúla-1 vef mbl.is. Með þátttöku átt þú möguleika á að vinna GSM-síma frá Símanum-GSM úrsWtin HHDASKHIIS REYKJAVIKl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.