Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 76

Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 76
ATLA8MTSSKIP - ÁREI0ANLEIKI ( FLUTNINGUM - Leitið upplýsinga í síma 520 2040 www.atlantsskip.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍUl 5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK. ATR-vél Flugfélags Islands með 35 farþega lenti á öðrum hreyfli í Reykjavík í gærkvöldi Bilun hafði áð- ur tafið flug- tak um 4 tíma MIKILL viðbúnaðm- var á Reykja- víkurflugvelli á ellefta tímanum í gærkvöldi þegar ATR-vél frá Flugfé- lagi íslands kom inn til lendingar með bilaðan hreyfil og 35 farþega innan- borðs. Vélin fór írá Vestmannaeyjum kl. 21.58 en brottförin hafði þá tafist um fjórar klukkustundir eftir að bilun ■*%kom upp í startara, að sögn Sigurðar Kr. Sigurðssonar, starfsmanni Flug- félags íslands í Vestmannaeyjum. Farþegar sem Morgunblaðið talaði við á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi töluðu um að brunalykt hefði fundist í flugtaki. Hluti farþeganna hafði beðið í flugstöðinni í um fjórar klukku- stundir vegna fyrri bilunarinnar. Varð virkilega hræddur Sal Boucai, kaupsýslumaður frá Boston, var meðal 10 félaga í /,__.skemmtiferð. Hann sagði við Morg- unblaðið að í upphaflega flugtakinu hefði verið búið að loka vélinni og ræsa hreyfilinn þegar kona stóð upp og sagði að eitthvað væri að og far- þegar þyrftu að fara út. „Við fórum út og biðum í um fjóra klukkutíma í flug- stöðinni. Þá fórum við um borð og allt var sagt í lagi en svo stöðvaðist hreyf- illinn og ég vissi ekki hvað var að og varð virkilega hræddur. En allt fór vel og við lentum örugglega.“ Sal Boucai var í skoðunarferð í Eyjum og hafði brottförin til Reykjavík- ur tafist um fjórar klukkustundir vegna bilunar í startara vólarinnar. Anna Margrét Sigurðardóttir var að leika handknattleik í Eyjum með kvennaliði IR í gærkvöldi og var á leið heim. Hún og stöllur hennar í lið- inu sögðu við blaðamann að „ógeðsleg lykt, rosaleg brunalykt“ hefði fundist í farþegarýminu áður en vélin fór í loftið og að þær hefðu rætt um það sín á milli. „Fimm mínútum áður en við lentum sagði flugstjórinn okkur að annar mótorinn væri farinn en þetta væri allt í lagi,“ sögðu stúlkurnar. Þær sögðu að þeim hefði orðið hugsað til þess að nýlega hefði orðið flugslys í flugi milli lands og Eyja og að þeim hefði brugðið að sjá viðbún- aðinn við lendinguna en slökkvibílar, sjúkrabílar og lögreglubílar um- kringdu flugvallarsvæðið. „Vélin var óvenju óstöðug í lend- ingu en svo þegar hún var lent lang- aði mann bara að koma sér strax út,“ sagði Anna Margrét. Kristinn Jónsson, þjálfari kvenna- liðs í R, sagðist hafa setið fremst í vél- inni og ekki orðið var við brunalykt- ina en hafa tekið eftir smábreytingu á hljóði þegar hert var á hreyflingum Morgunblaðið/Þorkell Inga Jóna Ingimundardóttir, Anna Einarsdóttir, Anna Margrét Sigurð- ardóttir og Sigrún Lára Sverrisdóttir fundu brunalykt í flugtaki. hægra megin til að vega upp aflmiss- inn frá vinstri hreyflinum. „Eg var af- skaplega rólegur, fannst þetta vera mikið öryggi og var aldrei hræddur. Þetta var mjög rólegt og yfírvegað hjáokkur." Ámi Baldursson, aðalvarðstjóri hjá flugstjóm á Reykjavíkurflugvelli, sagði að vélin hefði verið komin í að- flugsstefnu og í samband við flugtuminn í Reykjavík þegar flug- stjórinn tilkynnti um hreyfílbilunina. Strax var haft samband við Neyð- arlínuna, sem virkjaði almannavama- kerfið, vegna fjölda farþega um borð. Ami sagði að þær ráðstafanir hefðu hins vegar verið afturkallaðar nánast jafnóðum því svo skammur tími leið áður en vélin hafði lent heilu og höldnu. Þá var klukkan 22.23. Ámi sagði að rannsóknanefnd flugslysa og flugmálastjóra hefði ver- ið tilkynnt um atburðinn. Varðstjóri hjá Neyðarlínunni sagði að sett hefði verið í gang ákveðið kerfi viðbragða. Slökkviliðið kallaði út allt sitt lið og voru 9 slökkvi- og sjúkrabíl- ar tiltækir við lendinguna. Lögregla lokaði eftir föngum aðkomuleiðum að flugvellinum en vélin kom inn til lend- ingar úr norðri yfir Tjörnina og Hringbraut. Almannavamir ríldsins vom settar í viðbragðsstöðu en að- eins liðu 6-7 mínútur frá því þetta ferli fór í gang klukkan 22.18 þar til tilkynning hafði borist um að vélin væri lent heilu og höldnu. ATR-vélin, sem er í eigu íslands- flugs, en ber liti Flugfélags íslands, var dregin í flugskýli íslandsflugs og þar vora flugvirkjar að undirbúa skoðun um klukkan 11 í gærkvöldi. Geir H. Haarde segir afgang á fjárlagafrumvarpi 2001 meiri en nokkru sinni Tekjuafgangur 80 milljarðar frá 1999 GEIR H. Haarde fjármálaráðherra sagði á fundi með blaðamönnum í gær, þegar hann íylgdi fjárlagafrumvarpi ársins 2001 úr hlaði, að framvarpið væri í raun einstakt í íslenskri hagsögu. Vel hefði tekist að halda áfram aðhalds- samri stefnu í ríkisfjármálum. Það væri hagsmunamál þjóðarinnar að ríkis- sjóður skilaði afgangi. Frumvarpið er lagt fram með 30 milljarða króna rekstrarafgangi, sem er meira en nokkra sinni áður og svarar til 4% af lands- framleiðslu. Þetta er þriðja árið í röð sem horfúr eru á tekjuafgangi meira en •■►sem nemur 20 milljörðum, eða samanlagt um 80 milljarðar frá 1999. Fram- varpið var lagt fram á Alþingi í gær en fyrsta umræða fer fram á fimmtudag. Geir sagði að slíkur afgangur, miðað við landsframleiðslu, væri óþekktur í nágrannalöndunum, nema Noregi. Hann benti á kerfislægan tekjuaf- gang, 2% af landsframleiðslu, og þá væra áhrif þenslu undanskilin. Það sýndi að þótt harðnaði á dalnum væri tekjuafgangur vel viðunandi. 0 G4 Cube. Meistarahönnun á heimsmælikvarða. soo Skaftahlið 24 . Slml 530 1800 ■ Fax 530 1801 „Þetta er lifandi framvarp, með fullt af nýjum atriðum þó um leið sé verið að þrengja að og passa upp á út- gjöldin. Þetta er íhaldssamt frum- varp að mörgu leyti en þó ekki aftur- haldssamt í þeim skilningi að ekkert sé að gerast. Heilmikið er að gerast," sagði Geir og nefndi m.a. 600 m.kr. aukið framlag tU bamabóta, aukin framlög til fæðingarorlofs, fram- kvæmdir við vegi og hafnir, sem ekki verða skomar niður, og margt fleira. Varðandi auknar bamabætur sagði Geir að endanleg útfærsla lægi ekld íyrir, en eftir væri að kynna hana for- ystumönnum ASI. Fyrr yrði ekki upplýst um tUhögunina og t.d. hvort bamakortin, sem Framsóknarflokk- urinn lagði til, yrðu með í dæminu. Hraða þarf sölu Landssímans „Efnahagslega séð er mikilvægt, og ánægjuefni íyrir mig, að skila þessum tekjuafgangi til að ganga á skuldirnar og skila af okkur til næstu kynslóða," sagði Geir. I framvarpinu er reiknað með um- talsverðum tekjum á næstu áram af einkavæðingu. Um sölu ríkiseigna sagði fjármálaráðherra að stjómar- flokkamir ættu eftir að komast að endanlegri niðurstöðu í einkavæðing- unni. Reiknað væri með áframhald- andi sölu á litlum hlutum í bönkunum tveimur og Landssíminn væri kominn á stefnuskrána. Geir taldi ekki ólík- legt að Landssíminn yrði seldur á næsta ári. Það þyrfti að hafa hraðan á þar sem tækniþróunin væri ör. Verð- mæti fyrirtækja eins og Landssímans breyttist ört. Hann sagði að ríkis- bankana hefði átt að vera búið að selja íyrir áratugum. En betra væri seint en aldrei. Koma þyifti sem mestu af eignum ríkis og almennings í verð. Hann sagði að til greina kæmi að breyta vaxtabótakerfinu. Það væri flókið og skuldhvetjandi. Þjóðhags- legur spamaður væri lítill og það væra ekld bestu skilaboðin til ungs fólks að skuldsetja sig til að fá vaxta- bætur. I fjárlagafrumvarpinu kemur fram að það sé raunhæft markmið að greiða niður skuldir ríkissjóðs þannig að peningalegar eignir verði meiri en skuldir á áranum 2003 til 2004. Að þessu markmiði verði stefnt, enda sagði Geir á fundinum að vissulega væri betra að nýta afganginn í eitt- hvað „uppbyggilegra" en niður- greiðslu skulda. Nærtækast væri að lækka skatta á einstaklinga og fyrh-- tæki er niðurgreiðslu skulda lyki. ■ Fjárlagafnimvarpið/Bl-4 700 milljónir undir sendi- ráð í Tókýó SÆKJA á um 700 milljóna króna aukafjárveitingu á þessu ári vegna kaupa á húseign undir nýtt sendiráð íslands í Tókýó í Japan. Þetta kemur fram í íylgiskjali með íjárlagafram- varpi fyrir árið 2001. Samkvæmt upp- lýsingum úr utanríkisráðuneytinu er fasteignaverð í Tókýó veralega hátt og telst þessi upphæð í lægri kantin- um. Var þá búið að kanna kosti þess að leigja húsnæði. Húseignin sem kaupa á mun bæði hýsa skrifstofur sendiráðsins og bústað sendiherrans. í framvarpinu er reiknað með 92 milljóna króna framlagi vegna rekstr- ar sendiráðsins, sem opna á 1. maí ár- ið2001. Upphaflega átti að opna sendiráðið 1. mars en það frestast um tvo mán- uði. Við það sparast 14 m.kr., að því er fram kemur í frumvarpinu. Miðað við rekstur yftr heilt ár mun kostnaður verða 113 m.kr. Sendiráð í Ottawa kostar 35 millj. kr. á ársgrundvelli Sendiráðum og fastanefndum ís- lands fjölgai- um tvö milli ára, sam- kvæmt fjárlagaframvarpinu, og verða 18 á næsta ári. Viðbótin era sendiráð- in 1 Tókýó og Ottawa í Kanada. Heildarframlög til sendiráða og fastanefnda nema 1,2 milljörðum, um 170 m.kr. meira en á fjárlögum þessa árs. Framlag til rekstrar eykst um 201 m.kr. en lækkar um 32 m.kr. vegna framkvæmda. Utgjöld vegna nýja sendiráðsins í Ottawa aukast um 20 m.kr. en það verður opnað 1. maí 2001 og mun kosta 35 milljónir á ársgrandvelli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.