Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 29
Fj árlag-afr um varp norsku
ríkisstjdrnarinnar
Deilt um sér-
stakan skatt
sem á að draga
úr þenslu
NORSKI fjármálaráðheiTann, Karl
Eirik Sehj0tt-Pedersen, kynnti
fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórn-
ar Verkamannaflokksins á norska
þinginu í gær. Það sem kom mest á
óvart í frumvarpinu er tillaga ríkis-
stjómarinnar um að norsk fyrirtæki
skuli greiða 1,5% viðbótarskatt af
tekjum sínum, sökum ástandsins í
efnahagsmálum, svokallaðan „efna-
hagsástandsskatt".
Samkvæmt frumvarpinu verður
tekjuafgangur ríkisins 177 milljarðar
norskra króna á næsta ári, en að við-
bættum vaxtatekjum ríkisins af olíu-
sjóðnum samtals 192 milljarðar, sem
samsvarar um 1.730 milljörðum ís-
lenskra. Tekjur ríkisins árið 2001 eru
áætlaðar 681 milljarður norskra
króna en útgjöld 504 milljarðar.
Fyrirtæki í eigu hins opinbera eru
undanþegin efnahagsástandsskatt-
inum, enda er þenslan í einkageiran-
um helsta áhyggjuefnið, að því er
fram kom í ræðu fjármálaráðherrans
á norska þinginu í gær. Rök fyrir
skattlagningunni eru þau að ríkis-
stjórnin verði að geta byggt upp og
haldið úti velferðarkerfi án þess að
þenslan í efnahagslífinu aukist. Fjár-
málaráðherrann segir ekki til um
hversu lengi slík skattlagning er
nauðsynleg.
Efnahagsástandsskatturinn er
„sprengjan" í norska fjárlagafrum-
varpinu. Samtök atvinnulífsins í
Noregi hafa gagnrýnt tillöguna
harkalega og segja hana atlögu að
fyrirtækjum í landinu og grafa und-
an alþjóðlegri samkeppnishæfni
þeirra. Stjórnarandstaðan hefur
einnig gagnrýnt skattlagninguna og
fleira í frumvarpinu.
Að meðtöldum tekjumissi vegna
skattalækkana á ýmsum sviðum,
verður tekjuaukning ríkissjóðs um
12 milljarðar norskra króna á næsta
ári, og kemur meira en helmingur til
vegna efnahagsástandsskattsins.
Upphæðin samsvarar rúmum 100
milljörðum íslenskra króna.
Schjptt-Pedersen segir fjárlaga-
frumvarpið hlutlaust, þ.e. markmiðið
er að dempa þensluna í norsku efna-
hagslífi og stöðva vaxtahækkanir
norska seðlabankans. „Til að geta
byggt upp og viðhaldið sterku vel-
ferðarkerfi verður þenslan í einka-
geiranum að minnka. Það er tilgang-
ur efnahagsástandsskattsins," sagði
fjármálaráðherrann m.a. í ræðu
sinni.
Norski seðlabankinn hefur nokkr-
um sinnum hækkað vexti undan-
farna mánuði og seðlabankastjórinn
hefur lýst því yfir að til vaxtalækk-
ana gæti komið, að því tilskildu að
ríkisstjórnin legði fram strangt fjár-
lagafrumvarp. Vaxtafundur Seðla-
bankans 1. nóvember nk. leiðir í ljós
hvort svo er.
Markmiðið að slá á þenslu en
auka velferð
Efling velferðarsamfélagsins er
höfuðmarkmið ríkisstjórnarinnar, að
því er fram kom í ræðu Schjott-
Pedersen í gær. I fjárlagafrumvarp-
inu er lögð áhersla á heilbrigðiskerf-
ið og útgjöld til öldrunarmála eru
verulega aukin. Fjárlagafrumvarpið
leiðir til lægra verðs á kjöti, sterku
víni og bensíni, en tvennt hið fyrst-
nefnda er það sem Norðmenn sækja
einkum til Svíþjóðar í tíðum verslun-
arferðum þangað.
Ríkisstjómin hefur mætt þrýst-
ingi vegna bensínskatts og mun
lækka hann þannig að verð á bensín-
lítra til neytenda lækkar um sem
samsvarar tæpum 11 íslenskum
krónum í tveimur þrepum, 1. janúar
og 1. júlí nk. Verð á bensínlítra er nú
um 95 íslenskar krónur.
Aðrir þingflokkar hafa krafist enn
meiri lækkunar á bensíni og Fram-
faraflokkurinn, með Carl I. Hagen í
fararbroddi, telur að verð á bensín-
lítra eigi að fara allt niður í 55 ís-
lenskar krónur h'trinn. Norskir vöm-
bílstjórar boðuðu í gær til aðgerða
11. október nk., til að þrýsta á um
enn meiri lækkun en fjárlagafram-
varpið gerir ráð fyrir.
Ríkisstjórnin boðar aukin framlög
til heilbrigðis- og menntakerfis.
Sjúkrarúmum verður fjölgað um
6.000 á næsta ári og leikskólapláss-
um einnig. Barnabætur verða hækk-
aðar. Virðisaukaskattur á kjötvömr
verður lækkaður tímabundið úr 23%
í 18% og skattur á sterkt vín verður
einnig lækkaður.
Aftur á móti verða skattar á raf-
magn og kyndiohu hækkaðir sam-
kvæmt frumvarpinu og einnig era
breytingar á virðisaukaskattskerf-
inu boðaðar. Þannig verður lagður
virðisaukaskattur á ýmiss konar
þjónustu sem áður var skattfrjáls,
s.s. þjónusta lögfræðinga. Einnig er
boðaður virðisaukaskattur á ferðalög
sem mjög hefur verið mótmælt. Auk
þess er gert ráð fyrir skattlagningu
arðs af verðbréfum eins og áður hef-
ur komið fram. Breytingar á tekju-
skattskerfinu eru litlar.
Ríkisstjórnin leggur til að 13,2
milljarðar norskra króna af þeim
tekjum sem skapast af olíufram-
leiðslunni verði notaðir á næsta ári,
en 71,8 milljarðar greiddir í olíusjóð-
inn.
Gamaldags Qárlagafrumvarp
Venju samkvæmt hlaut fjárlaga-
framvarpið mikla gagnrýni, m.a.
mátti heyra að ífidsstjórnin væri föst
í fortíðinni. Gagnrýnendur virðast
sammála um að fjárlagafrumvarpið
boði vandræði fyrir einkafyrirtæki
en sterkari opinberan geira.
Kjell Magne Bondevik, talsmaður
Kristilega flokksins og fyrrverandi
forsætisráðherra, er andvígur tillög-
um rfldsstjórnarinnar um efnahags-
ástandsskattinn og breytingar á
virðisaukaskattinum. Hann segir að
miðjuflokkarnir séu sammála um
hvað megi betur fara í framvarpinu
og ræði saman um sameiginlega til-
lögu á næstunni.
Carl I. Hagen, formaður Fram-
faraflokksins sem í skoðanakönnun-
um hefur mælst með mest fylgi
norskra stjórnmálaflokka, segist í
samtah við NRK hafa orðið fyrir
áfalli. Væntanleg fjárlög leyfi Norð-
mönnum ekki að njóta tekjuafgangs-
ins, heldur sé þvert á móti enn meira
lagt á þá.
Kristin Clement, framkvæmda-
stjóri NHO, Samtaka atvinnulífsins í
Noregi, gagnrýnir fjárlagafrum-
varpið harðlega og í samtali við
norska ríkissjónvarpið NRK segir
hún fjárlagafrumvarjjið fjandsam-
legt norskum fyrirtækjum. Það sé
gamaldags þar sem ekki er minnst á
verðmætasköpun og nýsköpun í at-
vinnulífinu. Framvarpið dragi þvert
á móti úr verðmætasköpun og grafi
undan samkeppnishæfni norskra
fyrirtækja á alþjóðamarkaði.
Norska alþýðusambandið LO hef-
ur aftur á móti fagnað framvarpinu,
foi-maðurinn segir það hið besta í
langan tíma og efnahagsástands-
skatturinn það eina sem dugi til að
slá á þensluna í einkageiranum.
ÚTBOÐ OG SKRÁNING
KAUPÞINGS HF.
Sala á hlutafé í Kaupþingi hf.,
að nafnvirði allt að 180.000.000 króna.
Sölufyrirkomulag
Um er að ræða sölu á nýju hlutafé að
fjárhæð 180 milljónir króna að nafnvirði.
Af þessari fjárhæð hefur hlutum að
nafnvirði 40 milljónum króna verið ráð-
stafað til Sparisjóðs Færeyja, starfsmenn
Kaupþings hf. og dótturfélaga hafa
forgang að kaupum á 40 milljónum króna
og starfsmenn sparisjóðanna og tilgreindra
dótturfélaga þeirra hafa forgang að
kaupum á 20 milljónum króna. Krónur
80 milljónir að nafnvirði, auk þeirra hluta
sem hugsanlega seljast ekki í sölu til
framangreindra aðila verða seldar til
einstaklinga og lögaðila í almennri áskrift.
Sala hluta til forgangsaðila
Af því hlutafé sem selt verður í útboðinu
verður starfsmönnum Kaupþings hf.,
dótturfélaga og útibús, sem sérstaklega
eru tilgreind í útboðs- og skráningar-
lýsingu, veittur forgangur að 40 milljón-
um króna að nafnvirði á útboðsgengi.
Kaupþing hf. mun bjóða þessum aðilum
lán fyrir hluta af kaupverðinu sem nemur
allt að 75% af kaupverði. Starfsmönnum
og stjórnarmönnum sparisjóðanna og
tiltekinna dótturfélaga þeirra verður
veittur forgangur að 20 milljónum króna
að nafnvirði á útboðsgengi. Sparisjóði
Færeyja er veittur forgangur að 40
milljónum króna að nafnvirði á útboðs-
gengi. Þeir aðilar sem gert hafa fjárvörslu-
samning við Kaupþing hf. er tryggður
forgangur að 30 þúsund krónum hverjum
að nafnvirði. Sá hluti þeirrar upphæðar
sem forgangsaðilar kaupa ekki verður
seldur almenningi í áskriftarsölunni.
Almenn áskrift
í almennu áskriftinni er hámarkshlutur
hvers áskrifanda 50 þúsund krónur að
nafnvirði á genginu 10,25 eða sem nemur
512.500 krónum að söluvirði. Verði um
umframáskrift að ræða, skerðist hámarks-
fjárhæð sem hverjum áskrifanda er
heimilt að skrá sig fyrir, þar til heildar-
nafnverð seldra hlutabréfa er komið niður
í 180 milljónir króna. Skerðing verður því
ekki sem hlutfall af þeirri fjárhæð sem
áskrifendur hafa skráð sig fyrir. Þeir aðilar
sem gert hafa fjárvörslusamning við
Kaupþing hf. hafa forgang að 30 þúsund
krónum hver að nafnvirði.
Áskriftarfyrirkomulag
Áskriftum í almennri sölu skal skilað á
rafrænan hátt. Eingöngu verður tekið á
móti áskriftum sem sendar eru á áskriftar-
blaði með rafrænum hætti. Hægt er að
fylla út og senda áskriftarblöð rafrænt til
Kaupþings hf. í gegnum heimasíðu
Kaupþings, www.kaupthing.is, en þar er
jafnframt hægt að nálgast útboðs- og
skráningarlýsingu Kaupþings hf. Áskrif-
endur fá rafræna staðfestingu um inn-
senda áskrift og er slík staðfesting for-
senda gildis áskriftar. Ef ekki er samræmi
á milli heimilisfangs sem tilgreina skal á
greiðsluseðli og lögheimilis áskrifanda
verður endanleg staðfesting send í pósti
á lögheimili áskrifanda. Tekið verður á
móti áskriftum i almennri sölu á tíma-
bilinu frá þriðjudeginum 10. október til
fimmtudagsins 12. október 2000. Þegar
endanleg niðurstaða útboðsins liggurfyrir
verða síðan sendir greiðsluseðlar til allra
sem hafa skráð sig fyrir hlut. Síðasti
greiðsludagur vegna kaupanna er 10.
nóvember 2000.
Skráning
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að
taka á skrá öll hlutabréf Kaupþings hf.
sem þegar hafa verið gefin út og sem
verða gefin út að loknu útboði, samtals
allt að 968.608.926 krónur að nafnvirði,
enda hafi Kaupþing hf. uppfyllt öll skilyrði
til skráningar að undanskildu ákvæði um
dreifingu eignarhalds á a.m.k. 25%
hlutabréfanna, en félaginu hefur verið
veitt undanþága frá því ákvæði til 1.
nóvember 2001.
Útboðsgögn
Unnt er að nálgast útboðs- og skráningar-
lýsingu og önnur þau skjöl sem vitnað er
til í útboðs- og skráningarlýsingu þessari
hjá Kaupþingi hf. að Ármúla 13a,
Reykjavík og á heimasíðu Kaupþings hf.
Áhætta
Áskrifendum er sérstaklega bent á að
kynna sér umfjöllun um áhættuþætti í
starfsemi félagsins og áhættu sem tengist
kaupum á hlutum í félaginu í útboðs og
skráningarlýsingunni.
KAUPÞING
Ármúli 13A j 108Reykjavík j sími 515 1500 í fax515 1509
www.kaupthing.is