Morgunblaðið - 05.10.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 35
LISTIR
TONLIST
Salurinn
SAMLEIKUR Á
ÓBÓ OG PÍANÓ
Peter Tompkins og Guðríður St.
Sigurðardóttir fluttu verk eftir
Vaughan-Williams, Madeleine
Dring, Poulenc, Bozza, Saint-Saens
og frumfluttu verk eftir Oliver
Kentish. Þriðjudaginn
3. október.
TÓNBÓKMENNTIR fyrii- óbó
og píanó eru ekki miklar að um-
fangi og þótt óbóið sé með elstu
hljómsveitarhljóðfærunum kom það
frekar seint til sem einleikshljóð-
færi með ólíkum hætti og t.d. flaut-
an, sem býr við töluvert ríkidæmi í
þessum efnum. Það telst til nokk-
urra tíðinda, að halda „tvfleikstón-
leika“ á óbó og píanó en á vegum
Tíbrár í Salnum verða haldnir
nokkrir tvfleikstónleikar og voru
tónleikar Peters Tompkins og Guð-
ríðar St. Sigurðardóttur, sem
haldnir voru í Salnum sl. þriðju-
dagskvöld, aðrh’ í röðinni af níu
ráðgerðum. Samkvæmt tónleika-
skrá þeirri, sem gefin er út á veg-
um Salarins, virðist vera komin
fullnaðarskipan á starfsemi hússins
sem tónleikahúss, þar sem ekki
verður beðið eftir því að tónleika-
KVIKMYNDAHATIÐ I REYKJAVIK
Bíóborgin
Kl. 15.40 The Straight Story
Kl. 15.55 The Loss of Sexual
Innocence
Kl. 16.00 Buena Vista Social
Club
Kl. 17.50 The Straight Story
Kl. 18.00 Buena Vista Social
Club
Kl. 20.00 Buena Vista Social
Club, Cosi Ridevano, Fallen
Angels
Kl. 22.00 The Straight Story,
Buena Vista Social Club
Kl. 22.15 The Loss of Sexual
Innocence
Háskólabíó
Kl. 18.00 Gorilla Bathes at
Noon
Kl. 20.00 Sweet Movie
Kl. 22.30 The Filth and the
Fury
Regnboginn
Kl. 16.00 Crouching Tiger,
Hidden Dragon, Miss Julie, Un
Pont entre deux Rives
Kl. 17.40 Ride with the Devil
Kl. 18.00 Onegin
Kl. 20.00 Princess Mononoke
Kl. 22.00 Sozhou River
Kl. 22.30 Condo Painting
Bókhaldskerfi
KERFISÞROUN HF.
FÁKAFENI 11, s. 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/
goiu-ryu
KARATE
Karatedeild Fylkis
Byrjendanámskeiðin eru hafin
Stundaskra:
Börn byrjendur:
Mán. og Föstud. kl. 18:1
Fullorðnfr byrjendur:
Mán., mið. og Föstud. kl. 19:15
Upplýsingar í síma:
896 3010 eða 567 6467
Vel mótaður samleikur
haldarar panti sér tíma í húsinu,
heldur að fyrirtækið hafi þama
frumkvæði að tónleikahaldi, sem er
vænlegast til árangurs. Tónleikum
vetrarins er raðað eftir gerð og
flokkaðir sem tvfleikstónleikar,
píanótónleikar, söngtónleikar, sam-
leikstónleikar og við slaghörpuna.
Tónleikar Peters Tompkins og
Guðríðar St. Sigurðardóttur hófust
á sex æfingum yfir ensk þjóðlög
eftir Ralph Vaughan-Williams.
Fjögur fyrstu lögin eru fremur
hægferðug og fyrstu lögin frekar
lítið unnin og teljast lögin ekki til
þekktari enskra þjóðlaga. í því
fimmta og sérstaklega í sjötta er
skemmtilega leikið og mest unnið
með þjóðlagið. Þarna gat að heyra
líðandi og söngræna notkun óbósins
sem Tompkins lék fallega með og
naut hann góðrar aðstoðar Guðríð-
ar.
Madeleine Dring (1927-77) átti
þarna þriggja laga svítu, músíkant-
íska og vel unna, sem var léttilega
leikin. Fyrir hlé var frumflutt
þriggja kafla sónatína fyrir óbó og
píanó eftir Oliver Kentish. Fyrsti
kaflinn er vel gerð tónsmíð og
margt gott að heyra í passakal-
íunni, öðrum kaflanum, og síðustu
tilbrigðin töluvert teknísk. Loka-
kaflinn er nokkuð slitróttur, enda
lofar tónskáldið í efnisskrá bót og
betrun, að endursemja þann kafla.
Að því loknu má eiga þarna von í
mjög góðu íslensku einleiksverki
fyrir óbó, sem ekki er vanþörf á.
Verkið var í heild mjög vel leikið,
sérstaklega fyrsti kaflinn, og margt
lipurlega gert í passakalíukaflanum.
Sónata fyrir óbó og píanó eftir
Poulenc er aldeilis skemmtileg
tónsmíð, bæði fyrsti kaflinn og sér-
staklega annar kaflinn, skersó, þar
sem Poulenc bregður á leik. Þarna
var mest umleikis í samleik og var
samstilling Guðríðar og Tompkins
sérlega góð. Eugéne Bozza (1905-
1991) átti sniðugt leiktækniverk,
Sveitasælufantasíu, op. 37, sem
samin var sem prófstykki í óbóleik
við Tónlistarskólann í París. í þessu
verki sýndi Tompkins tækni sína og
einnig í sérlega saklausri sónötu,
op. 166, eftir Camille Saint-Saéns.
Peter Tompkins er frábær óbó-
leikari og er tónn hans mjúkur,
ekki breiður en fínlega mótaður.
Tækni hefur hann góða, eins og
heyra mátti sérstaklega í sónötunni
eftir Poulenc, sem var viðamesta
verk tónleikanna, og leiktækniverk-
inu eftir Bozza. Guðríður St. Sig-
urðardóttir lék listavel á píanóið og
var samleikur hennar og Tompkins
einstaklega vel mótaður, svo að í
heild, og ekki síst fyrir sónatínuna
eftir Oliver Kentish, voru þetta
skemmtilegir tónleikar.
Jón Asgeirsson