Morgunblaðið - 07.10.2000, Page 1

Morgunblaðið - 07.10.2000, Page 1
230. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Dómstoll í Júgóslavíu úrskurðar að stjórnarandstaðan hafí sigrað í forsetakosnmgunum Milosevic og herinn viður- kenna sigur Kostunica Belgrad. Reuters, AFP, AP. SLOBODAN Milosevic viðurkenndi ósigur sinn í forsetakosningunum í Júgóslavíu og óskaði andstæðingi sínum, Vojislav Kostunica, tii ham- ingju með sigurinn í sjónvarpsávarpi í gærkvöld. Forseti júgóslavneska herráðsins óskaði Kostunica einnig til hamingju með sigurinn og sagði að herinn myndi virða ákvörðun stjóm- lagadómstóls Júgóslavíu sem úr- skurðaði fyrr um daginn að Kostun- ica hefði verið kjörinn forseti sambandsríkisins. „Ég óska Vojislav Kostunica til hamingju og þjóð minni velfamaðar á næsta kjörtímabili,“ sagði Milosevic í stuttu ávarpi í júgóslavneska ríkis- sjónvarpinu Yu-Info. „Ég var að fá opinberar upplýsingar um að Voji- slav Kostunica hefði sigrað í kosning- unum. Þessi ákvörðun var tekin af stofnun, sem hafði heimild til þess samkvæmt stjórnarskránni, og ég tel að hana beri að virða.“ Fyrr um daginn hafði stjómlaga- dómstóllinn kúvent í deilunni um kosningamar og úrskurðað að Kost- unica hefði náð kjöri. Daginn áður hafði dómstóllinn ógilt niðurstöður kosninganna „að hluta“ og sagt að kjósa þyrfti að nýju áður en kjörtíma- bili Milosevic lyki í júní á næsta ári. Milosevic sagði að flokkur sinn, Sósíalistaflokkurinn, myndi veita Kostunica harða andstöðu en bætti við að hann vildi sjálfur hvíla sig á stjómmálunum um skeið. „Sjálfur er ég feginn að losna við þá miklu ábyrgð sem hefur hvílt á mér í rúman áratug og ætla að hvíla mig dálítið, eyða meiri tíma með fjölskyldunni, einkum bamabami mínu og halda síðan áfram að efla flokkinn minn og stuðla að framföram í landinu." Kostunica ræddi við Milosevic í tæpa klukkustund í gær eftir að hafa átt fund með Nebojsa Pavkovic, for- seta júgóslavneska herráðsins. Kost- unica sagði eftir fundinn að engin ástæða væri til að óttast að herinn reyndi að koma Milosevic aftur til valda. Forseti herráðsins staðfesti þetta í stuttri yfírlýsingu í gærkvöld og sagði að herinn hefði ekki viljað skipta sér af deilunni um kosningam- ar og hygðist „virða vilja þjóðarinnar og úrskurð stjórnlagadómstólsins". Lofar að beita ekki valdi ígor ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, ræddi við Milosevic í Belgrad í gær og sagði að hann hefði lofað að beita ekki valdi til að halda forsetaembættinu en vildi gegna póli- tísku hlutverki í Júgóslavíu sem leið- togi Sósíalistaflokksins, stærsta flokks Serbíu. „í viðræðunum lagði Milosevic áherslu á að hann hygðist reyna að leysa deiluna með fHðsamlegum og löglegum hætti, að forðast ao beita valdi,“ sagði Ivanov. Júgóslavnesk sjónvarpsstöð sýndi í gær myndir af Milosevic á fundinum með ívanov. Milosevic var með dökka bauga undir augum en bar sig vel. Sjónvarpsstöðin sagði að Milosevic hefði kennt mótmælendum um kreppuna í stjómmálum landsins á fundinum með ívanov. „Hann sagði að ofbeldi og óeirðir hefðu stefnt starfsemi ríkisins í hættu, veikt ríkis- valdið, og slíkt þjónaði aðeins hags- munum óvinanna." Nýjar ákærur á hendur Milosevic boðaðar Talsmaður Bandaríkjaforseta sagði að bandaríska stjómin væri andvíg því að Milosevie tæki þátt í stjómmálum Serbíu. Hann bætti við að stjórnin myndi ekki heldur styðja þá hugmynd að Milosevic fengi hæli í öðra landi. Stríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur ákært Milosevic fyrir stríðs- glæpi í Kosovo og Carla del Ponte, yf- irsaksóknari dómstólsins, kvaðst í gær vera að undirbúa nýjar ákærar á hendur honum vegna stríðsglæpa í Bosníu og Króatíu. Hún kvaðst vilja að Kostunica framseldi Milosevic til að hægt yrði að sækja hann til saka en Kostunica sagði í fýrrakvöld að hann myndi ekki verða við slíkri beiðni. ■ Viðbrögðin/6 ■ Refsiaðgerðum/28 ■ „Brúðuleikhússtjórinn/42 ESB boðar afnám refsi- aðgerða Belgrad. Reuters, AFP. VOJISLAV Kostunica bjó sig í gær undir að taka formlega við völdunum í Júgóslavíu og Evrópusambandið boðaði að refsiaðgerðum gegn sam- bandsríkinu yrði aflétt að hluta á mánudag. Kostunica tilkynnti í gærmorgun að hann hefði stofnað sérstakt bráða- birgðaráð sem ætti að stjórna Júgó- slavíu og tryggja að hægt yrði að halda uppi lögum og reglu eftir upp- reisnina gegn Milosevic. Stjórnar- andstaðan kvaðst búast við því að Kostunica myndi sverja forsetaeiðinn á þingi Júgóslavíu í dag. ígor Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands, ræddi við Kostunica í Belgrad og óskaði honum til ham- ingju með sigurinn í forsetakosning- unum 24. september fyrir hönd Vlad- ímírs Pútíns Rússlandsforseta. Aður höfðu rússnesk stjómvöld neitað að taka afstöðu í deilunni um niðurstöðu kosninganna og viðurkenna sigur stjómarandstöðuleiðtogans. Kostun- ica tók síðbúnum stuðningi Rússa fá- lega. Kostunica fékk blessun patríarka serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar við hátíðlega athöfn í gærkvöld. Þing Serbíu hyggst viðurkenna sigur Kostunica Dragan Tomic, forseti serbneska þingsins, þar sem samsteypustjóm Milosevic hefur haft meirihluta, sagði í gær að þingið myndi koma saman á mánudaginn kemm' til að viðurkenna sigur Kostunica. Þingforsetinn hefúr verið á meðal dyggustu stuðnings- manna Milosevic. Sósíalíski þjóðarflokkurinn í Svart- fjallalandi, sem er í oddaaðstöðu á júgóslavneska þinginu og hefur stutt stjórn Milosevic, lýsti því einnig yfir í gær að hann viðurkenndi sigur Kost- uniea í forsetakosningunum. Flokk- urinn sagði hins vegar ekkert um hvort hann vildi mynda stjóm með stuðningsmönnum nýja forsetans. Einn af leiðtogum stjómarand- stöðunnar sagði að þing Júgóslavíu yrði líklega kallað saman í dag til að staðfesta kjör Kostunica. Þingið gat ekki komið saman í gær þar sem þingmenn frá Svartfjallalandi vora ekki komnir til Belgrad. Javier Solana, æðsti embættis- maður ESB í utanríkis- og öryggis- málum, sagði að byijað yrði að aflétta refsiaðgerðum gegn Júgóslavíu á fundi utanríkisráðherra ESB í Lúx- emborg á mánudaginn. Búist er við að ráðherrarnir samþykki þá að af- nema bann við olíusölu og flugferðum til Júgóslavíu en fjárhagslegum refsi- aðgerðum og banni við vegabréfsárit- unum verði aflétt síðar. MORGUNBLAÐIÐ 7. OKTÓBER 2000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.