Morgunblaðið - 10.10.2000, Side 1

Morgunblaðið - 10.10.2000, Side 1
232. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Barak setur Palestínumöiinum úrslitakosti vegna blóðugra átaka Kofí Annan reynir að afstýra allsherjarstríði Kaíró, Jcrúsalem. Reuters, AP, AFP. EKKERT lát var á átökum ísraelskra öryggis- sveita og Palestínumanna á Vesturbakkanum í gær þegar irestur, sem Israelsstjóm hafði veitt leiðtog- um Palestínumanna til að binda enda á ofbeldið, rann út. Koíi Annan, framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, fór til Israels í gær tii að reyna að af- stýra því að átökin leiddu til allsheijarstríðs. Isr- aelskir og líbanskir hermenn voru í viðbragðsstöðu eftir að Hizbollah-skæruliðar í Líbanon tóku þrjá ísraelska hermenn til fanga í árás við landamærin að Israel á laugardag. Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, lýsti því yfir á laugardag að Yasser Arafat, leiðtogi Palest- ínumanna, fengi frest til kl. sex e.h. að íslenskum tíma í gær til að binda enda á átökin, ella myndi ísraelsstjóm líta svo á að friðarviðræðunum væri lokið og fyrirskipa öryggissveitum sínum að beita „öllum ráðum“ til að kveða niður mótmæli Palest- ínumanna. Atökin hafa kostað að minnsta kosti 89 lífið, aðal- lega araba. Palestínumenn kenna Israelum um blóðsúthellingamar og segja að Barak sé sá eini sem^geti bundið enda á þær. „Eg kem ekki hingað með neina töfralausn," sagði Kofi Annan í Tel Aviv í gærkvöld eftir fund með Shlomo Ben-Ami, starfandi utanríkisráðherra Israels, og skoraði á alla Israela og Palestínumenn að hafna ofbeldi. Annan ræddi síðar um kvöldið við Arafat á Gaza og hyggst ræða við Barak í dag. Stjóm ísraels kom saman í gærkvöld til að ræða hvemig bregðast ætti við átökunum. Barak sagði íyrir fundinn að leiðtogar Palestínumanna væm ekki tilbúnir að stuðla að friði og stjómin yrði því að grípa til „gagnaðgerða". Muhammad Dahlan, æðsti embættismaður pal- estínsku heimastjórnarinnar í öryggismálum, sagði að Palestínumenn myndu ekki láta hótanir ísraela hafa áhrif á sig og væm staðráðnir í að verja rétt- indi sín. Leiðtogafundi hafnað Bandarískir embættismenn sögðu í gærkvöld að Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefði rætt við leið- toga Israels, Palestínumanna og Egyptalands í síma um hvort þeir ættu að koma saman til að freista þess að leysa deiluna en ekki hefði náðst samkomulag um slíkan fimd. Þeir sögðu að ekki væri útilokað að efnt yrði til leiðtogafundar síðar en að svo stöddu væri ekki talið að slíkur fundur bæri árangur. Yasser Arafat fór til Kaíró í gær til að ræða við Hosni Mubarak Egyptalandsforseta í þriðja sinn frá því átökin hófust fyrir tæpum tveimur vikum. Hann sagði að ástandið væri „hættulegt" en ekkert benti til þess að hann myndi verða við kröfu Baraks. Bashar Assad, forseti Sýrlands, ræddi kreppuna í friðarviðræðunum við Igor Ivanov, utanríkisráð- herra Rússlands, í Damaskus og sagði að ekki yrði hægt að leysa vandann nema „Israelar virtu álykt- anir Sameinuðu þjóðanna og kæmu þeim í fram- kvæmd“. ívanov sagði að árásum ísraelskra örygg- issveita á Palestínumenn yrði að linna. ívanov hélt síðan til Líbanons þar sem Hizbollah- skæruliðar halda þremur ísraelskum hermönnum og segjast ekki ætla að láta þá lausa nema Israelar leysi arabíska fanga úr haldi. Rolf Knutsson, sendi- maður Sameinuðu þjóðanna, ræddi við leiðtoga Hizbollah í gær og kvaðst bjartsýnn á að lausn fyndist á máli fanganna bráðlega. Hizbollah sagði í yfirlýsingu að ákveðnar hugmyndir um fangaskipti hefðu verið ræddar á fundinum. Barak hótaði að grípa til „harðra aðgerða" ef stjómvöld í Líbanon og Sýrlandi hefðu ekki taum- hald á Hizbollah-hreyfingunni. Abdullah, krónprins Sádi-Arabíu, sagði að arabaríkin myndu ekki „sitja aðgerðalaus“ ef Barak stæði við hótunina. Hann sagði þó ekkert um til hvaða aðgerða Sádi-Arabar kynnu að grípa. ■ Átök í Ramallah/34 Omagh-tilræðið Nöfn meintra árásar- manna birt Belfast. Rcuters. DÓMSTÓLL á Norður-írlandi úr- skurðaði í gær að breska ríkissjón- varpið BBC mætti sýna þátt þar sem fjórir menn, sem grunaðir eru um að- ild að sprengjutilræðinu í Omagh ár- ið 1998, eru nefndir á nafn. Þátturinn var því sýndur í gærkvöld. Mannréttindanefnd Norður-Ir- lands hafði óskað eftir því að sýning þáttarins yrði bönnuð á þeirri for- sendu að hún græfi undan rétti mannanna til sanngjamra réttar- halda. Dómarinn í málinu hafnaði þeirri röksemd. 29 manns biðu bana í sprengjutil- ræðinu í Omagh, mannskæðustu árás sem gerð hefur verið á Norður- írlandi. Lögreglan hefur yfirheyrt tugi manna en aðeins einn hefur ver- ið ákærður fyrir aðild að sprengjutil- ræðinu. Aðstoðaryfirlögregluþjónn Norður-írlands lýsti því yfir nýlega að lögreglan teldi sig vita hverjir for- sprakkar tilræðismannanna væm en hefði ekki nægar sannanir til að ákæra þá. BBC ákvað að greina frá nöfnum þeirra í von um að það yrði til þess að frekari sannanir kæmu fram. Kostunica kemur tveimur pólitískum andstæðingum sínum frá völdum Búist við að stjórn Serbíu fari frá í dag Belgrad. Morgunblaðid. MOMIR Bulatovic, forsætisráðherra Júgóslavíu, sagði af sér í gær og lét þar með undan þrýstingi Vojislavs Kostunica, forseta Júgóslavíu, sem reynir nú allt hvað hann getur til að ná völdunum í Serbíu. Þá er búist við að stjóm Serbíu segi af sér í dag. Með þessu er Kostunica skrefi nær takmarki sínu en afsögn Bulatovic eykur möguleikann á að kosið verði til þings Serbíu í desember. Einn af stuðningsmönnum Kostunica skýrði frá því í gær að serbnesku flokkamir hefðu náð samkomulagi um að þing- kosningar yrðu haldnar 17. desember en í gærkvöld benti ýmislegt til þess að bandamenn Milosevic væm að reyna að koma í veg fyrir þingrof. Evrópusambandið aflétti efna- hagsþvingunum sínum á Júgóslavíu í gær og hét tveggja milljarða dala fjárhagsaðstoð til að rétta við efnahag Serbíu. Var ákvörðuninni fagnað mjög þar sem aðgerðimar hafa lamað efnahag Serbíu og Svartfjallalands og sjá þjóðimar nú fram á mikla erlenda fjárfestingu og einkavæðingu. Kostunica er í afar erfiðri stöðu, þar sem hann reynir nú að tryggja völd sín og fara að vilja þjóðarinnar, sem kom svo berlega í ljós í júgó- slavnesku kosningunum en um leið að sjá til þess að lögum og reglum sé framfylgt. Einungis var kosið til þings og forsetaembættis Júgóslavíu í kosningunum í september en Serbar em um 90% íbúa sambandslýðveldis- ins. Á serbneska þinginu era sósíalist- ar enn stærsti flokkurinn og stjóma með stuðningi flokks þjóðernisöfga- mannsins Vojslavs Seseljs. Óttast Kostunica og stuðningsmenn hans mjög að verði serbneska þingið ekki leyst upp og gengið til kosninga, sem fullvíst er talið að Kostunica muni vinna með miklum yfirburðum, reyni Slobodan Milosevic, fyrrverandi for- seti Júgóslavíu, að ná völdum að nýju. Vilja lögregluna undir stjórn Kostunica Auk Bulatovic sagði Vlajko Stoj- iljkovic, innanríkisráðherra Serbíu, af sér í gær en Kostunica hefur lagt allt kapp á að ná stjóm yfir lögreglunni sem heyrir undir serbneska innanrík- isráðuneytið. Kostunica hefur aftur á móti ekki tekist að fá Milan Milut- inovic, forseta Serbíu, til að fallast á að ijúfa þingið. Reynir Kostunica að nýta tímann til að koma bandamönn- um sínum í lykilembætti, s.s. í bönk- um, ríkisfyrirtækjum og dómstólum. Milutinovic er einn fjórmenning- anna sem stríðsglæpadómstóll Sam- einuðu þjóðanna hefur ákært íyrir Morgunblaðið/Þorkell Serbneskir háskólanemar söfnuðust saman við þinghús Serbíu í Belgrad í gær til að mótmæla því að lög, sem takmarka starfsemi háskóla og málfrelsi kennara, skyldu ekki enn hafa verið afnumin. glæpi gegn mannkyninu vegna stríðs- ins í Kosovo og hefur Kostunica gert honum grein fyrir því að verði hann ekki við kröfum hinna nýju valdhafa í Júgóslavíu kunni þeir að neyðast til þess að framselja hann. Seselj mót- mælti í gær harðlega atlögu Kostun- ica að tveimur helstu bandamönnum Milosevic, Stojilkovic og Bulatovic, og líkti henni við valdarán. Seselj grýttur Mikil spenna var er fundað var í serbneska þinginu og safnaðist fjöldi fólks saman við þinghúsið til að sýna Kostunica stuðning sinn og láta van- þóknun sína í ljós á sósíalistum og Seselj. Er blaðamann Morgunblaðs- ins bar að hafði Seselj yfirgefið þingið og átti fótum fjör að launa þar sem steinum og öðm lauslegu rigndi yfir hann, menn hrópuðu ókvæðisorð að honum og blésu í blístrur. Er lífverðir hans skutu tveimur skotum upp í loft- ið til að halda íjöldanum frá jókst reiðin um allan helming en Seselj komst undan. Þá sneri hópurinn sér að skrifstofubyggingu þingsins þai’ sem mannfjöldinn hugðist koma í veg fyrir að flokksbræður Seseljs yfir- gæfu hana. Ástæður atlögunnar á Seselj virtust ekki aðeins uppsöfnuð reiði í garð þeirra sem hafa verið við völd í meira en áratug heldur tilraun hans til að koma í veg fyrir afsagnir ráðherranna í dag. Milosevic varð fyrir enn einu áfallinu í gær þegar sonur hans, Marko, var stöðvaður á flugvellinum í Peking og honum meinað að dvelja í landinu. Flugvél hans hélt til Moskvu og fréttastofan Interfax hafði eftir rússneskum embættismönnum að honum yrði heimilað að dvelja í Rússlandi. ■ Umskipti í Júgóslavíu/29-32 MORGUNBLAÐIÐ10. OKTÓBER 2000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.