Morgunblaðið - 10.10.2000, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000
>
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Hvers virði er ég?
ÞAÐ er óhætt að segja að ég hefi
ekki verið virkur í samfélaginu síð-
astliðin 7 eða 8 ár. Þann tíma hef ég
verið meira og minna inn á stofnun-
um og á þann hátt verið baggi á
samfélaginu. Þrátt fyrir að ég hefi
verið sjúkdómsgreindur af læknum
og verið til meðferðar á spítölum þá
hefur oft ekki verið um alvöru að
ræða þegar litið er til meðferðar,
einhvern veginn hefur mér fundist
að geðsjúkdómar teljist ekki með-
ferðarhæfir og reynt hefur verið að
halda í horfinu í stað þess að stefna
'að bata. Við þekkjum öll fréttir af
lokunum deilda og fjárskorti sem
beint og óbeint kemur niður á sjúkl-
ingum, jafnvel stuðlað að eða flýtt
fyrir dauða eða varanlegu heilsu-
tjóni. Það að vera haldinn geðsjúk-
dómi sem ekki fer og kemur til með
að fylgja þér til dauðadags er þung-
ur dómur ef svo má segja og það er
ekki ailtaf vlst að fólk standi undir
þeim dómi. Sum okkar fyrirfara sér
og önnur enda inni á spítala hálf-
rænulaus um lífið og tilveruna og
gleymd af þeim sem úti eru.
En ekki ég. Allavega ekki eins og
GOjU-RYU
KARATE
méit
Karatedeild Fylkis
Byrjendanámskeiðin eru hafin
Stundaskra:
Bðm byrjendur:
Mán. ogFöstud.kl. 18:15
Fullorðnir byrjendun
Mán., mið. og Föstud. kl. 19:15
Upplýsingar í síma:
896 3010 eða 567 6467
Geðheilbirgði
Klúbburinn Geysir,
segir Einar Björnsson,
er hluti af þeim
grunni sem ég er að
reisa undir mína
framtíðarbyggingu.
er, það væri fáránlegt af mér að ætla
að ég sé sloppinn úr viðjum þess
sjukdóms sem stýrt hefur mínu lífi
síðastliðin ár en ég sé einhvern ár-
angur. Eg hef öðlast von um að geta
komist út í lífið á „eðlilegan" hátt að
geta notað þá reynslu sem ég hef
öðlast í gegnum árin og það sem ég
er að tileinka mér í dag til að verða
fullgildur aðili í íslensku atvinnulífi.
Klúbburinn Geysir er hluti af þeim
grunni sem ég er að reisa undir
mína framtíðarbyggingu og með að-
stoð klúbbsins Geysis er ég kominn í
nám sem gengur ágætlega og verð-
ur vonandi til þess að ég fái vinnu
við mitt hæfi.
Vinnan er eitt það mikilvægasta
sem einstaklingur hefur, að vera
ekki fær um að vinna er ávísun á
niðurbrot einstaklingsins og rýrir
gildi hans í íslensku samfélagi að
verulegu marki. Fyrir mig var það
hræðileg reynsla að vera svo illa á
mig kominn að ég gat ekki lesið eða
skrifað, ég mundi ekki hvað ég var
að gera þegar ég var búinn að ganga
nokkur skref og ég var ekki hæfur
til að halda uppi samræðum. Enda
var það svo að ég eyddi nokkrum ár-
um svo að segja inni á spítala. Það
var svo sem ekki mikið sem boðið
var upp á og þar var ekki um neitt
að ræða sem ég gat fellt mig við.
Mér fannst ég ekki geta málað
postulín eða smíðað dúkkuhúsgögn
né heldur var ég tilbúinn að fara í
niðurgreidda öryrkjavinnu. Mér
fannst ekki neitt vera við mitt hæfi í
iðjuþjálfun á þeim spítala sem ég
var á lengi vel. Alltaf er þó von, það
komu til starfa iðjuþjálfarar sem
buðu upp á fleiri möguleika sem
höfðuðu meira til mín og ég fór að
opna augun fyrir því sem ég gat gert
frekar en að líta á það sem ég gat
ekki gert. Ég komst að því að ég bjó
enn yfir getu til að framkvæma og
ég gat tekið frekari stjórn á lífi
mínu. Þar kom klúbburinn Geysir til
sögunnar. Ég hafði heyrt um þenn-
an klúbb í langan tíma en tók með
fyrirvara því sem ég heyrði, af
reynslu gerði ég mér helst þær hug-
myndir að klúbburinn Geysir væri
einhverskonar stofnun og eins og
hinar; ópersónuleg og árangurslaus.
Reyndin var önnur. Frá fyrsta degi
fannst mér ég passa hér inn, það var
tekið vel á móti mér og ég komst
fljótlega inn í það sem var að gerast,
sem þátttakandi en ekki áhorfandi.
Þegar ég fann að ég stóð undir þeim
kröfum sem voru gerðar til mín þá
jókst kjarkurinn og ég fór að hugsa
til framtíðar. Ég ákvað að fara í
skóla og láta reyna á þar hve góður
bati minn er, hvort ég sé tilbúinn og
finna mér stað í samfélaginu. Ég er
viss um að klúbburinn Geysir á eftir
að verða hluti af mínu lífi og mér
finnst gott að vera allavega viss um
það!!
Höfundur er félagi í Geysi.
Hann fékk annað líf
„Sonur minn greindist með sykursýki og þarf að fá insúlín tvisvar á dag um ókomna framtíð.
Segja má að insúlínið hafi gefið honum annað líf. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda hvernig
væri komið fyrir okkur, ef þessi lyf væru ekki til.“
Lyf skipta sköpum!
Samtök verslunarinnar, sími: 588 8910
Fræðsluhópur iyfjafyrirtækja
Austurbakki hf. • Delta hf. • Farmasía ehf. • Glaxo Wellcome ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf • Lyfjaverslun íslands hf.
Medico ehf. • NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf.
AGORA-
markaðstorg í
Laugardalshöll
AGORA - alþjóðleg
fagsýning þekkingar-
iðnaðarins verður opn-
uð miðvikudaginn 11.
október og stendur til
föstudagsins 13. októ-
ber í Laugardalshöll.
Um er að ræða stærstu
fagsýningu þekkingar-
iðnaðarins sem haldin
hefur verið á íslandi.
AGORA er opin öllum
sem hafa áhuga á að
kynna sér viðfangsefni
þekkingariðnaðarins.
AGORA-fagsýning-
unni má líkja við mark-
aðstorg hugmynda þar
sem þekking, hugvit og
atvinnulíf mætast á sama stað. Meira
en 130 þekkingarfyrirtæki, bæði inn-
lend og erlend munu kynna starf-
semi sína og framtíðarsýn. Samhliða
fagsýningunni efnir AGORA til mál-
þings um framtíðarsýn í upplýsinga-
tækni og líftækni. Málþingið veitir
öllum áhugasömum einstakt tæki-
færi til að hlýða á marga af fremstu
sérfræðingum á sínu sviði. Þannig
vill AGORA stuðla að miðlun þekk-
ingar til þeirra sem hafa áhuga á að
kynna sér hugmyndir um þekkingar-
þróun sem breyta munu lífsvenjum
okkar í náinni framtíð og hugsanlega
umbylta lífsviðhorfum. „Þekkingar-
þráin er okkur í blóð borin.“ Þannig
hefst Frumspekin eftir Aristóteles,
hinn forn-gríska heimspeking, sem
talinn er þriðji í röð
stærstu hugsuða
fornaldar á eftir þeim
Sókratesi og Platoni.
Forn-Grikkir voru rétt
um 300 þúsund á 4. öld
f. Kr. eða álíka margir
og við Islendingar er-
um nú. Afrek þeirra
eru því dálítil ráðgáta í
því ljósi. Hvað var það í
umhverfi þeirra sem
ýtti undir hið mikla
framfaraskeið á nær
öllum sviðum mannlífs-
ins? Vafalaust má finna
ótal skýringar á því en
tvennt er augljóst. Al-
mennt ríkti skilningur
á mikilvægi menntunar og þekking
var álitin dyggð.
Miðpunktur þekkingarsköpunar-
Sýning
Nýting hugvits og þekk-
ingar, segir Sæmundur
Norðgörð, er í höndum
atvinnulífsins.
innar var á Agora-torginu undir hlíð-
um Akrópólis. Þangað komu menn
saman því að þeir vissu að hugvit og
þekking öðlast einungis líf og afl í
samfélagi fólks sem ræðir hugmynd-
Sæmundur
Norðljörð
Elizabeth Arden
kynning í Hygea í Kringlunni
í dag og á morgun
Sértilboð: CERAMIDE 24. stunada
rakakrem (50 ml), hreinsimjólk (50 ml),
andlitsvatn (50 ml) og ampúlur,
allt í einni öskju.
Tilboðsverð: 3.600 kr.
Sérmerktar
gjafavörur
r
Okeypis
bæklingur
íslenski Póstlistinn
sírni 557 1960
www.postlistinn.is