Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 C 9
VIÐSKIPTI
Heimsmyndir ehf, boða nýjungar fyrir ljósmyndara
Myndirnar heim
Morgunblaóið/Sverrir
Agnar H. Johnson, stjórnarmaður í Ó. Johnson og Kaaber, Friðþjófur John-
son, forstjóri Ó. Johnson og Kaaber, Halldór Sighvatsson, sölustjóri Heims-
mynda, og Bjarni Ragnarsson, framkvæmdastjóri Heimsmynda, fyrir fram-
an Heimsmyndir í Mjódd.
HEIMSMYNDIR ehf., sem eru um-
boðsaðili fyrir Agfa á íslandi, hafa
opnað tvær Ijósmyndaverslanir í
Reykjavík, annars vegar í Lækjar-
götu og hins vegar í Mjódd. Markmið
fyrirtækisins er að í verslununum sé
í boði alhliða ljósmyndaþjónusta.
Lögð er áhersla á stafræna mynd-
vinnslu og framköllun, auk sölu á
vörum frá þýska fyrirtækinu Agfa.
Heimsmyndir munu kynna nýjungar
í ljósmyndaþjónustu, meðal annars
varðandi móttöku stafrænna mynda
og með heimsendingu mynda, sem
boðið verður upp á í samstarfi við
önnur íyrirtæki.
Sérhæft fyrirtæki í
stafrænni Ijósmyndun
Heimsmyndir hafa á boðstólum
ljósmyndavörur frá ýmsum þekktum
framleiðendum, s.s. Agfa, Ölympus,
JVC, Casio og Toshiba. Hjá fyrir-
tækinu er hægt að fá vörur sem
nauðsynlegar eru til stafrænnar
myndatöku og til stafrænnar mynd-
vinnslu í heimahúsum. Þar er um að
ræða stafrænar ljósmynda- og
myndbandsvélar, myndskanna, blek-
sprautuprentara, ljósritunar- og
ljósmyndapappír, blekhylki og
geisladiska. I versluninni í Mjódd er
jafnframt boðið upp á starfræna
myndvinnslu. í því felst meðal ann-
ars skönnun á myndum, filmum,
diskettu'm og geisladiskum til út-
prentunar á ljósmyndapappír eða í
stafrænu formi. Viðskiptavinimir
geta gert þetta sjálfir á staðnum eða
nýtt sér þekkingu og reynslu starfs-
fólksins. Þar verður einnig boðið upp
á ljósmyndavörur og þjónustu fyrir
atvinnulj ósmyndara.
Bjarni Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri Heimsmynda, segir að fyrir-
tækið ætli að sérhæfa sig í stafrænni
myndvinnslu, annaðhvort í gegnum
tækjabúnað fyrirtækisins eða með
því að gera viðskiptavinunum kleift
að sjá um myndvinnsluna heima.
Hann segir að Heimsmyndir muni
bjóða upp á ýmsar nýjungar í Ijós-
myndun. Von sé á sérstakri slóð á
Netinu þar sem viðsldptavinir
Heimsmynda muni geta sent fyrir-
tækinu ljósmyndir á stafrænu formi í
gegnum tölvupóst og látið Heims-
myndir prenta þær myndir út á há-
gæða ljósmyndapappír sem þeir
óska eftir.
Agfa kynnir nýja Ijósmyndafilmu
Bjarni segir að fyrirtækið standi
nú fyrir sérstöku átaki til að auka
sölu á Agfa-filmum. Þær séu þekktar
fyrir mikla skerpu og raunverulega
liti. Hann segir að þá megi geta þess
að Agfa hafi verið að setja á markað
frábæra nýja fílmu, Agfa Vista, sem
kemur á markað hér á landi fyrir
næstu jól. „Agfa er mjög framarlega
í kynningu og markaðssetningu á
nýrri tækni í ljósmyndaiðnaðinum,
ekki síst í stafrænni myndvinnslu og
vörum henni tengdri," segir Bjarni.
„Ný stafræn framköllunarvél frá fyr-
irtækinu, Agfa d-lab 3, kemur á
márkað um næstu áramót. Þetta er
talin ein fullkomnasta framköllunar-
vél sem í boði er en með henni er
meðal annars hægt að lýsa upp
dökka skugga, lagfæra rispur og
taka burt kusk á filmum. Sala á þess-
um vélum er þegar hafin og boðið
verður upp á þægilega fjármögnun á
slíkum búnaði.“
Einn þáttur í umbreytingu
fjölskyldufyrirtækis
Agnar H. Johnson, stjórnarmaður
í Ó. Johnson og Kaaber hf., segir að
stofnun Heimsmynda ehf. utan um
neytendavörur Agfa sé einn þáttur í
því umbreytingarferli sem átt hafi
sér stað á þessu ári innan fyrirtækis-
ins. „Lögð verður áhersla á að
byggja Heimsmyndir upp sem öflugt
fyrirtæki á sviði ljósmyndaþjónustu,
með mögulegri aðkomu utanaðkom-
andi fjárfesta. Þess má geta að gæði
Agfa filma hafa ekki notið sannmælis
á Islandi, en nú ætlum við að breyta
því og það vill svo skemmtilega til að
Agfa er í verulegri uppsveiflu og er
meðal annars að kynna nýja filmu
sem byggir á svokallaðri „Eye Vis-
ion“ tækni sem bætfr liti, skerpu og
dýpt enn betur en nú þekkist," segir
Agnar.
Heimsmyndir verði
næststærst á markaðnum
Friðþjófur Johnson, forstjóri móð-
urfyrirtækisins Ó. Johnson og Kaab-
er hf„ segir að Heimsmyndir muni
byggja stefnu sína á þeirri stefnu
sem Agfa keyri um allan heim. „Við
lítum svo á að með samstarfi við al-
þjóðafyrirtækið Agfa muni okkur
takast að skapa því þann sess hér á
landi sem það hefur á alþjóðlegum
ettvangi. Agfa er eitt stærsta fyrir-
tæki í heimi í sölu á filmum og fram-
köllunartækjum, pappír, skönnum
og fleiru þessu tengt. Velta Agfa Int-
emational á fyrri helmingi ársins 200
var um 2,6 milljarðar Evra, sem
samsvarar um 190 milljörðum ís-
lenskra króna, í samanburði við 2,2
milljarða á sama tíma á síðasta ári,
eða um 160 milljarðar íslenskra
ki-óna. Hagnaður fyrirtækisins fyrir
skatta jókst um 97% milli ára, úr 64
milljónum Evra á fyrri helmingi árs-
ins 1999 í 126 milljónfr á sama tíma á
þessu ári, eða úr tæpum 5 milljörðum
íslenskra króna í rúma 9 milljarða.“
Friðþjófur segir að með samnýt-
ingu dótturfyrirtækja Ó. Johnson og
Kaaber megi gera ráð fyrir betri ár-
angri en áður hafi verið mögulegur í
að ná fram markmiðum Heims-
mynda. Auk þess styrki Agfa verk-
efnið en ætlunin sé að verða næst-
stærsti aðilinn á ljósmyndamarkaði
hér á landi. „Slíkt kallar á að við
verðum leiðandi í þjónustunni því
þeir sem eru í öðru sæti verða alltaf
að gera betur en sá sem leiðir mark-
aðinn.“
Einföld og örugg
vátryggingarvernd
Tryggðu atvinnureksturinn gegn
óvæntum áföllum á þann hátt sem
þér hentar.
Nýttu þér faglega og persónulega
þjónustu sérfræðinga okkar í
fyrirtækjatryggingum.
Skyns0<"'
Mtvínnurekstrar
' tryggingiw
www.detta.is
INNKÖLLUN VEGNA RAFRÆNNAR
\ SKRÁNINGAR HLUTABRÉFA Í DELTA HF.
^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Mánudaginn 15. janúar árið 2001 verða
hlutabréf í Delta hf. tekin til rafrænnar
skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf.
í samræmi við ákvörðun stjórnar félagsins þar
að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti
með htutabréf félagsins þann dag. Frá þeim
tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í
fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og
reglugerðar um rafræna eignarskráningu
verðbréfa. Nánar tilgreint verða öll hlutabréf
í Detta hf. tekin til rafrænnar skráningar en þau :
eru öll í einum flokki, auðkennd raðnúmerum
545-3200 og gefin út á nafn hluthafa.
Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur
ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn
vafa leika á að eignarhald þeirra sé réttitega
fært í hluthafaskrá Delta hf. að staðreyna
skráninguna með fyrirspurn til skrifstofu
félagsins að Reykjavíkurvegi 78, 220
Hafnarfirði eða í síma 550-3300. Komi í Ijós
við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki
verið skráð ber eigendum að færa sönnur á
þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga
takmörkuð réttindi til ofangreindra
hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á
framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e.
banka, verðbréfafyrirtæki eða sparisjóð sem
gert hefur aðildarsamning við Verðbréfa-
skráningu íslands hf. fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu
hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því
er ekki þörf á að skila þeim til félagsins.
Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar
skráningar hefur engin áhrif á möguleika
hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í
félaginu.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar
að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut
sínum í félaginu til að geta framselt hluti sina
svo sem vegna sölu eða skipta. Hluthafar munu
fá sendar tilkynningar og reikningsyfirlit i
I samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 397/2000.
í Hluthöfum félagsins verður nánar kynnt þetta
I bréfleiðis.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF
Stjórn Delta hf.
Aðalstræti 6-8 • 101 Reykjavík • Sítni 515 2000 • www.tmhf.ls