Morgunblaðið - 13.10.2000, Síða 1
235. TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Israelar skjóta flugskeytum í grennd við höfuðstöðvar Arafats eftir morð á ísraelskum hermönnum
Barak og Arafat hvattir
til að stöðva öldu ofbeldis
Myndun þjóðstjórnar í Israel boðuð
Gaza-borg, Ramallah. AFP, AP, Reuters.
ÍSRAELSKAR herþyrlur skutu í gær sprengjum á valdar byggingar
á yfírráðasvæðum Palestínumanna, meðal annars lögreglustöð í borg-
inni Ramallah á Vesturbakkanum þai’ sem æstur múgur Palestínu-
manna hafði fyrr um daginn stungið og barið til dauða tvo ísraelska
hermenn sem þar voru í haldi. Þriðji hermaðurinn er sagður hafa verið
brenndur inni í bíl í borginni. Með þessum atburðum hefur ofbeldis-
alda síðustu vikna náð nýju hámarki og vonir um að takast mætti að
koma friðarumleitunum í Mið-Austurlöndum aftur í gang orðnar litlar.
AP
Palestínskir borgarar hlaupa í burtu frá lögreglustöð i Ramallah eftir að
flugskeyti sem skotið var úr ísraelskri herþyrlu hæfði bygginguna í gær.
Forystumenn Palestínumanna sök-
uðu Israela um að hafa með þyrlu-
árásunum lýst yfir stríði og kölluðu
eftir snörum aðgerðum af hálfu ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna en
Ehud Barak, forsætisráðherra Isr-
aels, boðaði myndun þjóðstjómar
með hægrimönnum. Atti hann fund í
gær með Ariel Sharon, leiðtoga Lik-
ud-flokksins.
Ráðamenn ríkja heims lýstu mikl-
um áhyggjum af þessari þróun mála.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti hvatti
til að vopnahléi yrði lýst yfir tafar-
laust og að allir hlutaðeigandi legðust
á eitt um að stöðva ofbeldisölduna.
„Það er enga hugsanlega réttlæt-
ingu að finna á múgæsingarofbeldi,"
sagði Clinton og fordæmdi harðlega
morðin á ísraelsku hermönnunum.
Var eftir því tekið að hann lýsti ekki
beinlínis vanþóknun sinni á hefndar-
aðgerðum ísraela. Og aðrir talsmenn
Bandaríkjastjórnar létu það skýrt í
ljósi, að Bandaríkin myndu beita sér
gegn því að öryggisráð SÞ yrði kallað
saman til að ræða stöðuna í Mið-
Austurlöndum að svo komnu máli.
Gærdagurinn hófst með tilraunum
SEX bandarískir sjóliðar létu lífið,
36 særðust og ellefu er enn saknað
eftir að gríðarlega öflug sprengja
sprakk við bandaríska tundurspillinn
USS Cole í höfninni í Aden í Jemen.
Svo virðist sem sprengja hafi
sprungið í litlum bát er aðstoðaði
tundurspillinn. Bandarísk stjómvöld
segja ljóst að um hryðjuverk sé að
ræða og að þetta hafi verði skipulögð
sjálfsmorðsárás.
Tundurspillirinn, USS Cole, sem
er eitt tæknilega fullkomnasta
herskip bandaríska sjóhersins hafði
áð í Aden til að taka eldsneyti. Hann
átti eingöngu að stoppa í fimm til sex
klukkustundir í Aden og segja
bandarískir embættismenn það auka
líkur á að um sldpulagt hryðjuverk
hafi verið að ræða.
Báturinn, sem olli sprengingunni,
var að því er virtist venjulegur hafn-
sögubátur. Tveir menn stóðu á dekk-
inu áður en sprengjan sprakk. Hún
var gífurlega öflug og talið að bátur-
inn hafi verið drekkhlaðinn sprengi-
efni. Stórt gat kom á hlið Cole við
Kofis Annan, framkvæmdastjóra SÞ,
og George Tenet, yfirmanns banda-
rísku leyniþjónustunnar CIA, til að
miðla málum og stuðla að því að of-
beldisöldunni linnti. En atburðarásin
var hröð og áður en varði var þetta
orðinn einhver ofbeldisríkasti dagur-
inn í sögu átaka ísraela og Palestínu-
manna frá því í Mið-Austur-
landastríðinu árið 1967.
Herþyrlur Israela gerðu fimm ár-
ásarhrinur á Ramallah og hæfðu þar
lögreglustöðina þar sem hermenn-
h-nir voru drepnir fyrr um daginn,
eina af skrifstofum palestínsku
heimastjórnarinnar og önnur skot-
mörk. ísraelar tilkynntu fyrir fram
að árásirnar væru yfirvofandi. Eitt
flugskeyti hæfði byggingu palest-
ínskra yfirvalda í Gaza-borg, stein-
snar frá byggingu þar sem Yasser
Arafat Palestínuleiðtogi sat á fundi
með George Tenet. Að minnsta kosti
30 manns særðust í árásunum, að
sögn sjúkrahússstarfsmanna.
I gærkvöldi gerðu herþyrlur árás
á æfingabúðir palestínsku lög-
reglunnar í Jeríkó eftir að kveikt
hafði verið í fornu bænahúsi gyðinga
sprenginguna en einnig sprungu
rúður í húsum við höfnina og líktu
íbúar sprengingunni við jarðskjálfta.
Clinton Bandaríkjaforseti for-
dæmdi árásina í gær en sagði að hún
þar í borg. Þessir atburðir virtust
ætla að gera út um vonir manna um
að ráðamönnum Israela og Palest-
myndi ekki hafa áhrif á friðarumleit-
anir Bandaríkjastjórnar í Mið-Aust-
urlöndum. „Við munum komast að
því hver ber ábyrgð á þessum og
þeim verður refsað,“ sagði Banda-
ínumanna tækist fljótlega að ná
samningum um að binda enda á of-
beldishrinu síðustu tveggja vikna
ríkjaforseti. Madeleine Albright ut-
anríkisráðherra sagði að gripið yrði
til viðeigandi aðgerða gegn þeim
seku og ítrekaði að atburðurinn yrði
vandlega rannsakaður. Bandarísk
stjórnvöld gáfu í gærkvöldi út alls-
herjarviðvörun til bandarískra ríkis-
borgara stöddum á erlendri grund að
gæta að öryggi sínu.
Forseti Jemen, Ali Abdullah Sa-
leh, sagðist telja að um óhapp hefði
verið að ræða og að Jemen væri ekki
ríki þar sem hryðjuverkamenn gætu
starfað óáreittir.
Líkt og í flestum ríkjum Mið-Aust-
urlanda hafa undanfarna daga verið
mótmæli við bandaríska sendiráðið í
Jemen í kjölfar átakanna á sjálf-
stjórnarsvæðum Palestínumanna.
Fram kom í máli Clintons í gær að
hersveitum Bandaríkjamanna á
þessum slóðum hefði verið fyrirskip-
að að gera auknar varúðarráðstafan-
ir í kjölfai- sprengingarinnar og
herskipum að halda úr höfnum.
Enginn hefur enn lýst ábyrgð á til-
ræðinu á hendur sér.
sem, að fórnarlömbum gærdagsins
meðtöldum, hefur skilið að minnsta
kosti 97 eftir í valnum, þar af 90 Pa-
lestínumenn.
fsraelar tala um
„táknræna aðvörun“
Forystumenn beggja aðila sögðu
að hið mikla starf sem undanfarið ár
hefði verið unnið í nafni friðarumleit-
ana væri fyrir bí, í bili að minnsta
kosti.
„Þetta er stríðsyfirlýsing," sagði
Saeb Erekat sem er háttsettur í
heimastjóm Palestínumanna. Nabil
Shaath, ráðherra alþjóðasamstarfs-
mála í palestínsku heimastjórninni,
tjáði AFP að Arafat teldi þessar
hefndarárásir Israela „stríðsað-
gerð“. Talsmenn ísraelska hersins
sögðu að aðgerðimar hefðu verið
„táknræn aðvörun“.
Barak sagði að Arafat „virtist ekki
vera maður friðarins núna.“ Sagðist
Barak líta svo á, að stjórn Palestínu-
manna bæri óbeint ábyrgð á drápinu
á hermönnunum og að Israeiar
myndu hafa hendur í hári þeirra sem
áttu hlut að ódæðisverkinu.
I viðtali við CNN í gærkvöldi sagði
hann yfirlýsingar Palestínumanna
um að aðgerðir ísraela jafngiltu
„stríðsyfirlýsingu“ vera „kjaftæði“
og áróður. Hann sagði ísraela vera
staðráðna í að friðmælast við Palest-
ínumenn. „Þeir verða nágrannar
okkar að eilífu," sagði Barak. Krafð-
ist hann þess að Bandaríkjastjóm
lýsti því yfir að Arafat bæri ábyrgð á
því að friðarumleitanir væra að fara
út um þúfur.
■ Loftárásir/42-43
Hráolíuverð
hækkar
VERÐ á hráolíu hækkaði á
mörkuðum í gær í kjölfar auk-
innar spennu í Mið-Austurlönd-
um og fór verð á hráolíutunnu í
framvirkum samningum um
tíma upp í 37 Bandaríkjadali og
náði þar með nærri því jafnhátt
og þegar það í síðustu viku fór
hærra en gerzt hefur í heilan
áratug, eða frá því á tímum
Persaflóastríðsins. Verð á hrá-
olíutunnunni endaði í 36,06 döl-
um sem er hækkun um 2,81 dal.
Að mati sérfræðinga er lík-
legt að aukin spenna í Mið-
Austurlöndum kunni að leiða til
enn frekari hækkana þar sem
olíufyrirtæki kunni að líða
hráolíubirgðaskort. Hlutabréf í
olíufyrirtækjum lækkuðu líka í
kjölfar árásarinnar á banda-
ríska herskipið í Jemen.
MORGUNBLAÐK) 13. OKTÓBER 2000
Sex létust í sprengingu við bandarískan tundurspilli í höfninni í Jemen
Clinton heitir refsingum
San’a, Aden, Washington. AP, AFP. ^ *
Tólf metra breitt gat kom á bóg tundurspillisins við sprenginguna.