Morgunblaðið - 17.10.2000, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.10.2000, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ : FRÉTTIR Bilun í hreyfli hjá þotu Atlanta Tuttugu tíma seinkun á flugi Litli hrúturinn Veturliði með frúnni í Tunguseli, Bjarneyju Hermundardóttur, og sonarsyni hjónanna í Tunguseli, Marinó Níelsi Ævarssyni. Sauðburður í október Þórshöfn. Morgunblaðið. VORIÐ er almennt tfminn sem tengdur er sauðburði en undan- tekningin sannar regluna því vetur- gömul ær eignaðist myndarlegan lambhrút fyrstu vikuna í október. Lambinu bar hún á heimatúninu við Tungusel öllum að óvörum og bar litli hrúturinn öll einkenni og litarhátt forustuhrútsins á bænum, svo lauslætisböndin bárust ótvírætt að honum, að sögn Tungusels- bænda. Forustuhrútur þessi fer sín- ar eigin leiðir í þessu sem öðru og mun vera kostaskepna, upphaflega fenginn frá „hobbýbónda" á Þórs- höfn. Lambhrúturinn fékk nafnið Vet- urliði og heilsast honum vel en hann er kominn í fjárhús í Tungu- seli til vetrardvalar ásamt móður sinni. HELDUR teygðist úr ferðalagi þeirra 430 farþega sem koma áttu heim til íslands með Boeing 747- 200 farþegaþotu Atlanta frá Búda- pest klukkan hálfellefu á sunnu- dagskvöld. Farþegarnir, sem staddir voru í Búdapest á vegum Samvinnuferða/ Landsýnar, sátu þar fastir vegna vandkvæða sem urðu í tengslum við hreyfilsskipti á þotunni sem flytja átti fólkið heim. Magnús Gylfi Thorstenn, forstjóri Atlanta, sagði Morgunblaðinu að farið hefði verið með vélina, sem flutti farþeg- ana út á föstudag, til Madrid á Spáni þar sem skipt var um hreyfil í vélinni. Nýi hreyfillinn hafði áður verið yfirfarinn og gerður upp af Rolls Royce-verksmiðjunum sem ábyrgðust hann. Þegar flugvélin fór svo frá Spáni á sunnudags- morgun til að sækja farþegana kom fram ofhitnum í þeim hreyfli sem skipt hafði verið um. Leikskólar óstarfhæfir Vélinni var samstundis snúið aft- ur til Madrid og reynt að gera við hreyfilinn en í annarri tilraun kom sama vandamál aftur fram. Þegar svo var komið var flugvélinni snúið í annað sinn til Spánar og farþeg- arnir í Búdapest skráðir inn á hótel yfir nóttina. Seinkunin olli m.a. því að tveir leikskólar á vegum Félagsstofnun- ar stúdenta voru nær óstarfhæfir í gær þar sem flestallir leikskóla- kennarar skólanna voru saman í Búdapest. Loks var gert við hreyfilinn og vélinni flogið áfallalaust frá Madrid til Búdapest. Farþegarnir lentu svo á Keflavíkurflugvelli laust fyrir klukkan sjö í gærkvöld eftir tuttugu klukkustunda seinkun. ------^4-*----- Treg rjúpnaveiði víðast hvar RJÚPNAVEIÐI er frekar treg um allt land. Fyrsti veiðidagur var 15. október síðastliðinn. Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags íslands, segir að slæmt veður hafi sett strik í reikn- inginn og víðast hvar hafi verið lítill snjór. Fuglinn virðist vera nijög dreifður. Fréttir hafi þó borist af þokkalegri veiði fyrir austan og fregnir höfðu einnig borist af veiði- mönnum á hálendinu sem höfðu veitt sæmilega. Sigmar segir að menn hafi víða séð töluvert af fuglum en rjúpan hafi verið stygg. Fundur bankaráðs Búnaðarbankans Afgreiðslu frestað þar til í da g BANKARÁÐ Búnaðarbanka íslands frestaði í gær af- greiðslu á tilmælum ríkisstjórn- arinnar um að Landsbanki Is- lands og Búnaðarbankinn hefji viðræður um samruna Pálmi Jónsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans, varðist allra frétta en sagði að fréttatilkynning yrði gefin út eftir fund ráðsins fyrir hádegi í dag. DeCode undir 20 dali á hlut DECODE geneties, móðurfélag ís- lenskrar erfðagreiningar, fór í gær í fyrsta sinn frá útboði félagsins und- ir 20 dali á hlut á Nasdaq markaðn- um í Bandaríkjunum. Lokagengi var 19,625, sem er 6,55% lækkun frá fyrra degi er lokagengi var 21. Nasdaq-vísitalan lækkaði í gær um 0,80%, en Dow Jones og helstu evrópsku vísitölurnar hækkuðu. Útboðsgengi DeCode var 18 dalir á hlut, en hæst fóru bréfin í 31,5. Viðskiptaráðherra skilar skýrslu um siðareglur í viðskiptum á fjármagnsmarkaði Fjármálafyrirtæki telja sig uppfylla alþjóðlegar reglur FJARMALAFYRIRTÆKI telja almennt að þau uppfylli siðareglur um heiðarlega og eðli- lega viðskiptahætti að því er kemur fram í skýrslu, sem Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi. Alþingi samþykkti í maí þingsályktun þar sem viðskiptaráðherra var falið að kanna hvort stofnanir og fyrirtæki á fjármálamarkaði hefðu sett sér siðareglur í samræmi við tilmæli fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 1977 um siðareglur Evrópubandalaganna um við- skipti með framseljanleg verðbréf og almennt viðurkenndar meginreglur Alþjóðasambands kauphalla um viðskiptahætti með verðbréf frá 1992 og var svars krafist í upphafi haustþings. í skýrslu ráðherra segir að fjármálafyrir- tækjunum hafi verið sent bréf þar sem sérstak- lega eru tiltekin sex helstu atriði tilmæla ESB. I svörum þeirra hafi komið fram að þau telji að þau uppfylli bæði tilmæli ESB og Alþjóðasam- bands kauphalla. Fyrirkomulag siðareglna með ýmsum hætti I svari Búnaðarbanka íslands segir að hann hafi ekki sett sér sérstakar siðareglur eða aðrar reglur um heiðarlega og eðlilega viðskiptahætti, en hafi á hinn bóginn haft að leiðarljósi að starfa í samræmi við þær siðareglur, sem Verð- bréfaþing íslands hafi sent þingaðilum. I bréfi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis segir að það sé mat sparisjóðsins að verklags- reglur Verðbréfaþingsins samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti auk sérstakra reglna SPRON frá því í febrúar á þessu ári auk ann- arra starfs- og áhættureglna SPRON nái yfir efni tilmæla ESB og meginreglna Alþjóðasam- bands kauphalla. Landsbréf svöruðu því til að fyrirtækið hefði ekki sérstakar siðareglur en starfsmenn undir- rituðu verklagsreglur þar sem væru ákvæði, sem féllu undir siðareglur. Landsbanki íslands sagði að siðareglur hefðu um langt skeið gilt fyrir allt starfsfólk og hefðu þær síðast verið endurskoðaðar 1999. Þar væri brýnt fyrir fólki að fara að lögum og reglum og bera ávallt hag viðskiptavinarins fyrir brjósti. Segir í skýrslunni að í svari Landsbankans hafi komið fram að reglur bankans væru ekki samd- ar beinlínis með tilmæli framkvæmdastjórnar ESB og Alþjóðasambands kauphalla í huga, en við samanburð yrði ekki annað séð en að í reglum bankans væri tekið á öllum þeim atrið- um, sem kveðið væri á um í tilmælunum. I svarbréfi Íslandsbanka-FBA sagði að í siða- reglum íslandsbanka væri fjallað um samskipti starfsmanna bankans við viðskiptamenn al- mennt, meðferð trúnaðarupplýsinga, gjafir til starfsmanna, boðsferðir, vinnu utan bankans og fleira þess háttar. Innan FBA væru í gildi ýms- ar starfsreglur efnislega sambærilegar við siða- reglur Islandsbanka og væri nú langt komið að samræma reglur bankanna tveggja eftir sam- einingu þeirra. Ekki bárust svör frá öllum I bréfi frá Kaupþingi segir að í þeim reglum, sem fyrirtækið hafi sett sér, sé vikið að ýmsum siðferðilegum markmiðum þar sem Ieitast sé við að tryggja jafnræði, góða viðskiptahætti, upp- lýsingagjöf, viðskipti með verðbréf fyrir eigin reikning, viðskipti starfsmanna og fleira. Þá séu í lögum, reglugerðum og reglum, sem gildi um verðbréfaviðskipti, ýmis ákvæði, sem feli í sér siðareglur eða vísi til siðferðilegra mælikvarða. Svör bárust einnig frá Sparisjóði Hafnar- fjarðar, Sparisjóðabanka íslands, MP-Verðbréf- um og Burnham International. Svör bárust ekki frá Sparisjóði vélstjóra, Fijálsa fjárfestingarbankanum, íslenskum verðbréfum og Verðbréfastofunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.