Morgunblaðið - 20.10.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.10.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 241. TBL. 88. ÁRG. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Tony Blair um Efnahags- og myntbandalagið Myndi ekki greiða at- kvæði með aðild ntína Kafbáturinn Kúrsk Hætt við björgunar- leiðangur? Moskva. AFP, AP. EKKI er víst að verði af fyrirhug- uðum leiðangri til að endurheimta lík þeirra 118 sjóliða sem fórust með rússneska kjarnorkukafbátn- um Kúrsk í ágústmánuði. Yfirmað- ur rússneska flotans, Vladímír Kúrojedov, sagði í gær að ef rann- sókn leiddi í ljós að kafararnir yrðu í lífshættu, ætti hann einskis ann- ars úrkosti en að gefa skipun um að hætt yrði við leiðangurinn. Yfirlýsing Kúrojedovs er sterk- asta vísbendingin sem fram hefur komið um að hópur Rússa og Norð- manna, sem er á leið á slysstaðinn, muni ekki uppfylla það fyrirheit sem Vladímír Pútín Rússlands- forseti gaf skömmu eftir slysið, að lík allra sjóliðanna yrðu færð í hendur fjölskyldna þeirra. Nokkrir háttsettir menn í rússneska flotan- um hafa undanfarið lýst yfir efa- semdum um að réttlætanlegt sé að freista þess að ná líkunum upp og hafa yfirlýsingar þeirra orðið upp- spretta vangaveltna um að raun- verulegt hlutverk norsk-rússneska leiðangursins sé að endurheimta leynilegan búnað úr kafbátnum. Kúrojedov vísaði þessu alfarið á bug í gær. Irína Ljatsjína, ekkja skipherr- ans á Kúrsk, sagði sig í gær úr nefnd, sem sett var á fót til að styrkja aðstandendur þeirra sem fórust með kafbátnum, vegna þess að hún taldi nefndarmenn hafa brugðist hlutverki sínu. Nefndi hún máli sínu til stuðnings að 5.000 rúblum, um 16 þúsund ísl. kr., hefði verið eytt í að senda þakkarbréf til þeirra sem lögðu fram aðstoð og að 23.000 rúblur hefðu verið veittar til ritunar bókar um slysið. MANNRETTINDANEFND Sam- einuðu þjóðanna samþykkti á bráðafundi sínum í Genf í gær for- dæmingu á ísrael fyrir „víðtæk, skipulögð og mjög alvarleg brot á mannréttindum“ og ákvað að efna til alþjóðlegrar rannsóknar á of- beldinu undanfarnar vikur á Vesturbakkanum og Gaza. Full- trúar Bandaríkjamanna og Frakka lýstu vonbrigðum sínum með sam- þykktina. Fulltrúar nítján ríkja af 53, sem eiga aðild að nefndinni, greiddu atkvæði með ályktuninni sem borin var upp af arabaríkjum. Hinir fulltrúarnir voru á móti, sátu hjá eða voru fjarverandi. Stjórn ísraels byrjaði í gær að aflétta í samræmi við friðarsam- komulagið á þriðjudag hömlum á samgöngum á Gaza og Vesturbakk- anum en enn er eftir að leyfa um- Vilja frelsi til veiða SKOTVEIÐIMAÐUR í Búlgaríu hrópar slagorð á fúndi með um 3.000 félögum smurn í höfiiðborg- inni Sofiu í gær. Mótmælt var nýjum lögum sem stunda veiðar að vild. Um 120.000 skotveiðimenn eru í Búlgaríu en þar búa um átta milljónir manna. Mikið er um hvers kyns villibráð í fjöllum og skógum iandsins. ferð milli svæðanna og leyfa íbúun- um að fara til og frá Israel. Margir íbúar á sjálfsstjórnarsvæðunum starfa í Israel en hafa ekki getað sótt vinnu í nokkrar vikur vegna samgöngubannsins í kjölfar átak- anna. ísraelar og Palestínumenn saka hvorir aðra um að brjóta gegn ákvæðum samkomulagsins sem náðist í Sharm el-Sheikh á þriðju- dag. Settur var gagnkvæmur, tveggja sólarhringa frestur til að hrinda í framkvæmd ákvæðum samkomulagsins og rennur hann út síðdegis í dag. Til harðra átaka kom í gær er um 40 gyðingar úr röðum landnema á sjálfsstjórnar- svæðunum fóru, að því er virðist í leyfisleysi, inn á palestínskt svæði við fjallið Ebal sem er við borgina Nablus á Vesturbakkanum. Mun London, Seoul. Reuters, AFP, AP. BANKASTJÓRI Seðlabanka Evrópu (ECB), Wim Duisenberg, hvatti í gær stjómir aðildarríkjanna ellefu til að leggja hart að sér við að koma efnahagsmálunum í gott horf. Gengi sameiginlega gjaldmiðilsins, evrunnar, fór í 0,8399 dollara um hríð á mörkuðum í gær eftir að birt var fólkið hafa ætlað að sjá grafhýsi Jósefs sem Palestínumenn stór- skemmdu fyrir skömmu eftir að ísraelskir hermenn hættu að halda þar uppi gæslu en göngufólkinu lenti saman við vopnaða Palestínu- menn. ísraelar sendu öflugt herlið, stutt vopnuðum þyrlum, á vettvang í gær og tókst að bjarga fólkinu úr herkví á fjallinu en í hópnum voru nokkrar konur og böm. Var barist í fimm stundir samfleytt, einn ísra- eli og einn Palestínumaður féll en 18 særðust, þar af 15 Palestínu- menn. Báðir aðilar kenndu hinum um átökin sem fjöruðu út um sólar- lag í gær en þá höfðu ísraelar sent skriðdreka og brynvarða vagna að úthverfum Nablus. ísraelar gagnrýndu harðlega að palestínsk yfirvöld skyldu ekki leyfa þeim að senda hjálparlið til að niðurstaða þýskrar könnunar sem sýndi minnkandi tiltrú manna í at- vinnulífinu á stöðu efnahagsmála en hækkaði síðan aftur í 0,84 dollara fyr- ir lokun markaða. Tony Blair, forsæt- isráðherra Bretlands, segir að við ríkjandi aðstæður myndi hann leggj- ast gegn því að Bretar gengju í Efna- sinna hinum særðu. „Þetta er mjög alvarlegt mál og gróft brot af hálfu Palestínustjórnar,“ sagði Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels. Starfandi utanríkisráðherra landsins, Shlomo Ben-Ami, sagðist ekki sjá að ró væri að færast yfir sviðið. „Sjálfur sé ég ýmislegt vera að færast til verri vegar í Palestínustjórn og það veldur áhyggjum. Er Arafat við stjórnvöl- inn?“ spurði Ben-Ami. Simon Wiesenthal-stofnunin í Los Angeles vill að SÞ fordæmi árásir sem gerðar hafa verið á samkunduhús og önnur húsakynni gyðinga viða um heim að undan- förnu. Flestar hafa þær verið í Frakklandi, nær 60, og segja tals- menn stofnunarinnar að frönsk stjórnvöld reyni að gera sem minnst úr málinu. hags- og myntbandalagið, EMU, og tækju upp evruna. Gengi evrunnar gagnvart dollara hefur lækkað um tæp 30% síðan henni var hleypt af stokkunmn í jan- úar 1999. Akveðið var í gær að breyta ekki vöxtum á evrusvæðinu þrátt fyr- ir að staðan gagnvart bandaríska dollaranum versni stöðugt. Margh- kenna nú óvarlegum ummælum Duis- enbergs um slæma stöðu gjaldmiðils- ins. Duisenberg virtist í blaðaviðtali í vikunni gefa í skyn að ekki yrði gripið til nýrra ráðstafana til að styrkja gjaldmiðilinn. Aðrir benda á að skipulag bankans sé þunglamalegt, ekki sé hægt að taka mikilvægar ákvarðanir án þess að- spyrja ellefu ríkisstjómir álits. Einnig veikir það, að sögn bandaríska tímaritsins Business Week, bankann, að gjaldeyrisforði hans er lítill. Tony Blair er staddur í heimsókn í Suður-Kóreu. Fréttamenn spurðu hann í gær álits á evrunni og aðild Breta. „Ahnenningsálitið mun gera upp hug sinn með tilHti til staðreynda málsins þegar að því kemur. Ef ég væri spurður í almennri skoðana- könnun hvort ég vildi að við tækjum upp evruna núna myndi ég segja nei,“ svaraði forsætisráðherrann. Tals- maðui- hans gerði síðar lítið úr um- mælunum og sagði að Blair hefði ekki sagt neitt nýtt um stefnuna í málum evmnnar. Áður hafði Blair á fundi með kaupsýslumönnum í Seoul sagt að breska stjómin vildi aðild en aðeins ef ákveðin skilyrði væra fyrir hendi í efnahag landsins. Verð hækkaði á hlutabréfamörkuð- um í E vrópu í gær er fregnir bárast af því að Dow Jones-hlutabréfavísitalan í Bandaríkjunum hefði hækkað um 1,65% og Nasdaq-vísitalan um 7,78%. -------*-*-*------- Einvígið í London Jafntefli í 7. skákinni London. AP. HEIMSMEISTARINN í skák, Gam' Kasparov, og áskorandinn Vladímír Kramnik sömdu um jafn- tefli í London í gær í sjöundu einvíg- isskákinni eftir aðeins 11 leiki. Skákin stóð í 48 mínútur og mun þetta vera stysta kappskák sem Kasparov hefur teflt. Kasparov sagðist ekki vera ánægður með úrslitin en hann er nú einum vinningi undir í einvíginu. Kramnik minnti á að hann hefði ver- ið með svart og þess vegna ekki haft „neina ástæðu til að hafna“ jafntefl- isboði Kasparovs. Næst verður teflt á morgun, laugardag, en alls verða skákirnar sextán. ■ Taf Imennska Kasparovs/47 MORGUNBLAÐIÐ 20. OKTÓBER 2000 Reuters Mannréttindanefnd SÞ gagnrýnir fsraela fyrir ofbeldi Gagnkvæmar ásakan- ir um samningsbrot Genf, Jerúsalem. AP, AFP, Reuters.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.