Morgunblaðið - 29.10.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000 25
Glæsihótelið Alexandra, eitt elsta hótelið í Strynhreppi, er rekið árið um kring við
rætur jökulsins og nýtur mikilla vinsælda.
enskir aðalsmenn og ný atvinnu-
grein skapaðist í jöklabyggðunum
því enginn hætti sér einsamall á
jökulinn heldur þurfti leiðsögumenn
sem þekktu svæðið út og inn. Enn
þann dag í dag eru jöklaleiðsögu-
menn ílestir heimamenn úr hrepp-
um umhverfis jökulinn.
Nýtt hlutverk
jökulsins
Tilgangur jöklaferða hafði þar
með breyst og Jostedalsjökullinn
hafði fengið nýtt hlutverk, hann var
orðinn vinsæll ferðamannastaður.
Það var ekki fyrr en með tilkomu
bíla og ferja að umferð jöklafólksins
yfir jökulinn með fé og vörur
minnkaði. En fjöldi ferðamanna
jókst að sama skapi og er skemmti-
ferðaskip fóru að venja komur sínar
inn í botn Nordfjarðar fyrir síðustu
aldamót jókst tala þeirra hröðum
skrefum.
Frá fornu fari hafa bændur og síðar ferðamenn dvalið næturlangt í „hyttum" í dölunum umhverfís jökulinn.
Með tíð og tíma hefur Jostedals-
jökullinn tekið sífelldum breyting-
um og er t.d. í dag helmingi minni
en hann var fyrir hundrað árum.
Það hefm- gert það að verkum að
skriðjöklar hans eru sprungnari og
brattari en áður og því er erfitt að
komast upp á jökulinn. Þetta hefur í
íor með sér að sérstaks útbúnaðar
og kunnáttu er þörf við jöklaferðir í
dag og slík ferðamennska er ekki á
allra færi.
Ferðamennskan í dag
Líkt og á íslandi er ferða-
mennska í Noregi að mestu bundin
við hina mildu sumarmánuði. Strax í
byrjun maí fara göngu- og skíða-
garpar að flykkjast að Jostedals-
jöklinum og margir hverjir leggja í
3^1 daga langa göngu langsum yfir
jökulinn.
Öll uppbygging fyrir ferðamenn í
þjóðgarðinum takmarkast af
Eg get huggað mig við þaö
„Sonur minn var að fara í skurðaðgerð og ég er í öngum mínum.
Ég get huggað mig við að svæfingarlyfin verka strax og að hann finnur ekki til á meðan aðgerðin
fer fram. En sú blessun að hann getur sofið á meðan."
Lyf skipta sköpum! \
' cc
3
O
o
C0
»-
o
c
Samtök verslunarinnar, sími: 588 8910
Fræðsluhópur lyfjafyrirtækja
Austurbakki hf. • Delta hf. • Farmasía ehf. • Glaxo Wellcome ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf • Lyfjaverslun íslands hf.
Medico ehf. • NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf.