Morgunblaðið - 01.11.2000, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 01.11.2000, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 B 3 FRÉTTASKÝRING Veruleg seinkun hefur orðið á afhendingri allra skipa sem eru í smíðum fyrir fslendinga í Kína Abyrgðin í mörgum tilfellum kaupendanna Seinkun hefur orðið á afhendingu allra þeirra 16 fískiskipa sem nú eru í smíðum fyrir íslenskar útgerðir í Kína. Nú stefnir hins vegar 1 að fyrstu skipin komi hingað til lands um og upp úr áramótum. Helga Mar Arnasyni lék forvitni á að vita hvernig smíði skipanna miðar og hvað veldur þeim töfum sem orðið hafa. Smiði Happasæls KE í Guangzhou skipasmiðastöðinni er nú vel á veg kominn. SKIPASMÍÐAR í Kína hafa verið talsvert til umfjöllunar síðustu mis- seri. Ekki að ósekju því undanfarin tvö ár hefur verið samið um smíði 16 skipa fyrir íslenskar útgerðir þar í landi. Auk þeirra hafa íslenskar út- gerðir samið um smíði skipa m.a. í Chile og í Póllandi og hefur endur- nýjun íslenska fiskiskipaílotans sjaldan verið jafn mikil og ör. Þar fyrir utan var tveimur smíðasamn- ingum við kínversku skipasmíða- stöðina Guangzhou Huangpu nýver- ið rift en Gullberg hf. á Seyðisfirði og Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði höfðu samið við stöðina um smíði á tveimur fullkomnum 52 metra löngum ísfisktogurum. Að sögn Guðmundar Smára Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra Guðmundar Runólfssonar hf., gátu útgerðimar ekki sætt sig við kröfur stöðvarinnar varðandi tryggingar og afhendingartíma. Hann segir rangt að kínverska skipasmíðastöðin hafi farið fram á hærra verð fyrir skipin, líkt og komið hefur fram í fréttum að undanfömu. Örn Erlingsson, útgerðarmaður nótaveiðiskipsins Arnar KE, reið á vaðið sumarið 1998 og samdi um smíði á afar fullkomnu nóta- og flottrollskipi í Guangzhou-skipa- smíðastöðinni í Kína. Vemleg seink- un hefur orðið á smíði skipsins en upphaflega var áætlað að afhenda skipið um mitt þetta ár. M.a. stöðv- aðist vinna við smíðina í nokkra mánuði, af ýmsum orsökum, en nú er áætlað að afhenda skipið um og eftir áramót. Veldur útgerdinni óþægindum í Guangzhou-skipasmíðastöðinni í Kína em einnig í smíðum tveir sams konar ísfisktogarar fyrir íslendinga, annars vegar Aðalbjörn Jóakimsson, útgerðarmann í Reykjavík, og út- gerðarfélagið Ingimund hf. í Reykjavík. Upphaflega var gert ráð fyrir að Aðalbjöm fengi sitt skip af- hent í lok júlí sl. en afhending hefur dregst nokkuð. Eftir því sem næst verður komist miðar smíðinni nú hins vegar vel. Skip Ingimundar hf. átti upphaflega að afhenda 18. októ- ber sl. en Armann Armannsson út- gerðarmaður segir að nú sé áætlað að afhenda það 30. desember nk. „Hvort að það gengur eftir á síðan eftir að koma í ljós. Stálvinna í skips- skrokknum er vel á veg kominn og það er ekkert út á handbragð Kín- verjanna að setja hvað það varðar. Ég tel að þessa seinkum megi fyrst og fremst rekja til ólíkrar menning- ar pg hugsanagangs í Kína.“ Armann segir að í smíðasamning- num sé kveðið á um dagsektir og þær komi til með að lækka verð skipsins. „Dragist afhending skip- anna ekki meira en þrjá til fjóra mánuði og reynist þau vel þegar þau koma heim, þarf seinkunin ekki að vera svo slæm því skipin eru það ódýr. Aftur á móti er því ekki að neita að seinkunin veldur okkur vissulega óþægindum. Ég hafði mið- að áætlanir við að skipið væri á heimleið núna og seldi til að mynda skip í haust vegna þess að ég gerði ráð fyrir nýja skipinu á þessu ári,“ segir Armann. Afhending kúfiskveiðiskips fyrir íslenskan kúfisk hf., dótturfyrirtæki Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf., var upphaflega áætluð í febrúar á þessu ári. Smíðin hefur hins vegar dregist verulega á langinn en gert er ráð fyrir að það verði afhent í Kína á allra næstu dögum og standa vonir til að það verði komið hingað til lands fyrir áramót. Þá eru nú tvö túnfiskveiðiskip í smíðum fyrir Islendinga í Guangzh- ou-skipasmíðastöðinni. Annars veg- ar togveiðiskip fyrir Stíganda ehf. í Vestmannaeyjum, útgerð Ófeigs VE. Upphaflega var áætlað að skipið yrði afhent sl. sumar en nú stendur til að afhendingin fari fram fyrir ára- mót. Hins vegar er um að ræða línu- og túnfiskveiðiskip fyrir ístún hf. í Vestmannaeyjum sem upphaflega stóð til að afhenda um miðjan júní 2000. Samkvæmt heimildum Versins verður skipið að öllum líkindum af- hent fljótlega eftir áramót. Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, útgerðarmaður Happasæls KE frá Keflavík, er með um 230 tonna neta- bát í smíðum í Kína. Upphaflega var áætlað að afhenda skipið 30. ágúst sl., 8 mánuðum eftir að skrifað var undir smíðasamninginn. Guðmund- ur Rúnar segir smíðina hins vegar hafa tafist og nú sé gert ráð fyrir að afhenda skipið seinni hluta desem- bermánaðar. „Ég er í sjálfu sér ekk- ert ósáttur við þessa töf. Kínverjam- ir lofuðu einfaldlega upp í ermina á sér, enda er varla gerlegt að smíða þetta skip á svo skömmum tíma. Að mínu mati gerðu þeir sér ekki grein fyrú- að við sættum okkur ekki við sama aðbúnað og tíðkast í kínversk- um skipum. Þeir bjuggust ekki við að þurfa að innrétta „fimm stjama hótel“, eins og þeir orðuðu það sjálf- ir,“ segir Guðmundur Rúnar. Búið að sjósetja öll raðsmiðaskipin í skipasmíðastöðinni í Dalian í Norður-Kína er nú verið að leggja síðustu hönd á smíði níu 21,5 metra langra báta fyrir íslenskar útgerðir sem ætlaðir eru til dragnóta-, línu- og netaveiða. Einhver seinkun hefur orðið á afhendingu bátanna, þó varla meiri en tveir mánuðir. Búið er að sjósetja öll skipin og verða þau að öllum líkindum prufukeyrð í byrjun nóvember. Bátarnir verða sendir með fragt til Islands og er áætlað að afhenda þá alla í einu hér á landi fljótlega upp úr áramótum. Kaupendur bera ábyrgð á að búnaðurinn berist á verkstað í flestum þeim smíðasamningum sem íslendingar hafa gert við kín- verskar skipasmíðastöðvar em ákvæði þess að kaupendumir leggi sjálfir til búnað í skipin, s.s. vélar, spil, tæki o.fl. Þannig ber kaup- andinn, þ.e. íslensku útgerðirnar, ábyrgð á að afhenda búnaðinn á verkstað. Hins vegar hefur í nokkr- um tilfellum orðið misbrestur á því að búnaðurinn berist á tilætluðum tíma til Kína eða þá að þangað er sendur annars konar búnaður en gert var ráð fyrir í smíðasamningi. í þessum tilfellum hefur smíði skip- anna stöðvast, á ábyrgð kaup- andans, en eins og gefur að skilja tekur langan tíma að senda t.d. vél- búnað frá íslandi eða Noregi til Kína. Eins hefur borið við að með bún- aði sem sendur er til Kína hafi ekki fylgt nauðsynlegir pappírar en tolla- reglur þar í landi em nokkuð frá- bragðnar því sem þekkist hér á landi og strangar kröfur gerðar til þess að viðeigandi pappírar fylgi og séu rétt út fylltir. í mörgum tilfellum hafa Is- lendingar ekki áttað sig á þessu og sendingamar því tafist til lengri eða skemmri tíma í tolli í Kína. Nokkrir af viðmælendum Versins nefndu einnig að í einhverjum tilfellum hafi nauðsynlegar smíðateikningar ekki verið tilbúnar á tilskildum tíma og tafið þannig smíði skipanna. Þá hef- ur Verið heimildir fyrir þvi að í Gu- angzhou-skipasmíðastöðinni hafi innlend verkefni, m.a. fyrir kín- verska herinn, haft forgang og önn- ur verkefni, s.s. íslensku skipin, látin sitja á hakanum á meðan. Við gerð smíðasamnings er venju- lega gert ráð fyrir ákveðnum af- hendingartíma en í flestum tilfellum hefur skipasmíðastöðin rúman tíma, oftast þrjár til fjórar vikur, til að af- henda skipið eftir tiltekinn afhend- ingardag. Eftir þann tíma byrja dagsektir • og dragist afhendingin enn úr hömlu getur kaupandi rift samningnum, enda em tryggingar í bönkum fyrir því. Til þess hefur þó ekki komið í tilfelli íslensku skip- anna. Viðmælendur Versins em sammála um að rekja megi tafir á skipasmíðunum til margra þátta og aðila og því sé flókið að meta hvenær ekki er staðið við samninga og hve- nær dagsekth- byrja að telja. Ráðist í of mörg verkefni í einu Skipatækni ehf. hefur hannað og haft eftirlit með smíði tveggja ís- lenskra skipa í Guangzhou-skipa- smíðastöðinni, skipi Arnar Erlings- sonar og Happasæl KE. Bárður Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Skipatækni, segir skipasmíðastöðina hafa tekið að sér fjölmörg verkefni á skömmum tíma, sennilega of mörg. „Þeir hafa líklega ekki gert sér grein fyrir umfangi þessara verka. Þeir hefðu frekar átt að klára eitt eða tvö skip, áður en byrjað var á næstu verkefnum. I stað þess lenda þeir í að þurfa að afhenda flest skipin á svipuðum tíma. Okkur hefur hins vegar líkað vel að starfa með Kín- verjum og þeir skila af sér góðu verki. Þeir hafa metnað til að gera hlutina vel, enda vilja þeir komast inn á þennan markað," segir Bárður. Ekki aðeins vió Kínverjana að sakast fsBú ehf. hefur haft milligöngu um samninga á smíði 10 skipa fyrir íslenskar útgerðir í Kína. Þar af era raðsmíðaskipin níu, auk nóta- og togveiðiskipsins fyrir Sólbakka ehf., útgerðar Arnar KE. Bjöm Ágúst Jónsson framkvæmdastjóri segir Ijóst að seinkun hafi orðið á flestum, ef ekki öllum, skipasmíðaverkefnum fyrir íslendinga í kínverskum skipa- smíðastöðvum. Hins vegar hafi um- ræðan hallað mjög á Kínverja í þeim efnum. Því fari fjarri að sökin liggi eingöngu hjá þeim. „Sökin liggur hjá öllum sem að málunum koma, hvort sem það em kínversku skipasmíða- stöðvarnar, kaupendur, hönnuðir og umboðsaðilar. Einn veigamikill þátt- ur er hvemig eftirliti af hendi verk- kaupans er háttað. Þegar ráðist er í stór verkefni á fjarlægum slóðum er gott eftirlit mjög mikilvægt, að stöð- ug og góð tengsl séu milli eftirlits- aðilanna og viðsemjendanna. Mis- jafnt er hvemig staðið er að eftirlitinu. Þannig hefur eftirlit með smíði raðsmíðaskipanna í Dalian annars vegar og þeirri smíði sem við komum að í Guangzhou hins vegar ekki verið sambærilegt að mínu mati. í Dalian réðu kaupendurnir sjálfir eftirlitsmann og hann hefur unnið mjög gott starf. í Guangzhou virðist eftirlitið hins vegar ekki hafa gengið eins vel. Orsakir tafa á þeim verkefnum sem IsBú hefur haft milligöngu um em hins vegar ekki þau sömu í öllum tilfellum. Allir þessir þættir hafa orsakað tafirnar í Gunagzhou en þær tafir sem hafa orðið á okkar verkefni í Dalian er ekki hægt að rekja til kaupendanna, að mínu mati.“ ísBú ehf. hefur að sögn Björns átt í ýmiskonar viðskiptum í Kína, m.a. rekið þar fiskvinnslu og ílutt inn vör- ur frá Kína, og segir Björn að menn verði að átta sig á að þar era viðhafð- ar annars konar vinnureglur en þeir eiga að venjast á Islandi. „Ef menn gera hlutina eins og krafist er af kín- verskum yfirvöldum, þá er það reynsla okkar hjá ísBú að hlutimir ganga greiðlega fyrir sig. Það þýðir ekki að ætla sér að breyta kínverska kerfinu á einni nóttu. Það er ávísun á vandræði," segir Björn. Kínverjar vanmetið kröfur Íslendínga IceMac ehf. hefur einnig haft milligöngu um smíðasamninga nokk- urra íslenskra útgerða og Guan- gzhou-skipasmíðastöðvarinnar í Kína. Reynir Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri IceMac, segir ljóst að finna megi orsakir á töfunum að hluta til í Kína, enda hafi afhendingu allra skipa fyrir íslendinga þar í landi seinkað til lengri eða skemmri tíma. Eflaust megi rekja tafir á smíði skipanna að einhverju leyti til ólíkra aðstæðna og menningar í Kína og á íslandi. Eins hafi Kínverj- ar vanmetið þær kröfur sem íslend- ingar gera til fiskiskipa. „Ég er ekki viss um að Kínverjarnir hafi gert sér fyllilega gi-ein fyrir því hversu flókin skipin eiga að vera, þrátt fyrir að þeir hafi kynnt sér og farið um borð í íslensk fiskiskip áður en gengið var frá samningum. Þeir gera tO að mynda ekki sömu kröfur til innrétt- inga og hvers kyns aðbúnaðar um borð og íslendingar gera.“ Reynir segist þó ekki hafa orðið var við annað en að Islendingar séu ánægðir með þá vinnu sem Kínverj- arnir hafi unnið á skipunum, til að mynda stálvinnu á skipskrokkum. Hann á von á því að íslendingar muni áfram láta smíða fyrir sig skip í Kína. „Menn bíða nú spenntir eftir fyrstu skipunum sem koma frá Kína. Ef skipin reynast vel og eig- endur þeirra verða ánægðir þá má ekki búast við öðra en að Islending- ar láti smíða fyrir sig fleiri skip í Kína. Við höfum öðlast dýrmæta reynslu og skiljum nú betur hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í Kína. Á sama hátt hafa Kínverjar lært hvernig skip íslendingar vilja og hvernig þau eiga að vera. Hins veg- ar má ekki búast við því að gerðir verðir nýir smíðasamningar við Kin- verja á allra næstu mánuðum. Kín- verski gjaldmiðillinn hefur verið nokkuð stöðugur gagnvart dollar en gengi dollarans er mjög hátt um þessar mundir. Ég á því von á að menn haldi að sér höndum um tíma,“ segir Reynir. Tæknilega fullkomnir iðnaðarmótorar, framleiddir eftir ströngustu gæðakröfum ■ • *- í% Rafmótorar til sjós og lands 'FAimNM Q> Há nýtni Q> Steypujárnshús Q) Mikil hitarýmd Q) Gott yfirálagsþol Q)Löng ending Q) IP55 hlífðartlokkur eða betri Q> Fáanlegir með ýmsum aukabúnaði Q) Fót- og flangsfestingar Q) 2ja, 4ra, 6 og 8 póla mótorar QjStærðir: 0,09- 500 kW Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík Sfmi: 540 7000 *Fax: 540 7001 fc- • 4-^ ■ L —— — i úhti itiítfh: fti'óyjð ’fif ‘r:> : nifmófnrijn >u n/f.> im mfbúimð: tiriUli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.