Morgunblaðið - 03.11.2000, Page 18

Morgunblaðið - 03.11.2000, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Stöðugur straumur fólks í verslunarmiðstöðina Glerártorg fyrsta daginn Stór dagur í verslunarsögu Akureyrar- bæiar FJÖLDI fólks lagði leið sína í verslunarmiðstöðina Glerártorg í gær og var straumurinn stöðugur allt frá því hún var opnuð um morguninn og fram á kvöld. Yfir 20 verslanir og þjónustufyrirtæki eru á Glerártorgi, veitingastaður og ísbúð. Glerártorg er í eigu hlutafélags- ins Smáratorgs sem rekur m.a. Rúmfatalagerinn og sagði Jákup Jakobsen framkvæmdastjóri hans við athöfn þegar miðstöðin var opnuð að hann hefði trú á Akur- eyri og að bærinn myndi vaxa og dafna á næstu árum. „Við raunum gera allt sem í okkar valdi stendur til að svo megi verða,“ sagði hann. „Við getum selt ykkur ódýr rúm, góðar sængur og kodda og líka rómantísk kerti en afganginn verðið þið að sjá um sjálf,“ sagði Jákup sem vill helst sjá Akureyri sem 20 þúsund manna bæjarfélag innan fárra ára. eyrar, sérstaklega hvað verslunar- söguna varðar. Fjöldi fólks var viðstaddur opnun miðstöðvarinnar og sagði bæjarstjóri það órækan vitnisburð um að bæjarbúar hefðu fylgst vel með gangi mála. Krist- ján Þór sagði að þeir fjárfestar sem reistu Glerártorg hefðu greinilega traust á svæðinu. Hann sagði að þeir sem stæðu í verslun- arrekstri væru ekki bara í sam- keppni innan bæjarins heldur væri samkeppni einnig hörð við versl- anir á höfuðborgarsvæðinu sem og í útlöndum. „Akureyringar taka nú þátt í þessari samkeppni af full- um þunga, samkeppni sem er óhjá- kvæmileg því ef menn bíða með hendur í skauti mun allt koðna niður. Ég tel opnun þessarar versl- unarmiðstöðvar mikið framfara- spor og vona að hún verði svæðinu til gæfu,“ sagði Kristján Þór. Hafðist þótt byggingartíminn væri skammur Framfaraspor Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri á Akureyri sagði að um væri að ræða stóran dag í sögu Akur- Agnes Marteinsdóttir fram- kvæmdastjóri Smáratorgs sagði að sér litist einkar vel á Glerártorg. „Þetta hafðist allt saman á endan- Morgunblaðið/Kristján Agncs Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Smáratorgs og Jákup Jakobsen eigandi Rúmfatalagersins fylgjast með þegar Kristján Þór Júlfusson bæjarstjóri á Akureyri klippir á borðann og opna Glerártorg formlega. um, ég var reyndar aldei í vafa um að það tækist að opna á þess- um tíma en vissulega er bygginga- tíminn skammur eða einungis 6 mánuðir. Þetta er íslenska leiðin," sagði Agnes. „Við höfum mjög góðar væntingar til þessa rekstrar okkar á Akureyri og ég er sann- færð um að tilkoma þessarar verslunarmiðstöðvar mun efla verslun á öllu svæðinu." Agnes sagði að Smáratorg hefði nú á skömmum tíma reist tvær stórar verslunarmiðstöðvar, í Kópavogi og á Akureyri, þannig að félagið myndi sennilega ekki fara út í stórar tjárfestingar á næstu tveim- ur árum en eftir það væri allt op- ið. Stöðugur straumur fólks Iá í verslunarmiðstöðina allt frá því hún var opnuð formlega og fram á kvöld, en gestum var boðið upp á kaffi og kökur í tilefni dagsins. Stór verslunar- húsnæði losna MEÐ flutningi Rúmfatalagersins og Nettó í verslunarmiðstöðina Glerár- torg losna tvö stór húsnæði, sem bæði eru í eigu Kaupfélags Eyfirð- inga. Nettó var í um 1.600 fermetra húsnæði við Óseyri og Rúmfatalag- erinn í um 800 fermetra húsnæði við Norðurtanga. Sigmundur Ófeigsson, fram- kvæmdastjóri Matbæjar ehf., félags um rekstur matvöruverslana KEA, sagði að báðar eignirnar væru til sölu en að einnig kæmi til greina að leigja þær út. „Það ríkir mikil bjartsýni í bænum um þessar mund- ir og það hafa komið þó nokkrar fyr- irspumir um þessar eignir," sagði Sigmundur. Hann sagði bæði húsin vel staðsett og hentuðu því vel fyrir alls kyns rekstur. Þá væri auðvelt að skipta húsnæði Nettó upp í smærri einingar. Unglist sett í Kompaníinu UNGLIST, listahátíð ungs fólks á Akureyri, verður sett í Kompaníinu við Hafnarstræti í kvöld, föstudag- skvöldið 3. nóvember. Listahátíðin stendur alla næstu viku eða fram á laugardaginn 11. nóvember. Fjöl- mörg atriði eru á dagskrá og tekur mikill fjöldi ungs fólks þátt í hátíð- inni. Setningarhátíðin í Kompaníinu hefst kl. 20, en meðal þess sem þar verður í boði er að 14 tundurdufl slá létt á strengi, ungir dansarar koma fram, Lilja þeytir skífur og Cirkus Atlantis leikur listir. Þá verða afhent gögn vegna ljósmyndamaraþons og hönnunarkeppni sem efnt verður til á listahátíðinni og óvæntar uppá- komur verða í bænum. Um helgina verða einnig fjölmörg atriði á dagskrá, m.a. verður starf- rækt stompsmiðja í Kompaníinu í umsjá Garðars Karlssonar frá kl. 14 til 18 og þá verður opnuð ljósmynda- sýning í Nettó á Glerártorgi við ljúfa tóna ungs fólks. Um kvöldið kl. 20 verður opnuð sýning ungs mynd- listarfólks í Deiglunni. Dagskrá verður svo í Deiglunni frá kl. 14 til 18 á sunnudag með yfir- skriftinni Tónaflóð, dans og ljóða- flutningur og á sama stað verða óp- íumtónleikar um kvöldið. Á mánudagskvöld verður opnuð mynd- listarsýning á Karólínu og djass verður í Deiglunni þar sem 14 tund- urdufl koma fram. Listakvöld framhaldsskólanna verður í Verkmenntaskólanum á Ak- ureyri á þriðjudagskvöld. ----------------- Hádegistón- leikar í Akur- eyrarkirkju BJÖRN Steinar Sólbergsson organ- isti heldur hádegistónleika í Akur- eyrarkirkju á laugardag, 4. nóvem- ber, kl. 12. Á efnisskrá tónleikanna verða þrír þættir úr „Dýrð Krists“ eftir Jónas Tómasson og tveir þættir úr orgelsinfóníu nr. 3 eftir Louis Vieme. Lesari á tónleikunum er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og era allir velkomnir. Eftir tónleikana verður léttur hádegis- verður í Safnaðarheimilinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.