Morgunblaðið - 08.11.2000, Page 6

Morgunblaðið - 08.11.2000, Page 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR Varnar- leysi o g þrá BÆKUR S m á s ö g ii r í ALLRI SINNI NEKT Höfundur: Rúnar Helgi Vignis- son Útgefandi: Forlagið SKYNDIKYNNI, gömul kynni, fersk kynni, þreytt kynni eru uppistaðan í smásagnasafn- inu I allri sinni nekt. Þar eru persónurnar sífellt að mætast eins og af tilviljun. Það eru sjaldnast rök fyiir því að hittast, hvað þá kynnast. Þær geta kom- ið sín úr hvoru landinu og verið staddar á sama punkti af ein- hverjum ástæðum, eða hafa þekkst lengi og látið sig dreyma hvor um aðra, hvor í sínu ófull- nægjandi hjónabandinu en það er ekkert endilega víst að hann og hún nái saman eftir að þeim hjónaböndum lýkur. Þær níu sögur sem í bókinni eru fela í sér skin og skúrir, líf og dauða, en í þeim öllum er þrá manneskjunnar eftir snertingu við aðra manneskju. Sú þrá get- ur birst í fallegum og ljótum myndum. Hún getur birst í manni sem fer á ströndina á nektamýlendu og hittir þar óvart konu sem veldur straumhvörfum í lífi hans. Hún getur birst í manninum sem tekur á móti ungri stúlku frá erlendu landi og ..i eyðir allri sinni sögu í að tala í einni bunu um sjálfan sig. Hún getur birst í gagnkvæmri af- brýðisemi, gagnkvæmum trúnað- arbresti, falið í sér hættu á út- skúfun úr vinahópi og svo framvegis. Það er ekkert fyrirsjáanlegt í samskiptum karls og konu í þessum bráðsmellnu smásögum Rúnars Helga. Þar eru allir að bögglast með tilfinningar sínar og það skemmtilega er að þær tiifinningar hafa ekki verið snyrt- ar af höfundi til að líta betur út á bók. Persónurnar hafa sína galla sem koma í veg fyrir að sumar þeirra nái að tjá tilfinningar sín- ar eða finna samastað fyrir þær. Þeir eyðileggja jafnvel sambönd sem eiga annars góða möguleika og stundum liggur við að lesa- ndinn segi upphátt: Mikið á nú annars manneskjan bágt. Smásögurnar níu eru þó síður en svo raunasögur. Rúnar Helgi bregður upp myndum af aðstæð- um þar sem hann best getur af- hjúpað persónurnar og þær að- stæður eru oft fyndnar, jafnvel pínlegar. Við fyrstu sýn geta sögumar virst fremur viðburða- snauðar en fljótlega rennur upp fyrir lesandanum að hér er ekki að fjalla um neinar meiri háttar framkvæmdir mannsandans, heldur það ailra fínlegasta í mannlegum samskiptum, smáatr- iðin sem oft skipta sköpum fýrir líðan einstaklingsins Þar af leið- andi gera sögurnar nokkuð harða kröfu til lesandans um að vera vakandi fyrir því sem er næstum ósýnilegt. Það er verið að fjalla um nokkuð stórbrotin og linnu- laus innri átök. Þau eru vel meitluð inn í textann þótt hlut- irnir líti ósköp vel út á yfir- borðinu. En persónurnar eiga ekki bara samskipti hver eftir sínu höfði. Það er samband á milli tilfinn- inga, hugsunar og líkama hjá þeim, þótt á því sambandi geti verið nokkrar slaufur. Þær eru af holdi og bióði og því hafa sög- urnar erótískan blæ. Erótíkin eru misjafnlega ágeng, allt frá því að birtast aðeins sem þrá yfir í að vera nokkuð berorðar lýsing- ar en afhjúpa nær undantekning- arlaust varnarleysi persónanna. Rúnar Helgi hefur einkar gott vald á smásagnaforminu, skapar skýrar persónur og helsti kostur hans, írónían, nýtur sín mjög vel í þessum sögum. Súsanna Svavarsdóttir Stuttar sögur um stóran sannleika BÆKUR Smásögur GULA HÚSIÐ Eftir Gyrði Elíasson. Útgefandi Mál og menning, Vaka-Helgafell 2000. Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. 125 bls. SMÁSAGNASAFNIÐ „Gula hús- ið“ er sjöunda smásagnasafn Gyrðis Elíassonai’, en hann hefur einnig sent frá sér ellefu ljóðabækur og tvær skáldsögur, svo höfundarverk hans er orðið mikið að vöxtum. í skáldskap Gyrðis má víða sjá að honum er hið smáa hugleikið, hann dvelur við smáatriði, hversdagsleg augnablik og einfalt myndmál. Það smáa er þó einungis farvegur fyrir hið stóra, því hann fjallar fremur öðru um gnmdvallaratriði sammannlegs lífs; lífið, dauðann, óttann og gleðina, hið augljósa og það afstæða. I stuttu máli; þær hliðar mannlegrar tilveru sem við öll þekkjum innra með okkur. Sumar þessar kenndir eru nátengdar daglegu lífi, aðrar tilheyra draumum okkar og enn óræðari tilverustigum þar sem mörk tveggja heima skarast. Allar sögur „Gula hússins" eru stuttar og birtast lesandanum fyrst og fremst sem einskonar myndir er hverfast um einn atburð eða eina hugmynd. Þær tengjast víða innbyrð- is og margar þeirra eru eins og til- brigði eða stef við sömu hugmyndina. Við lestur sagnanna koma því smám saman í ljós nokkrir þræðir sem tvinna sögumar saman svo bókin myndar heildstæðan hugmyndaheim. Einn þessara þráða felst í sam- skiptum barna og fullorðinna. Marg- ar sagnanna tefla saman tveimur eða fleiri kynslóðum, svo sem upphafs- sagan „Brúni hesturinn" sem fjallar um ósamræmið á milh drauma bernskunnar og raunveruleika full- orðinsáranna, „Maðurinn [...] hugsaði sig lengra og lengra aftur í tímann, til daganna meðan hann var enn lifandi'‘ (bls. 6) segir þai- um aðalsöguhetjuna sem vitjað hefur bernskuslóðanna með konu sinni og dóttur. Aðrar sögur á borð við „Undir íjallinu", „Enginn er einn“ „Tuberculosis 1944, „Blinda“ og „Að heiman“ fjalla um börn sem aðstæðna sinna vegna þurfa að takast á við sinn innri mann til að bregðast við umhverfinu og/eða einmanaleikanum. Drengurinn sem er „að heiman“ og getur ekki sofið fyrir einmanaleika „reynir að ímynda sér að tunglið sé glampandi hlý sól sem skíni inn um gluggann." (Bls. 115.) Með einföldu myndmáli á borð við þetta tekst Gyrði að koma miklu til skila um andlegan veruleika sögu- persóna og færa þær í þá nálægð við lesandann að hann finnur vel fyrir þeirri ógn og þeim ótta sem að þeim steðjar. Allar sögur bókarinnar eiga það sammerkt að fjalla um innra líf sögu- persóna við ákveðnar kringumstæður sem oft hafa mjög beina skfrskotun í táknmál sem allir þekkja. Áberandi tákn í bókinni sem heild er fjallið; drengur sem liggur berklaveikur fyr- ir dauðanum horftr á fjallið í spegli úr rúminu sínu um leið og hann horfist í augu við dauðann nálgast. Undir lok sögunnar þegar hann finnur blóð- bragð sjúkdómsins í munninum birt- ist honum fjalhð „logandi bjart, eins- og fjall í draumi sem mig dreymdi einhvern tíma“. Þannig sættfr hann sig við hlutskipti sitt af æðruleysi og hafnar tímabundinni undankomu sem pabbi hans býður honum út í það líf sem þeir lifa sem eiga framtíð fyrir sér. I sögunni „Kofinn" birtist fjallið á svipaðan hátt sem táknmynd fyrir „Tímans tönn“ er að lokum vinnur á okkur öllum, og í sögunni „Undir fjallinu“ hleypur lítil, óþekk stúlka á vit látins afa síns í fjallinu, þar sem hún er komin í ógöngur eftir að hafa strokið að heiman. Sagan „Fjalfræð- an“ færir þessar sögur í kristið sam- hengi en þar spinnur Gyrðir af kímni út írá kristnu táknmáli og ræðu frelsarans á fjalhnu. Það „fjall“ sem sögu- persónur þurfa að búa við í þessari bók er þó íslenskt því ræðumað- rnfnn stendur á Álfa- borginni sjálfri, tákn- mynd íslenskrar þjóð- sagnaarfleifðar. Gyrðir sækir mynd- mál sitt því ekki ein- ungis í kristinn hug- myndaheim heldur færir íslenskan hvers- dagsleika inn í kif stna hugmyndafræði. Hann vísai- einnig í gríska goðafræði, í sögunni „Hádegisflug", og íslenskar þjóðsögur, í sögunum „Grásteinninn" og „Sjór og land“. Þetta gerir hann án þess að hverfa frá því sögusviði sem íslenskum lesendum er svo kunnug- legt, nema til að ljá sögunum þann ókunnugleika er brýnir skilning okk- ar á tengslum innri og ytri veruleika. Sama hlutverki gegnir annað myndmál í þessum sögum. Þar bregður víða fyrir fiskum og ávallt í táknrænum skilningi andlegrar auð- legðar. Ljós og vitar loga til að vísa fólki veginn að sínum inmf manni, eyðingarmáttur eldsins getur bæði falið í sér blessun og endalok. Rithöf- undar skjóta nokkrum sinnum upp kollinum í þessari bók og bækur eða lestur kemur víða fyrir, meira að segja rithöfundar á borð við William Heinesen og Karen Blixen skjóta upp kollinum í sögum þar sem ungæðis- legri vanþekkingu er teflt á móti seinni tíma þroska og skilningi. Sú litla og yfirlætislausa bók sem „Gula húsið“ er leynir því mikið á sér. Sögumar eru, þrátt fyrir einfaldleika á yfirborðinu, margslungnar og þrungnar táknmáli sem gefa þeim rneiri dýpt og táknrænt gildi í sam- hengi hvenf við aðra. Gyrði Eh'assyni tekst með látleysi og ákaflega öguð- um vinnubrögðum að skila stuttum sögum um stóran sannleika á eftfr- minnilegan máta. Fríða Björk Ingvarsdóttir Gyrðir Eliasson Nýjar bækur Yandamál miðaldra kvenna • ÚT er komið heildarsafn ljóða ísaks Hai’ðarsonarsem hlotið hefur nafnið Skýfyrirský. í fréttatilkynn- ingu segir: „Hér er að finna allar ljóðabækm- skáldsins, alltfrá verðlaunabókinni Þriggja orða nafii, sem kom út árið 1982,tilHvítsís- bjamar frá árinu 1995. ísak hefúr fyrirlönguunnið sér sess sem eitt besta ljóðskáld sinnar kynslóðar. Hann kvaddi sér í upphafi hljóðs sem gagnrýnið skáld sem brást við aug- Ijósu stefnuleysi hins vestræna neyslu- samfélags með háði, útúrsnúningi og háværu ákalli um eitthvað annað en daglegt brauð stórmarkaðarins. Æ síðan hafa ljóð hans einkennst af knýj- andi þörf til að greina kennileiti í nú- tímanum, stefnu í öngþveitinu. Þau geyma djúpa vissu um að handan alls sé sannleikur og vissa sem hvorki möl- ur né ryð fá grandað; óbijótandi him- inn. En í þeim er ekki síður skopskyn, leikgleði og innsæi sem vart er hægt að kalla annað en spámannlegt. Andri Snær Magnason ritar inn- gang en á síðasta ári sendi hann frá sér bókina Maður undir himni sem fjallar um trú í ljóðum Isaks.“ Útgefandi er Forlagið. Kápu hann- aði Katrín Sigurðardóttir og Egill Baldursson hannaði ogbraut um bókina. Bókin erprentuð íprent- ;.smiðjunni Odda. Hún er441 bls. Leiðbeinandi verð er 4.490 krónur. BÆKUR Skáldsaga INGA OGMÍRA eftir Marianne Frederiksson. Sig- rún Ástríður Eiríksdóttir íslensk- aði. 254 bls. Vaka - Helgafell. Prentun Oddi hf. Reykjavik, 2000. AÐ VERA Svíi hlýtur að vera huggulegt. Meiri og betri en aðrir. Aðalpersóna sögu þessarar er sænsk menntakona, tæplega fimmtug, vin- kona flóttakonu frá Chile. »Hún var hávaxin kona jafnvel af Svía að vera.« Þar sem hún varð að vera dul og fom- em hafði hún árum saman »æft sig í að tala án þess að segja nokkurn skapaðan hlut að hætti Svía. Halda fólki í hæfilegri fjarlægð.« Hinir framandi gestir máttu líka vita »að í Svíþjóð hefði kvenfólkið sömu réttindi og karlar. Þær ynnu fyrir sér sjálfar og tækju eigin ákvarðanir.« Minnt er á að »Svíar urðu fyrstir í heimi til að setja lög um almenna skólaskyldu. Frá 1842 hafa öll böm lært að lesa.« Undir sögulok má útlendingurinn reiða sig á að »sannarlega var hægt að treysta Svíum.« Þar á móti er Chilekonan að kikna undan ofríki endurminninganna. Hún hafði orðið að hverfa úr landi með fjölskyldu sinni þegar Pinochet steypti Allende. Maður Míru hafði goldið þess að hann var í einhvers konar andspymuhópi gegn harðstjóranum. Sjálfur stjóm- aði hann heimili sínu af ekki minni myndugleik en Pinochet vildi stjórna ríkinu. »Hann talaði ekkert við mig,« upplýsfr Míra, »en ég varð að vera til taks á nætumar. Hann vildi fá heitt te og nýbakað brauð þegar hann kom heim.« Þegar til Svíþjóðar kom missti hann völdin yfir fjölskyldunni og brotnaði niður. Þaðan var hann svo sendur til Argentínu á kostnað sænska ríkisins! í sögu þessari, sem hefst vorið 1988 - Míra er þá búin að dveljast í fimm- tán ár í landinu - fylgja hremming- amar í Suður-Ameríku flóttafólkinu eins og dimmur skuggi. Svíar höfðu þá fyrir löngu byggt upp velferðar- kerfi sitt. Og meir en svo. Því þeir vora jafnaðarmenn að hugsjón, afar virkfr í heimspólitíkinni og studdu róttækar vinstri hreyfingar um heim allan. Það kom því af sjálfu sér að flóttamenn frá Chile skyldu leita at- hvarfs í landi þeirra. Þar settust þeir að tugþúsundum saman. Svíar töldu sér í sama máta skylt að taka vel á móti þeim. Það er í þá vera sem sænska konan, Inga Bertilsson, býð- ur Edermira Narvaes og fjölskyldu hennar stuðning sinn og vináttu. Skarð hafði þó verið höggvið í hópinn því einn sonur Míra hafði látið lífið í Chile. Og dóttir hennar var horfin þar í landi. Lengi vel veit hún ekki hvort hún er lífs eða liðin. Hún verður að fara til Skotlands til að komast að hinu sanna - að stúlkan hafði látist í fangabúðum þar í landi. Konumar era ólíkar en eiga þó margt sameiginlegt. Þær eru á sama aldri, báðar fráskildar og báðar eiga uppkomin böm. En lundarfar þeiira er eins og suðrið og norðrið. »Inga var í hópi hinna viðfelldnu Svía, eilíf vin- semd þeirra stóð í vegi fyrir raun- veralegri vináttu.« Míra er þar á móti opinská og skapmikil. Fjölskyldumál- in og minningamar frá æskuáram auk slæmrar reynslu af misheppnuðu hjónabandi halda drjúgum vöku fyrir þeim. Báðar reyna að stilla í hóf dag- fari sínu en láta þó fremur stjómast af tilfinningingum. Stundum er hlegið en mörgum táram er líka úthelt. Oft- ar en ekki hættir konunum til að dæma viðbrögð annarra út frá eigin geðflækjum. Míra syrgir böm sín sem létust voveiflega. Inga óttast að eiginmaðurinn fyrrverandi, sem er svoli og óþverramenni sem reyndi að misnota dætur þeirra og stal pening- um frá annarri konu, kunni að knýja dyra hjá henni að nýju. Ennfremur er hún smeyk um að dætur hennar tvær muni ekki sýna nægilega gætni og fyrirhyggju í samskiptum sínum við karlkynið. Dapurleg reynsla hennar sjálfrar ýfir einatt upp þann gran. Höfundur tekur þann pól í hæðina að lýsa fólki og atburðum opinskátt fremur en gefa í skyn og fer þar að dæmi skemmtisagnahöfunda. Þar sem konunum er báðum óljúft að ljóstra upp sínum innstu hjartans málum verður höfundurinn að leiða lesandann inn í hugarheim þeirra og rekja í sundur tilfinningaflækjumar. Hann kafar þó engan veginn djúpt í sálarlíf söguhetja sinna. Atökin verða að sama skapi yfirborðsleg. Ekkert er gefið til kynna sem ekki verður tjáð berum orðum. Þetta era vandamála- bókmenntir að hætti Skandínava. Þjóðfélagið er orðið svo fullkomið að ekki er lengur hægt að skeyta skapi sínu á því. Eftir standa einstakling- ai’nir sem í ófullkomleik sínum takast á við eigin vandamál, það er að segja fjölskyldu- og tilfinningamálin. Og þau verða seint auðleyst! Raunar er þetta orðin svo margsögð saga að hún mun varla koma framar á óvart. En sé horft til fjölmiðlaumræðunnar nú um stundir verður ekki annað sagt en bók þessi sé rækilega í takt við tímann. Inga og Míra mun teljast til kvenna- bókmennta í þeim sldlningi, að þama segir langmest frá konum. Og þær lifa og hrærast í reynsluheimi kvenna eins og sagt er. Karlar era einungis í auka- hlutverkum. Þegar öllu er á botninn hvolft er takmarkað rúm fyrir þá í sög- unni. Inga nýtur velgengni í starfi sínu. En vinnan kemur sama og ekkert inn í myndina. Eiginmenn Ingu og Míra, sem urðu þeim sannkallaðir örlaga- valdar, era báðir horfnir til fjarlægra landa og koma hvergi fram í dagsljós- ið; birtast aðeins sem daufir skuggar í endurminningu kvennanna. Sögunni lýkur við ósvikinn íognuð þeirra og annarra viðstaddra þegar Pinochet er handtekinn í Bretlandi að kröfu spænsks dómara. Ætla má að bók þessi verði fyrst og síðast metin eftir boðskap þeim sem hún flytur. Ef litið er á hlut þýðanda og útgefenda sérstaklega er ekkert nema gott um þá hlið málsins að segja. Erlendur Jónsson ísak Harðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.