Morgunblaðið - 09.11.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.11.2000, Blaðsíða 1
258. TBL. 88. ARG. FIMMTUDAGUR 9. NOVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ovissa um niðurstöðu sögulegra forsetakosninga í Bandaríkjunum Endurtalning atkvæða í Flórída ræður úrslitum Washington. Reuters, AP, AFP. EKKI fæst úr því skorið fyrr en í fyrsta lagi síðdegis í dag hver verður næsti forseti Bandaríkjanna vegna endurtalningar í Flórída þar sem nokkur hundruð atkvæða geta ráðið úrslitum í jöfnustu forsetakosning- um í Bandaríkjunum í áratugi. George Bush, forsetaefni repúblik- ana, kvaðst búast við því að staðfest yrði eftir endurtalninguna að hann hefði farið með sigur af hólrpi í Flór- ída og þar með náð tilskildum fjölda kjörmanna til að hreppa forseta- embættið. A1 Gore varaforseti, frambjóðandi demókrata, fékk flest atkvæði í kosningunum en munurinn var mjög lítill, aðeins 150.000 af tæpum 100 milljónum atkvæða. Það er hins veg- ar samanlagður fjöldi kjörmanna forsetaefnanna í sambandsríkjunum 50 sem ræður úrslitum í kosningun- um og frambjóðendurnir þurfa að fá a.m.k. 270 kjörmenn til að ná kjöri. í þetta sinn reyndust 25 kjörmenn Flórída skipta sköpum. Bandarískar sjónvarpsstöðvar fullyrtu fyrst að Gore hefði sigrað í Flórída en nokkrum klukkustundum síðar lýstu þær því yfir að Bush hefði fengið flest atkvæðanna í rík- inu og þar með tryggt sér nógu marga kjörmenn til að sigra í kosn- ingunum. A1 Gore hringdi þá í keppinaut sinn til að óska honum til hamingju með sigurinn en hringdi aftur klukkustund síðar til að skýra Bush frá því að hann játaði sig ekki sigr- aðan. Þá hafði komið í ljós að munur- inn á fylgi frambjóðendanna í Flór- ída var svo lítill að telja þurfti atkvæðin að nýju. Margir Bandaríkjamenn höfðu farið að sofa um nóttina sannfærðir um að Bush hefði sigrað og urðu því mjög hissa þegar þeir vöknuðu og komust að því að ekki var vitað hver yrði næsti forseti. Aðeins munaði 1.800 atkvæðum Samkvæmt bráðabirgðatölum yf- irvalda í Flórída var forysta Bush tæplega 1.800 atkvæði. Embættis- menn í ríkinu sögðu að stefnt væri að því að endurtalningunni lyki í dag en þá á eftir að telja utankjörstaðar- Barak fellst á Palestínu- ríki með skilyrðum Jerúsaiem. Reuters. EHUD Barak, forsætisráðherra ísraels, hefur sent leiðtogum nokk- urra ríkja bréf þar sem hann kveðst vera tilbúinn að fallast á stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis en setur það skilyrði að Palestínumenn reyni ekki að knýja fram sjálfstæði með einhliða yfirlýsingum og ofbeldi. Er þetta skýrasta loforð Baraks í þessum efnum til þessa en hann var- ar leiðtoga Palestínumanna jafn- framt við því að lýsa yfir stofnun sjálfstæðs ríkis án þess að semja fyrst um það við Israela. Búist er við að miðstjóm Frelsissamtaka Palest- ínumanna komi saman í næstu viku til að ræða hugsanlega sjálfstæðisyf- irlýsingu en palestínskir embættis- menn segja að slík yfirlýsing verði ekki samþykkt á fundinum. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, ræðir við Bill Clinton forseta í Washington í dag og ráðgert er að Barak fari á fund Clintons á sunnu- dag. Fimm vegnir Ekkert lát var á blóðsúthellingun- um á Gaza-svæðinu og Vesturbakk- anum í gær. Israelskir hermenn skutu þrjá Palestínumenn, 14,16 og 18 ára; til bana í átökum við landa- mæri Israels og Gaza. 14 ára Palest- ínumaður var einnig skotinn til bana í þorpinu Hares á Vesturbakkanum. Israelsk kona beið bana nálægt al- þjóðaflugvellinum á Gaza þegar skotið var á bifreið hennar. Róttæk hreyfing Palestínumanna í Beirút lýsti árásinni á hendur sér. AP Stuðningsmenn George W. Bush fagna eftir að sjónvarpsstöðvar lýstu hann sigurvegara forsetakosninganna í Bandaríkjunum. Seinna kom í ljós að ríkisstjórinn var ekki öruggur um sigur. atkvæði sem greidd voru erlendis. Stjórnmálaskýrendur sögðu að ef mjótt yrði á mununum eftir endur- talninguna yrði hugsanlega ekki hægt að tilkynna úrslit kosninganna fyrr en eftir rúma viku þegar utan- kjörstaðaratkvæðin hefðu verið tal- in. Póstleggja þurfti atkvæðin ekki síðar en á þriðjudag og þau þurfa að berast innan tíu daga eftir kosning- arnar. Ekki var vitað í gær hversu mörg atkvæði voru send til Flórída frá útlöndum en í síðustu kosningum voru þau um 2.300. Fréttir sjónvarpsstöðva um að nokkurra kjörkassa væri saknað í einu af höfuðvígjum demókrata í Flórída ollu einnig miklu uppnámi í ríkinu. Kosningaeftirlitsmenn vís- uðu þessu þó á bug og sögðu að kjörkassarnir væru í vörslu lög- reglunnar og tafist hefði að senda þá í talningarstöðvarnar. Þá kvörtuðu demókratar yfir þvi að ruglingsleg hönnun kjörseðlanna hefði orðið til þess að um 3.000 kjós- endur hefðu kosið Pat Buchanan, forsetaefni Umbótaflokksins, þegar þeir hefðu ætlað að kjósa Gore. Ralph Nader, frambjóðandi Græna flokksins, fékk 94.000 at- kvæði í Flórída. Demókratar höfðu óttast að Nader myndi taka atkvæði frá Gore en Nader neitaði því í gær að hann hefði orðið varaforsetanum að falli. Úrslit forsetakosninganna voru kunn í öllum ríkjunum nema Flórída og Oregon, sem er með sjö kjör- menn. Gore hafði fengið 260 kjör- menn og Bush 246 í gærmorgun og ljóst er því að sá frambjóðendanna sem fær 25 kjörmenn Flórída verður 43. forseti Bandaríkjanna. Þegar 99% atkvæðanna höfðu ver- ið talin hafði Gore fengið 48.900.828 atkvæði, eða 48,3%. Bush var með 48.725.474 atkvæði, eða 48,1%. Fylgi Ralphs Naders var 2,6%. Kjörsóknin var 50,7% og um 1,7 prósentustigum meiri en í síðustu kosningum. Ljóst er að munurinn á kjör- mannastyrk forsetaefnanna verður sá minnsti í tæpa öld og munurinn á fylgi þeirra meðal allra kjósendanna er jafn lítill og í forsetakosningunum 1960 þegar John F. Kennedy sigraði Richard Nixon. Talið er líklegra að Bush fái kjör- menn Flórída og hreppi þar með for- setaembættið. Hann fékk flest at- kvæði í 29 ríkjum, meðal annars Arkansas, heimaríki Bills Clintons, og Tennessee, heimaríki Gore. Varaforsetinn hafði hins vegar betur í stóru iðnaðarríkjunum, með- al annars Kaliforníu og New York. Repúblikanar halda mjög naumum þingmeirihluta Demókratar styrktu stöðu sína í báðum deildum þingsins en þeim tókst þó ekki að ná meirihluta. Þeim var spáð einu eða tveimur af þeim DANSKIR DA AR MORGUNBLAÐIÐ 9. NÓVEMBER 2000 5 690900 090000 ■ Kosningarnar/28-32 AP George W. Bush og Dick Chen- ey, varaforsetaefni repúblikana, ræða við blaðamenn í Texas. sjö þingsætum sem þeir þurftu að bæta við sig í fulltrúadeildinni. Repúblikanar höfðu fengið 50 þing- sæti af 100 í öldungadeildinni þegar eitt sæti var enn óráðið. Demókratar voru með 49 sæti og því getur svo farið að flokkarnir verði með jafn- marga þingmenn í öldungadeildinni í fyrsta sinn í sögunni. Það nægir þó demókrötum ekki. Nái Bush kjöri verður hann fyrsti repúblikaninn til að gegna forseta- embættinu á sama tíma og flokkur hans er með meirihluta á þinginu frá árunum 1953-55 þegar Dwight D. Eisenhower var forseti. Hillary Clinton var kjörin í öld- ungadeildina í kosningunum í New York og varð þar með fyrsta for- setafrúin til að vera kjörin í opinbert embætti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.