Morgunblaðið - 09.11.2000, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kennarar útiloka ekki
skammtímasamning
ELNA Katrín Jónsdóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara, seg-
ir að samninganefnd kennara hafi
ekki útilokað að gerður verði
skammtímasamningur. Hún segir
að um helgina hafi gerð skamm-
tímasamnings m.a. verið rædd, en
að samninganefnd ríkisins hafi ekki
sýnt þeirri leið áhuga.
„Um helgina voru ræddir allir
möguleikar til lausnar deilunni. Af
okkar hálfu kom fram að við hefðum
alveg litið á tilboð sem fæli í sér
skammtímasamning. Við vildum
hins vegar ekki setja fram slíkt til-
boð sjálf eftir að okkur varð ljóst að
fjármálaráðherra ætlaði ekki að
ansa því.
Við gáfum fjármálaráðherra fylli-
lega til kynna að við værum tilbúin
til að reyna einhverja slíka leið til
þess að fá ráðrúm til að vinna í
launakerfismálinu," sagði Elna
Katrín.
Elna Katrín sagði að á samninga-
fundi í fyrradag hefði verið gefið til
kynna að samninganefnd ríkisins
myndi kynna hugmyndii' eða um-
ræðuefni á næsta fundi. Ekkert
slíkt hefði komið frá nefndinni í gær
og raunar hefðu samninganefndir
deiluaðila ekki neitt rætt saman.
Hún sagðist draga þá ályktun af
þessu að samninganefnd ríkisins
væri ekki tilbúin og að hún ætti eftir
að vinna heimavinnuna.
Nýr fundur hefur verið boðaður
hjá sáttasemjara í dag.
Ollum undanþágu-
beiðnum hafnað
Gunnlaugur Astgeirsson, formað-
ur verkfallsstjórnar framhalds-
skólakennara, sagði að allmargar
fyrirspurnir hefðu borist verkfalls-
stjórn, en ekki væri annað að sjá en
að verkfallið hefði farið vel fram.
Það væru jafnan nokkur álitamál
varðandi framkvæmd þess og einnig
nokkrar undanþágubeiðnir en verk-
fallsstjórn hefði hafnað þeim öllum
fyrir sitt leyti. Hann sagði að lög um
verkfallsrétt opinbeiTa starfsmanna
settu öllum undanþágum frá verk-
falli mjög þröngar skorður. Aðeins
mætti veita undanþágur frá verk-
falli í þeim tilgangi að koma í veg
fyrir neyðarástand og þær beiðnir
sem hefðu borist uppfylltu ekki það
ákvæði.
Skjálfti í
Vatnajökli
JARÐSKJÁLFTI af stærðinni 3,1
varð í Vatnajökli eftir hádegið í
gær. Upptök skjálftans eru talin
vera í eystri sigkatlinum sem
hleypur úr í Skaftá. Ekki hafa ver-
ið miklir jarðskjálftar á þessu
svæði að undanförnu, en skjálftar
af þessari stærð á þessu slóðum
eru þó ekki óþekktir, að sögn Páls
Einarssonar, jarðeðlisfræðings hjá
Raunvísindastofnun háskólans.
Hlaup kom úr sigkatlinum, þar
sem upptök jarðskjálftans eru tal-
in hafa verið, í ágúst, en Páll taldi
ólíklegt að tengsl væru milli
hlaupsins og skjálftans. Hann
sagði hins vegar að grunur væri
um að í kjölfar hlaupa úr katlinum
hefðu orðið þar smá eldgos sem
ekki hefðu náð upp á yfirborð jök-
ulsins. Sennilega hefði orðið þarna
smágos í kjölfar hlaupsins í ágúst í
sumar. Ástæðan fyrir þessu væri
sú að við hlaupið létti þrýstingi á
eldstöðinni.
Þórunn Skaftadóttir, jarðfræð-
ingur hjá Veðurstofunni, sagði að
þessi jarðskjálfti þyrfti ekki endi-
lega að leiða til frekari óróa á
þessu svæði á næstunni. Það væri
þekkt að það kæmu einstakir
skjálftar í Vatnajökli án þess að í
kjölfarið fylgdi skjálftahrina.
Þórunn sagði að það væri búið
að vera frekar rólegt á skjálfta-
vaktinni í haust. Það hefðu verið
skjálftar á Suðurlandi í þeim
sprungum sem hreyfðust í sumar.
Einnig hefðu verið skjálftar í Mýr-
dalsjökli, sem væri hefðbundið á
þessum tíma árs. Stærstu skjálft-
arnir í jöklinum hefðu verið af
stærðinni 2,5.
------f-#-*-----
Mun fleiri
hlutafélög
eftir 1994
SKRÁÐUM fyrirtækjum og félög-
um hjá Hagstofu íslands hefur fjölg-
að um tæp níu þúsund frá 1994, eða
úr 26.987 í 35.940 1. október sl.
Hlutafélögum og einkahlutafélögum
fjölgaði langmest en þau voru 8.387
1994 en eru nú 14.649.
Þessar upplýsingar koma fram í
skriflegu svari viðskiptaráðherra við
fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur
á Alþingi. Kemur fram í svarinu að
skráðum fyrirtækjum og félögum
hefur fjölgað jafnt og þétt á þessu sjö
ára tímabili en nýskráning náði há-
marki í fyrra þegar skráð voru 1.879
ný hlutafélög/einkahlutafélög Það
sem af er þessu ári eni nýskráningar
1.570.
----------------
Leiðrétt
EÐVALD Vilberg Marelsson, sem
lést í bílslysi á Reykjanesbraut á
sunnudag, lætur eftir sig eiginkonu
og þrjú uppkomin börn. í frétt sem
birtist í blaðinu í gær voru börnin
sögð fjögur. Morgunblaðið harmar
þessi mistök og biðst velvirðingar.
Islendingur bjargaðist öðru sinni úr sjávarháska er bátur hans sökk við Jótland
Morgunblaðið/Alfons
Um það bil viku áður en Mette Maj sökk en þá voru Sigurður Haf-
steinsson (t.v.) og skipstjórinn Richard Borges að dytta að bátnum.
Morgunblaðið/Alfons
Mette Maj var 50 tonna stálbátur sem skipstjórinn keypti í apríl eftir
að annar bátur í hans eigu hafði sokkið.
Ætlar aldrei aftur
að vinna til sjós
ÍSLENSKUR skipverji á dönskum
fiskibát slapp ómeiddur þegar bát-
ur hans sökk norður af Jótlandi
aðfaranótt þriðjudags. Þriggja
manna áhöfn bátsins var bjargad
um borð í pólskt flutningaskip.
Skipverjinn, Sigurður Hafsteins-
son, hefur áður lent í sjávarháska
en hann var um borð í Sæborgu
SH sem fórst út af Rifi á Snæfells-
nesi í mars 1989 eftir að tvö brot
höfðu riðið yfir skipið með
skömmu millibili. Sigurður Haf-
steinsson sagðist í viðtali við Morg-
unblaðið í gær aldrei aftur ætla að
vinna til sjós. „Ég sagði skipsljór-
anum að ef ég myndi aftur veiða
fisk þá væri það með stöng.“
Bakborðshleri festist í botni
Báturinn sem fórst hét Mette
Maj og var 50 tonna stálbátur.
Hann hélt frá höfninni í Hirtshals
um sexleytið á mánudagskvöldið
en þá voru þeir nýbúnir að landa.
Um miðnætti höfðu þeir fengið eitt
hal. Sigurður var í brúnni og
fylgdist grannt með veðrinu en í
samtölum hafnarinnar í Hirtshals
við önnur skip kom fram að veður
fór versnandi. Um miðnættið bætti
skyndilega í vind og vindhraði fór
úr 15-18 m/sek. í um 19-22 m/sek.
Þá voru skipverjar að draga inn
veiðarfærin og því var lokið um
klukkan eitt. Þeir köstuðu svo aft-
ur út veiðarfærunum. „Skömmu
síðar festist stjórnborðshlerinn í
botni,“ segir Sigurður. Hvorki var
hægt að hífa né slaka þar sem spil-
ið var óklárt. Afturhluti bátsins fór
á kaf og báturinn tók að hallast
talsvert á stjórnborða. „Það var
svo mikill straumur og bræla að
ekki varð við neitt ráðið,“ segir
Sigurður. Þeim gafst þó ráðrúm til
að loka lestum og vélarrúmi þann-
ig að báturinn hélst á floti en mar-
aði í hálfu kafi. Sigurður fór strax
að björgunarbátnum en skipstjór-
inn sendi á meðan út neyðarkall á
meðan þriðji bátsveijinn fór inn í
lúkar að sækja sér björgunargalla.
Nokkur vandræði voru við að
koma björgunarbátnum á flot en
það tókst þó að lokum. Sigurður
telur að um hálf klukkustund hafi
liðið frá því stjómborðshlerinn
festist í botni og þar til báturinn
byijaði að sökkva. Þá ýttu þeir
björgunarbátnum frá og stukku
svo á eftir honum. Þeim hafði öll-
um tekist að klæðast björgunar-
galla og áttu í litlum vandræðum
með að komast um borð í björgun-
arbátinn.
Bjargað um borð í pólskt
flutningaskip
Að hálftíma liðnum renndi
40.000 tonna pólskt flutningaskip,
Hota Zygmund, upp að hlið þeirra.
Sigurður segir skipið hafa verið
kolsvart og þeir því ekki orðið þess
varir fyrr en björgunarbáturinn
var við skipshlið. Pólverjarnir létu
lóðsstigann síga niður og þá gátu
bátsveijar Mette Maj klifrað um
borð. Sigurður segir þá félaga
hafa verið vel á sig komna en það
hafi þó verið talsverð þrekraun að
Mette Maj sökk um 8 sjómfíur
norðnorðvestur af Hirtshals
Skagerrak Hirtshalí SVjÍÞJÓÐ
Á'!^rg Kattegat\
fy ' K m
DA^MÖRKfff ^ V
; ■ 'j Ksöpjiiíi nrra-
s höfn
- \
v*-:
' "W/
*
ÞÝSKM.AND
*/
'■fy
klifra upp stigann. Stýrimaður
pólska flutningaskipsins hafði séð
þegar Mette Maj hvarf af ratsjá og
tók hann þegar stefnu að bátnum.
Því leið ekki nema um hálftími frá
því Mette Maj sökk og þar til báts-
veijarnir voru komnir um borð í
pólska flutningaskipið.
Sigurður hefur búið í Grenaa á
Jótlandi undanfarin fjögur ár
ásamt eiginkonu og Ijórum börn-
um. Hann hyggst nú leita að öðru
starfi í landi og segist vera búinn
að fá nóg af sjóslysum. Félagi hans
um borð í Mette Maj hefur þó oftar
komist í sjávarháska en þetta var í
þriðja skiptið sem bátur sökk und-
an honum.
Sérblöð í dag
Morgunblaðinu
í dag fylgir
blað frá Nóa-
túni, „Danskir
dagar“. Blað-
inu verður
dreift á Suð-
vesturlandi.
Falsaðar fyrirspurnir um
ungan markvörð / B4
Birkir slasaðist í Stoke
í gær /B1
4
Fylgstu
meö
nýjustu
fréttum
4 www.mbl.is