Morgunblaðið - 09.11.2000, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rökstuðmngur Heraðsdóms Reykjaness vegna réttarhalds
fyrir luktum dyrum í morð- og kynferðisbrotamáli í Keflavík
Samtvinnuð brot og
aðgreining erfið
HERAÐSDOMUR Reykjaness hef-
ur með úrskurði rökstutt þá ákvörð-
un sína að rétta skuli fyrir luktum
dyrum í máli ákæruvaldsins gegn
Rúnari Bjarka Ríkharðssyni, sem
ákærður hefur verið íyrir að ráðast
inn á heimili Áslaugar Óladóttur í
Keflavík 15. april sl. og ráða henni
þar bana, auk þess sem hann er
ákærður fyrir að veita sambýlis-
manni hennar áverka með hnífi og
fyrir tvö kynferðisafbrot gegn stúlku,
sem var vinkona Áslaugar heitinnar.
Þór Jónsson, fréttamaður á Stöð 2,
krafðist þess, með vísan til 2. mgr. 8.
greinar laga um meðferð opinberra
mála, að dómurinn rökstyddi ákvörð-
un sína um lokað réttarhald með
úrskurði og var hann kveðinn upp á
þriðjudag.
í úrskurði Ólafar Pétursdóttur
héraðsdómara kemur fram að gögn
málsins beri með sér að brotin, sem
ákærði er saksóttur fyrir, séu mjög
samtvinnuð og erfítt reynist að að-
greina rannsókn þeirra. „Brotaþoli
kynferðisbrotsins var góð vinkona
J&laugar Óladóttur, sem ákærði er
ákærður fyrir að hafa myrt,“ segir
þar.
Fram kemur að sækjandi hafi talið
óhjákvæmilegt annað en að nokkur
vitni þyrftu að koma tvisvar fýrir
dóm ef þinghöldin yrðu einvörðungu
lokuð að því er varðaði kynferðis-
brotamálið.
Þá rekur dómarinn að meginregla
laganna um réttarhöld fyrir opnum
dyrum byggist á tveimur náskyldum
röksemdum. „Önnur er sú að opinber
málsmeðferð tryggi réttaröryggi
þeirra sem aðild eiga að dómsmálum,
í opinberum málum, ekki hvað síst
réttaröryggi ákærða. Hin röksemdin
er sú að með því að gefa almenningi
kost á að fylgjast með málsmeðferð
fyrir dómi sé dómstólum veitt aðhald.
Öpinber málsmeðferð er því öryggis-
ventill til að tryggja réttláta máls-
meðferð en er ekki markmið í sjálfu
sér. Meginreglan er af þessum sök-
um ekki án undantekninga enda er
skýrt tekið fram í lagaákvæðinu að
ýmsar ástæður geta réttlætt að vikið
sé frá henni,“ segir dómarinn, sem
ennfremur segir að enda þótt ákvæði
laga útiloki ekki að dómari geti haft
þinghöld að hluta til lokuð og að hluta
til opin.
Ákærði afþakkaði réttarvernd
Þá er rakið að ákærði hafi afþakk-
að þá réttarvernd sem opinber máls-
meðferð á að tryggja honum og hafi
farið fram á að þinghöld færu að öllu
leyti fram fyrir luktum dyrum.
Brotaþoli ætlaðra kynferðisbrota
hafi krafist hins sama. „í þriðja lagi
útskýrði sækjandi að skýrslutökur
fyrir dómi yrðu mun þyngri í vöfum
þar sem tíu vitni þyrftu að koma
tvisvar sinnum fyrir dóm og þyrftu
auk þess að gæta sín á því að fjalla
ekki um meint kynferðisbrot þegar
þau væru yfirheyrð um ætlað
manndráp. í fjórða lagi fellst dómur-
inn á þá röksemd að vandasamt sé
fyrir sakflytjendur að halda nauðg-
unarþættinum og manndrápsþættin-
um aðgreindum í málflutningsræðum
sínum vegna tengsla þessara mála.“
Vegur þyngra en
hagsmunir almennings
„Þegar öll þessi sjónarmið eru virt
er það mat dómsins að þau vegi
þyngra en hagsmunir almennings af
því að fá að fylgjast með réttarhöld-
unum, Það er ennfremur álit dómsins
að hagsmunir brotaþola, vitna og
annarra er málið varðar séu það ríkir,
að það réttlæti að þinghöld fari að
öllu leyti fram fyrir luktum dyrum,“
segir dómarinn. „Við þetta mat er
haft í huga það markmið réttarfars-
breytinga sem gerðar voni á lögum
um meðferð opinberra mála með lög-
um nr. 36/1999 að styrkja réttarstöðu
brotaþola.“
Tvær bflveltur urðu með tuttugu mínútna millibili við gatnamótin við
Engidal í Hafnarfirði í hádeginu í gær.
Mörg umferðar-
óhöpp rakin til hálku
TALSVERÐ hálka var á höfuð-
borgarsvæðinu í gærmorgun og
nokkuð um umferðaróhöpp.
Tveir bílar ultu með skömmu
millibili við gatnamótin í Engidal í
Hafnarfirði í hádeginu. í fyi-ra
skiptið valt sendibifreið á Reykja-
víkurvegi um 100 m norðan við
Engidal. Kona, sem ók bílnum,
meiddist en ekki alvarlega, að
sögn lögreglu. Hún var flutt á
slysadeild Landspítalans - há-
skólasjúkrahúss. Um 20 mínútum
síðar barst tilkynning um árekstur
á gatnamótunum í Engidal. Þar
höfðu tveir jeppar skollið saman
og hafði annar þeirra oltið við
áreksturinn. Einn var fluttur á
slysadeild en ekki talinn alvarlega
slasaður. Samkv. upplýsingum frá
lögreglunni í Hafnarfirði var öku-
maður jeppans sem valt á leið yfir
gatnamótin til vesturs þegar ekið
var í veg fyrir hann.
Lögreglan segir mikla hálku
hafa myndast á veginum á skömm-
um tíma, sem líklega hefur valdið
báðum slysunum.
Um klukkan átta í gærmorgun
var ekið á staur við gatnamót
Kringlumýrarbrautar og Sæbraut-
ar í Reykjavík. Tveimur tímum s
síðar var ekið á ljósastaur við Gull- f
inbrú. Lögreglan segir að þessi
óhöpp megi að öllum líkindum
rekja til hálku.
Um níuleytið í gærmorgun varð
þriggja bíla árekstur í Ártúns-
brekku til móts við bensínstöð
Essó. Einn bíllinn var fluttur burt
með krana og kvaðst ökumaðurinn
ætla að leita til læknis.
Sigurjón Si g-
hvatsson kaup-
ir rétt að Slóð
fíðrildanna
FYRIRTÆKI Sigurjóns Sighvats-
sonar, Paloma Pictures, hefur keypt
kvikmyndarétt að Slóð fiðrildanna,
skáldsögu Olafs Jóhanns Ólafssonar.
Þetta er fyrsta íslenska skáld-
sagan, sem fyrirtæki Sigurjóns fær
rétt til að kvikmynda að en Paloma
Pictures mun framleiða myndina
ásamt framleiðandanum Anne-Mar-
ie Mackay, að því er fram kemur í
Variety, tímariti bandaríska
skemmtiiðnaðarins, í gær. Þar er
haft eftir Sigurjóni að þeir Ólafur Jó-
hann séu gamlir vinir, og hafi lengi
rætt um að að eiga samstarf. Af því
hafi hins vegar ekki orðið fyrr en nú.
Slóð fiðrildanna kemur út í Banda-
ríkjunum síðar í nóvember hjá for-
laginu Pantheon. I frétt frá Vöku-
Helgafelli, segir að þegar hafi birst
lofsamlegir bókadómar í fagblöðum
vestanhafs ogs bókabúðakeðjan
Barnes & Noble hafi valið bókina til
sérstakrar kynningar næstu mánuði.
Morgunblaðið/Kristinn
Harður árekstur á Víkurvegi
HARÐUR árekstur tvcggja fólksbifreiða varð á Vík-
urvegi um klukkan sex í gærkvöld. Kalla þurfti til
tækjabfl slökkviliðsins til að losa ökumennina úr bif-
reiðunum, sem gjöreyðilögðust við áreksturinn.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu virðist sem annar
ökumaðurinn hafi dottað undir stýri og sveigt bifreið
sinni yfir á rangan vegarhelming, með þeim afleiðing-
um að bifreiðirnar skullu saman á talsverðri ferð.
Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild.
Reyndust meiðsl þeirra minni en í fyrstu var talið og
að sögn lögreglu skiptu bflbelti þar sköpum. Annar
mannanna hlaut áverka á baki og var lagður inn til
frekari rannsókna, hinn skarst í andliti og fékk að
fara heim eftir að gert hafði verið að sárum hans.
NÝITÓNLISTAR OG MYN06ANDAMARKADURINN
MJðe ean úrval m eeislabiskum
Á ÍSKRANDIÚ6H VERffl
FJðLDI TiTU fi BVO RB. 1BSS
VIBIBSPÓllíH k XB.118S
BfiRNfiEFNi FBÁ KB. 889
TÖlMFilUIR FYRffi
PLAYSTATifiN, DREAMCAST OG PE
€ Nýja
{ markaðstorgið \ HI’lil AIIA IIAflA VIKIJNNAH I RA V) 18 30
1 HUSI FALKANS SU UURLANUSBRAUT 8 SÍMI: 533 5090
Sameiningarferli Leik-
félags Islands lokið
SU BREYTING hef-
ur átt sér stað hjá
Leikfélagi íslands að
Stefán Hjörleifsson
framkvæmdastj óri
hefur tekið sæti í
nýrri stjórn samein-
aðs félags og hefur því
nýr framkvæmda-
stjóri, Rakel Sveins-
dóttir, verið ráðin til
félagsins. Ráðningin
er liður í því lokaferli
sem sameining fyrir-
tækjanna Iðnó, Loft-
kastalans og Hljóð-
setningar hefur falið í
sér.
Þessi fyrirtæki
hafa nú þegar starfað
samkvæmt sameiginlegu
fyrirkomulagi í um fimm
Rakel
Sveinsdóttir
rekstrar-
mánuði og
er hlutafjárútboð fyr-
irhugað á næstu vik-
um, að því er kemur
fram í fréttatilkynn-
ingu.
Leikhússtjóri fé-
lagsins er Magnús
Geir Þórðarson og
Hallur Helgason,
starfandi stjórnarfor-
maður, stýrir nú upp-
byggingu á nýrri
framleiðsludeild fyrir
sjónvarp, segir í til-
kynningunni.
Rakel Sveinsdóttir
starfaði áður sem
sölustjóri Morgun-
blaðsins frá 1994 til
1999 og auglýsinga-
stjóri íslenska útvarpsfélagsins á ár-
inu 2000.
Flugvélin
sem fest-
ist í Horn-
vík komin
til byggða
ÓMAR Ragnarsson, frétta-
maður flaug vél sinni, TF-
FRU, frá Hornvík um hádeg-
ið í gær en hún festist þar í
sandi í fyrradag. Ómar segir
flugvélina hafa sokkið örlítið í
sandinn en þó nóg til þess að
hann gat ekki losað hana einn
síns liðs þótt litlu hafi munað.
„Við getum lýst þessu þannig
að Frúin hafi blotnað í fæt-
urna,“ sagði Ómar í samtali
við Morgunblaðið.
Þakklátur skipverjum
fyrir hjálpina
Hann var á ferð um Vest-
firði m.a. vegna gerðar sjón-
varpsþáttanna Fólks og fyrn-
inda sem verða sýndir í
Sjónvarpinu eftir áramót og
hugðist taka myndir í Horn-
vík. Sandurinn í fjörunni í
Hornvík var harður og Ómar
segist hafa talið að óhætt
væri að láta vélina standa í
sandinum meðan á mynda-
tökum stóð.
Þegar hann kom aftur að
vélinni höfðu hjól hennar
sokkið örlítið og Omari tókst
ekki að losa hana upp á eigin
spýtur. Hann kallaði því eftir
aðstoð og komu skipverjar af
olíuflutningaskipinu Stapá-
felli honum til hjálpar og ýttu
vélinni upp úr fjörunni.
„Þetta var eiginlega hlægi-
lega auðvelt," segir Ómar en
bætir við að hann sé afar
þakklátur skipverjunum fyrir
hjálpina.
Eftir næturgistingu um
borð í trillunni Sædísi hóf
hann sig á loft frá Hornvík
um hádegið í gær og var lent-
ur í Reykjavík á sjötta tíman-
um.
I