Morgunblaðið - 09.11.2000, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Ólafur K Magnússon
Lítil snót afhendir Ingiríði blómvönd við komuna til íslands árið 1982.
Vigdís Finnbogadóttir forseti horfir brosmild á.
Frá opinberri heimsókn konungshjónanna í aprfl 1956. Myndin er tekin í anddyri Þjóðleikhússins skömmu fyrir
viðhafnarsýningu hinum tignu gestum til heiðurs. F.v. Vilhjálmur Þ. Gíslason, formaður Þjóðleikhúsráðs, Ingi-
ríður, Friðrik konungur, Dóra Þórhallsdóttir, forsetafrú, forseti fslands Ásgeir Ásgeirsson og Guðlaugur Rós-
inkranz Þjóðleikhússtjóri.
Kynni íslendinga af Ingiríði ekkjudrottningu
Greind og elskuleg kona
INGIRIÐUR drottningarmóðir,
sem lést á þriðjudag níræð að aldri,
kynntist Islendingum bæði á ferð-
um sínum til íslands og við opinber
störf Islendinga í Danmörku, sendi-
herra sem annarra. Frú Vala Thor-
oddsen minnist heimspknar dönsku
konungshjónanna til Islands árið
1982 með hlýju en heimsóknin var í
forsætisráðherratíð eiginmanns
hennar, Gunnars Thoroddsen.
„Ingiríður var ákaflega sérstök og
elskuleg kona. Það hefur meira að
segja verið sagt, að hún hafi bjargað
konungsríkinu, svo vel hafi hún
staðið sig. Drottningin hafði líka
sterk áhrif á æsku Danmerkur -
yngra fólkið í kringum sig,“ sagði
Vala og minntist þeirrar tíðar þeg-
ar Ingiríður var krónprinsessa ís-
lands og Iagði stund á islenskunám
til að geta sinnt sem best skyldum
sínum við fslendinga. Hin sænsk-
ættaða drottning naut ávallt vin-
sælda þegna sinna og virðingar og
minnast Danir hennar sem samein-
Ingiríður drottning og Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra
gengu um Þingvelli árið 1982.
ingartákns bæði þjóðarinnar og
ekki síst konungsfjölskyldunnar.
fsland skipaði sérstakan sess
íhjarta hennar
Ármann Snævarr prófessor hitti
Ingiríði árið 1993 þegar hún af-
henti honum verðlaun norrænu lög-
fræðingasamtakanna. Ármann seg-
ir þau drottningarmóðurina hafa
átt stutt spjall við það tækifæri og
hafi ekkjudrottningin haft „fallega
og góða návist. Hún tók ósköp
elskulega í höndina á mér og hvísl-
aði ofurlágt í eyra mér að það væri
sér sérstök ánægja að afhenda ís-
lenskum vísindamanni þessi heið-
ursverðlaun „því að fsland hefur
alltaf skipað sérstakan sess í hjarta
mínu“. Ingiríður var bráðgreind og
mjög vel menntuð,“ sagði Ármann
og vitnaði til orða fjölmargra
danskra vina sinna „sem höfðu
kynni af drottningunni og luku allir
upp einum rómi um hve hún hefði
vérið gáfuð og yndisleg".
Forseti sendir samúðarkveðju
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti
íslands, hefur sent Margréti II
Danadrottningu samúðarkveðju
vegna andláts Ingiríðar drottningar.
„Ég votta yðar hátign, konungs-
fjölskyldunni og dönsku þjóðinni
innilega samúð vegna andláts Ingi-
ríðar drottningar. Islendingar varð-
veita kærar minningar um heim-
sóknir Ingiríðar drottningar til
Islands, vináttu hennar og hlýjan
hug í garð þjóðarinnar, menningar
okkar og sögu. Ingiríður drottning
naut djúprar virðingar vegna vits-
muna sinna, fágaðrar framkomu og
fórnfýsi. Hún skipaði einstæðan
sess í sögu norrænna þjóða. Við
andlát Ingiríðar drottningar minnist
ég góðra samverustunda og sam-
ræðna sem gáfu mér hlutdeild í fjár-
sjóði reynslu og ráða sem hún deildi
svo ljúflega með öðrum,“ segir í
samúðarkveðjunni, að því er fram
kemur í frétt frá skrifstofu forseta
íslands.
Samúðarbók í sendiráði
Danska sendiráðið hefur einnig
tilkynnt að vegna andláts Ingiríðar
drottningar muni samúðarbók
liggja frammi í sendiráðinu 9., 10.
og 13. nóvember frá kl. 10-12 og 14-
16.
A __
Islandsbanki FBA gefur Landspítalan-
um - háskólasjúkrahúsi eina milljón
Morgunblaðið/Ásdís
Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss, og
Valur Valsson, forstjóri Íslandsbanka-FBA.
Gjöf til kaupa á
úmsko ðunartæki
ISLANDSBANKI-FBA afhenti í
gær fæðingardeild Landspítalans
- háskólasjúkrahúss, eina milljón
króna til kaupa á tæki til óm-
skoðana. Tækið er þeim kosti
búið að auðvelt er að flytja það
milli herbergja en þau ómskoð-
unartæki sem kvennadeildin á
fyrir og notuð eru til fósturgrein-
inga, bjóða ekki upp á þann
möguleika.
Omskoðunartæki má nota við
ýmsar aðstæður, til dæmis við að
meta legu fósturs þegar kona
kemur inn í fæðingu og eins til að
meta stærð fósturs þegar fæðing
fer af stað löngu fyrir áætlaðan
fæðingardag og þá er einnig
hægt að meta fylgjustaðsetningu
og legháls með ómskoðun. Þegar
konur eru komnar meira en viku
fram yfir áætlaðan fæðingardag
þarf að mæla legvatnsmagn og er
það gert með ómskoðun og einn-
ig eru ómskoðunartæki gagnleg
við tvíburafæðingar til að meta
legu fósturs eftir að fyrri tvíburi
er fæddur.
eyraj
á Súfistanum
Töluvert aukin
að klúbbnum
fimmtudaqskvöld
9. nóvember kl. 20
úr nvjum bókum
Björn Th. Björnsson: Byltingarbörn
Vilborg Davíðsdóttir: Galdur - skáldsaga
Gyrðir Elíasson: Gula húsið
Þorsteinn Guðmundsson: Klór
Mál og menning
malogmenning.isl
Laugavegi 18 • Sfml 515 2500 • Síðumúla 7 • Slmi 510 2500
AÐSÓKN að Klúbbnum Geysi hefur
aukist töluvert í haust og segir Anna
Valdemarsdóttir, framkvæmdastjóri
klúbbsins, að nú komi þangað um 90
manns í hveijum mánuði, en af þeim
taki um tuttugu manns mjög virkan
þátt í starfseminni; mæti daglega og
sinni þar nauðsynlegum störfum.
,A-ðsóknin er alltaf að aukast og
kemur nýtt fólk inn á hverjum einasta
degi,“ segir Anna.
I klúbbnum Geysi starfar fólk sem
á eða hefur átt við geðrænan vanda að
stríða og segir Anna að hugmynda-
fræði klúbbsins byggist á því að vinn-
an sé hluti af bata fólks. Bæði vinni
klúbbfélagar innan klúbbsins sjálfs
og eins fái þeir aðstoð við að komast
út á almennan vinnumarkað.
Klúbburinn Geysir tók til starfa
fyrir um ári, en hefur verið í núver-
andi húsnæði við Ægisgötu frá í jan-
úar. Anna segir að aðsókn hafi aukist
jafnt og þétt frá því að nýja húsnæðið
var tekið í notkun og að aukningin
hafi orðið enn meiri í haust, en þar tel-
ur hún öflugt kynningarstarf hafa
skilað árangri ásamt því sem starf-
semi klúbbsins hefur spurst vel út.
„Við höfum sent öllum heilsugæslu-
stöðvum, starfandi geðlæknum, sál-
fræðingum og félagsráðgjöfum kynn-
ingarbréf og boðið þeim að koma og
kynna sér starfsemina. Við finnum að
þetta er að skila sér núna. Læknar og
sálíræðingar eru famir að vísa á okk-
ur sem úrræði,“ segir Anna. Auk þess
segir hún að aukin og opnari umræða
um geðheilbrigðismál hafi haft mikið
að segja og telur hún geðræktarverk-
aðsókn
Geysi
efni Geðhjálpar hafa haft mikil og góc
áhrif í þeim efnum.
Frá því að klúbburinn tók til starfí
hafa sex einstaklingar á hans vegun
hafið störf á almennum vinnu
markaði, auk þess sem tveir til viðbót-
ar munu byrja í störfum á næstu vik-
um. Anna segir að þau störf sem un
ræðir séu af ýmsu tagi, til dæmií
þjónustu- og verslunarstörf.
„Þessi leið er hugsuð fyrir þá sen
hafa dottið út af vinnumarkaði eftú
langvarandi veikindi. Þegar fólk fer
störf í gegnum okkur er þjálfun of
undirbúningur alfarið á vegun
klúbbsins. Við förum auk þess me<
þeim á vinnustaðinn til stuðnings
þangað til viðkomandi hefur öðlast þí
fæmi sem hann telur sig þurfa til ai
sinna starfinu,“ segir Anna.