Morgunblaðið - 09.11.2000, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Menningarmálaráðherrar Norðurlanda ræddust við á fundi í Norræna húsinu í gær.
Ræddu útlendinga, andúð
og kynþáttafordóma
RÁÐHERRAR menningarmála
Norðurlanda funduðu í Norræna
húsinu í Reykjavík í gær í tengsl-
um við þing Norðurlandaráðs. Á
fundinum var fjallað um ráðstöfun
framlaga til menningarmála í nor-
rænu samstarfsfjárlögunum 2001.
Einnig ræddu ráðherrarnir um
þróun fjölmenningarsamfélags á
Norðurlöndum og menningar-
tengdar aðgerðir til að stemma
stigu við útlendingaandúð og kyn-
þáttafordómum. Þá áttu ráðherr-
arnir fund með fulltrúum í stjórn
Norræna menningarsjóðsins og
Norðurlandanefnd Norðurlanda-
ráðs. Menningarmálaráðherrarnir
sem sátu fundinn voru: Elsebeth
Gerner Nielsen frá Danmörku,
Suvi Lindén frá Finnlandi, Marita
Ulvskog frá Svíþjóð, Ellen Horn
frá Noregi, Torbjörn Jacobsen frá
Færeyjum, Gun Carlson frá
Álandseyjum og Björn Bjarnason.
_ >
Borgin kaupi Islending
BORGARRÁÐSFULLTRÚAR
sjálfstæðismanna lögðu á þriðjudag
fram tillögu til borgarráðs um að
Reykjavíkurborg leiti eftir kaupum á
víkingaskipinu Islendingi og feli
borgarlögmanni að eiga viðræður við
eiganda skipsins.
I greinargerð með tillögunni segir
að sigling Islendings tíl Ameríku hafi
vakið verðskuldaða athygli víða um
lönd og með siglingunni hafi Gunnar
Marel Eggertsson og áhöfn hans lagt
af mörkum þýðingarmikið starf við að
kynna land og þjóð, sögu hennar og
menningu. Ekki aðeins sigling skips-
ins heldur einnig smíði þess hafi verið
mikið afrek.
„Það á að vera metnaðarmál borg-
aryfirvalda, að hér, þar sem fyrsti
landsnámsmaðurinn reisti sér bú,
gefist gestum og íbúum gott tækifæri
til að kynnast sögu þjóðarinnar. Það á
því að vera keppikefli íyrir Reykvík-
inga að eignast langskipið „íslending"
sem er íyrsta fullkomna eftirmynd
víkingaskips, sem smíðuð er hér á
landi,“ segir í greinargerðinni.
Loks segir að brýnt sé fyrir Reyk-
víkinga að nýta þau sóknarfæri sem
landkynning vegna menningarborgar-
ársins og landafundahátíðahalda muni
væntanlega færa. „Víkingaskipið mun
án efa hafa mikið aðdráttarafl íyrir
ferðamenn sem hingað leggja leið sína
og vera ákjósanleg viðbót við þá mögu-
leika sem hér bjóðast. Hægt verður að
hafa skipið til sýnis og fræðslu fyrir
ferðamenn, skólanema og allan al-
menning um víkingatímabilið og sigl-
ingar víkinga. Skipið getur þannig orð-
ið fyrsti vísir að veglegu sjóminja- og
víkingasafhi borgarinnar."
Umboðsmaður
barna vill aukn-
ar fjárveitingar
UMBOÐSMAÐUR barna, Þórhild-
ur Líndal, telur brýna þörf á því að
auka fjárveitingar til embættisins
svo hægt sé að sinna þeim fjöl-
mörgu verkefnum er bíða úrlausn-
ar í þágu barna og unglinga. Þetta
kemur fram í aðfaraorðum Þór-
hildar í skýrslu umboðsmanns
barna til forsætisráðherra fyrir
starfsárið 1999.
„Mikilvægi þessa embættis felst
ekki síst í því að ná eyrum unga
fólksins á þess forsendum, og fá að
heyra skoðanir þess á máléfnum
líðandi dags, sem og nánustu fram-
tíð. Þessi hópur er skiljanlega
breytilegur frá einum tíma til ann-
ars, sem þýðir að um langtíma,
jafnvel eilífðarverkefni er að ræða.
Fjárveitingar til embættisins leyfa
ekki að þessum nauðsynlega þætti
starfseminnar sé sinnt sem skyldi
og er það miður. Á þeim tímamót-
um, sem embætti umboðsmanns
barna stendur nú, tel ég ástæðu til
þess fyrir handhafa ríkisvaldsins,
ekki síst fjárveitingavaldsins, að I
þeir velti því fyrir sér af alvöru,
hver hafi verið tilgangur og hvert
hafi verið markmið löggjafans þeg-
ar embætti umboðsmanns barna
var sett á stofn,“ segir umboðs-
maður barna í skýrslunni.
987 munnleg erindi
til umboðsmanns 1999
Erindum til umboðsmanns hefur
fjölgað mikið á síðustu árum og
hefur skráning símaerinda hjá }
embættinu vaxið jafnt og þétt und-
anfarin ár, en nú virðist komið
ákveðið jafnvægi á fjölda erinda
milli ára, að því er fram kemur í
skýrslunni.
Þannig voru á árinu skráð 987
munnleg erindi, en þau voru 1.043
árið áður. Á árinu voru til meðferð-
ar hjá embættinu 105 skrifleg mál,
þar af voru 86 ný mál en 19 frá fyrri
árum.
Jarðgöng eystra
í umhverfismati
FRESTUR til að skila athuga-
semdum við drög að tillögu um
mat á umhverfisáhrifum jarðganga
og vegar milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar rennur út á morg-
un.
Göngin munu tengja saman
Fjarðabyggð og suðurfirði Aust-
fjarða og stytta vegalengdina milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
um 32 kílómetra.
Áætlað er að göngin verði um
5,5 km að lengd og vegtengingar
um 8 km. Gangamunnar verða í
botni Daladals í Fáskrúðsfirði og
við Hrúteyri í Reyðarfirði. Vega-
gerðin miðar undirbúning við að
verkið verði boðið út seint á árinu
2001 og að framkvæmdir geti haf-
ist vorið 2002. Framkvæmdatími
er áætlaður um 2% ár miðað við
vinnu frá báðum endum með tvö-
földu mannahaldi og tækjakosti.
Tillaga að mati á umhverfisáhrif-
um jarðganganna er birt í heild á
heimasíðunni www.honnun.is.
Teflt við sterkari andstæð-
inga í sjö af tíu umferðum
SKAK
Þegar þetta er skrifað hafa verið
tefldar tíu umferðir á ólympíuskák-
mótinu í Istanbúl. íslensku sveitun-
um hefur gengið misjafnlega.
Karlasveitin hefur barist vel í
efri hluta mótsins og er í 32,- 35.
sæti, með 2214 v. af 40 mögulegum.
Sveitin er í 47. sæti í styrkleikaröð-
inni, miðað við skákstig, af 127
sveitum. Það er fróðlegt að skoða,
hvar í styrkleikaröðinni andstæð-
ingarnir í 10 umferðum hafa verið:
nr. 2, 19, 20, 22, 26, 28, 33, 64, 66,
110. Karlasveitin hefur verið að
tefla við mun sterkari andstæðinga
í 7 af 10 umferðum og barist vel,
þannig að frammistaðan hlýtur að
teljast góð. Sveitin hefur á köflum
staðið sig mjög vel, svo sem í
3-1 sigri yfir Svíum og sigri á
Brasilíumönnum og Portúgölum,
svo og naumu tapi gegn ofursveit
Englendinga (nr. 2). Sveitin hefur
unnið fimm viðureignir og tapað
fimm.
Árangur einstaklinga: Hannes
Hlífar Stefánsson, 314/9; Helgi Ól-
afsson, 5/9;
Þröstur Þórhallsson, 514/8; Jón
Viktor Gunnarsson, 414/8; Jón
Garðar Viðarsson, 2/3; Stefán
Kristjánsson, 2/3.
Nú fara í hönd fjórar síðustu um-
ferðirnar, sem skipta öllu máli um
endanlega útkomu.
Kvennasveitin hefur ekki náð sér
á strik á mótinu. Sveitin hefur 1214
v. af 30, í 70.-72. sæti af 86. Vonandi
bætir hún stöðu sína í lokaumferð-
unum.
Einstaklingsárangur: Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, 5/9; Harpa Ing-
ólfsdóttir, 2/6; Áslaug Kristinsdótt-
ir, 214/8; Aldís Rún Lárusdóttir, 3/7.
í opna flokknum hefur tveim
efstu liðunum á styrkleikalistanum
ekki gengið eins vel og búist var
við. Þýska sveitin hefur haft for-
ystuna frá upphafi, þangað til Rúss-
arnir fóru fram úr þeim í 10. um-
ferð. Þeir síðarnefndu vöknuðu
ekki fyrr en þeir tóku Rúmenana í
bakaríið, 4-0, í 10. umferð. Á fyrsta
borði teflir hinn eini og sanni
heimsmeistari, Alexander Khalifm-
an og honum hefur gengið mjög illa
til þessa. Hann tapaði fyrir Leko
(Ungverjalandi) og Topalov (Búlg-
aríu), en vann loks skák gegn Mar-
in frá Rúmeníu. Englendingarnir
hafa ekki náð sér á strik og virðast
ekki miklar líkur á því, að þeim tak-
ist að blanda sér í toppbaráttuna.
Skipan nokkurra sveita:
Rússland: Khalifman, Morozev-
itsj, Svidler, Rublevskij, Sakajev,
Gritsjúk.
England: Adams, Short, Hodg-
son, Speelman, Miles, Emms.
Bosnía: Nikolic, Sokolov, Kuraj-
ica, Dizdarevic, Runic, Sinanovic.
Þýskaland: Jússupov, Húbner,
Dautov, Lutz, Bischoff, Luther.
Ungverjaland: Leko, Almasi,
Polgar, Portisch, Sax, Ruck.
ísrael: Gelfand, Smirin, Avrukh,
Psakhis, Sutovsky, Huzman.
Bandaríkin: Seirawan, Gulko,
Shabalov, Kaidanov, Yermolinsky,
deFirmian.
Úkraína: ívantsjúk, Ponomariov,
Baklan, Eingorn, Romanishin,
Malakhatko.
Danmörk: Curt Hansen, P.H.
Nielsen, Lars Bo Hansen, Sune
Berg Hansen, Schandorff, Steffen
Pedersen.
Svíþjóð: Andersson, Agrest,
Hector, Ákesson, Pia Cramling,
Brynell.
Noregur: Leif-Erlend Johannes-
sen, Elsness, Lie, Trygstad, Gabr-
ielsen, Johansen.
Finnland: Salmensuu, Yrjola,
Karttunen, Kallio, Holmsten, Nouro.
Færeyjar: John Nilssen, John
Rödgaard, Heini Olsen, Flovin
Naes, Olavur Simonsen, Eydun
Nolsöe.
Staðan í opna flokknum er jöfn og
spennandi, eftir 10. umferð:
1. Rússland, 28 v. af 40; 2. Þýska-
land, 2714 v.; 3. Úkraína, 27 v.; 4.
Armenía, 2614 v.; 5.-6. Ungverja-
land, Búlgaría, 2514 v. hvor; 7.-11.
ísrael, Bandaríkin, Holland, Bosnía,
Pólland, 2414 v.
12. England, 14. Danmörk, 24 v.
hvor; 28. Svíþjóð, 23 v.; 35. ísland,
2214 v.; 46. Finnland, 2114 v.; 58.
Noregur, 21 v.; 63. Færeyjar, 20V4 v.
Byrjunarörðugleikar Tyrkja við
framkvæmd mótsins eru að baki og
allt er nú komið í gott lag.
Við skulum að lokum sjá góða
vinningsskák frá hendi Þrastar Þór-
hallssonar.
6. umferð, 3. borð:
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Eduardo Limp (Brasilíu)
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5
Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3
cxd4 8. Rxd4 Bc5 9. Dd2 0-0
Önnur leið er 9. - Rxd4 10. Bxd4
Bxd4 11. Dxd4 Db6 12. Dxb6 Rxb6
13. a4 Ke7 o.s.frv.
10. 0-0-0 a6 11. h4Rxd4
Eða 11. - Bxd4 12. Bxd4 b5 13. h5
b4 14. Ra4 Da5 15. b3 Rxd4 16.
Dxd4 Bb7 o.s.frv.
12. Bxd4 b5 13. Hh3 b4 14. Ra4
Bxd4 15. Dxd4 f6 16. Dxb4 fxe5
Sjá stöðumynd
17. fxe5!? -
Þröstur vill ekki bíða eftir endur-
bót Brasilíumannsins á þeirri leið,
sem Kasparov beitti í fallegri vinn-
ingsskák gegn Short, í Amsterdam
1994: 17. Dd6 Df6 18. f5 Dh6 19.
Kbl Hxf5 20. Hf3 Hxí3 21. gxf3 Df6
22. Bh3 Kf7 23. c4 dxc4 24. Rc3 De7
25. Dc6 Hb8 26. Re4 Rb6 27. Rg5
Kg8 28. De4 g6 29. Dxe5 Hb7 30.
Hd6 c3 31. Bxe6 Bxe6 32. Hxe6 og
svartur gafst upp.
17. - Rxe5 18. He3 Rf7 19. g3
Rd6 20. Bh3 Rf5 21. Hf3 Rd6 22.
Hxf8+ Dxf8 23. Rb6 Hb8 24. Dc5! -
Sjá stöðumynd
24. - Re4
Eða 24. - De7 25. Hel Da7 26.
Dxd6 Dxb6 27. Bxe6+ Bxe6 28.
Dxe6+ Dxe6 29. Hxe6 með vinn-
ingsstöðu fyrir hvít.
25. Dc7 Dd6
Eftir 25. - Hb7 26. Dxc8 Hxb6 27.
Bxe6+ Hxe6 28. Dxe6+ vinnur
hvítur létt.
26. Dxd6 Rxd6 27. Rxc8 Rxc8 28.
Bxe6+
og svartur gafst upp, því að hann
tapar tveim peðum, án þess að fá
nokkrar bætur fyi-ir þau.
Bragi Kristjánsson