Morgunblaðið - 09.11.2000, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
AKUREYRI
Endurhæfíngarsundlaugin á Kristnesi í notkun á ný
Viðgerð lokið á aðveituæð
fyrir neysluvatnið
BÚIÐ er að finna bilunina á aðveitu-
æð fyrii- kalda vatnið á Kristnesspít-
ala og húsin þar í kring og er viðgerð
lokið. Vegna bilunarinnar var skortur
á neysluvatni á spítalanum og í næsta
nágrenni í nokkra daga og einn dag-
inn í síðustu viku var alveg vatnslaust.
Þá var ekki hægt að taka nýju end-
urhæfingarsundlaugina á Kristnesi í
notkun um síðustu mánaðamót eins
og til stóð.
Vignir Sveinsson, framkvæmda-
stjóri fjármála og rekstrar FSA, sagði
að gat hefði fundist á lögninni á lóð
spítalans en einnig hefði vatnsinntak-
ið við lindina á Grísarárdal verið úr
lagi gengið. Hann sagði því stefnt að
því að koma vatni í nýju laugina sem
fyrst en þar er kalda vatnið hitað upp
með heitu vatni með varmaskiptum.
„Það tekur um tvo sólarhringa að
láta renna í laugina og ná upp eðlilegu
hitastigi, þannig að við væntum þess
að geta tekið hana í notkun í lok vik-
unnar. Þetta ástand hefur krafist
ómældrar fyrirhafnar og erfiðis
þeirra sem að þessu unnu en okkur
var farið að gruna að vandamálið væri
tvíþætt."
Ekki gekk þrautalaust að finna bil-
unina eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í síðustu viku en talið var að
bilunina væri að finna í lögninni í
fjallshlíðinni ofan við Kristnes. Ekki
var heldur hlaupið að því að komast
upp í fjallshlíðina vegna veðurs og
ófærðar og það fengu björgunarsveit-
armenn á sérútbúnum fjallajeppa og
vélsleða m.a. að reyna í síðustu viku.
Hannes Reynisson, forstöðumaður
húsumsjónar FSA, sagði að það hefði
vissulega verið áfall að lenda í vatns-
leysinu, en að þrátt fyrir allt væri
hollt fyrir menn að lenda í svona
vanda, „við vitum svo mikið á eftir“.
Er líf í
listum?
ER líf í listum? er yfirskrift ráð-
stefnu sem kennaradeild Há-
skólans á Akureyri og Félag
áhugafólks um heimspeki á Ak-
ureyri stendur fyrir næstkom-
andi laugardag ll.nóvember.
Ráðstefnan verður haldin í
stofu 14, Háskólahúsinu við
Þingvallastræti, og hefst kl. 14.
í fréttatilkynningu segir:
„Ekki fer á milli mála að mikið
líf er í listum á Islandi í þeim
skilningi að margt er listvið-
burða og listir njóta talsverðs
atlætis í fjölmiðlum." Spurt
verður hvort líf sé í listum í
þeim skilningi að þær hafi eða
eigi að hafa áhrif á daglegt líf
fólks: siðferði, uppeldi, menntun
og dagfar almennt: Er listin að-
eins skrauthali mannlífsins eða,
ásamt öðru, mergur þess og
bein? Á ráðstefnunni flytja eft-
irfarandi frummælendur stutt
erindi: Sigurður Kristinsson,
lektor Háskólanum á Akureyri:
„Fagskyldur í listum?“ Kristján
Kristjánsson, prófessor Háskól-
anum á Akureyri: „Þjóðsögurn-
ar og manneðlið". Guðmundur
Heiðar Frímannsson, deildar-
forseti kennaradeildar Háskól-
ans á Akureyri: „Siðræn fegurð.
Hugleiðingar um kenningar
Mörthu Nussbaum um siðferði-
legt hlutverk skáldsagna“.
Mikael M. Karlsson, prófessor
Háskóla íslands: „List og lífs-
gldi“. Ama G. Valsdóttir, lektor
Háskólanum á Akureyri: „List-
in sem samskiptaleið11.
Á eftir erindunum stjórnar
Helg Vilberg, skólastjóri
Myndlistaskólans á Akureyri,
pallborðsumræðum þar sem
framsögumenn munu m.a.
svara fyrirspumum úr sal.
Þeir félagar, Villi og Kalli, (Þráinn Karlsson og Aðalsteinn Bergdal)
brugðu sér á Dalbæ á Dalvík og fylgdust þar með heimilisfélk að spila.
Fj ölskyldusýning
á Gleðigjöfunum
LEIKFÉLAG Akui-eyrar sýnir um
þessar mundir gamanleikinn „Gleði-
gjafa“ eftir Neil Simon og hefur sýn-
ingin fengið góða gagnrýni og viðtök-
ur áhorfenda verið góðar.
Leikritið fjallar um tvo aldna heið-
ursmenn, skemmtikrafta sem verið
er að reyna að fá saman á ný eftir
áralangt hlé. Leikfélagið hefur nú
ákveðið að bjóða upp á fjölskyldu-
sýningu á verkin næsta sunnudag,
12. nóvember kl. 15. Boðið verður
upp á tvo miða á verði eins, en aðeins
á þessa einu sýningu.
Það em Þráinn Karlsson og Aðal-
steinn Bergdal sem leika skemmti-
kraftana, Skúli Gautason leikur um-
boðsmanninn sem er að reyna að
koma þeim saman, en meðal annarra
leikenda má nefna Sunnu Borg, Jón-
stein Aðalsteinsson og Tinnu Smára-
dóttur. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir.
Eining-Iðja ályktar um hækkandi olíuverð
Stjórnvöld grípi til aðgerða
aukinnar verðbólgu og rýra þannig
kaupmátt launþega. Það sé skylda
stjómvalda að grípa í taumana þegar
svona stendur á. Þá lýsir stjómin
fullum stuðningi við aðgerðir vinnu-
vélaeigenda og hvetur forystu ASÍ
og BSRB til að efna til aðgerða ef
stjórnvöld eða olíufélögin gera ekk-
ert í málinu til lækkunar á olíuverði.
STJÓRN Einingar-Iðju Eyjafirði
samþykkti ályktun á fundi sínum í
vikunni, þar sem skorað er á stjórn-
völd að grípa til aðgerða gegn þeirri
miklu verðhækkun sem orðið hefur á
olíuvöram nú á síðustu mánuðum.
Stjórn félagsins álítur að verð-
hækkanimar, sem dunið hafa yfir að
undanfornu, muni einungis leiða til
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Óli Rúnar Ástþórsson, framkvæmdastjóri KÁ, og Erlingur Loftsson,
stjórnarformaður.
Kaupfélag Árnesinga
varð 70 ára 1. nóvember
Virk þátttaka
í atviimulífinu
á nýrri öld
Selfossi - „Kaupfélag Árnesinga
verður virkur þátttakandi, eitt sér
eða í samstarfi við aðra aðila á öll-
um rekstrarsviðum sínum, í ferða-
þjónustu, þjónustu við búrekstur og
á eignaumsýslusviði. Á nýrri öld
hyggst félagið vera áfram þátttak-
andi í mótun atvinnulífs og upp-
byggingu á Suðurlandi," sagði Óli
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Andrés Pálmason smiður skrúf-
ar undirstokkinn fastan í nýu
viðbyggingunni
Hótel Höfða-
brekka
stækkar
Fagradal - Um þessar mundir er
verið að stækka Hótel Höfðabrekku
í Mýrdal, það eru þau Jóhannes
Ki'istjánsson og Sólveig Sigurðar-
dóttir sem eru eigendur að hótelinu.
Að sögn Jóhannesar er þetta 72
fermetra viðbygging úr límtré og
ætla þau að færa þangað móttökuna,
skrifstofú og stækka eldhúsið, þá
verður í nýju byggingunni snyrting
og hreinlætisaðstaða. Hótel Höfða-
brekka hefur vaxið mjög hratt á
undanfornum árum og getur í dag
tekið við stórum hópum bæði í mat
og gistingu.
...vesturenda Kringlunnar
Rúnar Ástþórsson framkvæmda-
stjóri KÁ í ávarpi í kaffisamsæti
sem Kaupfélagið bauð til á 70 ára
afmælisdegi sínum 1. nóvember.
Þessar áherslur sagði Óli Rúnar að
væru meginþættirnir í nýrri stefnu-
mótun sem unnið er að fyrir félagið.
í kaffisamsætinu leiddi Erlingur
Loftsson stjórnarformaður KA