Morgunblaðið - 09.11.2000, Side 21
mekkano
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000 21
Vegleg afmælisterta var á kaffihlaðborðinu.
Loftur Erlingsson og Helga Kolbeinsdóttir
sungu nokkur lög.
huga fólks til fyrri tíma
er kaupfélögin voru
stofnuð og þeirrar upp-
byggingar sem hófst upp
frá því. „Sunnlendingar
áttu því láni að fagna að
eiga öfluga forystumenn
sem leiddu uppbygging-
una,“ sagði Erlingur.
Hann sagði einnig að
stjórn KA hefði ákveðið
að efla kaupfélagssafnið
á Hvolsvelli og byggja
þar upp heilsteypt safn
um sögu kaupfélaganna
á Suðurlandi. Mun KÁ
verja 8 milljónum til
þessa verkefnis.
Kaffisamsætið var
fjölsótt og þar komu
fram söngvararnir Loft-
ur Erlingsson og Helga
Kolbeinsdóttir og sungu
nokkur lög við góðar
undirtektir gesta.
Átak um
nýsköpun
og atvinnu-
þróun
Höfn - í dreifbýli Austur-Skafta-
fellssýslu, eins og víða í dreifbýli
landsins, hefur orðið töluverð
fólksfækkun og afkoma þeirra sem
eftir eru byggist æ meira á annarri
vinnu en hefðbundnum bústörfum.
Fyrir um ári var haldin spá-
stefna um atvinnu í sveitum sýsl-
unnar og í framhaldi af henni var
skipaður vinnuhópur sem átti að
vinna skýrslu um nýsköpun og at-
vinnuþróun í dreifbýlinu.
Skýrslan sem unnin var af Ás-
mundi Gíslasyni, Arnanesi í Nesj-
um, Herborgu Þuríðardóttur,
Reyðará í Lóni, Ólafi Sigurðssyni,
Svínafelli í Öræfum, Sigurlaugu
Gissurardóttur, Árbæ á Mýrum,
og Þorbjörgu Arnórsdóttur, Hala í
Suðursveit, er komin út og var
kynnt á Hrollaugsstöðum í Suður-
sveit í vikunni.
Að þessari vinnu hafa, auk fyrr-
nefndra, komið sveitarfélagið
Hornafjörður, Þróunarstofa Aust-
urlands og Búnaðarsamband Aust-
ur-Skaftafellssýslu.
í upphafi verkefnisins var 109
einstaklingum send könnun en ein-
ungis 39 svöruðu og var unnið úr
þeim hugmyndum sem frá þeim
komu.
Hugmyndin með verkefninu var
að safna sem mestum upplýsingum
um nýsköpun og atvinnuþróun,
vinna úr þeim gögnum sem söfnuð-
ust, gefa út skýrslu um málið og
dreifa henni svo inn á hvert heimili
í dreifbýlinu og kynna á opinber-
um vettvangi, eins og nú hefur
verið gert.
Vinnuhópurinn hittist aðeins
tvisvar sinnum meðan á verkefninu
stóð en mest öll samskipti nefndar-
manna fór fram í gegnum Netið og
í síma.
Á fundinum þar sem skýrslan
var kynnt kom berlega í ljós að
menn voru almennt ánægðir með
vinnu nefndarinnar og skýrsluna
en töldu samt ekki líklegt að þeir
bændur sem nú stýra búum, sem
flestir væru komnir yfir miðjan al-
dur, myndu söðla um yfir í nýjar
greinar. Því væri ráðlegast að
reyna að styrkja ferðaþjónustuna
enn betur og auka ýmsa afþrey-
ingu sem henni tengdist og kæmi
þar Vatnajökulsþjóðgarður sterkur
inn ef af honum yrði. Ýmis önnur
störf þyrfti að skapa í sveitunum
sem gætu dregið fleiri að og aukið
líkurnar á að unga fólkið fyndi
vinnu við sitt hæfi. Margt gæti
komið til greina; til dæmis fiskeldi
og þá aðallega bleikjueldi, ýmis
fjarvinnsla og nytjaskógrækt svo
eitthvað sé nefnt.
í framhaldi af þessum fundi er
meiningin að koma af stað fjórum
til fimm vinnuhópum sem halda
áfram að vinna úr þeim verkefnum
sem talin eru líklegust til að skila
fleiri verkefnum í dreifbýlið og að
sögn Gunnars Vignissonar, fram-
kvæmdastjóra Þróunarstofu Aust-
urlands, verður notuð ný aðferð í
þessari vinnu þar sem ekki verða
kallaðir til einhverjir sérfræðingar
heldur verður vinnan í höndum
heimamanna með aðstoð Þróunar-
stofunnar, búnaðarsambandsins og
sveitarfélagsins.
Ullarfrakki 9.495 kr
Jakkaföt 9.995 kr
utlarbianda
Skyrtur
Buxur ullarblanda
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup