Morgunblaðið - 09.11.2000, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hér eru þau Sigrún Guðmundsdótitr, Þóra Þorbergsdóttir og Jón
Hjálmarsson við bjúgnagerðina
Þetta er óskap-
lega
góður matur
Fagradal.
ÞÓRA Þorbergsdóttir í Vík í Mýr- ‘
dal er á meðal þeirra er búa til
bjúgu á haustin fyrir sig og sína
fyrir veturinn.
Uppskriftin er fengin frá Gauks-
mýri fyrir norðan og ganga bjúgun
undir nafninu Gauksmýrarbjúgu í
Vík en systursonur Þóru býr á
Gauksmýri. Þóra segir bjúgna-
gerðina hafa gengið hratt og vel
þegar þrír komu að og tókst þeim
að úrbeina og hakka niður þrjá
kindaskrokka frá hádegi og var
bjúgnagerðin búin um klukkan
fimm síðdegis. „Þetta voru um
þrjátíu kíló af kjöti en við töldum
ekki hvað þetta voru mörg bjúgu,“
sagði Þóra. Nú á aðeins eftir að
reykja þau en það tekur rúman
sólarhring. „Bjúgun eru svo
geymd í frosti og það er meira að
segja hægt að láta þau frosin beint
í pottinn. Þetta er óskaplega góður
matur,“ segir Þóra.
Sigríður Lárusdóttir á Gauks-
mýri féllst fúslega á að gefa les-
endum uppskrift að bjúgunum.
Gauksmýrarbjúgu
15 kg kindahakk af vetrargömlu
eða 2 vetra
600-700 gr kartöflumjöl
250 g salt (40% nítritsalt og 60%
fínt salt)
_________5 msk, lyftiduft____
2 lítrar vatn
__________1 tsk. pipar_______
1 bréf kjöt- og grillkrydd (Knorr)
1 bréf aromat-krydd (Knorr)
Allt sett út í vatnið og hrært
saman og síðan sett út í hakkið í
lokin. Hnoðað saman.
Sett í hakkavél sem er með sér-
stökum stút fyrir gerviefnið sem
bjúgun fara í. Bjúgun eru höfð um
20 sm löng og snúið upp á við hvert
bjúga.
Þá eru bjúgun reykt í rúman sól-
arhring. Bjúgun eru fryst en þau
eru síðan soðin í tæpan hálftíma ef
þau eru ófrosin. Ef þau eru frosin
þurfa þau að vera að minnsta kosti
tíu mínútur í viðbót í suðu.
er norskt fyrsta flokks
15 mm. þykkt gæðaparket.
Vefsetrið www.sertilbod.is
Morgunblaðið/Ásdís
íris Arnlaugsdóttir og Davíð Þórisson standa að baki www.sertilbod.is.
Tilboð og útsölur
á einum stað
ÞANN 15. júh' síðastliðinn var vef-
setrið www.sertilbod.is opnað form-
lega en þar er að finna upplýsingar
um tilboð og útsölur á landinu öllu.
„Við seljum ekki neitt af því sem
auglýst er á síðunni heldur söfnum
við tilboðum og útsöluauglýsingum
frá fyrirtækjum hvaðanæva af land-
inu og miðlum til neytenda. Þannig
geta neytendur á einum stað séð
nýjustu tilboðin hverju sinni. Vöru-
flokkarnir á síðunni eru sex talsins;
bíll, ferðalög, heimili, matur og
drykkir, útlit og heilsa og loks þjón-
usta. Undir hverjum flokki eru síðan
fjölmargir undirflokkar," segir Dav-
íð Þórisson, vefstjóri og læknanemi.
Að sögn Davíðs er heimasíðan
uppfærð daglega og til að afla upp-
lýsinga um þau tilboð og þær útsölur
sem eru hverju sinni er hann í sam-
bandi við ýmis fyrirtæki og þá aflar
hann sér upplýsinganna bæði í gegn-
um Netið og með lestri blaða. „Ég
og kærastan mín, íris Arnlaugsdótt-
ir, stöndum að baki síðunni og
verkaskiptingin er í raun þannig að
ég sé um tölvumálin og hún um hhð-
ina sem snýr að fyrirtækjunum."
Leituðu að besta
pítsutilboðinu
Hugmyndin að síðunni vaknaði
fyrr á þessu ári þegar Davíð og Iris
ætluðu að panta sér pítsu og vildu
kanna hvar besta tilboðið væri að
finna. „Við fórum að leita að sjón-
varpshandbókinni til að sjá hvort
þar væri að finna einhver tilboð en
fundum hana hvergi og þá kviknaði
þessi hugmynd hve gott væri að hafa
upplýsingarnar allar á einum vísum
stað á Netinu. Síðan þá hefur hug-
myndin þróast og nú erum við með
upplýsingar yfir flestöll ef ekki öll
tilboð og eins allar útsölur á land-
inu.“
Alls eru nú tæplega þúsund
manns á póstlista síðunnar en þeir fá
send nýjustu tilboðin og útsölurnar
hverju sinni. „Alls heimsækja siðuna
þúsund til fimmtánhundruð manns á
dag. Þess má geta að mikil aukning
varð á heimsóknum eftir að ég sendi
út bréf til ættingja og vina til að
segja þeim frá síðunni en bréfið fór
óvart út um land allt. Viðtökurnar
eftir það hafa verið ótrúlegar."
Nýjungar væntanlegar
Hvað framtíðaráform síðunnar
varðar segist Davíð vera með ýmis
vopn í hendi. „Við ætlum að hjálpa
neytendum að versla ódýrar jóla-
gjafir og erum strax komin með hug-
myndir. Þá er fleiri nýjunga að
vænta innan skamms.“
Að sögn Davíðs á vefsíðan
www.sertilbod.is sér ekki erlenda
fyrirmynd heldur er hér um að ræða
íslenska hugmynd unna af íslensku
hugvitsfólki.
Danskir dagar í Nóatúni
, Morgunblaðið/Golli
I tilefni danskra daga er nú
hægt að kaupa nokkrar
tegundir af dönskum brauð-
salötum og matarsalötum í
Nóatúni
Morgunblaðið/Golli
Nóatún hefur hafið framleiðslu
á svínaskinku að danskri fyrir-
mynd. í tilefni danskra daga
hafa þeir flutt til landsins
reyktan ál.
Dönsk kalkúnaskinka
og áll meðal nýjung’a
DAGANA 9.-20. nóvember eru
Danskir dagar í Nóatúni og af því til-
efni verða á tilboði á þriðja hundrað
vörutegundir sem tengjast Dan-
mörku.
Að sögn Jóns Þorsteins Jónsson-
ar, markaðsstjóra hjá Nóatúni, var
ákveðið að flytja inn til landsins ýms-
ar tegundir af danskri matvöru af
þessu tilefni. Þar á meðal er til dæm-
is kalkúnabeikon frá danska fyrir-
tækinu Harboe Farm. Hún er unnin
úr upplæri kalkúna og kílóið af henni
er selt á um þúsund krónur. Þá er nú
til í Nóatúni lifrarkæfa frá Steff
Houlberg sem má hita að dönskum
hætti og danskur reyktur áll. Þá hef-
ur Nóatún hafið framleiðslu á svína-
skinku að danskri fyiirmynd. Um er
að ræða saltaðan og pressaðan
svínavöðva sem er þó með minna
saltmagni en hefðbundin skinka.
Að lokum hefur Nóatún hafið inn-
flutning á ýmsum brauðsalötum og
matarsalötum frá K-Sallat í Dan-
mörku eins og t.d. piparrótarsalati,
ávaxtasalati, skeldýrasalati og karrí-
salati.
Á dönskum dögum verður ferskt
íslenskt svínakjöt selt á svokölluðu
dönsku verði eða með 20-30% af-
slætti.