Morgunblaðið - 09.11.2000, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Jean Camahan greiðir
atkvæði í kosningunurn í
Missouri á þriðjudag.
Missouri
Látinn
frambjóð-
andi efstur
St. Louis. AP.
KJÓSENDUR í Missouri tóku
látinn mann, demókratann Mel
Camahan, fyrrverandi ríkis-
stjóra, fram yfir núverandi öld-
ungadeildarþingmann, rep-
úblikanann John Ashcroft. Er
búið var að telja um 84% at-
kvæða í gær var Ashcroft með
49% fylgi en Camahan 50%.
Camahan ríkisstjóri fórst í
flugslysi þrem vikum fyrir kjör-
dag og var því ekki tími tii að
taka nafn hans af kjörseðlinum.
Eiginkona hans, Jean Cama-
han, lýsti því yfir að hún myndi
til bráðabirgða taka sætið ef
hinn látni yrði hlutskarpastur
og skipaði arftaki ríkisstjórans,
Roger Wilson, hana í embættið í
gær. Hugsanlegt er að rep-
úblikanar andmæli þeim gem-
ingi.
Látinn maður hefur ekki fyrr
hlotið kosningu til öldungadeild-
arinnar en tvisvar hefur farið
svo í kosningum til fulltrúadeild-
arinnar. Sonur hjónanna og að-
stoðarmaður Camahans fórust
einnig í slysinu og hafa ekkjan,
sem er 66 ára gömul, og demó-
kratar notið mikillar samúðar
meðal almennings vegna at-
burðarins. Jafnframt hefur
Ashcroft átt erfitt með að beita
sér en talið var að persónuieg
óvild hefði ríkt milli hans og rík-
isstjórans látna. Ashcroft var
hærri í skoðanakönnunum áður
en keppinauturinn fórst.
Kosningarnar til beggja deilda Bandaríkjaþings
Demókrötum tókst ekki að
fella meirihluta repúblikana
DEMÓKRATAR unnu nokkuð á í
kosningum til öldungadeildar og full-
trúadeildar Bandaríkjaþings á
þriðjudag en repúblikanar virtust
samt nokkuð ömggir um að halda
meirihluta í báðum deildum. Ekki
var samt útilokað að niðurstaðan
yrði jafntefli í öldungadeildinni, 50
atkvæði gegn 50, en fari svo mun at-
kvæði varaforsetans, hver sem hann
verður, ráða úrslitum. Hann er for-
seti þingdeildarinnar.
Fyrir höfðu repúblikanar þar 54
sæti gegn 46. I fulltrúadeildinni
höfðu repúblikanar fyrir 222 þing-
sæti, fjórir vora óháðir og demókrat-
ar vora með 209. Hinir síðarnefndu
rétta nokkuð hlut sinn að þessu sinni
án þess þó að ná meirihluta.
Einna mesta athygli vakti sigur
Hillary Rodham Clinton, eiginkonu
Bills Clintons forseta, í baráttunni
um sæti öldungadeildarþingmanns
fyrir New York-ríki en vann öragg-
an sigur yfir lítt þekktum repúblik-
ana, Rick Lazio.
I öldungadeildinni sitja 100 þing-
menn, tveir frá hverju sambandsríki
en 435 í fulltrúadeildinni og fer fjöldi
hinna síðamefndu eftir íbúafjölda í
hverju ríki. Repúblikaninn John
Ensign í Nevada sigraði demókrat-
ann Richard Bryan sem setið hefur
tvö kjörtímabil, Joe Lieberman,
varaforsetaefni demókrata, var end-
urkjörinn öldungadeildarþingmaður
fyrir Connecticut en nái hann kjöri
sem varaforseti verður hann að láta
af þingmennskunni. Má þá búast við
að ríkisstjórinn í Connecticut, sem er
repúblikani, setji mann til bráða-
birgða í þingsætið, vafalaust
repúblikana.
Demókratinn Bill Nelson keppti
við reyndan þingmann repúblikana
úr fulltrúadeildinni, Bill McCollum,
um laust sæti í öldungadeildinni og
vann. Vinsæll ríkisstjóri í Delaware,
demókratinn Tom Carper, velti úr
sessi repúblikananum William Roth,
sem verið hefur mikill áhrifamaður í
öldungadeildinni og gegnir hlutverki
formanns fjármálanefndar deildar-
innar. Carper hefur verið ríkisstjóri í
tvö kjörtímabil og var þar áður full-
trúadeildarþingmaður í fimm
tveggja ára kjörtímabil.
Fyrrverandi ríkisstjóri í Virginíu,
George Allen, sigraði öldungadeild-
arþingmann demókrata, Chuck
Robb er á sínum tíma hélt sætinu
naumlega er Oliver North keppti við
hann. Hafði Robb, sem er tengda-
sonur eins af fyrrverandi forsetum
Bandaríkjanna, Lyndons heitins
Johnsons, nokkru fýrr lent í miklum
vanda er hann varð að viðurkenna
framhjáhald. A hinn bóginn unnu
demókratar í Georgíu, þar keppti
þeirra maður, Zell Miller, við
repúblikanann Mack Mattingly.
Repúblikaninn Richard Lugar sigr-
aði demókratann David Johnson í
Indiana.
Geysilegu fé var varið í baráttuna
um sum þingsætin í öldungadeild-
inni, ekki síst í slag Rodham Clinton
og Lazios í New York.
Peningaaustur Corzines
Nokkra sérstöðu hafði barátta
demókratans Johns Corzine í New
Jersey en hann sigraði repúblikan-
ann Bob Franks. Corzine er fyrrver-
andi kaupsýslumaður og auðugur
vel. Hann mun hafa varið um 50
milljónum dollara, 4,4 milljörðum
króna í baráttuna og var helmingur-
inn úr eigin vasa. Corzine studdi ým-
is samtök blökkumanna og gyðinga
með fégjöfum og uppskar dyggan
stuðning liðsmanna þeirra í kosn-
ingabarátttunni. Margir höfðu efa-
semdir og líktu sumir gjöfunum við
mútur. Kjósendur í New Jersey
sögðu aðspurðir að þeir hefðu miklar
áhyggjur af þessum peningaaustri
en ekki vora þær meiri en svo að
Corzine vann.
Jim Jeffords, sem er öldunga-
deildarþingmaður í Vermont og utan
stóru flokkanna tveggja, vann og
mun gegna embættinu þriðja kjör-
tímabilið. Demókratinn Mark Dayt-
on sigraði repúblikanann Rod
Grams í Minnesota en síðdegis í gær
var enn óljóst hver sigraði í ríkjun-
um Michigan og Washington.
Flokkssystir Daytons, Dianne Fein-
stein í Kalifomíu, hélt sínu sæti og
hið sama gerðu demókratarnir Paul
Sarbanes í Maryland og Edward
Kennedy í Massachusetts. Hinn
síðastnefndi hefur þegar setið sex
kjörtímabil í öldungadeildinni.
Repúblikanamir Orrin Hatch í
Utah og Kay Bailey Hutchison í Tex-
as héldu sætum sínum og hið sama
gerði demókratinn Robert Byrd í
Vestur-Virgínu sem hefur þegar
haldið sætinu í sjö kjörtímabil. Að-
eins einn hefur setið lengur í deild-
inni, Strom Thurmond frá Suður-
Karolínu.
Repúlikanar í fulltrúadeildinni
unnu óvænta sigra í Pennsylvaníu og
Connecticut og stóðu sig vel víða í
Austur- og Miðvesturríkjunum en
demókratar komu sums staðar á
óvart í vesturhluta landsins og unnu
ÚRSLITIN í *****
ÞINGKOSNINGUNUM * ★
Hlutföll flokkanna í deildum
þingsins í Washington, c®
fyrir og eftir kosningar R
ÖLDUNGADEILD “ lOOþingsæti
Fyrir: Eftir:
FULLTRÚADEILD 435
Fyrir: Eftir:
L Aðrin 4
2 óháðir þingmenn
og tvólaus sæti
þar góða sigra. Unnu demókratar
m.a. sæti í Utah og Kalifomíu.
Refsað fyrir aðför að Clinton
Baráttan í 27. kjördæmi í Kalif-
orníu vakti mikla athygli en þar tók-
ust á demókratinn Adam Schiff og
repúblikaninn Jim Rogan sem var
atkvæðamikill í tilrauninni sem gerð
var á þingi til að hrekja Bill Clinton
forseta úr embætti vegna framhjá-
halds- og meinsærismála hans. Allt
benti til þess í gær að Schiff hefði
sigrað en Clinton nýtur mikilla vin-
sælda í ríkinu og afskipti Rogans af
málinu talin hafa skaðað hann.
Ljóst er að demókratar lögðu
áherslu á að refsa 13 þingmönnum
repúblikana sem undirbjuggu mála-
tilbúnaðinn gegn Clinton í fulltrúa-
deildinni og einbeitti demókratar sér
að því að reyna að fella þá. Yfirleitt
eiga áskorendur erfitt uppdráttar
gegn þingmönnum sem fyrir era á
fleti og hafa oft setið í mörg ár.
Ekki er hægt að segja að eitt ein-
stakt mál hafi verið efst á baugi í
baráttunni um þingsætin. En margir
frambjóðendur til fulltrúadeildar-
innar lögðu áherslu á að ræða um líf-
eyrismálin, niðurgreidd lyf fyrir
gamalt fólk, menntamál, byssulög,
fóstureyðingar og umhverfisvemd.
ii M
1 Óljóst: 5
Óháðir: 2
Hillary Clinton sigraði í New York
Fyrsta forseta-
frúin á þingi
New York. AFP, AP.
HILLARY Rodham Clinton stóð uppi sem
sigurvegari í baráttunni um öldungadeildar-
sæti New York-ríkis eftir harða og dýra kosn-
ingabaráttu. Forsetafrúin hlaut 55% atkvæða
en keppinautur hennar úr flokki repúblikana,
Rick Lazio, 43% og var munurinn meiri en
búist hafði verið við.
Hillary Clinton er fyrsta eiginkona forseta
sem kosin er til þings, en hún er einnig fyrsta
konan sem kjörin er öldungadeildarþingmað-
ur New York. Bill Clinton og Chelsea, dóttir
þeirra hjóna, stóðu við hlið Hillary þegar hún
ávarpaði stuðningsmenn sina í fyrrakvöld og
þerraði forsetinn tárvota hvarma þegar hún
þakkaði stuðningsmönnum sínum.
„Takk fyrir að opna hug ykkar og hjarta,
fyrir að sjá það sem við getum gert fyrir böm-
in okkar, fyrir framtíð okkar í þessu ríki og
fyrir framtíð þjóðarinnar. Ég er innilega
þakklát ykkur öllum fyrir að gefa mér tæki-
færi til að þjóna ykkur,“ sagði Hillary í þakk-
arræðu sinni.
Hún lagði einnig áherslu á að nú hæfist
samvinna íbúa New York á nýjan leik, eftir
kosningar sem hefðu skipt þeim í andstæðar
fylkingar demókrata og repúblikana.
Keppinautur hennar, Lazio, þurfti aftur á
móti að þagga niður í stuðningsmönnum sín-
um sem púuðu þegar hann játaði sig sigraðan í
ávarpi sínu og óskaði Hillary til hamingju með
sigurinn.
Dýrasta kosningabarátta frá upphafi
Hillary hefur unnið ötullega að framboði
sínu sl. sextán mánuði og gert víðreist um
New York-ríki. Hún er reyndar aðkomumaður
Reutera
Hillary Clinton heilsar stuðningsmönnum
sínum við sigurhátíðina í New York.
í ríkinu, en andstæðingum hennar, sem bentu
óspart á þessa staðreynd, tókst ekki að færa
sér hana í nyt. Mótframbjóðandi hennar gagn-
lýndi forsetafrana harkalega fyrir ýmis önnur
atriði, en hafði ekki erindi sem erfiði.
Stjómmálaskýrendur telja reyndar að
kosningabaráttan í New York hafi verið sú
harðasta undanfarin ár. Hún var einnig dýr-
asta kosningabarátta til sætis í öldungadeild
Bandaríkaþings frá upphafi, en samanlagður
kostnaður Clinton, Lazio, og Guiliani, forvera
hans í framboði, sem dró sig í hlé vegna veik-
inda í maí, var um 83 milljónir dollara eða ríf-
lega sjö milljarðar króna.
í grein í netútgáfu The New York Times í
gær var bent á ýmis atriði sem skýra tap
Lazio, en hann þykir m.a. hafa verið of ár-
ásargjam í kosningabaráttu sinni. í fyrstu
kappræðum frambjóðendanna æddi hann t.d.
að Clinton og krafðist þess að hún skrifaði
undir plagg sem bannaði óbein fjárframlög.
Þetta þótti kjósendum heldur vafasöm fram-
koma og er talið að Hillary hafi notið stuðn-
ings meirihluta kvenna allt frá þessuratviki.
Annars snerist kosningabaráttan í New
York að mestu leyti um Hillary Clinton, bar-
áttumál hennar, eiginmann og persónuleika
hennar sem sagt hefur verið að menn annað-
hvprt elski eða hati.
I sigurræðu sinni sagði Hillary hins vegar
að baráttan hefði snúist um málefni, og þá
helst á sviði menntunar, umhverfisverndar,
heilbrigðismála og um. „frelsi kvenna til að
velja“. Stjómmálaskýrendur telja Hillary
Clinton aðallega geta þakkað sigur sinn stuðn-
ingi kvenna, gyðinga, svertingja og fólks af
mið- og suður-amerískum uppruna. Lazio naut
aftur á móti meiri stuðnings meðal karla og
kaþólikka.