Morgunblaðið - 09.11.2000, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Tónlistarhópurinn Musica Antiqua.
Morgunblaðið/Kristinn
E ndurreisnartónlist
á Kjarvalsstöðum
Stórtónleikar
ÞRIÐJU og síðustu tónleikar
Norðurljósa 2000, tónlistarhátíðar
Musica Antiqua verða að þessu
sinni verða haldnir á Kjarvals-
stöðum nk. sunnudag, kl. 17.30.
Á efnisskránni er veraldleg
tónlist frá endurreisnartímanum
m.a. eftir Holborne, Gibbons og
Arcadelt og danshöfundana Car-
oso og Negri. Tónlistin verður
sungin, leikin og dönsuð i flutn-
ingi sönghópsins Grímu og hljóð-
færahóps Musica Antiqua. Einnig
koma fram dansarar sem sýna
munu nokkra vinsæla dansa end-
urreisnartímans.
Sönghópinn Grímu skipa þau
Erna Kirstín Blöndal sópran, Guð-
rún Edda Gunnarsdóttir alt, Gísli
Maggason tenór, Örn Arnarsson
bassi og Eyjólfur Eyjólfsson tenór.
f hljóðfærahópi Musica Antiqua
eru Camilla Söderberg, Helga Að-
alheiður Jónsdóttir og Ragnheið-
ur Haraldsdóttir blokkflautuleik-
arar, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir
gömbuleikari, Snorri Örn Snorra-
son lútuleikari og Eggert Pálsson
slagverksleikari.
Dansarar eru þau Anna Sigríð-
ur Guðnadóttir, Katla Guðmunds-
dóttir, Guðmundur Elías Knudsen
og Hrafn Stefánsson, en Ingibjörg
Björnsdóttir listdanskennari hefur
æft dansana sem sýndir verða.
Eftir hlé verður tónleikagestum
boðið að stíga út á dansgólfið þar
sem þeim gefst tækifæri til að
Iæra dansana Pavan og Branle
ásamt sönghópnum og dönsurun-
um undir leiðsögn Ingibjargar
Björnsdóttur.
TONLIST
S a I u r i n n
KAMMERTÓNLEIKAR
The London Mozart Players, fluttu
verk eftir Britten, R. Strauss,
Mozart og Brahms. Sunnudagur-
inn.5. nóvember, 2000.
KAMMERHÓPUR úr The Lond-
on Mozart Players, hélt tónleika í
Salnum sl. sunnudag en hingað
komu þeir á vegum breska sendi-
ráðsins og Reykjavík, menningar-
borgar Evrópu 2000. A efnisskránni
voru Simple Symphony, eftir Britt-
en, Interlude úr óperunni Capriccio
eftir R. Strauss, Hornkvintett K407,
eftir Mozart og sextett, op.18, eftir
Brahms.
Tónleikarnir hófust á Simple
Symphony eftir Benjamin Britten,
einhveju vinsælasta verki hans, enda
sérlega vel samið æskuverk og frá-
gengið, er höfundurinn var 21 árs og
enn í námi hjá Ireland og Benjamin.
Verkið er algjörlega byggt á tónefni
sem Britten samdi, þá hann var á
aldrinum níu til tólf ára. Flutningur
kammerhópsins var frábær, þó
nokkuð vantaði á dýpt í hljómi, þar
sem verkið er samið fyrir strengja-
sveit. Sama má segja um Interlude,
sem er úr síðustu óperunni, Capr-
iccio, op. 85, eftir Richard Strauss,
að þrátt fyrir frábæran leik, vantaði
hinn þykka hljóm strengjasveitar-
innar, sem hjá Straus er einstaklega
safarikur og áhrifamikill.
Þriðja verkið á tónleikunum, horn
kvintettinum K.407, sem er samið
fyrir eina fíðlu, tvær lágfiðlur, selló
og horn, vill Alfred Einstein ekki
flokka sem kammerverk og segir
það hafi frekar verið samið sem
„musical jokes“. Þó verður að taka
alvarlega hæga kaflann (Andante),
sem er sérlega falleg og djúpt hugs-
uð tónlist. Gestaleikari með The
London Mozart Players var Joseph
Ognibene og var samleikur hans og
kammerhópsins aldeilis skemmtileg-
ur, er var þó bestur í hæga þættin-
um, sem er syngjandi falleg tónlist.
Aðalverk tónleikanna, strengja-
sextettinn op 18, eftir Johannes
Brahms, var saminn í Hannover
1860 og er annað í röð kammerverka
hans. Þarna má heyra ýmislegt er
minnir á forvera hans, Haydn ,
Mozart, Beethoven og Schubert en í
heild er hann að brjóta sér leið til
sjálfstæðis í tónsköpun. Hljóðfæra-
skipanin er tvær fiðlur, tvær lágfiðl-
ur og tvö selló, og er Brahms fyrstur
stóru meistaranna til að nota slíka
hljóðfæraskipan. Þarna úir og grúir
af yndislegum tónhendingum, sem
skipt er á milli hljóðfæranna en samt
eru það jaðarraddirnar, fyrsta fiðla
(David Jurtiz) og þó sérstaklega
sellóið (Sebastian Comberti), sem
mynda meginkontrapunkt hugsun-
arinnar í verkinu, með sérlega fal-
legu innslagi lágfiðluleikaranna
(Judith Busbridge og Julia Knight),
ásamt annarri fiðlu (Maya Magub)
og öðru sellói (Julia Desbruslais).
Annar og þriðji kaflinn eni sérkenni-
legar tónsmíðar og sérstaklega tón-
málið í öðrum, sem er tilbrigðakafli
(sex tilbrigði) er þar er raddskipanin
á köflum mjög óvenjuleg, Skeróið er
hins vegar sérlega stutt en skemmti-
legt og lokakaflinn, sem er Rondo að
formi til, er bæði lýrískur og við-
kvæmur. Öllu þessu skilaði kammer-
hópur The London Mozart Players
afburða vel.
Þetta voru afburða góðii' kammer-
tónleikar, sannkallaðir stórtónleikar
og þeim er ekki mættu, en unna
goðri kammertónlist, mikill missir,
því varla er von tU þess í náinni fram-
tíð, að svona úrvalstónlistarhópur
heimsæki landið.
Jón Ásgeirsson
;
í’
Eitt af verkum Guðrúnar Halldúrsdóttur leirlistarmanns í Gerðarsafni.
Freyjur og för
í Gerðarsafni
Bókakynn-
ing á Hótel
Borg
BÓKAFORLÖGIN Iðunn og JPV
forlag leiða saman hesta sína í uppá-
komu sem haldin verður í Gyllta
salnum á Hótel Borg, í dag, fimmtu-
dag kl. 18.
I fréttatilkynningu segir: „Boðið
verður upp á opna og þægilega dag-
skrá þar sem nokkrir höfundar for-
laganna munu lesa upp úr nýjustu
verkum sínum - ljóðum, skáldsögum
og ævisögum svo allir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Inn á milli verða sýnd nokkur val-
in atriði úr sígildum kvikmyndum
(m.a.: „Skríðandi tígur, dreki í leyn-
um“, „Buena Vista Social Club“, og
„Myrkradansaranum"). Gestir geta
jafnframt vætt kverkarnar eða gert
vel við bragðlauka sína meðan þeir
hlýða á upplestrana en hægt er að
velja um gómsæta rétti, smáa sem
stóra.“
Dagskráin stendur til 22. Aðgang-
ur er ókeypis.
---------------
Gluggasýning í
Meistara Jakob
SÝNING á verkum Kristínar Sig-
fríðar Garðarsdóttur í glugga Meist-
ara Jakobs verður opnuð í dag,
fimmtudag.
Kristín útskrifaðist úr leirlista-
deild MHÍ 1997. Auk þess stundaði
hún nám við Konstfack skólann í
Stokkhólmi 1995 og lauk framhalds-
námi frá Danmarks Design Skole í
Kaupmannahöfn 1999.
Kristín er þátttakandi í hönnunar-
sýningunni Mót sem stendur yfir á
Kjarvalsstöðum þessa dagana.
Sýningin stendur til 17. nóvember.
Opið á virkum dögum kl. 11-18 og
laugardaga kl. 11-14.
Atwood fékk
Booker-
verðlaunin
KANADÍSKA
skáldkonan
Margaret Atwood
fékk Bookerverð-
launin að þessu
sinni, kunnustu
bókmenntaverð-
laun Bretlands.
Verðlaunin hlaut
hún fyrir skáld-
söguna The Blind
Assassin (útg
Bloombury). Verðlaunaupphæðin er
20.000 pund.
Skáldsagan snýst um Iris Chase,
bágborna konu á níræðisaldri sem
býr í úthverfi Ontario og dularfullan
dauðdaga systur hennar, Lauru.
Atwood er fædd 1939 og hóf rit-
störf komung. Eftir hana hafa komið
41 skáldverk og hafa þau verið þýdd
á 20 tungumál.
Meðal þeirra sem kepptu til úr-
slita við Atwood vom rithöfundarnir
Kazuo Ishiguro sem hlaut verðlaun-
in 1989, Michael Collins og Brian
ÓDoherty.
’ ---------------
Skáld lesa á
Súfístanum
LESIÐ verður úr nýútkomnum bók-
um á Súfistanum, bókakaffi í verslun
Máls og menningar, Laugavegi 18, í
kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.
Þar les Gyrðir Elíasson úr smá-
sagnasafni sínu Gula húsið, sem
nýverið hlaut Laxnessverðlaunin,
Vilborg Davíðsdóttir les úr bók sinni
Galdur - skáldsaga, Björn Th.
Björnsson les úr skáldsögu sinni
Byltingarbörn og Þorsteinn Guð-
mundsson les úr smásagnasafni sínu
Klór.
NÚ STENDUR yfir sýning á verk-
um Guðrúnar Halldórsdóttur leir-
listarmanns í Listasafni Kópavogs,
Gerðarsafni. Sýningin nefnist Freyj-
ur og för og á henni era 31 verk, sem
flest era unnin á síðustu tveimur ár-
um og seldist þriðjungur verkanna á
opnunardaginn. Eins og nafn sýn-
ingarinnar ber með sér er aðalefni
hennar konur og skip. Konur Guð-
rúnar era stæðilegar og bera fom ís-
lensk norræn nöfn. Skip hennar
minna á för víkinga, fornnorrænna
farmanna og íslenskra fiskimanna.
Guðrún handbyggir verk sín og
brennir í sagi. Þetta er fyrsta einka-
sýning Guðrúnar á íslandi, en hún
hefur numið og starfað í Bandaríkj-
unum undanfarin tíu ár. Hún hefur
haldið einkasýningar þar og verk
hennar verið valin á samsýningar
víða um Bandaríkin. Um þessar
mundir era verk hennar meðal verka
tólf annari'a íslenskra listamanna
sem era sýnd í sýningarsal Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins í Washington DC.
Hrefna Jónsdóttir í Gallery Lamb-
ertville, New Jersey, hefur verk
Guðrúnar jafnan til sýnis og sölu.
Vefslóð listamannsins er www.gu-
drunceramicsculpture.com.
Sýningin stendur til 26. nóvember
og er opin alla daga nema mánudaga
kl. 11-17.
Samsýning
í gallerí-
ur.is
SAMSÝNING 20 listamana verður
opnuð í gallerí@hlemmur.is, Þver-
holti 5, á laugardag kl. 17.
Á sýningunni verða verk eftir um
20 unga listamenn, sem allir hafa
sýnt í galleríinu, á því rúma ári sem
það hefur verið starfrækt. Flest
verkin á sýningunni era til sölu.
Listamennirnir eru: Ásta Þóris-
dóttir, Baldur J. Baldursson, Bjarg-
ey Ólafsdóttir, Bjarni Sigurbjörns-
son, Egill Sæbjörnsson, Eirún
Sigurðardóttir, Elsa Dóróthea Gísla-
dóttir, Erling Þ. V. Klingenberg,
Guðný Rósa Ingimarsdóttir, Helgi
Hjaltalín Eyjólfsson, Hildur Jóns-
dóttir, Jón B. K. Ransu, Kristinn
Pálmason, Pétur Örn Friðriksson,
Ragnar Gestsson, Sara Björnsdóttir,
Sonja Georgsdóttir, Særún Stefáns-
dóttir, Valgerður Guðlaugsdóttii-,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Þóra
Þórisdóttir.
Sýningunni er stillt upp sem kaffi-
stofu, skrifstofu og sýningarrými,
allt í sömu andrá
Á opnunartíma gallerísins verður
opin málstofa, þar sem listamenn og
annað áhugafólk um myndlist er
hvatt til að koma og viðra skoðanir
sýnar og hugmyndir um stöðu þess-
aramála.
Á sýningartímabilinu verður litið
yfir farinn veg hjá gallerí@hlemm-
ur.is og verður tekið á móti ábend-
ingum og gagnrýni, þar sem ákveðið
hefur verið að halda rekstrinum
áfram.
Sýningunni lýkur 3. desember kl.
18.
Opnunartími gallerísins er frá-
fimmtudegi til sunnudags frá kl. 14-
18.
Margaret
Atwood