Morgunblaðið - 09.11.2000, Síða 57
MORGUNBLADIÐ
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
„Þrumugnýr" í Rúgbrauðs-
gerðinni í kvöld
Bridshátíðin „Þrumugnýr" verð-
ur haldin í Rúgbrauðsgerðinni,
Borgartúni 6, og ber nafn af Rúg-
brauðinu. Hátíðin hefst fimmtu-
daginn 9. nóvember og hefst kl.
18.15. Átta stórmeistarar spila á
mótinu við jafnmarga áhugamenn.
Stórmeistararnir eru Þórarinn
Sigþórsson, sem ekki hefur sést
við keppnisborðið um langt árabil,
Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson,
Matthías Þorvaldsson, Björn Theó-
dórsson, Guðmundur Páll Arnar-
son, Björn Eysteinsson og Örn
Arnþórsson. Þannig eru í hópnum
nokkrir heimsmeistarar og Norð-
urlandameistarar og varla hægt að
hafa tölu á Islandsmeistaratitlun-
um.
Af áhugamönnum má nefna
Halldór Blöndal, þingforseta,
Georg Ólafsson, verðlagsstjóra,
Ragnar Halldórsson fyrrum for-
stjóra ísal og sr. Baldur Kristjáns-
son. Spiluð verða alls 32 spil þann-
ig að meistararnir spila 4 spil við
hvern áhugamann. Keppnisstjóri
er Sveinn Rúnar Eiríksson. Allir
bridsáhugamenn eru boðnir hjart-
anlega velkomnir að fylgjast með
snillingunum. Um kl. 19.30 verður
snæddur léttur kvöldverður og
eiga allir viðstaddir þess kost að
kaupa hann á vægu verði. Einnig
geta menn fengið aðrar veitingar
að vild, enda Elías Einarsson veit-
ingamaður einn af spilurunum.
Bridsfélag Suðurnesja
Gísli Torfason, Jóhannes Sig-
urðsson og Guðjón Svavar Jenssen
sigruðu með glæsibrag og miklum
yfirburðum í hausttvímenningi fé-
lagsins sem lauk sl. mánudags-
kvöld. Spilaður var Barometer og-
voru spiluð 6 spil milli para en 14
pör tóku þátt í mótinu. Þríeykið
skoraði 80 stig yfir meðalskor eða
rúmlega 6 stig í hverri umferð.
Karl G. Karlsson, Karl Her-
mannsson og Arnór Ragnarsson
urðu í öðru sæti með 40 stig en
hinir tveir síðarnefndu „stálu“
öðru sætinu með risaskor í síðustu
umferðinni.
Næstu pör:
Svala K. Pálsdóttir-
Birkir Jónsson - Þórir Hrafnkelsson 39
Kristján Kristjss. - Garðar Garðarss. -
Pétur Júlíusson 29
Þröstur Þorláksson - Heiðar Sigurjónss.19
Fleiri pör náðu ekki að vera með
skor í plús og athygli vekur að í
öllum efstu pörunum eru 3 spilar-
ar.
Næstkomandi mánudagskvöld
hefst hraðsveitakeppni þar sem
spilaðir verða tveir 12 spila leikir á
kvöldi. Áætlað er að spila í þrjú
kvöld. Keppnisstaðurinn er Fé-
lagsheimilið við Sandgerðisveg og
hefst spilamennskan kl. 19.30.
Æfingakvöld Bridsskólans og
Bridssambandsins
Bridsskólinn og Bridssamband
íslands bjóða nýliðum upp á létta
spilamennsku fimm mánudagskvöld
fyrir áramót í Bridshöllinni í Þöngla-
bakka 1. Spilaður verður tvímenn-
ingur 12-16 spil eftir atvikum. Verð
fyrir manninn er 700 kr. fyrir hvert
spilakvöld og er kvöldgjaldið greitt á
staðnum. Ekki er nauðsynlegt að
binda sig öll fimm kvöldin og er nóg
að mæta tímanlega og skrá sig á
staðnum. Spilamennska hefst kl.
20.00 og verður í umsjón Hjálmtýs
R. Baldurssonar. Ekki er nauðsyn-
legt að mæta í pörum og mun hinum
„stöku“ útvegaður meðspilari.
Kvöldin fimm:
Mánudagur 13. nóvember
Mánudagur 20. nóvember
Mánudagur 27. nóvember
Mánudagur 4. desember
Mánudagur 11. desember
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000 51
Uppskrift
Islenskt lambalæri
Knorr Kod & Grill krydd
Knorr Béarnaise sósa
Meðlæti eftir eigin smekk
Kðd&GiíH
bydderi
\
Við flytjum
■ ..góðar fréttir
Allt frá stofnun 1996 hefur verið góður meðbyr í starfsemi
Verðbréfastofunnar og viðskiptavinum fjölgað jafnt og þétt.
Nú flytjum við í næsta hús, á fyrstu hæðina í húsi Olíufélagsins
að Suðurlandsbraut 18, í stærra húsnæði þar sem aðstaða er
til að veita enn betri þjónustu en áður.
VERÐBRÉFASTOFAN
Suðurlandsbraut 18, Reykjavík, sími 570 1200, www.vbs.is
Verðbréfastofan er söluaðili hér á landi fyrir Carnegie, eitt stærsta
verðbréfafyrirtæki Skandinavíu og marga aðra verðbréfasjóði,
íslenska sem erlenda.
Kynntu þér þá kosti sem eru í boði. Ávöxtunin kemur á óvart.
Vertu velkomin(n) í viðskipti hjá Verðbréfastofunni.