Morgunblaðið - 09.11.2000, Side 60
40 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000
MINNINGAR
MORGUNB L AÐIÐ
i
SIGRIÐUR
JONSDOTTIR
+ Sigríður Jóns-
dóttir fæddist á
Týsgötu 6 í Reykja-
vík 6. nóvember
1927. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 1. nóv-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Jón Lýðsson, f.
12.5. 1890, d. 14.5.
1974, verkstjóri frá
Hjallanesi í Lands-
sveit, og Guðrún
Gísladóttir, f. 14.5.
1898, d. 2.7. 1984,
ættuð úr Borgarfirði
en alin að miklu leyti upp að
Kiðjabergi í Grímsnesi. Systkini
Sigríðar eru Soffía, f. 4.7.1922, d.
3.2. 1998, húsmóðir; Kristinn, f.
13.3. 1924, d. 5.9. 1975, bifreiða-
stjóri; Bragi, f. 29.7. 1929, raf-
virkjameistari; Árni, f. 10.5.1934,
húsgagnabólstrari; og Jóhanna, f.
5.11.1918, sem Jón eignaðist áður
en hann kvæntist Guðrúnu.
Hinn 10. mars 1951 giftist Sig-
ríður Óskari Jónssyni, húsasmíða-
meistara, f. 19 júlí 1925. Foreldr-
ar hans voru Sigurlaug
Þorkelsdóttir, f. 12.3. 1885, d.
24.2.1973, frá Niðurkoti á Kjalar-
nesi, og Einar Jónsson, f. 21.11.
1877, d. 21.10.1956, frá lVflóanesi í
Þingvallasveit.
Sigríður og Óskar eignuðust
fjögur börn. Þau eru: 1) Guðrún
Sigurlaug, menntaskólakennari,
f. 25. júlí 1951, gift Sigurgeiri
Jónssyni, menntaskólakennara, f.
20. nóvember 1951.
Synir þeirra eru
Óskar, f. 27. aprfl
1977, og Arnar Jón,
f. 14. september
1978. 2) Sólveig,
barnalæknir, f. 12.
aprfl 1953, gift
Hilmari Baldurs-
syni, kerfisfræðingi,
f. 10. september
1952. Synir þeirra
eru Tómas, f. 23.
september 1981, Ar-
on, f. 23. september
1981, og Stefán, f. 1.
júní 1988. Þau eru
búsett í Svíþjóð. 3) Gunnar,
rekstrarfræðingur, f. 14. ágúst
1954, kvæntur Dagnýju Brynj-
ólfsdóttur, viðskiptafræðingi, f.
13. júní 1954. Börn þeirra eru Elv-
ar, f. 16. júlí 1982, og Sólrún, f. 6.
október 1986. 4) Fanney, lögfræð-
ingur, f. 8. febrúar 1958, gift Guð-
jóni Erling Friðrikssyni, lögfræð-
ingi, f. 29. nóvember 1954. Börn
þeirra eru Sigríður Dís, f. 15. jan-
úar 1986, Ari, f. 23. október 1988,
og Davíð, f. 21. mars 1993.
Sigríður lauk prófi frá Verzlun-
arskóla íslands árið 1946 og starf-
aði við skrifstofustörf í nokkur ár
þar til hún giftist og sneri sér að
húsmóðurstarfinu. Hún gekk f
Kvenfélagið Hringinn árið 1984
og starfaði þar ötullega til dauða-
dags.
Útför Sigríðar fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Komið er að kveðjustund. í dag
Jkveðjum við tengdamóður mína, Sig-
ríði Jónsdóttur, hinstu kveðju. Á
slíkum degi er svo margs að minnast
og margt að þakka. Fyrsta heim-
sóknin í Grundarlandið fyrir nær 25
árum er mér hugstæð. Þegar ég hitti
verðandi tengdaforeldra mína í
fyrsta sinn fann ég hve móttökumar
voru hlýjar og viðmótið elskulegt.
Mér fannst ég vera svo velkominn
og það var góð tilfinning. Þannig tók
hún Sigga á móti gestum sínum, létt
í lund og geislandi af hlýju. Auðvitað
galdraði Sigga fram veislu. Hún var
snillingur í því eins og svo mörgu
öðru. Hún naut þess að taka á móti
gestum. Gestrisnin var engu lík.
Oft heyrði ég Siggu tala um hve
gott og kærleiksríkt uppeldi hún
“*hafði fengið í æsku. Á heimili for-
eldra hennar á Grettisgötu 73 var
mikill gestagangur og oft glatt á
hjalla. Þar var sannkölluð fjöl-
skyldumiðstöð. Þar fékk hún gott
veganesti fyrir lífið.
Sigga var mikil fjölskyldumann-
eskja. Hún sagði stundum að fjöl-
skylda sín væri sinn dýrmætasti
fjársjóður. Þennan fjársjóð bar hún
á höndum sér og umvafði með ást
sinni og einstakri umhyggju. Ailtaf
svo áhugasöm og úrræðagóð, hjálp-
söm og örlát. Bamabörnin, gim-
steinarnir í fjársjóðnum hennar,
hændust að ömmu sinni sem aldrei
þreyttist á að passa þau, leika við
þau eða gera eitthvað skemmtilegt
nlieð þeim. Ótrúlegur var dugnaður
hennar við að prjóna og sauma á þau
föt. Allt var það svo smekklegt og
vandað. Hver á nú að bæta buxurnar
mínar spurði sá jmgsti þegar hann
vissi að amma hans var að deyja.
Ég minnist samverustundanna í
sumarbústaðnum okkar, Óskalundi.
Þær stundir gáfu mér svo mikið. í
sumarbústaðnum var Sigga bæði
arkítektinn og verkstjórinn. Þar
dáðist ég að ótrúlegri hugmynda-
auðgi, útsjónarsemi og natni hennar.
Hún gerði allt svo vel, listamaður í
.imndunum. Þegar komið var í bú-
“staðinn skyldi alltaf byrjað á að hita
kaffi áður en gengið væri til verka.
Og kaffisopinn varð að veislu. Allt
varð að veislu í sumarbústaðnum og
oft var þröng á þingi þegar fjöl-
skyldan, vinir og kunningjar fjöl-
menntu á staðinn. Það átti nú við
hana Siggu.
, Við höfum misst mikið en enginn
þó meira en Óskar tengdafaðir
minn. Hann syrgir nú elskulega eig-
inkonu sem var honum svo ómetan-
leg stoð og stytta í tæp 50 ár. Ég bið
honum blessunar og vona að minn-
ingin um hana Siggu verði honum í
framtíðinni jafnmikill styrkur og
hún sjálf veitti honum svo dyggilega
í blíðu og stríðu.
Sigurgeir Jónsson.
Hún tengdamóðir mín og amma
okkar er dáin. Mikil kona er farin frá
okkur og eftir er stórt tóm. Söknuð-
urinn er mikill eftir ömmu. Við
þökkum Guði fyrir hana, þökkum
fyrir þá gjöf að hafa átt hana sem
ömmu og tendamömmu og fengið að
umgangast hana. Það er erfitt að
skilja og samþykkja að svo undur-
samleg manneskja er farin frá okk-
ur. Mann skortir orð til að lýsa hugs-
unum sínum og skilja tilgang alls í
lífinu. Á þessari sorgarstund verða
orð Jobsbókar til hjálpar: „Drottinn
gaf og Drottinn tók, lofað verði nafn
Drottins“.
Það er nánast óskiljanlegt hvað
lífið getur breyst á stuttum tíma.
Hún amma var hjá okkur í Svíþjóð í
júní sl. við stúdentaútskrift okkar.
Eins og ávallt var hún á fullu að
hjálpa af sinni óvenjulegu snilld.
Krafts hennar og útsjónarsemi á öll-
um sviðum fengum við að njóta enn
einu sinni. Aðeins tveimur mánuðum
seinna berast okkur þær fregnir að
amma sé með ólæknandi sjúkdóm.
Þrátt fyrir þennan erfiða sjúkdóm
barðist hún áfram. Fyrir mánuði síð-
an vorum við hjá henni og fengum að
sjá styrk hennar. Hún mætti örlög-
um sínum með æðruleysi.
Hún amma átti stórt hjarta.
Aðalsmerki hennar var kærleikur-
inn. Hið yndislega kærleiksþel henn-
ar smitaði út frá sér og hún lýsti upp
tilveruna í kringum sig. Amma var
vinamörg og var ein af þeim sem
ræktaði vináttuböndin með natni.
Hvert sem hún kom og hvar sem
hún var lýsti kærleikur hennar þeim
sem á vegi hennar urðu. Hún hugs-
aði alltaf fyrst um aðra sem voru í
kringum hana. Hún var nálægt
þeim, sem á hjálp þurftu að halda.
Þessi stóri kærleikur hennar ömmu
náði langt út yfir fjölskylduna henn-
ar. Hún vann mikið og göfugt starf í
Kvenfélagi Hringsins. Orð Krists
eiga vel við hana: „Því hugraður var
ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur
var ég, og þér gáfuð mér að drekka,
gestur var ég, og þér hýstuð mig,
nakinn og þér klædduð mig, sjúkur
og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var
ég, og þér komuð til mín.“
Við nutum oft góðs af kærleika og
góðsemi ömmu. Hvert skipti er við
komum til íslands stóð faðmur og
heimili hennar og hans afa opið fyrir
okkur. Heimili þeirra er óvenju fal-
legt, þar sem kærleikur og um-
hyggja ríkir. Við bjuggum oft hjá
þeim og nutum gestrisni þeirra.
Fyrir það viljum við þakka.
Hún amma var dugleg kona. Að
loknu námi í Verslunarskóla íslands
vann hún við skrifstofustörf. Þar
kynntist hún Óskari afa, eftirlifandi
eiginmanni sínum. Þau og við öll í
fjölskyldunni hlökkuðum til gull-
brúðkaupsins í mars á næsta ári.
Þegar amma hætti vinnu sinni á
skrifstofunni var haft á orði að ráða
þyrfti tvær í hennar sess. Við sem
þekkjum hana vorum reyndar ekki
hissa á að heyra þetta. Við höfum
stundum haft að gamni að tvíbura-
drengirnir okkar og litli bróðir
þeirra ættu ömmu dreka eins og Jón
Oddur og Jón Bjarni, því hún var
svo dugleg og atorkusöm. Hún dreif
í því sem hún vildi og þurfti að gera
og var svo ótúlega fljót að vinna
verkin og Ijúka þeim. Það er ekki lít-
ið til af fallegum fötum sem hún
saumaði og prjónaði á börnin og
barnabörnin. Margir eiga fallegt
bútateppi sem hún saumaði. Á síð-
asta ári fengum við hjónin í silfur-
brúðkaupsafmælisgjöf bútateppi,
sem verður vel varðveitt. Nú minn-
umst við hlýju hennar og umhyggju,
þegar við hjúfrum okkur undir
þessu fallega teppi.
Hún amma var besta amma sem
hægt er að hugsa sér. Maturinn
hennar var sérstaklega góður. Hver
máltíð var veislumáltíð. Hún var allt-
af tilbúin að gefa sér tíma til að spila
og leikaviðokkur.
Tengdamamma var ráðagóð kona.
Það var gott að geta leitað til hennar
í ýmsum málum hins daglega lífs.
Hún var ákaflega praktísk og út-
sjónarsöm kona. Oft kölluðum við
hana „arkitekt“ og „listamann“ fjöl-
skyldunnar. Ef leysa þurfti eitthvað
í sambandi við teikningu af íbúð eða
húsi átti hún auðvelt með að finna
góðar lausnir og smekkvísi hennar
var mikil.
Tengdamamma átti óbilandi
traust og trú á Guð sem hjálpaði
henni á hinum ýmsu sviðum lífsins
og ekki hvað síst í erfiðum veikind-
um hennar undanfarnar vikur. Trú
hennar gaf henni og okkur styrk í
veikindabaráttu hennar. Hún var
þess fullviss að: „Dauðinn er upp-
svelgdur í sigur.
Dauði, hvar er sigur þinn?
Dauði, hvar er broddur þinn?
Guði séu þakkir, sem gefur oss
sigurinn fyrir Drottinn vorn Jesú
Kristr (I.Kor.15)
I dag kveðjum við ástkæra ömmu
og tengdamömmu. Við söknum
hennar mikið en hún lifir hjá okkur í
hinum góðu minningum sem við
geymum um hana.
Hilmar, Tómas, Aron og Stefán.
Nú er elsku besta amma mín fallin
frá eftir stutta en erfiða baráttu við
illvígan sjúkdóm. Hún amma var
alltaf svo góð, hugulsöm og
skemmtileg. Hún var ætíð til staðar
bæði í blíðu og stríðu og var tilbúin
að gera allt fyrir mig og með mér.
Hún huggaði mig ef mér leið illa,
hjálpaði mér ef ég var í vandræðum
og hafði alltaf rétta svarið handa
mér. Hún var líka jákvæð og
gleymdi aldrei að hrósa manni fyrir
það sem henni þótti vel gert. Hún
var svo ráðagóð og dugleg og var til í
að taka þátt í öllu sem ég var að
gera. Myndarskapur hennar er mér
alveg ógleymanlegur. Um hann mun
ég eiga minningar hvar sem ég lít í
kringum mig heima hjá mér. Hún
var til dæmis ótrúlega dugleg að
sauma á mig föt. Þær flíkur sem hún
hefur saumað á mig gætu fyllt
marga fataskápa, svo ekki sé minnst
á allt sem hún hefur saumað á
mömmu mína og bræður mína. Ef
mann vantaði flík að fara í var hún
búin að hanna hana og framleiða
með glæsibrag með nánast engum
fyrirvara. Já, það var alltaf hægt að
leita í smiðju til hennar.
Það var gaman að koma í heim-
sókn til ömmu og afa og þar var allt-
af tekið rausnarlega á móti mér.
Stundum skyldi ég engan veginn
hvernig amma gat galdrað fram
veislu á örstuttum tíma. Það voru
allir velkomnir til þeirra enda mikill
gestagangur á heimilinu. Ég minnist
líka jólanna hjá þeim. Þau voru alltaf
jafnhátíðleg og -skemmtileg upplif-
un. Þegar við komum til þeirra á að-
fangadag var amma búin að elda
góðan mat og skreyta húsið svo fal-
lega að mér fannst ég fyrst komast í
alvöru jólaskap þegar ég kom til
þeirra. Það var líka gaman að vera
með þeim í sumarbústaðnum og þar
var ávallt veisla eins og alls staðar
þar sem amma kom nálægt.
Þegar ég var lítil passaði amma
mig stundum eftir skóla. Þá hjálpuð-
umst við að með heimanámið og síð-
an fann hún upp á einhverju
skemmtilegu sem við gerðum sam-
an, eins og að spila, sauma eða hekla
og ýmislegt fleira.
Hún amma var alltaf svo hress og
kát og þegar hún er ekki til staðar
virkar allt eitthvað svo tómlegt. Mér
leið svo vel í návist hennar. Þar fann
ég fyrir hlýju, væntumþykju og vin-
áttu. Þar sem hún var ávallt svo glöð
hvarflaði ekki að mér að hún væri al-
varlega veik þegar leið á sumarið.
Amma mín var svo yndisleg og
miklu meira en það því það eru ekki
til nógu sterk orð yfir það hversu
yndisleg hún var. Mér þykir ótrú-
lega vænt um hana og ég á aldrei
eftir að gleyma hvað ég átti stór-
kostlega og frábæra ömmu. Minn-
ingin um hana mun alltaf ylja mér
um hjartarætur. Nú er amma mín
komin til Guðs og ég veit að hann
tekur vel á móti henni og lætur
henni líða vel. Betri engil er ekki
hægt að hugsa sér á himnum.
Hvíl þú í friði elsku besta amma.
Þín
Sigríður Dís.
Elsku amma Sigga.
Takk fyrir hvað þú varst alltaf
góð. Það var svo gott og gaman að
vera með þér. Þú varst alltaf tilbúin
að gera allt með manni. Þegar ég var
að byrja í golfi komst þú og fórst
með mér á æfingavöll. Það var líka
gott að koma í heimsókn í Grundó.
Þú útbjóst veislu á svo stuttum tíma
að mér er það óskiljanlegt og það
var líka alltaf til ís handa okkur
krökkunum. Síðast þegar ég sá þig
varstu mikið veik. Ég mun samt allt-
af muna eftir þér hressri og kátri
eins og þú varst alltaf. Skemmtilegu
„ömmusögurnar“ munu líka gleðja
mig í framtíðinni, sögumar sem þú
sagðir okkur af þér þegar þú gerðir
einhver glappaskot af því þú hafðir
svo mikið að gera.
Guð blessi þig elsku amma.
Þinn
Ari.
Elsku besta amma mín.
Mér fannst þú vera svo góð amma.
Þú varst svo góð að fara með mér í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Þú
varst eiginlega sú eina sem gerði
það. Það var líka svo gaman þegar
þú spilaðir við mig og fórst með mér
í golf. Þegar þú fórst í púttkeppni við
mig hittir þú svo oft í holuna að við
náðum varla að halda áfram. Og þú
varst svo góð þegar þú saumaðir fyr-
ir mig hermannabuxurnar. Þú gerð-
ir þær alveg eins og ég vildi hafa
þær. Þú bættir líka svo margar bux-
ur sem ég átti. Hver á nú að gera við
öll götin á buxunum mínum, elsku
amma mín? Þú varst líka svo dugleg
að hlusta á mig lesa og segja mér að
æfa mig vel. Ég vona bara að þú
heyrir ennþá þegar ég les fyrir þig.
Elsku amma. Ég sakna þín þó þú
sért í himnaríki hjá Guði. Ég vona
bara að Guð taki vel á móti þér. Mér
fannst þú vera svo góð amma.
Elsku amma mín. Takk fyrir hvað
þú varst alltaf góð.
Þinn elsku besti,
Davíð.
Engin veit sína ævi fyrr en öll er.
Þetta eru svo sannarlega orð að
sönnu í þínu tilfelli, elsku frænka.
Ekki óraði okkur fyrir því 19. júlí sl.,
þegar við hylltum Óskar á 75 ára af-
mælinu hans, að það væri í síðasta
sinn sem við, ég og fjölskylda mín,
nytum gestrisni þinnar. Þú jafn kát
og hress eins og ætíð, vissulega lítið
„þreytt“ en ekki veik, eftir því sem
við best vissum. Elsku Sigga, minn-
ingamar um þig eru margar og góð-
ar. Þú ert barn þess tíma sem konur,
giftar konur alla vega, almennt ekki
sinntu launuðum störfum utan heim-
ilisins. Og fyrir hartnær 50 árum
giftist þú honum Óskari þínum, sem
nú á um sárt að binda. Hann hefur
ekki bara misst eiginkonu sína og
móður barnanna sinna. Hann hefur
einnig misst sína stoð og styttu í
gegnum árin. Saman eignuðust þið
fjögur mannvænleg börn. Þeim
fylgduð þið vel úr hlaði og hafið alla
tíð stutt þau eftir bestu getu. Þeim
hefur öllum vegnað vel og eru ykkar
sómi og stolt. Öll eru þau reglusam-
ar og duglegar manneskjur hvert á
sinu sviði.
Barnabörnin þín sem eru orðin tíu
talsins eiga nú um sárt að binda þeg-
ar þau sjá á eftir sinni elskuðu
ömmu. Því amma varstu svo sannar-
lega og það alveg fram í fingurgóma.
Ég minnist eins sem þú sagðir mér
fyrir mörgum, mörgum árum. Þá
var hún Sólveig þín í „fríi“ á íslandi
og vann einhvern tíma við afleysing-
ar og þú passaðir þá Aron og Tómas.
Einn morgun segir annar þeirra við
þig: ,Amma, það er gott að þú átt
enga vinnu eins og allir hinir, þú ert
bara heima og passar okkur.“
Já, Sigga mín, þú varst bara
heima. En þó þú hafir bara verið
heima þá féll þér sjaldan verk úr
hendi. Heimili ykkar Óskars bar
vott um mikinn myndarbrag. Og
ófáar eru stundirnar sem þú hefur
setið við saumavélina þína. Þegar
einhver dætra þinna „átti ekkert“
til að vera í í kvöld þá dróst þú fram
einhverja tuskupjötlu, settist við
saumavélina og þar með var það
vandamálið úr sögunni. Já, snögg
varstu og ekki nóg með það að þú
saumaðir á þín eigin börn og síðar
barnabörnin, þú áttir það líka til að
vera öðrum hjálpleg. Ég minnist
þess þegar hún mamma saumaði
grænu kápuna á mig, þessa með
hettunni og skinnkantinum framan
á. Mamma hafði keypt dýrindis ull-
arefni í kápuna en treysti sér ekki
til að klippa efnið og þá var björgin
nærri. Þú komst í Hjálmholtið, ekk-
ert mál, klipptir efnið, nældir það
saman og síðan tók mamma við. Ur
þessu varð fínasta kápa sem var
mikið notuð.
Hún Sigga Dís var nú ekki lítið
ánægð með fermingarkjólinn sinn
þegar hún var hér úti í Svíþjóð í vor.
Og ekki þurfti að spyrja að því hver
hefði saumað hann.
Og svo eignaðist þú hlut í prjóna-
vél og þá var farið að prjóna eitt og
annað. Þegar systkinabörn þín byrj-
uðu að eignast börn áttir þú það til
að dunda þér við að prjóna eða
sauma eitthvað smávegis handa nýj-
asta fjölskyldumeðlimnum. Enginn í
fjölskyldunni var þér beint óviðkom-
andi. Það er alveg ótrúlegt hvað þú
varst dugleg við að muna eftir og
rækja alla.
Um ókomin ár ætla ég og fjöl-
skylda mín að minnast þín eins og
við munum þig frá því sl. vor þegar
þú og Óskar komuð út til Gautaborg-
ar til að vera viðstödd þegar þeir Ar-
on og Tómas urðu stúdentar. Stolt
varstu, og það máttu þú svo sannar-
lega vera. Ég veit að þó svo að þú
hafir sætt þig við það að hluti af
þinni nánustu fjölskyldu bjó svo
langt í burtu frá þér þá saknaðir þú
þess alla tíð að hafa ekki Sólveigu og
hennar fjölskyldu nær þér. En þú
lagðir þitt af mörkum til að minnka
fjarlægðina. Það kom fyrir, ef á
þurfti að halda, að þú lagðir land
undir fót og brást þér alla leið til Sví-
þjóðar til þess að passa þessa þrjá
dóttursyni þína sem hér búa.
Elsku Sigga mín! Megi allir Guðs
englar halda verndarhendi yfir þér
og þínum. Þú varst mikil fjölskyldu-
kona og líkaði þér það best þegar all-
ir voru innan seilingar. Okkur
Magga þykir það því leitt að geta
ekki fylgt þér síðasta spölinn, en
hugur okkar er engu að síður með
þér og þínum.
Ég, Maggi, Guðrún og Bragi
þökkum þér samfylgdina og óbrigð-
ula vináttu í gegnum árin.