Morgunblaðið - 09.11.2000, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2000 67
Opinber fyrirlestur um
fjölþjóðlegt verkefni
OPINBER fyrirlestur verður hald-
inn í Háskóla íslands, Odda stofu
101, föstudaginn 10. nóvember kl.
15-16 um verkefnið „Vinnum sem
jafningjar".
í fyrirlestrinum verður sagt frá
þriggja ára fjölþjóðlegu verkefni
sem nú er að ljúka. Markmið þessa
verkefnis er að vinna að auknu jafn-
rétti fatlaðra og fullri þátttöku í sam-
félaginu, með sérstaka áherslu á at-
vinnuþátttöku þroskaheftra. Jafn-
framt er þetta fyrsta verkefnið sem
styrkt er af Evrópubandalaginu þar
sem þroskaheftir eru fullgildir þátt-
takendur. Verkefnið beinist að
þroskaheftu fólki, fjölskyldum
þeirra og stuðningsaðilum og miðar
að því að auka skilning, þekkingu og
jöfnuð í samfélaginu. Meðal annars
hefur verið unnið námsefni til að ná
ofangreindum markmiðum.
Verkefnið er styrkt af Leonardo
Da Vinci áætluninni og eru þátttak-
endur frá Danmörku, Englandi og
íslandi. Þátttakendur eru fatlaðir og
ófatlaðir og er sérstakt fyrir þær
sakir að þroskaheft fólk og samtök
þeirra hafa tekið virkan þátt í skipu-
lagningu og framkvæmd verkefnis-
ins í samvinnu við Open University í
Bretlandi. Þátttakendur Islands í
verkefninu eru félagar í Átaki, félagi
fólks með þroskahömlun.
Fyrirlesarar verða þrír: Dr. Jan
Walmsley dósent og deildarforseti
við heilbrigðis- og félagsvísindadeild
Open University í Bretlandi, John
Lawton, fræðslustjóri landssamtak-
anna MENCAP í Englandi og verk-
efnastjóri verkefnisins og María
Hreiðarsdóttir, formaður Ataks, fé-
lags fólks með þroskahömlun en hún
er einn af fulltrúum íslands í verk-
efninu.
Fyrirlesturinn er á vegum F élags-
vísindadeildar Háskóla Islands og er
öllum opinn.
Gervi gert af Stefáni Jörgensen,
kennara við Förðunarskóla ís-
lands.
Námskeið í
Förðunar-
/
skóla Islands
FÖRÐUNARSKÓLI íslands býður
15 tíma námskeið helgina 10.-12.
nóvember í formi sýnikennslu. I
fréltatilkynningu segir að meðal
annars verði f boði kennsla í af-
steypum, leirmótun og fleiru. Nám-
skeiðið er til dæmis ætlað öllum
þeim sem huga að persónusköpun í
leikhúsi og kvikmyndum, búa til
fylgihluti fyrir fantasíuförðun eða
sterkar farðanir svo og þeim sem
vinna grunnvinnu í grímu- og
brúðugerð. Kennt verður í húsa-
kynnum Förðunarskóla Islands,
Einholti 2. Stefán Jörgensen sér
um sýnikennsluna ásamt Önnu
Tober, skólastjóra. Kennt verður
föstud. 10. nóv. kl. 18-22, laugard.
11. nóv. kl. 10-16 ogsunnud. 12.
nóv. kl. 11-16. Viku síðar verður
boðið upp á 3 daga vinnuhelgi.
Þátttakendur gera eigin útfærslu,
vinna eigin mót, en einnig verður
m.a. fjallað um notkun mismunandi
efna. Skráning og nánari upp-
lýsingar hjá Förðunarskóla Islands.
---------------
70 ár fráþví
að hitaveita
var tengd
í Reykjavík
I DAG, fimmtudaginn 9. nóvember,
eru 70 ár liðin frá því að heitt vatn
var tekið í notkun í Austurbæjar-
skóla. Skólinn var fyrsta húsið í
Reykjavík sem fékk heitt vatn frá
Laugaveitunni.
Til að minnast þessara tímamóta
hafa Orkuveita Reykjavíkur og
Austurbæjarskóli haft samstarf nú á
haustmánuðum. Þrír árgangar nem-
enda í skólanum hafa fengið sérstaka
kennslu um kalt vatn, heitt vatn og
rafmagn. Afrakstur þessarar vinnu
verður kynntur við hátíðlega athöfn í
bíósal skólans nk. fimmtudag kl.15.
Að athöfn lokinni mun stjórnar-
formaður veitustofnana, Alfreð Þor-
steinsson, afhjúpa og afhenda einn
fjögurra vatnspósta sem Orkuveitan
gefur skólanum af þessu tilefni en
Sigrún Magnúsdóttir, formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkur, veitir
honum viðtöku fyrir hönd skólans.
Sagnadagur í
Stykkishólmi
NAMSKEIÐ um söfnun þjóðlegs
fróðleiks verður haldið í Stykkis-
hólmi laugardaginn 11. nóvember og
sama kvöld er efnt til sagnakvölds í
Narfeyrarstofu.
Sagnadagurinn tengist því að á
Vesturlandi er unnið að Evrópu-
verkefninu EnduiTeisn sagnahefðar
sem styrkt er af Samtökum sveitar-
félaga í Vesturlandskjördæmi. Verk-
efnið miðar að því að efla sagnahefð í
fjórðungnum og tengja hana ferða-
þjónustu. Umsjón með verkefninu
hefur Rannsóknir og ráðgjöf ferða-
þjónustunnar.
Sagnakvöldið verður sett kl. 20:30
af Sturlu Böðvarssyni samgöngu- og
ferðamálaráðherra. Síðan munu
kunnir sagnamenn og -konur af
Vesturlandi segja sögur af ýmsum
toga. Þetta eru þau Bjamfríður
Leósdóttir, Akranesi, Hildibrandur
Bjarnason, Bjarnarhöfn, Ingi Hans
Jónsson, Grundarfirði, Ómar Lúð-
víksson, Hellissandi, Skúli Alexand-
ersson, Hellissandi, Sæmundur
Kristjánsson, Rifí, Unnur Halldórs-
dóttir, Borgamesi, Þorkell Cyrns-
son, Hellissandi, og Þórann Krist-
insdóttir, Grundarfirði.
Einnig kemur fram sönghópurinn
Hraustir menn, Stykkishólmi. Kynn-
ir verður Eyþór Benediktsson,
Stykkishólmi.
Aðgangseyrir er kr. 700.
Námskeið í boði Ámastofnunar
Námskeiðið um söfnun þjóðlegs
fróðleiks er haldið á vegum stofnun-
Fundur um
flokkun
landslags
TELST landslag náttúraverðmæti?
Fer það eftir fegurðarskyni hvers og
eins, eða er hægt að beita hlutlægum
aðferðum til að meta landslag? Þess-
ar spurningar verða til umfjöllunar í
hádegiserindi Þóru Ellenar Þór-
hallsdóttur á vegum rammaáætlunar
um nýtingu vatnsafls og jarðvarma
föstudaginn 10. nóvember nk. kl. 12.
Fyrirlesturinn verður íluttur í Gyllta
sdnum á Hótel Borg og þar verður
hægt að snæða hádegisverð. Að
loknum fyrirlestri verður tækifæri
til að bera fram fyrirspurnir og koma
á framfæri ábendingum.
Landslag er einn þeirra þátta sem
taka þarf tillit til þegar virkjunar-
kostir eru metnir og flokkaðir. Eng-
in ákveðin viðmið era hins vegar til
um með hvaða hætti sé hægt að meta
landslag. í fyrirlestri Þóra Ellenar
verða fyrstu hugmyndir faghóps um
náttúru- og minjavernd, sem starfar
á vegum verkefnisstjómar ramma-
áætlunar, um leið til að flokka lands-
lag á sjónrænan hátt, segir í frétta-
tilkynningu. Þóra Ellen mun gera
grein fyrir flokkunaraðferðinni og
útskýra hvernig má beita henni í
máli og myndum.
ar Árna Magnússonar í Grunnskóla
Stykkishólms kl. 14-18. Það er
ókeypis. Kynntar verða aðferðir við
söfnun og skráningu þjóðfræðaefnis,
jafnt sagna og kvæða sem þjóðsiða.
Þá verður fjallað um þá vinnu sem á
eftir kemur, svo sem við skráningu
og frágang til varðveislu og útgáfu.
Umræður og álitamál verða tekin til
sameiginlegrar skoðunar og velt upp
nokkram hugmyndum að verkefnum
úr nútímalífi. Kennai’i er Gísli Sig-
urðsson fi’æðimaður. Skráning á
námskeiðið er hjá Símenntunarmið-
stöðinni á Vesturlandi, netfang: si-
menntun@simenntun.is
Intra í takt við tímann
Glæsilegir vaskar fyrir falleg heimili.
Form og fegurð 21. aldarinnar.
T€Í1GI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sfmi: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is
Lakkviðgerdir
M Wl ^ ,
«tai%sl®2
bfllai
Bilaþvottastöðin Löður býður
allt fyrir sannkallaða
bílaunnendur, alþrlf, sjálfvírka
þvottastöð, sjálfþjónustu
þvottastöð, llmefnl, vélaþrlf,
lakkvlðgerðlr o.m.fl.
Ryksugur,
teppahreinsivél,
ilnwfni
Taktu bíllnn þlnn I gegn hjá
okkur, það margborgar slg!
Bæjariind 2 • Sími 544 4540