Morgunblaðið - 11.11.2000, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 63
UMRÆÐAN
Forysta - framkvæmdir
ÉG BEINI sjónum mínum
nú að hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópavogi og
byggingu þess á sínum tíma.
Þar var Soffía Eygló Jóns-
dóttir meðal foringja og oft
réttnefndur gullmoli samtak-
anna.
Hún spurði sig þess sem við
getum öll spurt: „Viljum við
vera einmana og hjálparvana
þegar við erum orðin öldruð
og sjúk, og eygja ekki betra líf
fyrir kveðjustundina?" Nei.
Þetta viljum við ekki.
Soffía Eygló svaraði spurn-
ingunni á einstakan hátt.
Hún bauð fram krafta sína
án launa til þess að heimsækja
alla aldraða í Kópavogi, kanna með
eigin augum og skynja líf þessa aldr-
aða fólks.
Það var umfangsmikið að fara um
allan Kópavog, og spurði ég hana eitt
sinn hvort hún hefði ekki bíl, hún
svaraði með sínu létta gamni: - Nei,
nei; ekki einn sinni jeppa.
Eg fór stundum með hana í bíl þeg-
ar vegalengdirnar voru að mínu mati
ófærar gangandi fólki.
Hún di-ap á dyr - og oft var opnað
með hikandi hendi. Hún kynnti sig og
sagði að hana langaði til þess að
spjalla við fólkið. Þegar hún hafði
rétt fram hönd sína og fallega brosið
hennar var meðtekið opnaðist hurðin
léttilega og gjarnan sagt - komdu inn
góða mín, hér koma nú ekki margir.
Auðvitað var aðkoman misjöfn, en
víða var neyðin nöpur og sár, og ein-
manaleikinn var orðinn að andlegu
sári.
Hún hafði þann gullna eiginleika
að geta á sama tíma komið að alvöi-u
málsins en um leið verið hlý og gleðj-
andi. Hún var gjarnan kvödd af
þessu aldraða fólki með þessum orð-
um: Þakka þér fyrir, góða mín - Guð
veri með þér.
Hún setti sig í spor þessara ein-
staklinga eða hjóna sem hafa skerta
möguleika til sjálfsbjargar vegna
aldurs og sjúkleika og eygja ekki
neina úrlausn. Henni fannst sárt að
vita fólk við þessar kringumstæður
bíða í hundraðatali á höfuðborgar-
svæðinu eftir að komast á hjúkrunar-
heimili.
Mörg voru sporin hennar Soffíu
Eyglóar í þessum könnunarferðum,
farsæl og merk fyrirmynd.
Hún skilaði gi-einargerð um þessar
heimsóknir sínar. Þetta frumkvæði
hennar sannaði þörfina og hafði án
efa mikil áhrif því nokkru síðar
mynduðu félög í Kópavogi samtök
um byggingu hjúkrunarheimilis sem
Soffía Eygló
Jónsdóttir
Steinunn
Finnbogadóttir
Sunnuhlíð
Stækkun hjúkrunar-
heimilis í Kópavogi mun
bæta úr brýnni þörf
aldraðra. Steinunn
Finnbogadóttir minnist
eins af frumkvöðlum
Sunnuhlíðar.
reis og fékk nafnið Sunnuhlíð. Þess
hafa margir notið.
Forsvarsmönnum Sunnuhlíðar-
samtakanna tókst það sem var svo
mikilvægt, að hrífa fólkið með sér
þannig að Kópavogsbúum fannst
þeir persónulega hafa byggt hjúkr-
unarheimilið sitt. Þessi framkvæmd
var bæði sérstök og lærdómsrík.
Samstaðan var slík að segja má að
hjörtun hafi slegið í takt. Allir lögðu
málinu lið hver á sinn hátt. AUar gjaf-
ir voru stórar. Þær mældust í gleði
gefandans.
Börn og fullorðnir söfnuðu saman í
bauka, og börnin komu oft með bauk-
ana á skrifstofuna og sögðu svo fal-
lega: „Þetta er frá okkur heima.“
Þessi framlög urðu því meira en
framlag til þess að byggja hjúkrun-
arheimiii aldraðra, þau sáðu án efa
fræjum í ungar sálir til góðra verka.
Þarna var Soffía Eygló í eldlínunni.
Hjúkrunai-heimilið hefur leyst
margra vanda. Forlögin höguðu því
svo að Soffía Eygló, sem var að vinna
fyrir aðra, naut þess sín síðustu ár að
dvelja á Sunnuhlíð umvafin virðingu
oghlýju.
Það var stór áfangi og sigur fyrir
20 árum að byggja þetta góða heimili.
En lögmálið er - nýir tímar -
ný kynslóð - ný verkefni. Enn
hafa myndast biðlistar aldr-
aðra og sjúkra, eftir öryggi og
umönnun, en þeir eru sannar-
lega þyrnum stráðir.
Það kallar á virðingu og
þökk að nú hefur fulltrúaráð
Sunnuhlíðarsamtakanna stigið
fram og ákveðið að stækka
hjúkrunarheimilið og stefna að
því að útrýma biðlistum.
Forsvarsmenn Sunnuhlíðar-
samtakanna hafa verið stór-
huga og farsælir í störfum. Og
nú þegar hafa bæði opinberir
aðilar og fjöldi félagasamtaka
heitið þeim að vera sterk stoð á
bak við stækkun heimilisins.
Að ógleymdum Kópavogsbúum sem
þekkja þörfina og meta framkvæmd-
ina.
Soffía Eygló var greind kona,
mannvinur, vel til forystu fallin og
studdi hvert það mál sem til heilla
horfði.
Síst má gleyma því hve mikill
gleðigjafi hún var. Um langan tíma
kom hún reglulega á Sunnuhlíð og
stóð fyrir samverustundum um miðj-
an daginn.
Það var eðlilega fólk úr ýmsum
starfsgreinum, hæfileikaríkt fólk
sem bjó yfir miklum fróðleik og lagði
sitt af mörkum í samverunni enda
mikilvægt að aldrað fólk geti notið
sín með reisn.
Hún sá til þess að hljóðfæri væru
fyrir hendi á heimilinu. Á þessum
stundum ríkti söngur og gleði.
Vinátta og samfylgd með svo góðu
fólki sem Soffía Eygló var verður
ekki aðeins minning heldur eign sem
styður mann alla ævi.
Ég átti vináttu hennar frá fyrstu
kynnum, samvinna okkai’ í félags-
málum var mikil, vönduð og heil, og
ég vildi geta þakkað fyrir mig með
því að leggja góðum málum lið í
hennar anda.
Hún hafði verið formaður kvenfé-
lags Kópavogs um langan tima, for-
maðui- orlofsnefndai' húsmæðra,
gegnt nefndarstörfum fyrir bæjarfé-
lagið o.fl. o.fl.
Hún var sjúkravinur og fyrir henn-
ar tilstilli myndaðist sjúkravinahóp-
ur sem starfar enn.
Soffía Eygló naut mikillar virðing-
ar meðal samferðafólksins og var
sýndur margvíslegur sómi. Hún var
sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku
fálkaorðu. Heill fylgi framkvæmdum
þessum og starfsemi Sunnuhlíðar-
samtakanna.
Höfundur er fv. Ijósmóðir.
Þróun - þekk-
ing - þóknun
ÁRIÐ 1904 markar
túnamót í íslandssög-
unni fyrir margra hluta
sakir.
I Öldinni okkar má
lesa að hinn 1. janúar
gekk ný stjórnskipan í
gildi, landshöfðingja-
embættið hvarf úr sög-
unni og Hannes Haf-
stein tók við ráð-
herraembætti.
Fyrsta bifreiðin var
keypt til landsins.
Samningar komust á
um lagningu ritsíma til
landsins og íslands-
banki tók til starfa.
í Öldinni okkar er þess aftur á móti
ekki getið að það ár var tekin í notkun
fyrsta vatnsaflsvirkjun á íslandi er
Jóhannes Reykdal virkjaði Hamra-
Kennsla
Það er kannske stefnan
á nýrri öld, segir Ás-
grímur Jónasson, að
flytja inn kennara frá
erlendum láglauna-
svæðum.
kotslæk í Hafnarfirði. Þess er heldur
ekki getið að það ár var Iðnskólinn í
Reykjavík stofnsettur.
En að ofantöldu má vera ljóst að
árið 1904 hefur verið tímamótaái' í ís-
lenskri sögu.
íslenskt stjórnarráð er skipað,
stjórn peningamála færist heim,
grunnur er lagður að íslenskri tækni-
væðingu og íslensk verkmenntun,
sem að stórum hluta er undirstaða
tækniþróunar á öldinni, færist á
skipulega og markvissa braut.
Síðan er liðin ein öld.
Tækniþróun þeirri sem við búum
nú við og byggir á virkjun vatnsafls
og jarðhita, á notkun fjarsMptasam-
bands og á bættum samgöngum eig-
um við fyrst og fremst að þakka alda-
mótakynslóðinni sem með framsýni
og dugnaði lagði gi-unninn að þessari
þróun. Líklegt er að hún hafi metið
fræðslu á annan hátt en núverandi
aldamótakynslóð.
Tækniþróun verður ekM til af engu
og ef til vill er það engin tilviljun að
reykvískir iðnaðarmenn stofnuðu
Iðnskólann í Reykjavík
einmitt þetta ár, 1904.
Frumkvöðlar þeirrar
þróunar sem átti sér
stað á liðinni öld skildu
það að í skólastarfi eru
það kennarar sem miðla
þekkingu og stýra
námi. Þeir eru því lyk-
illinn að viðhaldi fram-
fara og þróunar. r
Og hvemig skyldi nú-
tíminn, eftir aldar þró-
un sem allir geta virt
fyrir sér, hvar sem er,
meta þennan lykil?
Kennari við Iðnskól-
ann í Reykjavík, með
skólamenntun sem rafmagns-
iðnfræðingur, kennsluréttindi sem
framhaldskólakennari, 25 ára
reynslu við kennslu og endur-
menntun, er metinn á kr. 131.473,00
fyrir fullt starf.
Þetta er ekM hátt mat. Raunar
ótrúlegt vanmat. Mat sem hefur leitt
það af sér að endurnýjun á sér ekki
lengur stað í stétt framhaldsskóla-
kennara.
Hjúkrunarfræðingur með Ijósmóð-
urmenntun og 10 ára starfsreynslu er
metinn á u.þ.b kr. 180.000.00 fyrir
sama vinnuframlag.
Meðalaldur kennara í framhalds-
deild rafvirkja við Iðnskólann í
Reykjavík er 53 ár og í öllum raf-
magnsdeildunum 50 ár.
Það er viðurkennd staðreynd að
vinnuvikan er 40 stundir. Það kallast
dagvinna og er vinnuframlag sem
telst fullt starf. Um það snúast samn-
ingar um kaup og kjör og ekkert ann-
að.
Kennari í tæknigreinum þarf að
leggja á sig töluvert meiri vinnu held-
ur en flestir gera sér í hugarlund.
Þróunin er ör og mörg fög eru þess
eðlis að ekki er hægt um vik að afla
endurmenntunar í þeim þrátt fyrir
auMð framboð. Kennarar í tækni-
greinum þurfa því oft að stunda miMð
sjálfsnám sem er tímafrek vinna,
heima með handbækur og kennslu-
bækur á ýmsum tungumálum.
Nú er dagskipanin - innflutningur
á erlendu vinnuafli.
Það er kannske stefnan á nýrri öld
að slá tvær flugur í einu höggi, flytja
inn kennara frá erlendum láglauna-
svæðum og efla í leiðinni markað fyr-
ir orðabækur?
Höfundur er kennari við Iðnskólnnn
í Reykjavík.
Ásgrímur Jónasson
NVITÚNLISTAR OG MYNDBANDAMARKAOURINN
Cesaria Evora
Best of
Okkarverð 1799
Bjðrk
Oancer in the dark
Almenntverð 2199
Okkar verð 1699
Ýmsir
drinking songs
Okkar verð 499
Delta Rhythm Boys
U2 L_______,
All you can 't leave behind Ory bones
Okkar verð 1999 Okkar verð 699
Eric Clapton & B.B. King
Ríding with the klng
Okkar verð 1699
Golden Gate Quartet Frank Sinatra
Chante Noei New York. New york
Okkar verð 999 Okkar verð 1499
Barry White
Let the muslc play
Okkar verð 1499
Led Zeppelin
Remasters
2 CD verð 2299
James Brown
Se* Machlne
Okkarverði499
Cat Stevens
Morning has broken
Okkar verð 1499
markaðstorgið
0PID flLLfl DflGfl UIKDNNAR FRfl 12 18.30 I HDSI FALKANS SDÐDRLANDSBRADT 8 SÍMI: 533 5090
i 7S
SL'*
s