Morgunblaðið - 17.11.2000, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 51
fjallið og sagði hann okkur þá sögur
af sér þegar hann var strákur. Hann
vitnaði þá oftar en ekki í afa sinn í
Bæ en þar hafði hann oft dvalið og
átti þar alltaf skjól. Hann var ekki
nema 17 ára gamall þegar mamma
hans dó frá átta bömum en þá var
yngsta systir hans aðeins sex mán-
aða gömul.
Táknræn mynd okkar af pabba er
af manni í hvítum málningargalla
með hvíta húfu gerða úr bréfpoka,
með málningarpensil í hendinni og
raulandi línur úr kvæðinu „Hér stóð
bær með burstir fjórar,“ en hann
söng gjarnan aðeins nokkrar slitr-
óttar laglínur sem enduðu þó alltaf á:
„Ég er kominn heim í heiðardalinn,"
o.s.frv. Þó að ástundun við tónlist og
söng hafi verið mikil á heimilinu eru
okkur ekki minnisstæðir aðrir
söngvar pabba.
En árin liðu og þegar kom að því
að við stofnuðum okkar heimili var
hann alltaf boðinn og búinn að rétta
okkur hjálparhönd og málaði þá allt í
hólf og gólf. Þá var nú ekki verið að
slóra. Upp kl. 7 á morgnana og hætti
seint á kvöldin. Hann gerði aldrei
miklar kröfur til lífsins sjálfum sér
til handa en tók því sem að höndum
bar með jafnaðargeði. Hann skamm-
aði okkur aldrei þótt oft gengjum við
fram af honum en sagði þó stundum:
„Er nú ekki komið nóg?“ Þó að við
hefðum mátt velja hefðum við ekki
getað valið okkur betri föður.
Að leiðarlokum þökkum við inni-
lega samfylgdina og biðjum algóðan
Guð að styrkja mömmu okkar, bræð-
ur og alla aðstandendur. Hvíl þú í
friði, elsku pabbi.
Þínar dætur,
Þóra og Jóhanna.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi
hin ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur var gjöf, sem gleymist eigi
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibj.Sig.)
Allir vita að á eftir hausti rennur
vetur í garð og eins vitum við að eitt
sinn skal hver deyja. Þrátt fyrir það
er aldrei hægt að búa sig undir föð-
urmissi. Ef hægt er að líkja lífs-
hlaupi föður míns við árstíðirnar þá
er við hæfi að fráfall hans varð í byrj-
un vetrar, að afloknu góðu hausti.
Pabbi minn var af þeirri kynslóð
sem upplifað hefur þær mestu breyt-
ingar sem orðið hafa á íslensku sam-
fylgjast alltaf að. Ég hef margoft
verið spurð hvort ég sé dóttir Ellu
eða Jónu og svara þá strax um hæl
að ég sé nú eiginlega bara dóttir
þeirra beggja. Þetta fannst Ellu allt-
Iaf gaman að heyra enda á hún heil-
mikið í mér og mér finnst ég eiga
heilmikið í henni.
Ég hef unnið á heilbrigðisstofnun-
um og þekki því miður allt of vel til
þessa vágests sem krabbamein er og
þegar Ella mín greindist með þenn-
an sjúkdóm í lok nóvember í fyrra
varð ég mjög svartsýn og átti erfitt.
En Ella mín sýndi sig og sannaði í
þessu hlutverki sem og öðrum og tók
þessu verkefni með stóískri ró og
Ibaráttuvilja og barðist í tæpt ár við
þennan hvimleiða og erfiða sjúkdóm.
Hún vann sína vinnu allt til það síð-
asta sem er alveg ótrúlegt að skuli
vera hægt. Síðustu dagarnir voru
henni erfiðir en til hennar komu
margir vinir og vandamenn og veit
ég vel hve mikils hún mat það að fá
þessar heimsóknir. Hún skilur eftir
sig mikið tómarúm.
Ég bið góðan Guð að styðja þá
sem eiga um sárt að binda, Guðna,
IGuðjón, Svanhvíti, Sollu, Kristjönu,
Ingvar og ijölskyldur þeirra. Einnig
bið ég hann að styðja móður mína,
I ömmu mína og systkini Ellu í gegn-
um þessa þungbæru sorg.
Ingveldur Erlingsdóttir.
Það er mér bæði Ijúft og skylt að
skrifa fáeinar línur um fráfallna góða
vinkonu mína, Elínu Rannveigu
Halldórsdóttur.
Ellu vinkonu mína hitti ég fyrst er
ég hóf störf hjá Tollgæslunni í
Reykjavík 1988. Hún Kristjana móð-
ir hennar rak mötuneytið í tollstöðv-
li
félagi frá upphafi og lagði undirstöð-
una að þeirri velferð sem við búum
við í dag. Hann var Skagamaður í
húð og hár, þar var hann fæddur og
vildi hvergi annars staðar vera.
Lífsbaráttan var hörð á fyrri hluta
aldarinnar. Hann var elstur í stórum
systkinahóp sem gjarnan var kennd-
ur við Nýhöfn á Akranesi. Móðir
hans féll frá langt um aldur fram og
sautján ára að aldri þurfti hann að
standa á eigin fótum. Þessi reynsla
mótaði hann um allan aldur og fjöl-
skylda hans var honum alla tíð mjög
dýrmæt og velferð hennar fyrir öllu.
Vinnusemi var honum í blóð borin og
snemma byrjaði hann að innræta
okkur systkinunum gildi vinnunnar
og nauðsyn þess að við legðum okkar
af mörkum til heimilisins. Mér er
minnisstætt þegar hann kom mér í
fyrstu vinnuna sjö ára að aldri við að
bera út Morgunblaðið. Ég loftaði
varla pokanum og var ekki skemmt
en allt tókst þetta þó og ekki hlaut ég
skaða af.
Pabbi starfaði alla tíð við málara-
iðnina. Hann lærði fyrst hjá föður
sínum en lauk náminu hjá Lárusi
Arnasyni málarameistara og störf-
uðu þeir síðan saman sem sjálf-
stæðir verktakar um langa hríð, þar
til pabbi varð fastur starfsmaður hjá
Sementsverksmiðjunni árið 1970.
Ég var svo heppinn að vinna með
pabba mínum í nokkur sumur og bý
enn að því sem hann kenndi mér þá.
Boðorðið var vandvirkni og að aldrei
skyldi kasta höndum til verksins.
Pabbi hafði góða kímnigáfu og
hafði mikið yndi af að segja
skemmtisögur af samferðamönnum
sínum. Grínið var þó aldrei á kostnað
annarra heldur voru það hnyttin til-
svör og spaugilegri hliðar tilverunn-
ar sem kættu hann.
Pabbi lét sér alla tíð mjög annt um
ijölskylduna sína. Hann fylgdist
mjög vel með hvað hver var að gera,
hvort sem það var í námi, starfi eða
leik. Síðustu árin var algengt að
hann hringdi að morgni dags í mig í
vinnuna til að spjalla og færa mér
fréttir af bæjarlífinu á Akranesi en
ekki síður til að fá fréttir af okkur.
Alla tíð hafði hann mikinn áhuga á
knattspyrnu enda góður knatt-
spyrnumaður á yngri árum. í seinni
tíð íylgdist hann ekki síður með
starfi yngri flokka þar sem afa-
drengirnir fóru á kostum að hans
sögn. Okkar drengir eru í Skalla-
grími og gat hann samglaðst þeim
svo framarlega sem þeir voru ekki að
etja kappi við Skagamenn.
arhúsinu af miklum myndarbrag og
þar var Ella að vinna ásamt völdum
heiðurskonum. Með okkur tókst
mikill vinskapur sem stóð fram á síð-
asta dag. Þegar ég fór í Tollskólann
þarna um haustið var oft kátt á hjalla
hjá okkur nemendum og oft gerðum
við strákarnir það að leik að stríða
þeim í eldhúsinu. Þetta þótti þeim í
eldhúsinu gaman og oft var hlegið
dátt að uppátækjunum í okkur. Þeg-
ar ég svo hóf störf í rannsóknar-
deildinni og var með aðsetur í toll-
stöðvarhúsinu hittumst við yfirleitt
tvisvar á dag og spjölluðum þá mikið
saman. Við áttum trúnað hvort ann-
ars og það sem við ræddum um voru
oft hjartans mál. Ég vissi að það sem
var sagt var vel geymt hjá Ellu.
Þegar Kristjana lét af störfum
hélt Ella áfram að vinna í eldhúsinu í
nokkur ár en sl. þrjú ár vann hún hjá
Eimskipafélagi Islands í mötuneyt-
inu í Sundahöfn.
Fyrir ári frétti ég af veikindum
Ellu og töluðum við saman í síma
lengi. Þetta átti síðan eftir að liggja
fyrir okkur, að tala saman í símann
reglulega. Hún sagði svo oft við mig;
„nei, ert þetta þú gullið mitt,“ þegar
ég hringdi og það lýsir svo vel hversu
ljúf manneskja hún var. Hún kvart-
aði aldrei við mig undan heilsuleysi
sínu. Hún vann fram á síðasta dag.
Hún sýndi af sér æðruleysi og ein-
urð. Fyrir nokkrum vikum sagði hún
við mig að nú væri hún orðin þreytt
og ég svaraði henni svo til að það
væri allt í lagi, hún ætti það svo
sannarlega inni að fara nú að hvíla
sig. Ég sendi Kristjönu og Guðna og
bömunum mínar samúðarkveðjur.
Égerhjáþér,óGuð,
sem barn hjá blíðri móður.
Minningamar streyma fram en
engin leið er til að gera öllu skil.
Þakka þér fyrir allt, pabbi minn. Ég
veit að það verður tekið vel á móti
þér i nýjum heimkynnum. Ekki veit
ég hvaða hlutverki þú munt gegna
þar en ef lakka þarf glugga veit ég að
húsráðendur verða ekki sviknir af
þeirri vinnu.
Hvíl í friði, pabbi minn.
Sigurður Már.
Þegar ég var lítil stúlka heimsótti
ég Akranes mikið. Þar bjuggu amma
og afí á Háholtinu auk systkina
mömmu, barna þeirra og annarra
ættingja. Ég var svo heppin að fá að
fara á Skagann eins oft og mig lang-
aði til og það gerði ég. Oftar en ekki
var ég hjá ömmu og afa og fékk ég
jafnvel að fara ein. Þau stjönuðu við
mig daginn út og daginn inn og vom
mér ákaflega góð. Með afa fór ég í
sundlaugina, hann lánaði mér hjólið
sitt eða leyfði mér að taka til í skrif-
borðinu sínu sem var alltaf voðalega
merkilegt. Svo spiluðum við rússa og
veiðimann í græna sófanum í sjón-
varpsherberginu eða jafnvel manna
ef vel lá á ömmu. Amma og afi fengu
að kynnast „Dýrunum í Hálsaskógi"
og „Kardemommubænum" en þessi
tvö leikrit vora í miklu uppáhaldi hjá
mér og við hlustuðum á spólurnar
aftur og aftur. Ósjaldan fór ég út á
Bílastöð og keypti gotterí handa
okkur en við afi vorum miklir
sælgætisgrísir. Við skelltum okkur
líka stundum í bfltúr og fóram þá
jafnvel hringinn í kringum Akrafjall-
ið eða í heimsókn til Jóhönnu
frænku. Já, á Skaganum var svo
sannarlega gott að vera.
En miðvikudaginn 8. nóvember
fannst mér dimmdi yfir öllu. Þann
dag, snemma morguns, hringdi
mamma i mig og sagði mér að nú
væri hann Einar afi dáinn. Hann
hafði verið svo veikur og nú var hann
farinn frá okkur. Þrátt fyrir að ég
hafi vitað að þessi stund væri yfir-
vofandi var hún mér ákaflega erfið.
Sorgin hafði vitjað mín öðru sinni
með stuttu millibili. Það vora bara
rúmar tvær vikur síðan Olla föður-
amma mín var jarðsungin. Mér þótti
sem forlögin hefðu ætlað mér óþarf-
lega knappan tíma til að takast á við
fyrstu ástvinamissina í lífi mínu. En
þau höfðu kennt mér það bæði,
amma og afi, með hlýju sinni og
æðraleysi, að lífið heldur áfram og
því óumflýjanlega fáum við ekki
breytt þótt við gjarnan vildum.
Sem lítill fugl á mjúkri mosasæng.
ÉgerhjáþéróGuð,
ogþúerthéróGuð,
og nóttin nálgast óðum.
Efþúerthér,
þásefégsættogrótt.
Þorsteinn Haukur.
Þegar við hugsum um Elínu Hall-
dórsdóttur koma fyrst upp í hugann
áhyggjulausir æskudagar á ísafirði.
Ella, Jóna tvíburasystir hennar og
Sóley föðursystir þeirra, þrjár sam-
an og síhlæjandi. Eyrin var öll eitt
leiksvæði en mest undum við stelp-
urnar á róluvellinum á surnrin þar
komu barnapíurnar samar og léku
sér um leið og þær gættu barnanna.
Eftir að grannskóla lauk fluttu
margir frá Isafirði og sú var raunin
með þær frænkur. Þau ár sem nú
hönd fóra voram við skólasystkin
upptekin við að stofna heimili og
eignast börn, en alltaf fréttum við
hvert af öðra og hittumst af og til.
Tíminn leið og bömin uxu úr grasi og
þá gafst tími til hóa saman skóla-
syskinunum og alltaf var Ella mætt
hress og kát. Á þessu ári hittumst
við til að halda upp á fjöratíu ára
fermingararfmæli. Ella mætti eins
og alltaf en var orðin langt leidd af
sjúkdómi þeim sem hún varð að lúta í
lægra haldi fyrir. Það var okkur öll-
um mikilðvægt að fá að eyða helgi
með henni í vor. Að leiðarlokum vilj-
um við skólasystur þakka henni
tryggðina og vináttuna í gegnum ár-
in. Við vottum öllum þeim sem eiga
um sárt að binda innilega samúð.
Biðjum góðan guð að geyma Ellu
okkar.
Ásgerður, Lilja og Svanhildur.
Við afi höfðum verið miklir félag-
ar og ég á eftir að sakna hans mikið.
Það verður því aldrei eins að fara
upp á Skaga. En það er gott að eiga
minningarnar þegar svo kær ástvin-
ur deyr. Þær mun ég rifja upp og
ylja mér við í erfiðleikunum því hann
afi var einstakur maður. Aldrei
kvartaði hann, alltaf var hann róleg-
ur og tók samferðafólki sínu með
opnum örmum. Hann var vinnusam-
ur og kom oft í bæinn til okkar þegar
hann var að hjálpa vinum sínum og
ættingjum að mála. Oftast gisti
hann í mínu herbergi og iðulega gaf
hann mér eitthvað í staðinn fyrir
herbergisafnotin. Mér fannst alltaf
gott og gaman að fá hann í heim-
sókn. Við afi gátum líka setið fyrir
framan sjónvarpið og velst um af
hlátri ef eitthvað skemmtilegt var í
því. Já, hann afi minn var gull af
manni.
En ég veit að nú líður honum vel.
Hann hefur nú hitt hana Ollu ömmu
mína og ég veit að þau sitja og spila
bridge og saman vaka þau yfir mér
og okkur öllum. Þær era ófáar minn-
ingar sem ég geymi í hjarta mínu og
ég mun varðveita þær vel.
Elsku Sigga amma, ég vona að
Guð vaki yfir þér því þinn er missir-
inn mestur.
Elsku besti afi minn, hvfl þú í friði,
við sjáumst seinna hinum megin.
Þín
Sigríður Unnur, yngri.
Hann afi okkar er dáinn. Fyrir
okkur rifjast upp þær stundir sem
við áttum á Háholtinu hjá afa og
ömmu. Það var toppurinn að koma
við eftir skóla og/eða íþróttaæfingar
og fá mjólk og kleinur eða eitthvað
annað gómsætt í svangan maga og
rabba svolitla stund við ömmu og
afa. Síðan keyrði afi okkur heim á
nýja bflnum sínum en hann átti alltaf
nýja bfla sem hann hugsaði alltaf vel
um, gljáfægða og tandurhreina. Afi
hafði mikinn áhuga á bflum og spáði
mikið í þá bfla sem við eignuðumst
þegar við komumst á þann aldur.
Hann fékk að prafukeyra og sagði
okkur hreint út hvað honum fannst
um bílinn. T.d. þegar Einar keypti
nýlega splunkunýjan bfl sagði hann:
„Mér líst ekkert á litinn á honum!“
Það var alltaf stutt í húmorinn hjá
afa og fengum við ófá gullkornin frá
honum. Hann hafði alltaf mikinn
áhuga á því sem við voram að gera
og hældi okkur í hástert ef honum
fannst við eiga það skilið og studdi
okkur í því. Hins vegar sagði hann
það hreint út ef honum leist ekki á
hlutina. Hann fylgdist einnig vel með
afa- og langafabömunum í fótboltan-
um í sumar. Þó að hann ætti erfitt
með að setjast á grasbekkinn, sökum
þess að hann var með staurfót, lét
hann sig ekki vanta til að styðja sína
menn. Hann var stoltur af strákun-
um sínum.
Við eigum eftir að sakna hans
mikið og vonandi líður honum vel þar
sem hann er núna og hann á öragg-
lega eftir að taka vel á móti okkur
þegar okkar tími kemur. Við biðjum
algóðan Guð að geyma hann um leið
og við þökkum fyrir allar góðu
stundirnar sem hann eyddi með okk-
ur. Megi algóður Guð veita ömmu,
„Siggu ömmu“ eins og hún er alltaf
kölluð, styrk í sorginni.
Ástarkveðja,
Einar Árni og Helga.
Margs er að minnast
margterhéraðþakka
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margseraðsakna. V
Guð þerri tregatárin stríð.
Farþúífriði
friður guðs þig blessi
hafðu þðkk fyrir alit og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku afi.
Takk fyrir að vera svona góður afi.
Við vitum að núna líður þér vel uppi
hjá guði og englunum. Við ætlum að
passa ömmu vel fyrir þig og veita
henni félagsskap.
Ég fel í forsjá þína
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
ogljúfaenglagleyma
öll bömin þín svo blundi rótt
(M. Joch.)
Guð geymi þig,
FIosi Hrafn og Eggert Öm.
I dag er til moldar borinn föður-
bróðir minn, Einar Árnason málara-
meistari á Akranesi. Það kom okkur
öllum á óvart að Einar frændi væri
kominn með krabbamein og ætti
nokkrar vikur ólifaðar, þessi hrausti
maður sem aldrei kvartaði. Mér er
það bæði Ijúft og skylt að skrifa
nokkur minningarorð um einn af
mínum uppáhaldsfrændum. Á upp-
vaxtaráranum á Skaganum vora
miklir kærleikar með okkur frænd-
um, upp úr fermingu nutum við þess
bræðurnir að fá sumarvinnu í máln-
ingu hjá Einari og Lárasi en þeir
vora umsvifamiklir verktakar með
úrvalsmenn sér við hlið. Einar var ,
mjög vandvirkur og snyrtilegur fag- *
maður enda eftirsóttur í vinnu. Það
var því mjög góður skóli fyrir alla þá
sem lærðu hjá frænda að mála. Ein-
ar lærði sjálfur að mála hjá föður sín-
um sem var mikill iðnaðarmaður,
málari, rakari og smiður góður, enda
fannst afa að allir ættu að læra iðn,
sem og hans synir gerðu. Síðar gerð-
ist Einar málari hjá Sements-
verksmiðjunni hf. Það var mér mik-
ils virði að fá að vinna undir leiðsögn
hans og læra góð og fagleg vinnu-
brögð. Alla tíð var mjög kært sam-
band á milli föður míns og Einars,
þeir áttu meðal annars bfl saman í
gamla daga, fóra þeir oft í veiði sam-
an og unnu á tímabili báðir hjá sama
fyrirtækinu. Eftir að faðir minn lést -
1981 urðu samskipti okkar nánari, er
við störfuðum saman hjá Sements-
verksmiðjunni en Einar hafði gaman
að því að ferðast og eiga góða bfla.
Hann var mikill gæfumaður í sínu
einkalífi með Sigríði Bjarnadóttur
sér við hlið sem bjó honum gott
heimili. Einar og Sigga eignuðust
fjögur mannvænleg böm, Þóra, Jó-
hönnu, Sigurð Már og Flosa, og naut
hann samskipta við barnabömin og
bamabamabörnin sem hann var
mjög stoltur af. Ég þakka fyrir
trygglyndi og umhyggju hans við
mig og fjölskyldu mína. Megi Guð
blessa og styrkja fjölskylduna á
sorgartímum.
Hörður Geirlaugsson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
PÉTUR WILHELM BERNBURG
JÓHANNSSON
skipstjóri,
Grænási 3b,
Njarðvík,
sem lóst fimmtudaginn 9. nóvember verður
jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju laugar-
daginn 18. nóvember kl. 13.30.
Harpa Hansen,
Ólafur i. Brandsson,
Halldóra S. Brandsdóttir,
Anna Katrín Pétursdóttir,
Andrés Pétursson,
Pétur Brim Þórarinsson.