Morgunblaðið - 02.12.2000, Síða 32

Morgunblaðið - 02.12.2000, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 2. DBSEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Baráttan gegn spillingu í Kína Bandaríkjaniaður bíður dóms fyrir meintar njósnir Dómsmálaráð- herra rekinn Peking. AP, AFP. DÓMSMÁLARÁÐHERRA Kína, Gao Changli, hefur verið vikið úr embætti og er talið að hann sæti rannsókn vegna spillingar. Einnig er getum leitt að því að ráðamenn kommúnistaflokksins séu ósáttir við hvað hægt gangi að hrinda í fram- kvæmd umbótum á réttarkerfinu. Ekki hefur verið staðfest opinber- lega að Gao hafi verið rekinn en sagt að hann sé „veikur“. Gao er 63 ára gamall, varð dóms- málaráðherra 1998 en er sagður hafa fallið mjög í skuggann af for- vera sínum, hinum vinsæla og kraft- mikla umbótamanni Xiao Yang. Við embættinu tók nú Zhang Fusen, vararitari flokksins í Peking og fyrr- verandi aðstoðarráðherra dóms- mála. Ráðuneytið var lengi nánast valdalaust en hefur undanfarin ár barist fyrir því að koma á vísi að réttarrfld í stað alræðiskerfis þar sem persónuleg tengsl skipta meira máli en lagabókstafurinn. Kína stefnir að því að fá aðild að Heims- viðskiptastofnuninni, WTO, en ef takast á að fullnægja aðildarskilyrð- unum er Ijóst að koma verður á rétt- arrfld í landinu. Lögfræðingar í Peking tjáðu fréttamönnum að Gao hefði á sínum tíma gert húsnæði í eigu rfldsins að sinni eigin eign en talið hefði verið að búið væri að gera upp þau mál. Fjölmörg dæmi munu vera um að kínverskir embættismenn misnoti stöðu sína með þessum hætti. Hann Reuters Kínversk stjórnvöld hafa barist hart gegn spillingu undanfarin ár. Hér sést Yang Qianxian, yfir- maður tollgæslunnar í Xiamen í Fujian-héraði, fyrir rétti. er einnig sagður hafa verið í fjár- málabraski með ástkonu sinni og misnotað opinbert fé. Blaðið Sun í Hong Kong sagði að Gao hefði auk þess reitt Jiang Zemin forseta til reiði með því að láta gefa út bók með tilvitnunum í orð forsetans. Er þetta frumkvæði sagt stangast á við reglur sem miða að því að koma í veg fyrir persónudýrkun. Baráttan gegn spillingu og mis- notkun á völdum í Kína hefur að nokkru leyti beinst gegn háttsettum embættismönnum og fyrr á árinu var varaformaður þingsins tekinn af lífi eftir að hafa verið fundinn sekur um spillingu. Á 20 ára hegningar- vinnu yfir höfði sér Moskvu. AFP. AP Bandariski kaupsýslumaðurinn Edmond Pope fyrir rétti í Moskvu. VERJENDUR bandaríska kaup- sýslumannsins Edmonds Pope, sem hefur verið ákærður fyrir njósnir í Rússlandi, luku málflutningi sínum fyrir rétti í Moskvu í gær eftir sex vikna réttarhöld. Pope þjáist af sjald- gæfu beinkrabbameini og kann að verða dæmdur í 20 ára hegningar- vinnu verði hann fundinn sekur. „20 ára dómur yfir krabbameins- sjúklingi jafngildir dauðadómi," sagði aðalverjandi Pope, Pavel Ast- akhov. Lokaframburður Pope er ráð- gerður á miðvikudaginn kemur og búist er við að dómur verði kveðinn upp 11. desember. Saksóknarar hafa krafist þess að Pope fái þyngstu refsingu sem lög heimila verði hann fundinn sekur um að hafa keypt leynileg skjöl um rúss- nesk tundurskeyti af gerðinni Shkval. Pope hefur alltaf haldið því fram að skjölin, sem hann hefur við- urkennt að hafa keypt af vísinda- manni í Moskvu, séu ekki lengur leynileg. Sakbomingurinn er 54 ára fyrrverandi starfsmaður leyniþjón- ustu bandaríska sjóhersins. Annar verjandi Pope, Andrei Andrusenko, sagði að saksóknaram- ir hefðu ekki sannað að Shkval-tund- urskeytin byggðust á tækni sem Rússar einir hefðu yfir að ráða. „Úkraína, Kasakstan og Kirgistan hafa notað þessa tundurskeytatækni. Kasakstan seldi jafnvel slík tundur- skeyti til Kína árið 1998,“ sagði hann. Pope og verjendur hans lögðu fram 200 síðna málsgögn sem þeir sögðu hrekja röksemdir saksóknar- anna. „Við vonum að rétturinn kom- ist að réttlátri niðurstöðu," sagði Astakhov. „Við höfum sannað fyrir allri heimsbyggðinni að Rússar hafa óháða lögmenn sem eru tilbúnir að verja hvem sem er, óháð þjóðemi." Saksóknaramir sögðu hins vegar að veijendumir hefðu ekki haft gild rök fram að færa og ekki óskað eftir mildari hegningu. Þeir krefjast þess að Pope verði gert að greiða sjö millj- arða rúblna, andvirði 22 milljarða króna, í bætur fyrir að stofna öryggi Rússlands í hættu, auk þess sem hann verði dæmdur í 20 ára hegning- arvinnu. AVIS UPPBOÐ til styrktar mæðrastyrksnefnd Uppboð á 30 bílum laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. desember nk. milli kl. 12 og 16 að Dugguvogi 10 Sími: 533 1090 Fax: 533 1091 E-mail: avis@avis.is Dugguvogur10 www.avis.is Allir bílar í mjög góðu ástandi Komdu og gerðu bestu kaupin í bænum! AVIS Andvirði eins bíls rennur óskipt til Mæðra- styrksnefndar og 4% af öllum öðrum bílum! CDU fær enn eina sektina Bcrlín. AP. KRISTILEGI demókrataflokkurinn í Þýskalandi var sektaður enn einu sinni í gær fyrir að hafa ekki gefið réttar upplýsingar um fjárreiður sín- ar á síðasta áratug. Að þessu sinni er sektin um 130 miHjónir íslenskra króna. Wolfgang Thierse, forseti þýska þingsins, sagði, að kristilegir demó- kratar hefðu leynt framlögum í flokkssjóðinn, 65 milljónum króna, en samkvæmt lögum varðar það helmingi hærri sektum. Er hér um að ræða önnur framlög en þau, sem Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari, tók við, tæplega 80 millj. kr., en upp- lýsingar um þau komu af stað hneykslinu, sem hefur elt flokkinn síðan. Sú rannsókn, sem síðan hefur farið fram, hefur leitt í Ijós flókinn vef leynireikninga og valdið upp- stokkun í forystunni. Þrátt fyrir allt má segja, að kristi- legir demókratar hafi sloppið vel þvi að Thierse sagði, að engar sektir hefðu verið ákveðnar vegna rúmlega 390 millj. kr. „af óvissum uppruna", sem flokkurinn fékk á árunum 1989 til 1992. Þegar Kohl viðurkenndi, að hann hefði tekið við ólöglegum framlögum, sagði hann, að þau hefðu komið frá fólki, sem vildi styðja starf flokksins í Austur-Þýskalandi eða eftir samein- ingu þýsku ríkjanna. Kvaðst hann hafa heitið því nafnleynd og myndi standa við það. Síðan hefur hann safnað sjálfur um 330 millj. kr., sem hann hefur afhent flokknum í bætur fyrir sektargreiðslur. ARCTIC_______\ stór kr. tM50k lítiil kr. I 9501 KAZANKA __________ rugguhestur kr.|2.950 Jól i habitat JOLATRE
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.