Morgunblaðið - 02.12.2000, Page 36

Morgunblaðið - 02.12.2000, Page 36
36 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Hljóðfærið, sviðið og áhorfendur EDDA Erlendsdóttir píanóleikari, sem um árabil hefur verið bú- sett í Frakklandi, hefur sent frá sér geisladisk með stuttum píanó- verkum eftir Edvard Grieg, en tónlistin kom áður út á geisladiski hjá frönsku útgáfufyrir- tæki árið 1993. „Fyrir- tækið sem sér um dreif- ingu á öllum geisladisk- unum mínum hér hafði samband við mig og vildi fá fleiri diska með Grieg til dreifingar í Fnac-búðimar sem hafa stóra markaðs- hlutdeild í Frakklandi. Þá kom í ljós að upplagið var uppselt hjá útgef- andanum. Vegna áherslubreytinga í kjölfar eigendaskipta hjá þessu fyr- irtæki varð úr að ég keypti réttinn aftur og gaf þetta út sjálf,“ segir Edda. Hún viðurkennir að viðtökumar hafi verið sérlega góðar í Frakklandi og diskurinn vakið mun meiri athygli nú en árið 1993. „Þá hittist þannig á að hann lenti í því flóði sem fylgdi 150 ára fæðingarafmæli Griegs og ég fékk minni umfjöllun fyrir vikið. Nú fellur þessi tónhst í frjórri jarð- veg því fólk þekkir tónlistina betur.“ Tónlist sem ég æfði sem barn Þessi tónlist hefur ákveðna þýð- ingu fyrir Eddu sem rekja má til þeirra ára þegar hún var að læra og mótast sem píanóleikari hér heima. „Myndin á umslaginu er gömul ljós- mynd sem Árni Kristjánsson, kenn- arinn minn, gaf mér fyrir löngu, í fín- um, útskomum, norskum ramma. Myndin hefur alltaf hangið uppi hjá mér. Árni skrifaði einnig ákaflega falleg- an texta sem fylgir diskinum um þessi verk Grieg, en ég sagði honum nákvæmlega hvað ég myndi taka upp og hann miðaði textann við það.“ „Annars var ég að rifja upp fyrir mér af hverju ég fór að spila þessi ljóðrænu smá- lög,“ segir Edda. „Þetta var tónlist sem ég æfði heilmikið þeg- ar ég var krakki, með Hermínu heitinni Kristjánsson, sem var kennarinn minn. Hún var alveg ótrú- lega góð, studdi mig og hvatti áfram. Svo bókstaflega hurfu þessi lög úr huga mér og ég opnaði aldrei bókina með þeim. Löngu seinna var ég beð- in um að velja efnisskrá með verkum sem tengdust náttúrunni og þá fór ég að fletta í henni. Þetta urðu eins og skemmtilegir endurfundir enda tengdust tónlistinni svo góðar end- urminningar frá því að ég var lítil stelpa. Þannig varð hugmyndin að þessum geisladiski til og ég er auð- vitað búin að spila þessa efnisskrá mjög mikið síðan.“ Tímamót virka hvetjandi Edda hefur verið búsett í Frakk- landi í 27 ár, en hinn 3. janúar næst- komandi eru 20 ár frá þvi hún hélt sína fyrstu einleikstónleika á Kjar- valsstöðum. Edda segir að efnis- skráin þar hafi verið óskaplega erfið: „Ég hugsa að ég hafi kannski bara ekki vitað hvað ég var að gera,“ segir hún og fer að hlæja. „Þetta var þræl- erfið og ofboðslega löng efnisskrá, miklu lengri en maður undirbýr að öllu jöfnu. Ég hlýt að hafa verið svona óreynd! En svona tímamót ýta á eftir manni með að gera aðeins meira og mér finnst gott ef þau virka hvetjandi. Ég hef í huga að taka upp nýjan geisladisk í febrúar með tón- list eftir Haydn, sem kemur út ein- hvem tímann á næsta ári. Einnig ætla ég að vera með einleikstónleika með alveg nýrri efnisskrá. Ég mun spila einleikstónleika í París í maí og langar að spila í Reykjavík næsta haust.“ Á ferli sinum hefur Edda leikið einleikstónleika mjög víða í Evrópu og Bandaríkjunum. „Ég spilaði í fyrsta sinn á Italíu fyrir skömmu en hef líklega haldið tón- leika í flestum löndum Evrópu nema kannski þar sem áður var austan- tjalds. Þó hélt ég einu sinni tónleika í Ukraínu og tvisvar i Rússlandi. Ætli ég hafi ekki æft um 20 efnisskrár með mismunandi verkum, en þá er ég bara að tala um einleiksverk. Auðvitað hef ég einnig leikið nokkra píanókonserta og heilmikla kammer- tónlist. Ég hef kannski setið nokkuð vel við - nema í fyrra, þá fór allur tíminn í að láta gera upp baðher- bergið mitt, en það var ágætt líka,“ segir Edda og hlær dátt. Edda hefur um langt árabil stundað pianó- kennslu í Frakklandi, nú síðast í Versölum. Þegar talið berst að kennslunni segir Edda að það hljóti að vera mikilvægt fyrir hámenntaða píanóleikara að halda tónleika reglu- lega. „Mér finnst það eiginlega vera frumskilyrði að þeir sem kenna lengra komnumnemendum haldi tónleika," segir hún. „Það er ómögu- legt að missa tengslin við hljóðfærið, sviðið og áhorfendur. Mér finnst mjög mikilvægt að þetta sé eins og þríhymingur og vinni hvað með öðru.“ Edda Erlendsdóttir Jóladagskrá í Bókasafni Garðabæjar KRISTÍN Helga Gunnarsdótt- ir rithöfundur les upp úr nýrri bók sinni, „Móa hrekkjusvíni", í Bókasafni Garðabæjar í dag, laugardag, kl. 13.30. Bókin fjallar um rafmagnssnillinginn, kúrekann, prakkarann og hreklqusvínið Móa. Kristín Helga er mörgum að góðu kunn því hún hefur áður skrifað met- sölubækumar um Binnu. Mánudaginn 4. desember kl. 17 verður einnig upplestur, en þá mun Hjalti Rögnvaldsson leikari lesa úr nýútkomnum bókum, m.a. nýrri bók Einars Más Guðmundssonar, „Draum- ar á jörðu“, og 3. bindi ævisögu Einars Benediktssonar eftir Guðjón Friðriksson. Laugar- daginn 9. desember kl. 13.30 sýnir brúðuleikhúsið 10 fingur brúðuleikinn „Jólaleik" sem er falleg og skemmtileg útfærsla á jólaguðspjallinu. „Jólaleikur" er ætlaður 2-5 ára börnum og er mikil áhersla lögð á þátttöku þeirra í leikritinu. Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju TUTTUGUSTU og þriðju Jólasöngv- ar Kórs Langholtskirkju verða haldn- ir föstudaginn 15. desember kl. 23, laugardaginn 16. desember kl. 23 og sunnudaginn 17. desember kl. 20. Einsöngvarar verða Eiríkur Hreinn Helgason og Ólöf Kolbrún Harðardóttir auk kórfélaga. Hljóð- færaleikarar eru Bemharður Wilkin- son flauta, Hallfríður Ólafsdóttir flauta, Monika Abendi-oth harpa, Hafsteinn Guðmundsson á fagott, Jón Sigurðsson kontrabassi og Kári Þormar orgel. í nokkrum jólalögum af léttara taginu leika þeir Kjartan Valdemarsson píanóleikari og Pétur Grétarsson slagverksleikari. Gradu- alekór Langholtskirkju syngur bæði einn og með Kór Langholtskirkju en stjómandi er Jón Stefánsson. Að vanda verður boðið upp á jóla- súkkulaði og smákökur í hléi. Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju eru nú aftur fáanlegir á geislaplötunni „Bam er oss fætt.“ Einnig er til jóia- platan ,Á jólimum er gleði og gaman“ með Gradualekór Langholtskirkju. Einnig hefur verið útgefin á geisla- plötu fyrsta plata Kórs Langholts- kirkju „Mín sál, þinn söngur hljómi“ frá árinu 1974. Nú þegar er orðið uppselt á fyrstu tónleikana og fáir miðar eftir á laug- ardeginum. Ef selst upp á alla tón- leikana verður bætt við fjórðu tón- leikunum laugardaginn 18. desember kl. 19. Miðar eru til sölu í Langholtskirkju og kosta 1.500 krónur og er innifalið heitt jólasúkkulaði og piparkökur. Morgunblaðið/Þorkell Laufey Sigurðardóttir, Richard Talkowsky og Krystyna Cortes. Tónleikar í Fríkirkjunni LAUFEY Sigurðardóttir fiðluleik- ari, Richard Talkowsky sellóleik- ari og Krystyna Cortes píanóleik- ari halda tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld, laugardags- kvöld, kl. 20. Á efnisskránni eru Sónata fyrir fiðlu og selló eftir Ravel og Píanótríó nr. 6 op. 70 nr. 2 eftir Beethoven. Reykjavík- urborg styrkir tónleikana. Að- göngumiðasala við innganginn. Félagar í blásarahópnum Serpent. Morgunblaðið/Porkell Lúðrahljómur og jólastemmning MÁLMBLÁSARAHÓPURINN Serpent heldur tónleika í Salnum í TIBRÁ, tónleikaröð tónlistar- húss Kópavogs á morgun, sunnu- dag, kl. 17. Hópurinn er skipaður flmm trompetleikurum, fjórum horn- leikurum, þremur básúnuieikur- um auk bassabásúnuleikara, euphoniumleikara og túbuleikara. Stjórnandi hópsins er Kjartan Óskarsson. Á efnisskrá eru m.a. þijú sálmaforspil eftir Bach f útsetn- ingpi Enrique Cespo, Sinfónía fyr- ir brass eftir Jan Koetsier, tvær kanzónur eftir Giovanni Gabrieli o.fl. Trompetleikarar: David Noote- boom, Einar St. Jónsson, Eiríkur Örn Pálsson, Guðmundur Haf- steinsson, Jóhann I. Stefánsson. Homleikarar: Emil Friðfinnsson, Jóhann Björn Ævarsson, Stefán Jón Bemharðsson, Þorkell Jóels- son. Básúnuleikarar: Jón Halldór Finnsson, Oddur Björasson, Sig- urður Þorbergsson. Bassa-/ kontrabassabásúna: David Bobr- off. Euphonium: Oddur Björnsson. Túba: Þórhallur I. Halldórsson. Stjórnandinn lyartan Óskars- son starfar sem klarinettuleikari við Sinfóníuhljómsveit íslands og kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík. Kjartan hefur starfað með ýmsum blásarasveitum á ár- unum 1982-1987. TÍBRÁR-tónleikar vetrarins eru alls fjörutíu talsins, að meðaltali fernir í hvetjum mánuði frá sept- ember fram í maí. Um er að ræða 13 söngtónleika, 11 samleikstón- leika, 9 tvíleikstónleika og 7 píanótónleika. Vegna tilmæla frá mörgum áskrifendum á síðasta ári hefur sú nýbreytni verið tekin upp, að nú er hægt að raða sam- an sex TÍBRÁR-tónleikum að eigin vali og fylgja þá þeir sjö- undu í kaupbæti. Ef valdir eru samtals tíu tónleikar fylgja tvenn- ir TÍBRÁR-tónleikar í viðbót án endurgjalds. Miðaverð á TÍBRÁR- tónleika er 1.500 krónur. Miðasalan er opin alla virka daga kl. 13-18 og tónleikakvöld til kl. 20. Um helgar er miðasalan opnuð klukkustund fyrir tónleika. ---------------- Kvennakórinn Kyrjurnar í Laugarnes- kirkju KVENNAKÓRINN Kyijurnar heldur aðventutónleika í Laugar- neskirkju í dag, laugardag, kl. 17. Á efnisskrá eru létt innlend og er- lend jólalög. Stjómandi kórsins er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir og undirleikari Halldóra Aradóttir. Aðgangseyrir er 1.000 krónur fyr- ir fullorðna, 500 krónur fyrir aldraða og öryrkja en frítt fyrir börn. ---------------- Sýningu lýkur SÍÐASTA sýning á söngleiknum „Kysstu mig Kata í Borgarleikhús- inu verður í kvöld, laugardagskvöld. Þessi geysivinsæli söngleikur eftir Cole Porter og Bellu & Sam Spewack var frumsýndur 25. mars síðasta leikár. >£M-2000 Laugardagur 2. desember GERÐUBERG KL. 14 Eitt lítið ævintýr Samnorrænt ævintýraverkefni 11 ára barna frá íslandi, Danmörku og Finnlandi sem Ijallarum ævintýrið sem samskiptaform og hvort það á erindi til barna á 21. öld. Undanfarnar vikur hefur 6. A úr Rima- skóla sökkt sér ofan ígömlu þjóð- söguna um konuna sem átti sjö börn á landi og sjö í sjó. Þau hafa unnið glæsilegt myndverk, rúma 2,10 m á hæð og2má breidd, sem segirsög- una og minnir helst í uppbyggingu á myndasögu frá miðöldum. Einnig hafa þau unnið leikrit upp úr sög- unni, þarsem sögumenn, teikarar, fiðluleikari og söngvarar koma sög- unni skemmtilega til skila tii áhorf- enda. Liðurí Stjörnuhátíð menning- arborgarinnar. RÁÐHÚSIÐ KL. 16 Fyrst og fremst í 70 ár Söguleg sýning í tilefni af 70 ára af- mæli Ríkisútvarpsins. Þar verður hægt að fýlgja þróun á starfssviði Ríkisútvarpsins íþau 70 ár, sem það hefur starfaö, bæði hvað snertirbún- að á heimilum til móttöku dagskrár og tækniþróun í útsendingu og dag- skrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Sér- stök hátíðadagskrá verður við opn- unina er frumflutt verður verð- launaverk úr samkeppni, sem efnt er til í tilefni af 70 ára afmæli Ríkisút- varpsins. Þarerum að ræða tón- verk, sem samið veröur fyrir sömu hljóðfæraskipan og var f útvarps- hljómsveitinni erhún varstærst, 1940-1950. Sýningin stendur til 21. desember. Liður í Stjörnuhátíð menningarborg- arinnar. TJARNARBÍÓ KL. 15 Prinsessan í hörpunnl - lokasýning Úrgamalli sögn hefur Böövar Guð- mundsson smíðað brúðuleikrit fyrir alla fjölskylduna. Sagan segirafdótt- ur Sigurðar Fáfnisbana sem flýr ásamt fóstra sínum undan óvildar- mönnum, falin í hörpu. Þaö erLeik- brúðuland sem setur upp Prins- essuna íhörpunni. Liður í Stjörnu- hátíð menningarborgarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.