Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 65 UMRÆÐAN For sj árhy ggj a ÞAÐ er alveg merkilegt að sjá hvemig forsjárhyggjan getur hel- tekið suma menn sem gefa kost á sér í pólitík og ná kjöri sem alþing- ismenn. Alþingismenn eru, svo sem von er, haldnir þörf til að láta gott af sér leiða. Margir þeirra halda að því markmiði verði best Forsjárhyggjan leiðir af sér verri kost fyrir fólkið í landinu, segir Jón Steinar Gunn- laugsson, en megin- reglan um frelsi til samninga gerir. náð með því að hafa vitið fyrh’ fólk- inu, þ.e.a.s. vemda það fyrir sjálfu sér. Þeim ætla seint að lærast þau einföldu sannindi, að eina vemdin sem eitthvað dugar, er sú vernd sem í því felst, að hver og einn maður taki ábyrgð á sínu eigin lífi. Nýjasta afurð forsjárhyggjunn- ar á Alþingi er fmmvarp til laga um ábyrgðarmenn sem nokkrir al- þingismenn hafa flutt. Þeirra á meðal era að minnsta kosti tveir, sem hingað til hafa, eftir því sem best er vitað, viljað kenna sig við önnur mannlífsgildi en forsjár- hyggjuna. Með frumvarpi þessu er lagt til að takmarka frelsi manna til að taka á sig ábyrgðarskuld- bindingar. Tilætlun flutnings- manna er að vernda fólk íyrir eigin ákvörðunum á þessu sviði og vísa þeir til þess, að margir hafi beðið fjárhagslegan skaða af því að þurfa að standa við ábyrgðar- skuldbindingar sínar. Nú er ljóst að allir menn geta beðið fjárhagslegan skaða af því að hafa tekið ákvarðanir sem snerta eigin fjármál. Sé það hlutverk al- þingismanna að vemda menn fyrir slíkum skaða má spyrja, hvers vegna þeir taki ekki sjálfsákvörð- unarrétt af mönnum í miklu ríkari mæli heldur en hér er lagt til. Af hverju er foreldrum til dæmis ekki bannað að gefa bömum sínum peninga eða önnur verðmæti, a.m.k. ef fjárhagur þeirra leyfir ekki slíkt að mati forsjármanna? Hvað um fjárframlög til óarðbærs atvinnurekstrar? Hvað um ákvörðun skyldmenna um að ger- ast sameigendur í atvinnurekstri með ótakmarkaðri ábyrgð eig- enda? Lengi mætti telja. Svo er önnur hlið á málinu. Með því að takmarka frelsi manna til að taka á sig ábyrgðarskuldbindingar er áreiðanlega verið að gera það erfiðara fyrir þá, sem á þurfa að halda, að afla sér lánsfjár. Takist þeim það, þrátt fyrir allt, er líklegt, að þeim verði gert að greiða hærri vexti og annan kostnað af lánunum vegna þeirrar auknu áhættu sem í því felst að lánveitandi nýtur tak- markaðri tryggingar af ábyrgðun- um. Þannig er líklegt hér sem svo oft endranær, að forsjárhyggjan leiði af sér verri kost fyrir fólkið í Iandinu en meginreglan um frelsi til samninga gerir. Þegar maður stendur frammi fyrir ákvörðun um hvort hann eigi að ábyrgjast skuld fyrir annan mann ætti hann að spyija sjálfan sig einnar spurningar: Er ég til- búinn að borga skuldina fyrir manninn ef hann getur það ekki sjálfur? Sé svarið játandi er í lagi að gangast í ábyrgðina, annars ekki. Alþingismenn eiga hreint ekkert að skipta sér af þessu. Svo einfalt er það. Höfundur er hæstaréttar- lögmaður. Islensk list Fálkagötu 30b Gleðilegir jólaglerfiskar Opið frá kl. 14-18, súnar 552 8141 og 861 5693 O Samsonite Fyrsta Samsonite verslunin á Islandi hefur opnað í Skeifunni 7 undir sama þaki og Metró. Bjóðum allar gerðir af Samsonite töskum, harðar og mjúkar, stuttar og langar, stórar og smáar. ÖLLKVÖLD Aðeins VIVALDI plastparketið er unnið úr pressuðum viðartrefjum og er með sterka giæra plastvörn. VIVALDI er góður kostur fyrir heimilið. Aflaðu þér nánari upplýsinga um eiginleika þessa hagkvæma og fallega gólfefnis. VIVALDI - steinliggur á gólfinu þínu fyrírjól... Glær plastvörn Vlöarmynstraöur pappír HDF plata úr viöartrefjum Stöndugt undirlag Umboðsmenn um land allt Teppatand GÓLFEFNI ehf. Fákafeni 9 • 108 Reykjavík • Símar 588 1717 og 5813577 ^ Fax 5813152 • goHefni@golfefni.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.