Morgunblaðið - 02.12.2000, Síða 70

Morgunblaðið - 02.12.2000, Síða 70
70 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN UM ALMENN UTBOÐ I MORGUNBLAÐINU laugar- •Jaginn 25, nóvember sl. birtist grein eftir Heigu Hlíti Hákonardóttur lög- fræðing bjá Islands- banka FB A undir fyrir- sögninni „Voru útboðs- reglurnar aldrei í gildi?“ Höfundur fjaliar í greininni m.a. um dóm Hæstaréttar íslands uppkveðinn fímmtu- daginn 23. nóvember 2000 í málinu nr. 225/ 2000: Burnham Int- emational á íslandi (áður Handsal hf.) gegn Guðmundi Sigurðssyni. Greinarhöfundur segir í upphafi greinarinnar að dómurinn „virðist marka ein mestu tíma- mót í sögu hins unga ís- lenska verðbréfamark- aðar“ og síðar „niðurstaðan hefur vægast sagt ófyrirséð áhrif hér á landi“. Morgunblaðið gerir greininni sérstök skil í blaðinu sama dag og greinin birtist (á bls. 2) undir fyrir- sögninni „Tímamót sem hafa ófyrir- t séð áhrif‘. í framangreindu máli var m.a. i'ð krafa um riftun á kaupum á ’ utafé í Burnham International á landi hf. (áður Handsal hf.) sem átt höfðu sér stað í tengslum við hluta- fjárútboð í félaginu á árinu 1998. Þórður S. Gunnarsson Riftunarkrafan var m.a. á því reist að söluverð hlutabréfanna hefði ver- ið langt yfir raunvirði miðað við raunverulega fjárhags- stöðu félagsins, þegar kaupin áttu sér stað, en jafnframt hefði félagið látið hjá líða að gefa út svonefnda útboðslýs- ingu, þótt útboðið sem hluthafinn tók þátt í hafi verið „almennt út- boð“ í skilningi 20. gr. laga um verðbréfavið- skipti nr. 13/1996 og reglugerðar nr. 505/ 1993. Taldi hluthafmn að líkur mætti leiða að því að gerð slíkrar út- boðslýsingar hefði leitt í ljós upplýsingar sem orðið hefðu þess vald- andi að hann hefði ekki keypt bréf í útboðinu. Af hálfu fé- lagsins var hins vegar á því byggt að fullnægjandi upplýsingar hefðu legið fyrir um fjárhagsstöðu félagsins, þegar hlutafjárkaupin áttu sér stað og ennfremur að allar upplýsingar sem koma eigi fram í útboðslýsingu hafi í reynd legið fyrir við hluta- fjárkaupin og því hefði ekki skipt máli þótt formleg útboðslýsing hefði ekki verið samin og legið frammi. Ekki er ástæða til að rekja máls- ástæður aðila frekar en þeir sem Hæstaréttardómurinn, segir Þórður S. Gunnarsson, virðist mér vel saminn og lög- fræðilega traustur. áhuga hafa geta kynnt sér héraðs- og hæstaréttardóm í málinu í gegnum heimasíðu Hæstaréttar (www.haest- irettur.is). Héraðsdómur komst að þeirri nið- urstöðu að umrædd hlutabréf hafi á kaupdegi verið langtum verðminni en kaupvirði þeirra nam og var kaupunum rift með vísan til 42. gr. laga nr. 39/1922 um lausafjárkaup (verulegur galli). Hæstiréttur sýkn- aði hins vegar Burnham Intemat- ional á íslandi (áður Handsal hf.) af riftunarkröfunni og hafnaði því að skiiyrði til riftunar skv. 42. gr. laga nr. 39/1922 væru til staðar. Að því er útboðslýsinguna varðar eða skort á henni segir í dómi Hæstaréttar: „Stefndi (sá sem gerði riftunar- kröfuna, innsk. höf.) reisir kröfu sína í annan stað á því að samkvæmt 20. gr. laga nr. 13/1996 um verðbréfavið- skipti skuli almennt útboð verðbréfa fara fram fyrir milligöngu verðbréfa- fyrirtækja og skuli það fyrirfram til- % 40 Jólakaffi Hringsins verður haldið að Brodway á morgun, 3. desember kl. 13.30 Dagskráin verður sem hér segir: Örn Árnason kemur og lætur Ijós sitt skína. Nemendur úr Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Jóhanna Guðrún syngur nokkur lög. Kór Lágafellssóknar og Bústaðakvartettinn syngja undir stjórn Jónasar Þóris. Feðgarnir Jónas Þórir Dagbjartsson og Jónas Þórisson leika Ijúfa tónlist í fiðlu og píanó. Glæsilegt happdrætti - girnilegt kaffihlaðborð Netfoíu^ % Babinnréttingar Vantar þig nýtt og betra baö fyrir jólin? Nú er lag, því vib bjóöum allt aö 25% afslátt af öllum gerbum. Þab munar um minna Friform HÁTÚNI6A (i húsn. Fönix) SlMI: 552 4420 r .... itttt Jóíatiíboð Leðursófasett - margir Ittír Sófasett 3+1+1 SófasetVS+2+i kr. 159.000,- stgr. kr. 179.000,-stgr. Opið laugardag 10 -16 og sunnudag 14-16 HUSGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKCJRVEGI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100 kynnt Verðbréfaþingi íslands auk þess sem tilteknar upplýsingar séu gefnar um útboðið. Samkvæmt b. lið 1. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 505/ 1993 um almennt útboð verðbréfa sé um slíkt útboð að ræða ef selja eigi fleiri en 25 kaupendum verðbréf. Það skilyrði sé hér uppfyllt. Hafi áfrýjandi (Burnham International á íslandi, innsk. höf.) vanrækt þessa skyldu og að gefa nauðsynlegustu upplýsingar um félagið, sem staðið hafi að almennri útgáfu verðbréfa, til þess að fjárfestar gætu metið áhættu sína. í slíkri útboðslýsingu skuli vera yfirlýsing stjórnenda félagsins um stöðu þess, sem einnig hafi verið lát- ið undir höfuð leggjast að gefa. í 4. mgr. 2. gr. laga nr. 13/1996 er al- mennt útboð skilgreint þannig að það sé sala samkynja verðbréfa, sem boðin eru almenningi til kaups, í fyrsta sinn með almennri og opin- berri auglýsingu eða kynningu með öðrum hætti, sem jafna má til opin- berrar auglýsingar, enda séu verð- bréf í sama flokki ekki skráð á skipu- legum verðbréfamarkaði. Fram er komið að átján hluthafar í áfrýjanda juku hlutafé sitt með kaupum á nýju hlutafé 1998 fyrir samtals rúmlega 102.000.000 krónur og að sextán bættust þá í hóp hluthafa með hluta- fjárkaupum fyrir samtals 10.100.000 krónur. Var hluthöfum boðið að skrá sig fyrir nýjum hlutum auk þess sem stjórnendur félagsins leituðu til manna utan hluthafahópsins og buðu þeim að kaupa. Voru kaup stefnda þannig til komin. Að þessu virtu verður ekki talið að um almennt út- boð hlutafjár í merkingu laga nr. 13/ 1996 hafi verið að ræða. Fær ákvæði b. liðar 1. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 505/1993 engu um það breytt. Sú reglugerð var sett með heimild í áð- urgildandi lögum um verðbréfavið- skipti og samrýmist ekki fyrr- greindu ákvæði í 4. mgr. 2. gr. laga nr. 13/1996.“ Sú niðurstaða Hæstaréttar að þau ákvæði reglugerðar nr. 505/1993 er ekki samrýmist ákvæðum laga nr. 13/1996 skuli víkja er í fullu sam- ræmi við dómvenju hér á landi og viðteknar kenningar um rétthæð réttarheimilda þ.e. að reglugerðar- ákvæði víld fyrir settum lögum í þrengri merkinu, ef ákvæðin eru ósamrýmanleg. Skilgreining á hugtakinu „al- mennt útboð“ var fyrst lögfest hér á landi við gildistöku laga um verð- bréfaviðskipti nr. 9/1993 en þar seg- ir að almennt útboð sé útboð sam- kynja verðbréfa sem boðin eru almenningi til kaups með almennri og opinberri auglýsingu eða kynn- ingu með öðrum hætti sem jafna má til opinberrar auglýsingar (leturbr. höf.). Ákvæðið er nú lítilsháttar breytt í 4. mgr. 2. gr. laga nr. 13/ 1996 en meginskilyrðin um almenna og opinbera auglýsingu hafa staðið óbreytt frá 1993. Skv. 20. gr. verðbréfaviðskipta- laganna nr. 13/1996 skal almenntút- boð verðbréfa tilkynnt til Verð- bréfaþings íslands tilteknum tíma fyrir upphaf sölu ásamt upplýsing- um um öll helsu einkenni útboðsins í samræmi við reglur sem stjórn Verðbréfaþingsins setur m.a. um gerð útboðsgagna. Stjórn Verð- bréfaþings íslands hf. hefur m.a. með vísan til þessa ákvæðis sett ít- arlegar reglur um gerð útboðs- gagna við almenn útboð. Ljóst er að útboð sem 25 aðilum eða fleiri er selt getur verið almennt eða „lokað“ og fer það að sjálfsögðu eftir því hvernig að útboðinu er stað- ið og þeim skilyrðum sem fram koma í 4. mgr. 2. gr.laga nr. 13/1996 undir flokkinn útboðið fellur. Sé því ekki beint til almennings með opinberri auglýsingu er það ekki almennt í skilningi verðbréfaviðskiptalaganna. Viðmiðin í 4. mgr. 2. gr. laga nr. 13/ 1996 eru ágætlega skýr og ættu ekki að skapa nein veruleg vandkvæði í framkvæmd. Hitt er svo annað mál að ekkert bannar útgáfu útboðslýs- inga/útboðsgagna þótt útboð sé ekki almennt í skilningi verðbréfavið- skiptalaganna og mætti jafnvel halda því fram að útgáfa slíkra upp- lýsinga geti oft á tíðum verið æskileg a.m.k. ef útboðið er ekki bundið við tiltölulega fámennan og þröngan hóp fagfjárfesta. Því ítarlegri upplýsing- ar því betra enda hlutafjárkaup áhættusöm fjárfesting eins og al- kunna er eða ætti að vera. í tilvitnaðri grein Helgu Hlínar Hákonardóttur segir að Hæstiréttur hafi numið úr gildi „þá áralöngu venju að skilgreina almennt útboð sem boð um kaup á verðbréfum sem beint er til fleiri en 25 aðila“. Ég fæ ekki séð að því hafi verið haldið fram í umræddu máli, hvorki fyrir héraðs- dómi né Hæstarétti, að réttarvenja þess efnis sem greinarhöfundur nefnir hafi stofnast. Til að Hæsti- réttur taki afstöðu til réttarheimild- ar af þessu tagi þarf að sjálfsögðu að bera hana fram og rökstyðja a.m.k. ef hún er ekki almennt þekkt og við- urkennd enda hlutverk aðila að vísa til þeirra réttarheimilda sem þeir styðja máli sitt við. Gagmýni á niðurstöður Hæsta- réttar þarf alltaf að vera málefnaleg og vel rökstudd. Sá dómur sem hér er gerður að umtalsefni virðist mér vel saminn og lögfræðilega traustur og engan veginn gefa tilefni til mik- illa upphlaupa og gífuryrða. Þá get ég ekki séð að dómurinn marki nein sérstök „tímamót í sögu hins unga ís- lenska verðbréfamarkaðar" nema ef hann yrði þess valdandi að þeir sem á þessum markaði starfa temji sér enn frekar hér eftir sem hingað til öguð og fagleg vinnubrögð, þegar meðferð réttarheimilda og önnur lögfræðileg viðfangsefni eru annars vegar. Slíkt hefði fyrirsjáanleg áhrif, til góðs. Höfundur er hæstaréttarlögmaður og dösent í viðskiptalögfræði við Há- skólann í Reykjavík.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.